Umsóknarferli fyrir árið 2011

January 5, 2011

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2011

Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað árið 2011.

Um er að ræða fyrra umsóknarferlið af tveimur á komandi starfsári Kraums. Næst verður auglýst eftir umsóknum í vor.

Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir viðburði, námskeið og fræðsluverkefni.

Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins og ráð til umsækjenda hér að neðan.

Opnað verður fyrir umsóknarferlið þann 6. janúar.

Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð, en allar umsóknir skulu innihalda;

  • Yfirlit yfir verkefnið
  • Upplýsingar um markmið þess
  • Fjárhagsáætlun og upphæð sem sótt er um
  • Æskileg fylgigögn; tónlist á CD og ferilskrá (CV)

*Fjárhagsáætlun skal innihalda yfirlit yfir alla þekkta innkomuliði og útgjöld, og útlistun hvernig stuðningur Kraums getur nýst. Vinsamlegast takið fram ef sótt er um styrki í aðra sjóði eða verkefnið nýtur stuðnings annarstaðar frá.

  • Mælst er til þess að umsóknir séu ekki lengri en 2 síður, auk fjárhagsáætlunar og fylgigögnum
  • Umsóknum skal skila bréfleiðis.
  • Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau þau ráð sem gefin eru umsækjendum hér að neðan.

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2011.
(Póststimpill gildir, og því hægt að setja í póst þriðjudaginn 1. febrúar)

Framkvæmdastjóri Kraums veitir fúslega upplýsingar um umsóknarferlið – og er umsækjendum til reiðu er varðar ráðgjöf við að skila inn umsókn. Skoðið einnig ráð til umsækjenda hér að neðan.

Skil á umsóknum
Umsóknir skulu sendar:
Kraumur tónlistarsjóður
PO Box 124
121 Reykjavík

Frekari upplýsingar veitir
Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums
S: 869 8179 / eldar[a]kraumur.is

————————————————————————————

Ráð til umsækjenda

  • Miklu máli skiptir að umsækjendur geti skilgreint markmið verkefnisins vel, t.d. hvernig það þjónar viðkomandi listamanni/hljómsveit við að koma verkum sínum á framfæri eða með öðrum hætti.
  • Mikilvæg er að fjárhagsáætlun sé raunhæf og skýr. Tilgreina skal þá upphæð sem sótt er um.
  • Kjósi listamaður/hljómsveit að sækja um fleiri en eitt verkefni, skal aðgreina umsóknirnar vel og skila inn sérstakri umsókn fyrir hvert verkefni.
  • Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau verkefni sem Kraumur hefur stutt og unnið með árin 2008, 2009 og 2010.
  • Undanfarin ár hefur Kraumur stutt listamenn/hljómsveitir við plötugerð, en það skal sérstaklega tekið fram að í ár mun sjóðurinn líta frekar til þess að styðja listamenn/hljómsveitir við að koma verkum sínum á framfæri (t.d. áður útgefnum plötur), frekar en við upptökur á nýjum verkum.
  • Kraumur vill styðja og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.
  • Í vali á verkefnum sem hljóta stuðnings er sérstaklega litið til þess að þau komi viðkomandi listamanni/hljómsveit lengra í ferli sínum og/eða við að koma tónlist sinni á framfæri.

————————————————————————————