Innrásin

Innrásin er átak sem Kraumur setti á laggirnar í apríl 2008 til þess er að styðja hljómsveitir og tónlistarmenn við tónleikhald innanlands.

Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

Hugmyndin á bakvið Innrásina á sér meðal annars rætur í því að stundum hefur reynst auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að fá stuðning til að spila erlendis, frekar en hérlendis.  Stuðningur miðast oftan en ekki við útrásarverkefni eingöngu.

Með Innrásinni er ætlunin að styðja listamennina beint og auðvelda þeim tónleikhald innanlands með fjárhagslegum styrk, ferða- og græjustuðning. Jafnframt er stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi.

Rás 2 hefur verið sérlegur samstarfsaðili Kraums við Innrásina, og stutt við átakið með því að kynna og auglýsa þá tónleika sem farið hafa fram á landsbyggðinni í ár.

Frekari upplýsingar:

Hljómsveitir og listamenn

Meðal þeirra hljómsveita og listamanna sem studdir hafa verið til tónleikahalds eru;

  • Amiina
  • Árstíðir
  • Benni Hemm Hemm
  • Benny Crespo’s Gang
  • Bloodgroup
  • Borko
  • Bróðir Svartúlfs
  • Celestine
  • Dr. Spock
  • Elfa Rún Kristinsdóttir
  • Elín Ey
  • Elíza Geirsdóttir Newman
  • Fabúla
  • FM Belfast
  • Helgi Valur
  • Hjaltalín
  • Kammersveitin Carmina
  • K-tríó
  • Ljósvaki
  • Melkorka Ólafsdóttir
  • Miri
  • Momentum
  • Morðingjarnir
  • Mógil
  • Myrra
  • Mysterious Marta
  • Njútón
  • Nögl
  • Pascal Pinon
  • Reykjavík!
  • Sign
  • Skátar
  • Skakkamanage
  • Svavar Knútur
  • Sykur
  • Swords of Chaos
  • Trúbatrix
  • The Vintage
  • Þórunn Antónía
    … og fjöldi annara listamanna og hljómsveita.