Cyber, GlerAkur, Hafdís Bjarnadóttir, JFDR, SiGRÚN og Sólveig Matthildur hljóta Kraumsverðlaunin 2017

December 12, 2017

211B9841

Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs sem starfræktur er á vegum Auroru veglerðarstjóðs, voru afhent í tíunda sinn í dag á Bryggjunni, einum helsta tónleikastað Reykjavíkurborgar. Sex hljómsveitir og listamenn hlutu Kraumsverðlaunin í ár.
Kraumsverðlaunin 2017 hljóta:
  • Cyber fyrir Horror
  • GlerAkur fyrir The Mountains Are Beautiful Now
  • Hafdís Bjarnadóttir fyrir Já
  • JFDR fyrir Brazil
  • SiGRÚN fyrir Smitari
  • Sólveig Matthildur fyrir Unexplained miseries & the acceptance of sorrow
Kraumsverðlaunin voru fyrst veitt árið 2008 og síðan hafa rúmlega fimmtíu listamenn og hljómsveitir hlotið verðlaunin. Sjá má lista yfir verðlaunahafa síðustu ára hér.
Greinilegt er að mikil gróska er í íslensku tónlistarlífi hvað útgáfurstarfsemi varðar, enda fór dómnefnd verðlaunanna yfir 374 útgáfur í vinnu sinni og vali á Kraumsverðlaunum 2017.
Fjölbreytni einkennir verðlaunaplöturnar í ár sem koma úr geirum hip hop og rapps, rokk, popp, raf- og tilraunatónlistar. Enda Kraumsverðlaunin ekki bundin ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Athygli verkur að meðal verðlaunahafanna í ár eru fjórir kvennkyns sóló listamenn og ein hljómsveit eingöngu skipuð konum.
Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við útgáfustarfsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðummetnaði og frumleika.
Allar íslenskar plötur sem komu út á árinu eiga möguleika á að hljóta Kraumsverðlaunin. Bæði plötur sem eru gefnar út á geisladisk og vínyl, sem og útgáfur á Spotify og netinu. Útgáfustarfsemi á Spotify og netinu hefur færst mikið í vöxt síðustu ár og er stór hluti þeirra verka sem íslenskir listamenn og hljómsveitir hafa gefið út í ár eru aðeins fáanleg með þeim hætti.

Fyrri verðlaunahafar: Hjaltalín, Retro Stefson, Hildur Guðnadóttir, Ásgeir, Mammút, Anna Þorvaldsdóttir, Daníel Bjarnason, Cell 7, Sóley, Lay Low, Amiina, ADHD, Ojba Rasta, FM Belfast, Hugi Guðmundsson, Agent Fresco, Samaris, GKR, Misþyrming, Moses Hightower, Grísalappalísa, Helgi Hrafn Jónsson, Gyða Valtýsdóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Andreas Kristinsson, Alvia Islandia, Kælan mikla, Sin Fang, Ísafold kammersveit, Ólöf Arnalds og fjölmargir fleiri.

Dómnefnd: Kraumslistinn og Kraumsverðlaunin eru valin af fjórtán manna dómnefnd sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum, á vegum Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (IMX) og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Berglind Sunna Stefánsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Tanya Pollock, Trausti Júlíusson og Óli Dóri.
Kraumur og Aurora velgerðarsjóður: Aðstandandi Kraumslistans og Kraumsverðlaunanna er tónlistarsjóðurinn Kraumur sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðasjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.PS Á myndinni má sjá Jóhann Gunnar Matthildar, litla bróðir Sólveig Matthildar sem ekki gat veitt verðlaunumum viðtöku þar sem hún var erlendis. Einnig voru Jófríður Ákadóttir (JDFR) og Sigrún vant viðlátnar og sendu sína fulltrúa til að taka á móti verðlaununum.