Ráðstefna og námskeið á Aldrei fór ég suður
Kraumur og Aldrei fór ég suður standa fyrir tónlistarráðstefnu og fræðslunámskeiði á rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði um páskana. Opin öllum og engin aðgangseyrir.
Þriðja árið í röð stendur Kraumur tónlistarsjóður, í samvinnu við aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður ,fyrir ráðstefnu og fræðunámskeiði á Ísafirði um páskana, 21.-23. apríl. Undanfarin tvö ár hefur verið farið um víðan völl á ráðstefnunum þar sem m.a. hefur verið komið inn á réttindi tónlistarmanna, tekjuleiðir og aðgengi almennings að tónlist á netinu.
Líkt og undanfarin ár munu hljómsveiti og listamenn sem koma fram á hátíðinni taka þátt í námskeiðinu. Meðal þeirra listamanna sem koma fram á hátíðinni í ár eru;
- Bjartmar Guðlaugsson og Bergrisarnir
- Ensími
- FM Belfast
- Grafík
- Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar
- Klassart
- Nýdönsk
- Páll Óskar
- Pétur Ben
- Prinspóló
- Valdimar
- … og fleiri
Frítt er inn á ráðstefnuna, og hún er öllum opin. Boðið upp á kaffi og með því. Sömuleiðis er ókeypis á hátíðina eins og undanfarin ár.
Tónlistarráðstefnur Kraums á Aldrei fór ég suður:
- Ég stend á skýi (2010)
- Hvar er draumurinn? (2009)
Tenglar
Heimasíða Aldrei fór ég Suður
Tónlistarráðstefna og námskeið Kraums á Aldrei fór ég suður