Kraumur hefur komið víða við frá því að sjóðurinn var stofnaður og starfsemin hófst í upphafi árs 2008.
Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, hafa verið veitt árlega frá árinu 2008. Afhending þeirra hefur oftast farið fram í kjallaranum að Vonarstræti 4B en líka á tónleikastöðum. Alls hafa 51 listamenn hlotið Kraumsverðlaunin og 186 hljómplötur hafa verið tilnefndar til verðlaunanna.
Á fyrstu vikum starfssemi sinnar ýtti Kraumur úr vör sérstöku átaki til að styðja listamenn til tónleikahalds innanlands, og gefa þeim færi á að koma tónlist sinni á framfæri um allt land.
Á árunum 2008-2014 stóð Kraumur fyrir umsóknarferlum þar sem listamenn og hljómsveitir gátu sótt um stuðning við tónlistarferil sinn og verkefni. Sjóðnum barst jafnan mikið magn umsókna, oftast vel yfir 200 í hverju umsóknarferl, en Kraumur hefur jafnframt haft frumkvæði að fjölmörgum verkefnum á eigin vegum og í samstarfi við listamenn.
Kraumur hefur á starfstíma sínum úthlutað hátt í 200 styrkjum til listamanna og ýmissa verkefna til stuðnings íslensks tónlistarlífs. Úthlutunarathafnir sjóðsins hafa að venju farið fram þar sem íslensk tónlist heyrist og lifir, m.a; æfingahúsnæðum hljómsveita á Hólmaslóð og Smiðjustíg, Kex, Grandrokk, Iðnó, Kaffi Rósenberg og Mengi.
Kraumur hefur, með stuðningi Auroru velgerðarsjóðs, varið alls 140 milljónum í starfsemi og styrki til stuðnings íslensku tónlistarlífi.
Haustið 2009 flutti Kraumur starfssemi sína í húsið að Vonarstræti 43, sem þá hafði staðið autt í rúm tvö ár, ásamt Hönnunarmiðstöð Íslands og Hönnunarsjóði Auroru. Þar stóð sjóðurinn m.a. fyrir námskeiðum, sýningum og tónleikum.
Þann 14. mars 2016 stóðu Kraumur og Hönnunarsjóður Auroru fyrir stefnumóti tónlistar og hönnunar í Hafnarhúsi Reykjavíkur, sem um leið var uppskeruhátið Kraums í tengslum við breytt hlutverk sjóðsins.
Húsfyllir var á viðburðinum, sem lýsa mætti sem götupartý með tónleikum, þar sem tónlistarmenn, hönnuðir og arkitektar mættust í pop-up borg framtíðarinnar. Aðgangur var ókeypis og öllum opinn.
Á tónleikasviði portsins léku hljómsveitirnar Retro Stefson, Sin Fang og Samaris sem allar hafa fengið Kraumsverðlaun fyrir verk sín. Einnig komu fram í ýmsum skúmaskotum rýmisins; Snorri Helgason, Bjartey og Gígja úr YLJU, Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn.