Samþykktir

Skipulagsskrá fyrir Kraum tónlistarsjóð.

1.0. Heiti sjóðsins:

1.1. Sjóðurinn heitir Kraumur  tónlistarsjóður. Er hann sjálfstæður sjóður sem er stofnaður af sjálfseignarstofnuninni Auroru velgerðasjóður, kt. 580607-0200. Starfsemi Kraums á undir lög nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

2.0. Heimili og varnarþing:

2.1. Heimili og varnarþing Kraums - tónlistarsjóðs er að Kjalarvogi 7-15, Reykjavík, en stjórn hans getur ákveðið breytt heimilisfang sjóðsins í samræmi við lið 6.1. í skipulagsskrá þessari, ef það þjónar betur starfsemi hans.

3.0. Stofnandi, stofnfé, önnur framlög og samstarfsaðilar:

3.1. Stofnandi Kraums - tónlistarsjóðs er sjálfseignastofnunin Aurora velgerðasjóður og er stofnfé sjóðsins veitt úr Aurora - velgerðasjóði. Kraumur er með sjálfstæðan fjárhag og sérstaka stjórn, eins og nánar verður vikið að síðar í samþykktum þessum.

3.2. Stofnfé Kraums eru kr. 800.000,- áttahundruðþúsundkrónur 00/100

3.3. Skal árlega úthlutað styrkjum úr sjóðnum, innan þeirra marka sem ákvæði 3.5. í stofnskrá þessari og tilgangur sjóðsins setja. Úthlutun úr Kraumi til styrkþega er þó ekki bundin við sömu fjárhæðir árlega, heldur getur stjórn sjóðsins haft sveigjanleika á ráðstöfun fjárins milli ára.

3.4. Stofnféð skal ávaxtað samkvæmt ákvörðun stjórnar Kraums, þar til því er ráðstafað skv. samþykktri fjárhagsáætlun stjórnar.

3.5. Ávöxtun stofnfjár, ásamt öðrum framlögum og styrkjum sem Kraumi kunna að áskotnast frá öðrum aðilum verður notað í samræmi við tilgang Kraums eins og hann birtist í 4. gr. samþykktanna.

3.6. Kraumur ber ábyrgð á skuldbindingum sínum með öllum eignum sínum og öðrum eignum er hann kann að eignast síðar. Engin sérréttindi fylgja eða tilheyra stofnanda Kraums.

3.7. Ráðstöfunartekjur Kraums er árlegt fjárframlag Auroru til Kraums, auk vaxtatekna og annars arðs af stofnfé, og annað fé sem Kraumi kann að áskotnast. Kraumur - tónlistarsjóður veitir viðtöku hvers konar gjöfum og framlögum frá einstaklingum, fyrirtækjum og félögum. Nöfn þeirra sem styrkja Kraum skulu færð í sérstaka nafnaskrá sem er í vörslu stjórnar hennar. Við ráðstöfun tekna Kraums í formi fjárframlaga skal gæta þeirra markmiða sem fram koma í 4. gr.

3.8. Kraumur skal hafa sjálfstæðan fjárhag og skal stjórn hans sjá til þess að bókhald sé fært reglulega, en Aurora skal sjá um endurskoðun þess. Starfsár og reikningsár Kraums er almanaksárið.

4.0. Tilgangur sjóðsins:

4.1. Megintilgangur Kraums er að stuðla að og styrkja íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga tónlistarmenn úr öllum tónlistargeirum og auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni. Jafnframt er markmið Kraums að miðla þekkingu á þessu sviði, með námskeiðshaldi, ráðgjöf o.fl.

4.2. Starfsemi Kraums miðar við að styðja við bæði listsköpun og listferil þeirra listamanna sem unnið er með.

4.3. Kraumur og starfsemi hans er verkefni með skilgreindan fjárhag frá ári til árs skv. ákvörðun stjórnar Auroru.

4.4. Áformað er að starfsemin skiptist aðallega í tvennt:

a) Meginhluti starfseminnar skal snúa að því að styðja við og vinna með völdum listamönnum/hljómsveitum í samræmi við ofangreind markmið.

b) Einnig skal unnið að stuðningi við íslenskt tónlistarlíf og tónlistarmenn með öðrum hætti s.s með miðlun þekkingar gegnum fyrirlestra, námskeið, vinnusmiðjur o.s.frv., í einhverjum tilvikum í skilgreindu samstarfi, m.a. með þjónustusamningum, við ýmsa aðra aðila í tónlistargeiranum.

Unnið skal með listamönnum á verkefnagrundvelli á skilgreindum tímabilum eftir eðli hvers verkefnis. Verkefni skulu hafa skilgreint upphaf og endi. Haldið skal utan um listamennina með skilgreindum stuðningi og eftirliti yfir allt verktímabilið.

Hvert verkefni skal skilgreint í samningi sem framkvæmdastjóri útfærir í samstarfi við stjórn sjóðsins og fylgir síðan eftir. Ef veigamiklar breytingar verða á þróun verkefnis skal framkvæmdastjóri kynna breytta stöðu fyrir stjórn. Þess skal gætt að breytingar á verkefni verði ekki slíkar að verkefnið sem slíkt sé komið út fyrir markmið sjóðsins. Hver samningur skal sérsniðinn að viðkomandi listamanni og því verkefni sem hann tengist.

4.5. Stjórn og framkvæmdastjóri skulu móta reglur um nánara skipulag og starfsemi Kraums. Stjórn tekur ákvörðun um allar úthlutanir úr sjóðnum og aðrar styrkveitingar, skv. tillögum framkvæmdastjóra, allt eftir eðli verkefna og áætlunum um framvindu þeirra.

4.6. Fjárhagslegur stuðningur skal veittur til ákveðinna skilgreindra verkþátta samkv. fyrirfram samþykktri og sundurliðaðri fjárhagsáætlun. Verkefnasamningar skulu ávallt uppsegjanlegir af beggja hálfu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sem framkvæmdastjóri leggur fyrir stjórn.

4.7. Listamenn og listahópar sem unnið er með skulu tilnefndir og valdir af framkvæmdarstjóra, sem leggur fyrir stjórn áætlun um verkefni og listamenn á a.m.k. sex mánaða fresti. Stjórn getur aðeins hafnað listamönnum ef allir stjórnarmenn mæla gegn samningi við viðkomandi. Stjórnarmenn geta komið með skriflegar tillögur til framkvæmdastjóra um listamenn sem þeir telja vænlegt að vinna með, en listamenn skulu valdir bæði eftir umsóknum og beint af framkvæmdastjóra. Stjórnarmenn skulu ekki eiga í viðræðum við einstaka listamenn um samstarf á vegum Kraums, heldur beina öllum slíkum erindum beint til framkvæmdastjóra.

5.0. Stjórn og framkvæmdastjóri:

5.1. Stjórn Kraums - tónlistarsjóðs skal skipuð þremur einstaklingum. Kjörtímabil stjórnar er þrjú ár. Formaður stjórnar skal skipaður af sjórn stofnanda, en hinir stjórnarmennirnir skv. tilnefningu formanns með samþykki stjórnar stofnanda. Stjórn þiggur laun fyrir fundarsetu skv. ákvörðun stjórnar stofnanda á hverjum tíma. Stjórnarfundir skulu haldnir ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði, að jafnaði. Stjórnin sjóðsins skal gera grein fyrir störfum sínum gagnvart stjórn stofnanda og skal formaður skila skriflegri skýrslu um starfsemina á a.m.k. sex mán fresti, og síðan sérstaka ársskýrslu í lok hvers almanaksárs. Skal sú skýrsla kynnt á sameiginlegum fundi stjórnar Kraums og fulltrúa stjórnar Aurora, svokölluðum ársfundi, sjá nánar síðar.

Stjórnarmenn geta gengið úr stjórn án fyrirvara og stjórn Aurora getur einnig skipt um stjórnarmenn með 2ja mánaða fyrirvara. Meirihluti atkvæða ræður úrslitum í stjórn Kraums. Undirskrift meirihluta stjórnar skuldbindur sjóðinn.

5.2. Stjórn Kraums getur valið sér 5-8 manna faghóp sér til ráðuneytis sem hittast skal a.m.k. einu sinni á ári.

5.3. Stjórn ræður framkvæmdastjóra fyrir sjóðinn og semur um launakjör við hann og veitir honum prókúru. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á gerð tillagna að styrkþegum sjóðsins og samningum við listamenn. Hann hefur umsjón með daglegum rekstri, þ.m.t. húsnæði sjóðsins, gerir fjárhagsáætlanir sem hann kynnir stjórn, sem og reikningsuppgjör sjóðsins á 3ja mánaða fresti. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á samstarfi og eftirliti með framvindu allra samningsbundinna verkefna.

5.4. Verkefni framkvæmdastjóra er einnig að halda utan um samstarf við ýmsa samstarfsaðila úr tónlistarlífinu, sem vinna að hliðstæðum markmiðum og sem stjórn hefur samþykkt. Fyrirfram skilgreind þjónusta og ráðgjöf skal sótt út fyrir veggi sjóðsins, t.a.m. á sviði upptöku, kynningar- og markaðsmála, tónleikhalds o.s.frv. Framkvæmdarstjóri ber ábyrgð á og tekur ákvarðanir um aðkeypta þjónustu og annað samstarf, en þarf að bera slíkt undir stjórn. Samningar  og fjárhagsútgjöld undir ákveðinni upphæð þarf ekki að bera undir stjórn, enda skulu slík útgjöld innifalin í samþykktri fjárhagsáætlun. Hann er jafnframt listamönnum til halds og trausts með ýmis mál.

5.5. Framkvæmdastjóri skal ráðinn til 3ja ára, en þó með 3ja mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Vinnutími hans og starfshlutfall skal skilgreint í ráðningarsamningi við stjórn. Launakjör og vinnutímaviðmið skal endurskoðað eftir fyrsta árið.

5.6. Stjórnin og framkvæmdastjóri skulu vinna að markmiðum Kraums sem fram koma í 4. gr. og skulu gæta þess eftir fremsta megni að kostnaður af starfseminni sé hóflegur og í samræmi við rekstraráætlanir. Óheimilt er að binda eignir Kraums skuldbindingum sem óviðkomandi eru tilgangi hans. Formaður boðar til stjórnarfunda, en jafnframt skulu fundir haldnir ef einhver stjórnarmanna óskar þess eða framkvæmdastjóri. Í því tilviki skal stjórnarfundur haldinn innan 2ja vikna frá því að ósk um fund kemur fram. Stjórnarfundir skulu skráðir í gerðarbók. Stjórnin skal setja sér starfsreglur um störf sín og hvernig hún hyggst vinna samkvæmt markmiðum 4. gr. Mikilvægar ákvarðanir má ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi haft tök á að fjalla um málið sé þess nokkur kostur. Reglur stjórnsýsluréttar um sérstakt hæfi skulu gilda um stjórnarmenn við afgreiðslu mála.

5.7. Ársfundur Kraums-tónlistarsjóðs skal haldinn ár hvert í mars eða apríl vegna undangengis starfsárs. Verkefni ársfundar er að greina frá starfsemi stofnunarinnar og samþykkja ársreikning Kraums fyrir undanfarið almanksár, auk þess sem stofnandi staðfestir áframhaldandi tilnefningu sína á stjórnarmönnum. Aukaársfundir skulu haldnir þegar stofnandi Kraums óskar eða meirihluti stjórnar. Ef taka á til meðferðar á ársfundi eða aukaársfundi tillögu til breytinga á samþykktum þessum skal meginefni tillögunnar fylgja fundarboði. Stjórn Auroru fer ein með ákvörðunarvald á ársfundum Kraums, en stjórnarmenn sjóðsins og framkvæmdastjóri hafa bæði tillögurétt og málfrelsi á þeim.

5.8. Stjórn Kraums skal sjá um að haldið sé ítarlegt bókhald um starfsemi hans og skila ársreikningi á ársfundi, endurskoðuðum af löggiltum endurskoðanda. Stofnandi velur endurskoðanda sjóðsins. Stjórn Kraums skal gera fjárhagsáætlun fyrir hvert starfsár. Stjórnin skal fylgjast grannt með fjárhag sjóðsins, einkum með því að tekjur Kraums standi undir kostnaði og skuldbindingum.

5.9. Hver sem er, einstaklingur og lögpersónur, getur gerst hollvinur Kraums að fengnu samþykki stjórnar sjóðsins og samkvæmt nánari reglum sem stjórnin setur. Hollvinir skulu hafa rétt til setu á ársfundum Kraums með málfrelsi og tillögurétti, nema stjórn Kraums taki ákvörðun um annað.

6.0. Gildistími og lok starfsemi:

6.1. Tillögur að breytingum á skipulagsskrá þessari skal legga fyrir aðalfund eða aukafund þar sem breytingarnar skulu kynntar og afstaða tekin til þeirra og greidd um þær atkvæði. Tillögur um breytingar á skipulagsskránni skulu berast stjórn með nægilegum fyrirvara svo unnt sé að geta slíkrar tillögu í fundarboði. Til að breytingar á skipulagsskránni geti öðlast gildi þurfa 2/3 stjórnarmanna stofnunarinnar að samþykkja þær.

6.2. Tillögur um að fella niður skipulagsskrá stofnunarinnar og leggja hana niður skal farið með sama hætti og breytingar. Þegar starfi Kraums lýkur skal stjórn hennar gera upp skuldir og eignir og slíta rekstri hans, ef einhver er. Skulu eftirstandandi eignir, ef einhverjar eru, renna aftur til stofnanda, en þá sérgreindar og aðeins til ráðstöfunar innan markmiða 4. gr. samþykkta þessara.

6.3. Samþykktir þessar eru undirritaðar, samþykktar og staðfestar af stjórn Auroru, en Kraumur sem er sjálfstæður sjóður starfar að hluta til undir merkjum Auroru, og þar með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir, sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988.

6.4. Leita skal staðfestingar Sýslumannsins á Sauðárkróki á skipulagsskrá þessari. Sé skipulagsskrá breytt eða sé samþykkt að hún sé lögð niður skal leita samþykkis Sýslumannsins á Sauðárkróki.

Reykjavík, 20. desember 2007.