Mógil á WOMEX
Hljómsveitin Mógil og söngkonan Heiða Árnadóttir á WOMEX hátíðinni í Kaupmannahöfn.
Hljómsveitin Mógil lék á stærstu heims- og þjóðlagahátíð heims, WOMEX, sem fram fór í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Mógil kom fram á hátíðinni með stuðningi Kraums tónlistarsjóðs og í samstarfi við Kraum og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN / IMX) sem kom sveitinni að í dagskrá hátíðarinnar.
Tónleikarnir Mógil, sem fóru fram laugardaginn 31. október, tókust mjög vel og voru vel sóttir og hafa opnað fyrir bókanir á fleiri tónlistarhátíðir í ár. Hér fyrir ofan má sjá myndband frá tónleikunum.
Heiða Árnadóttir söngkona Mógil söng jafnframt eitt af lögum Mógil á opnunartónleikum WOMEX, svökölluðu “Nordic Nights” kvöldi. Tónleikunum var útvarpað beint á öllum Norðurlöndum og var Rás 2 með beina útsendingu hérlendis.
“WOMEX tónleikarnir í Kaupmannahöfn voru frábærir og okkur tókst vel upp á laugardagskvöldinu. Við í Mógil vorum mjög ánægð og fengum frábærar viðtökur. Þarna hittum við allskonar tónlistarmenn frá ýmsum heimshornum og mynduðum skemmtileg tengsl. Nú þegar höfum við verið pöntuð á tónlistarhátíðir í Hollandi, Ítalíu og Englandi fyrir næsta sumar. Fyrir okkur var þetta því einstakt tækifæri til þess að kynna tónlistina okkar í Mógil.” – Heiða Árnadóttir, Mógil
Vikuna fyrir tónleika sína á WOMEX hélt Mógíl nokkra tónleika í Hollandi og Belgíu til að hita upp fyrir tónleika sína á hátíðinni. Þeir tónleikar voru ekki aðeins góð upphitun heldur einnig kynning fyrir hljómsveitina og plötu hennar ‘Ró’ í þessum löndum.