Hjaltalín í fagnaðarferðalag um allt land
Hljómsveitin Hjaltalín mun á næstu dögum og vikum leika á tónleikum í Reykjavík og víða á landsbyggðinni í tilefni af útgáfu sinnar annarar breiðskífu; Terminal.
Hljómsveitin Hjaltalín hefur ærlegt fagnaðarferðlag sitt um landið með tónleikum á Blönduósi fimmtudaginn 19. nóvember. Með í för eru Snorri Helgason og Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar sem eru að gefa út sínar fyrstu plötur; I’m Gonna Put My Name on Your Door og Á Ljúflingshól.
Hjaltalín hefur leikið á um eitt hundrað tónleikum síðastliðið ár, uaðallega á erlendri grundu. Tónleikar hljómssveitarinnar hérlendis á árinu eru teljandi á fingrum annarrar handar og hefur hún aldrei farið í tónleikaferð um Ísland. Því verður þessi tónleikaferð ekki eingöngu kjörið tækifæri fyrir fólk á landsbyggðinni til að upplifa tónleika Hjaltalín heldur er hér einnig á ferð langþráður draumur meðlima sveitarinnar til að sanna sig utan höfuðborgarsvæðisins og er tilhlökkunin mikil meðal hópsins.
Tónleikarnir eru sem hér segir:
- 19. nóv Blönduós – Félagsheimilið (Forsala: Potturinn og pannan)
- 20. nóv Húsavík – Gamli Baukur (Forsala: Gamli baukur)
- 21. nóv Egilsstaðir – Sláturhúsið (Forsala: Menningarsetrið Egilsstöðum)
- 22. nóv Höfn – Pakkhúsið (Forsala: Menningarmiðstöð Hornafjarðar)
- 24. nóv Keflavík – Frumleikhúsið (Forsala: Tónlistarskóli Reykjanesbæjar)
- 26. nóv Sauðárkrókur – Mælifell (Forsala: Ólafshús)
- 27. nóv Dalvík – Menningarmiðstöðin (Forsala: Kaffihús Menningarmiðst.)
- 28. nóv Akureyri – Græni hatturinn (Forsala: Eymundsson)
- 29. nóv Borgarnes – Landnámssetrið (Forsala: Landnámssetrið)
Kraumur tónlistarsjóður vinnur með og styður Hjaltalín til afreka innanlands sem utan á árinu, þar með talið tónleikahald sveitarinnar og gerð breiðskífunnar Terminal.
Kraumur er samstarfs- og styrktaraðili tónleikaferðarinnar um landið ásamt Rás 2. Tónleikarnir eru liðir í Innrásinni – átakst Kraums til stuðnings tónleikahalds innanlands.