Kraumslistinn 2010 – Sex verðlaunaplötur

December 23, 2010
Apparat Organ Quartet, Daníel Bjarnason, Ég, Jónas Sigurðsson, Nolo og Ólöf Arnalds eru á Kraumslistanum 2010 og hljóta plötuverðlaun Kraums.

Kraumslistinn – árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka í íslenskri plötuútgáfu sem þótt hafa framúrskarandi og spennandi á árinu – var kynntur þriðja árið í röð í dag, miðvikudaginn 22. desember. Árni Matthíasson, formaður dómnefndar, kynnti þar niðurstöðu dómnefnar um verðlaunaplöturnar, sem líkt og síðustu tvö ár eru sex talsins fyrir árið 2010. Auk þess léku þau Ólöf Arnalds og hljómsveitin Ég lög af plötum sínum sem báðar eru á Kraumslista ársins.


Kraumslistans 2010 – Eftirtalda plötur hljóta verðlaun

  • Apparat Organ Quartet – Pólyfónía
  • Daníel Bjarnason – Processions
  • Ég – Lúxus upplifun
  • Jónas Sigurðsson – Allt er eitthvað
  • Nolo – No-Lo-Fi
  • Ólöf Arnalds – Innundir skinni

Þeir titlar sem hljóta plötuverðlaun Kraums hljóta stuðning frá Kraumi í formi plötukaupa og kynningu á verðlaunaplötunum á erlendum vettvangi. Samtals hafa nú 60 hljómplötur verið tilnefndar til verðlaunanna og lent á úrvalslista Kraumslistans og 12 hljómplötur – frá flytjendum á borð við Hjaltalín, Huga Guðmundsson, Ísafold kammersveit, Agent Fresco og FM Belfast – komist á lokalista Kraumslistans árin 2008-2010.

Val dómnefndar Kraumslistans, bæði hvað varðar tilnefningar og verðlaunaplötur, kemur oft á óvart og þar leynast oft hljómplötur sem með valinu fá verðskuldaða athygli.

Óhætt að segja að árið í ár hafi verið öflugt hvað plötuútgáfu varðar, enda fjölmargir spennandi titlar sem ekki komast á úrvalslista Kraumslistans fyrir árið 2010.

Kraumslistinn – Úrvalslisti / Eftirtalda plötur eru tilnefndar til Kraumslistans 2010:

  • Agent Fresco – A Long Time Listening
  • Amiina – Puzzle
  • Apparat Organ Quartet – Pólyfónía
  • Daníel Bjarnason – Processions
  • Ég – Lúxus upplifun
  • Jónas Sigurðsson – Allt er eitthvað
  • Kammerkór Suðurlands – Iepo Oneipo
  • Miri – Okkar
  • Momentum – Fixation, At Rest
  • Moses Hightower – Búum til börn
  • Nolo – No-Lo-Fi
  • Ólöf Arnalds – Innundir skinni
  • Prinspóló – Jukk
  • Retro Stefson – Kimbabwe
  • Samúel Jón Samúelsson Big Band – Helvítis Fokking Funk
  • Seabear – We Built a Fire
  • Sóley – Theater Island
  • Stafrænn Hákon – Sanitas
  • Valdimar – Valdimar
  • Quadruplos – Quadroplos


Markmið Kraumslistans er:

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Kraumslistinn
Kraumslistanum (stundum kölluð Kraumsverðlaun) er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna – með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.


Verðlaun

Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum (100 stk hver plata árin 2008 og 2009) og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).


KRAUMSLISTINN 2008

  • Agent Fresco – Lightbulp Universe)
  • FM Belfast – How to Make Friends
  • Hugi Guðmundsson – Apocrypha
  • Ísafold kammersveit – All Sounds to Silence Come
  • Mammút – Karkari
  • Retro Stefson – Montana

*20 platna úrvalslisti ársins má finna hér: http://kraumur.is/kraumslistinn/kraumslistinn-2008/

KRAUMSLISTINN 2009

  • Anna Guðný Guðmundsdóttir – Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
  • Bloodgroup – Dry Land
  • Helgi Hrafn Jónssonon – For the Rest of My Childhood
  • Hildur Guðnadóttir – Without Sinking
  • Hjaltalín – Terminal
  • Morðingjarnir – Flóttinn mikli

*20 platna úrvalslisti ársins má finna hér: http://kraumur.is/kraumslistinn/kraumslistinn-2009/