Kraumslistinn 2010

Kraumslistinn - árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka í íslenskri plötuútgáfu sem þótt hafa framúrskarandi og spennandi á árinu - var kynntur þriðja árið í röð þann 22. desember 2011. Árni Matthíasson, formaður dómnefndar, tilkynnti niðurstöðu hennar um val verðlaunaplatnana sem líkt og síðustu tvö ár eru sex talsins. Afhendingin fór fram í kjallarými að Vonarstræti 4B þar sem Kraumur hefur aðsetur. Ólöf Arnalds og hljómsveitin Ég léku nokkur lög.

Kraumslistans 2010 - Verðlaunaplötur

  • Apparat Organ Quartet - Pólyfónía
  • Daníel Bjarnason - Processions
  • Ég - Lúxus upplifun
  • Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
  • Nolo - No-Lo-Fi
  • Ólöf Arnalds - Innundir skinni

————————————————————————–

Kraumslistinn - Úrvalslisti Kraumslistans 2010:

  • Agent Fresco - A Long Time Listening
  • Amiina - Puzzle
  • Apparat Organ Quartet - Pólyfónía
  • Daníel Bjarnason - Processions
  • Ég - Lúxus upplifun
  • Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
  • Kammerkór Suðurlands - Iepo Oneipo
  • Miri - Okkar
  • Momentum - Fixation, At Rest
  • Moses Hightower - Búum til börn
  • Nolo - No-Lo-Fi
  • Ólöf Arnalds - Innundir skinni
  • Prinspóló - Jukk
  • Retro Stefson - Kimbabwe
  • Samúel Jón Samúelsson Big Band - Helvítis Fokking Funk
  • Seabear - We Built a Fire
  • Sóley - Theater Island
  • Stafrænn Hákon - Sanitas
  • Valdimar - Valdimar
  • Quadruplos - Quadroplos

————————————————————————–

Markmið Kraumslistans er:

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

————————————————————————–

Kraumslistinn
Kraumslistanum (stundum kölluð Kraumsverðlaun) er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi - og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.

————————————————————————–

Verðlaun
Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum (100 stk hver plata árin 2008 og 2009) og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).