Kraumsverðlaunin kynnt til leiks

November 4, 2008

Metnaður og frumleiki í íslenskri plötugerð verðlaunaður með nýjum verðlaunum.

Kraumsverðlaunin eru ný plötuverðlaun, sett á fót í þeim tilgangi að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna – og verðlauna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna hefur nú hafið störf. Hún skipuð 15 aðilum sem hafa reynslu af að fjalla um og spila íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar, í dagblöðum, útvarpi og á netinu. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.

Kraumsverðlaunin snúast fyrst og fremst um þær plötur sem valdar eru og tilnefndar til verðlaunanna, frekar en eina einstaka verðlaunaplötu. Stefnt að því að tilkynna útnefningar síðar í nóvember.

Það er von aðstandenda verðlaunanna að þau verði liðsauki fyrir íslenska listamenn og íslenska plötuútgáfu, og veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem ár hvert er fest disk, vínyl og stafrænni útgáfu hér á landi. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðað við jólagjafaflóðið, þegar listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka.

Kraumsverðlaunin eru ekki bundin neinni ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Verðlaunin hafa ekkert aldurstakmark, en markmið þeirra er engu að síður að einbeita sér að verkum yngri kynslóðar íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita.

Markmið verðlaunana er;

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Hlekkir;
Nánar um tilurð og markmið Kraumsverðlaunanna

Plötulisti 2008 (ábendingar um viðbætur vel þegnar)