Kraumur auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2010

December 10, 2009

Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað á næsta ári.

Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir verkefnastjóra og viðburði.  Opnað verður fyrir umsóknarferlið á degi Íslenskrar tónlistar, föstudaginn 11. desember og því lýkur 20. janúar á næsta ári.

Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð, en allar umsóknir skulu innihalda;

  • Yfirlit yfir verkefnið
  • Markmið þess
  • Fjárhagsáætlun.

– Mælst er til þess að umsóknir séu ekki lengri en 2 síður.
– Umsóknum má skila með tölvupósti eða bréfleiðis.
– Væntanlegum umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins hér, sem og þau verkefni sem Kraumur hefur stutt og unnið með árin 2008 og 2009.

Umsóknarfrestur er til 20. janúar.

Framkvæmdastjóri Kraums veitir fúslega upplýsingar um umsóknarferlið – og er umsækjendum til reiðu er varðar ráðgjöf við að skila inn umsókn.

Skil á umsóknum
Umsóknir skulu sendar:
Kraumur tónlsitarsjóður
PO Box 124
121 Reykjavík

Frekari upplýsingar veitir
Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums
S: 869 8179 / eldar[a]kraumur.is