Mikill fjöldi umsókna barst í umsóknarferli Kraums

February 20, 2012

Alls bárust 189 umsóknir í nýliðið umsóknarferli Kraums tónlistarsjóðs. Flokkun umsókna er hafin og greinlegt er að það eru mörg frábær verkefni sem bíða yfirferðar.

Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð en allar umsóknir skulu innihalda yfirlit yfir verkefnið, upplýsingar um markmið þess og fjárhagsáætlun. Auk þess var mælst til þess að hljómsveitir og listamenn skiluðu inn ferilskrá og tónlist.

Umsóknirnar í ár eru jafn margvíslegar og þær eru margar. Verkefnin sem bíða hljómsveita, listamanna og viðburðastjórnenda sem sækja um stuðning og samstarf eru verulega spennandi og það er greinilega hugur í fólki. Flestar eru umsóknirnar sem snúa að tónleikahaldi, til kynningar á verkum listafólks, til viðburða- og námskeiðshalds, til lagasmíða og/eða plötugerðar auk ýmissa annarra verka sem hafa með kynningu og eflingu á íslenskri tónlist að gera.

Kraumur tónlistarsjóður var stofnaður í byrjun árs 2008 af Aurora velgerðarsjóði. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn til að auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmið Kraums er að styrkja stöðu tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, aðstoð, ráðgjöf og samstarfi af ýmsu tagi. Kraumur vill jafnframt styðja við og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.

Árið 2011 úthlutaði Kraumur tónlistarsjóður í tvígang og voru 21 verkefni styrkt af sjóðnum. Frá því Kraumur hóf starfsemi sína hafa yfir eitthundrað listamenn og hljómsveitir hlotið stuðning frá sjóðnum, þar á meðal eru Anna Þorvaldsdóttir, adhd, Bang Gang, Bloodgroup, Celestine, Daníel Bjarnason, Dikta, Elfa Rún Kristinsdóttir, Hjaltalín, Lay Low, Melkorka Ólafsdóttir, Mugison, Nordic Affect, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, Sólstafir, Seabear, Trúbatrix hópurinn og Víkingur Heiðar Ólafsson. Kraumur hefur einnig haldið úti samstarfsverkefnum með Músíktilraunum Tónabæjar, Listahátíð í Reykjavík, Aldrei fór ég suður, ÚTÓN og fleiri aðilum.

Auk beins stuðnings við einstaka listamenn/hljómsveitir og verkefni þeirra á sviði plötuútgáfu, tónleikahalds og kynningar á sér og verkum sínum innanlands sem utan hefur Kraumur hrundið af stað og starfrækt eigin verkefni til breiðari stuðnings í tónlistarlífinu. Má þar m.a.nefna Innrásina til stuðnings tónleikhaldi innanlands, Kraumslistann sem verðlaunar og styður við bakið á íslenskri plötuútgáfu og verðlaunar þá titla sem þykja skara fram úr í frumleika og metnaði á ári hverju. Auk þessi hefur Kraumur í samstarfi við Músíktilraunir starfrækt Hljóðverkssmiðjur þar sem ungum og upprennandi listamönnum og hljómsveitum gefst kostur á að fá ráðgjöf og vinna nýtt efni undir leiðsögn hjá reyndari tónlistamönnum.

Ljóst er að Kraumur mun aðeins styðja við hluta þeirra verkefna sem sótt var um stuðning fyrir í nýliðnu umsóknarferli enda yfirlýst stefna sjóðsins að styrkja fá verkefni/listamenn en gera það afgerandi. Tilkynnt verður hverjir hljóta styrki úr Kraumi tónlistarsjóði 14. mars.