Archive for the ‘Innrás’ Category

Innrásin 2011 - Partíþokan svífur af stað

Wednesday, October 19th, 2011

PARTÍÞOKAN verður á Græna Hattinum Akureyri laugardaginn 22. október

FM BELFAST, PRINSPÓLÓ, SIN FANG og BORKO

Það er nokkuð ljóst að sumarið er búið, haustið er að renna sitt skeið og veturinn að taka yfir kaldur og blautur. Það þýðir samt ekkert að stara í myrkrið eins og blindur kettlingur því það er spáð Partíþoku víða um land.

Partíþokan byrjar á Akureyri laugardaginn 22. október, nánar tiltekið Græna Hattinum, þar sem hljómsveitirnar FM Belfast, Prinspóló, Sin Fang og Borko munu skemmta með tónleikahaldi og uppistandi.

Aðrir viðkomustaðir Partíþokunnar verða kynntir síðar svo það borgar sig að fylgjast með fréttum af veðri og færð. Það verður sumsé þokalega góð stemming á Græna hattinum á laugardaginn, þokuljós og þokulúðrar, en munið bara að ganga hægt um gleðinnar dyr. Forsala miða er í Eymundsson Hafnarstræti og það borgar sig að tryggja sér miða í tíma því það leynist ýmislegt í þokunni.

Hér má hlusta á lagið Partíþokan í flutningi Prinspóló og FM Belfast: Partíþokan

Textinn við lagið er hér: Partíþokan texti

Það er Kraumur tónlistarsjóður, Rás 2 og Bílaleiga Akureyrar sem styðja við Partíþokuna.

Sjáumst í þokunni!

Elskumst í efnahagsrústunum lýkur í Reykjavík

Tuesday, October 14th, 2008

lskumst í efnahagsrústunum - Tónleikaferð Skáta og Bloodgroup um landið - sem hófst á Egilstöðum þann 8. október, lýkur í höfuðborginni nú tíu dögum síðar. Báðar sveitirn koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni í kvöld og síðan eru tónleikar & lokapartý á á Live Pub, Frakkastíg 8, laugardagskvöldið 18. október. Þar koma einnig fram sveitirnar Dlx Atx og Sykur, sem fylgt hafa sveitunum eftir út á land, auk Boys in a Band frá Færeyjum og plötusnúðar; FM Belfast,  Ghost (FO), Skátar dj-sett og Bloodgroup dj-sett.

Tónleikaferðin hófst eins og áður sagði á Egilstöðum (Menntaskólanum) þann 8. október og hefur síðan náð til Borgarfjarðar (Hraunastef), Ísafjarðar (Edingborgarhúsið), Akureyrar (Græni hatturinn), Hafnarfjarðar (Flensborg) og Keflavíkur (Græni hatturinn). Ferðin er liður í Innrásar-átaki Kraums sem hefur það að markmiði að styðja hljómsveitir og tónlistarmenn við tónleikhald á landsbyggðinni, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf í landinu.

Innrásin hófst í apríl þegar Sign, Dr. Spock og Benny Crespo’s Gang rokkuðu hringinn að frumkvæði Rásar 2, með stuðningi Kraums. Sumargleði Kimi Records með Benna Hemm Hemm, Reykjavík!, Borko og Morðingjunum fór fram í kjölfarið um allt land í júlí, við mikinn fögnuð landsmanna og túrista. Tónlistarhópurinn Njútón hélt þrenna tónleika í júlí og ágúst og Efla Rún Kristinsdóttir og Melkorka Ólafsdóttir fóru í Heiðurs- og fagnaðartónleikaferð um kirkjur landsins í ágúst. Tónleikaferð Bloodgroup, Skáta, Sykurs og Atx Alx er lokahnykkur Innrásarinnar í ár.

Lokatónleikar ferðarinnar og partýið á Live Pub eru haldnir að frumkvæði sveitana sjálfra, sem vildu enda vel heppnað tónleikaferð með stæl, á að eigin sögn “frábærum tónleikastað og klúbb, þarna var áður tónleikastaðurinn Tveir vinir (og annar í fríi) til húsa, taðsettur og var einn aðaltónleikastaður Reykjavíkur í mörg misseri. Stórt hljóðkerfi verður flutt inn á staðinn sérstaklega fyrir þetta kvöld og verður búist við gríðarlega hressandi endapunkt á góðri ferð.”

Gamanið hefst kl. 21:00. Aðgangseyrir er 1.000 kr (á gamla genginu) og tilboð á barnum.

Video Podcast um íslenska tónlist

Sunday, October 12th, 2008

Fyrir tilstuðlan Kraums er ástralski New York búinn Stuart Rogers kominn hingað til lands til að gera íslensku tónlistarlífi og tónlistarmönnum skil í máli og myndum. Hann fylgdi tónleikaferð hljómsveitanna Skáta, Bloodgroup, Sykurs og Dlx Atx - ‘Elskumst í efnhagsrústunum’ - eftir um allt um allt land í síðustu viku. Auk þess hefur hann tekið fjölda viðtala, heimsótt hljómsveitir í æfingahúsnæði og stúdíó listamanna og er að taka upp efni á Iceland Airwaves hátíðinni.

Auk Kraums styður skrifstofa Ferðamálaráðs í Bandaríkjunum við komu Stuart hingað til lands. Stuart Rogers er víðfrægur fyrir Podcast video þætti sína um íslenska tónlistarmenn og tónlistarlíf, sem hlotið hefur mikla athygli á Youtube og hans eigin ’sjónvarpsstöð’ Lo Fi TV - en þar má þegar sjá hluta af því efni sem gert hefur verið síðustu daga; http://www.lofi.tv/

Lokahnykkur Innrásar - Elskumst í efnhagsrústunum

Tuesday, October 7th, 2008

Lokahnykkur Innrásar átaks Kraums - sem hefur það að markmiði að styðja við tónleikahald og tónlistarlíf innanlands - er tónleikaferð Skáta, Bloodgroup, Dlx Atx og Sykurs um landið. Tónleikaferðin hefur yfirskriftina “Elskumst í efnhagsrústunum” og hefst á Egilstöðum miðvikudaginn 8. október og lýkur í Reykjavík þann 18. október. Aðrir bakhjarlar tónleikaferðarinnar eru Ölgerðin og Rás 2, sem hefur stutt dyggilega við Innrásar-tónleika ársins með umfjöllun sinni.

Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Með Innrásinni vill Kraumur styðja hljómsveitir og tónlistarmenn við tónleikhald á landsbyggðinni. Markmiðið er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

Innrásin hófst í apríl þegar Sign, Dr. Spock og Benny Crespo’s Gang rokkuðu hringinn að frumkvæði Rásar 2, með stuðningi Kraums. Sumargleði Kimi Records með Benna Hemm Hemm, Reykjavík!, Borko og Morðingjunum fór fram um allt land í júlí, við mikinn fögnuð landsmanna og túrista. Tónlistarhópurinn Njútón hélt þrenna tónleika í júlí og ágúst og Efla Rún Kristinsdóttir og Melkorka Ólafsdóttir fóru í Heiðurs- og fagnaðartónleikaferð um kirkjur landsins í ágúst. Ráðgert er að halda Innrásinni áfram á næsta ári. (sjá yfirlit að neðan)

Nú er komið að síðustu tónleikaferðinni sem farin er með stuðningi Innrásarinnar í ár. Fyrir tilstilli Kraums mun ástralski New York búinn Stuart Rogers koma til landsins og gera tónleikaferðinni, og þeim listamönnum sem þar koma fram, skil í útvarpsþáttum sínum og þáttagerð á netinu. Stuart er víðfrægur fyrir Podcast video þætti sína af íslenskum tónlistarmönnum og tónlistarlífi, m.a. í tengslum við Iceland Airwaves hátíðina síðustu ár.

Elskumst í efnhagsrústunum

8. október 2008 - Menntaskólinn, Egilsstaðir (Skátar, Bloodgroup, með Mini-Skakkamanage
9. október 2008 - Hraunsnef, Borgarfirði (Skátar, Bloodgroup & Dlx Atx)
10. október 2008 - Edinborgarhúsið, Ísafirði (Skátar, Bloodgroup & Dlx Atx)
11. október 2008 - Græni hatturin, Akureyri (Skátar, Bloodgroup & Dlx Atx)
14. október 2008 - Flensborg, Hafnarfirði (Skátar, Bloodgroup, Dlx Atx & Sykur)
15. október 2008 - Paddy’s, Keflavík (Skátar, Bloodgroup, Dlx Atx & Sykur)
17. október 2008 – Iceland Airwaves
18. október 2008 – Live Pub (Skátar, Bloodgroup, Dlx Atx & Mammút)

Stuðningur kynntur við tónleikahald innanlands

Thursday, June 19th, 2008

Kraumur kynnti í hádeginu í dag á Iðnó stuðning sinn tónleikahald innanlands í tengslum við Innrásina, nýtt átak sem hefur það að markmiði að greiða leið tónlistarmanna til tónleikahalds á landsbyggðinni. Alls hljóta fimm tónleikaferðir og 14 flytjendur Innrásar-stuðning frá Kraumi. Meðal annars Sumargleði Kimi Records þar sem Benni Hemm Hemm, Morðingjarnir, Borko og Reykjavík! munu leika á sjö tónleikum á átta dögum víðsvegar um landið, 14.-21. júlí.

Sumargleðin er fyrsta tónleikaferð sumarsins sem farinn er með stuðningi Kraums. Hún hefst með tónleikum í Draugasetrinu á Stokkseyri mánudaginn 14. júlí og lýkur viku síðar - eftir viðkomu á Ísafirði, Akureyri, Húsavík, Seyðisfirði, Hörn í Hornafirði - á NASA við Austurvöll í Reykjavík. Tveir af fjórum flytjendum sem koma munu fram í tónleikaferðinni – Borko og Benni Hemm Hemm – tóku lagið saman á Iðnó í dag.

Samstarfsaðili Kraums við Innrásina er Rás 2, sem styðja mun við átakið með því að kynna og auglýsa þá tónleika sem fara fram á landsbyggðinni í sumar og haust.

Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Með Innrásinni vill Kraumur styðja hljómsveitir og tónlistarmenn við tónleikhald á landsbyggðinni. Markmiðið er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

Hugmyndin að baki Innrásinni er m.a. sú staðreynd að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, frekar en hérlendis. Með Innrásinni er ætlunin að styðja listamennina beint og auðvelda þeim tónleikhald innanlands með fjárhagslegum styrk, ferða- og græjustuðning. Jafnframt er stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi.

Kraumur

Starfsemi Kraums var sett á laggirnar í upphafi árs af Aurora velgerðasjóð. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Á yfirstandandi starfsári er Kraumur m.a. að styðja við útrás og tónleikaferð Mugison, tónleikahald Amiinu innanlands, verkefni Víkings Heiðars Ólafssonar og plötuútgáfu Skakkamanage, Celestine, Diktu, FM Belfast, Ólafar Arnalds og Elfu Rúnar Kristinsdóttur.

Kimi Records

Plötuútgáfan Kimi records, sem á varnarþing sitt á Akureyri, hefur vaxið ógnarhraða síðan hún var sett á laggirnar fyrir um 9 mánuðum. Meðal þeirra sem gefa út hjá Kimi eru Hjaltalín, Hellvar, Morðingjarnir, Borko, Benni Hemm og Reykjavík!

Innrásar-stuðningur Kraums

Rás 2 rokkar hringinn
Hljómsveitir; Sign, Dr. Spock og Benny Crespo’s Gang

Hvert:
1. apríl, Fjölbrautaskóli Suðurlands (Selfossi)
2. apríl, Prófasturinn (Vestmannaeyjum)
3. apríl, Sindrabær (Höfn í Hornafirði)
4. apríl, Valhöll (Eskifirði)
5. apríl, Græni hatturinn (Akureyri)
10. apríl, Paddy‘s (Reykjanesbæ)
11. apríl, Nasa (Reykjavík)

Stuðningur Kraums til listamanna: 300.000,- kr

—————————-

Sumargleði Kimi Records – Tökum hringinn á þetta!
Hljómsveitir; Benni Hemm Hemm, Borko, Morðingjarnir og Reykjavík!

Hvert:
14. júlí – Stokkseyri, Draugasetrið
15. júlí – Ísafjörður Edinborg
16. júlí – Akureyri Græni Hatturinn
17. júlí – Húsavík Gamli Baukur
18. júlí – Seyðisfjörður Leikhúsið
19. júlí – Höfn í Hornafirði Pakkhúsið
20. júlí – Pása
21. júlí – Reykjavík - Nasa

Stuðningur Kraums til listamanna auk ferða- og græjustuðnings: 600.000,- kr

—————————-

Tónleikaferð Njútón
Hljómsveit; Tónlistarhópurinn Njútón

Hvert:
25. júlí - Hádegistónleikar í Ketilhúsinu, á vegum Listasumars á Akureyri.
27. júlí -  Tónleikar/innsetning í heimahúsi í miðbæ Reykjavíkur. Samvinnuverkefni Njútons og Ingibjargar Magnadóttur myndlistarmanns.
2. ágúst - Tónleikar í Skálholtskirkju, á vegum Sumartónleika í Skálholtskirkju.

Stuðningur Kraums til listamanna, auk ferðastuðnings: 300.000,- kr

—————————-

Telmann og tónlist á Íslandi - Heiðurs- og fagnarðartónleikaferð
Listamenn: Elfa Rún Kristinsdóttir fiðurleikari og Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari

Tónleikaferðin er farin til heiðurs því mikilvæga hlutverki sem kirkjur á Íslandi hafa þjónað í tónlistarlífi landsmanna gegnum aldirnar – og er jafnfram fagnaðargjörningur þeirra tímamóta að nú er í byggingu tónlistarhús allra landsmanna í Reykjavík.

Hvert:
18. ágúst – Hóladómkirkja í Haltadal (hluti af árlegri Hólahátíð)
19. ágúst - Glerárkirkja, Akureyri
20. ágúst - Mývatn
21. ágúst - Bláa kirkjan, Seyðisfirði (hluti af sumartónleikaröð)
23. ágúst - Skálholtskirkja
24. ágúst - Flateyjarirkja
26. ágúst - Ísafjarðarkirkja
28. ágúst - Tvöfaldir tónleikar í Langholtskirkju

Stuðningur Kraums til listamanna, auk ferðastuðnings: 400.000 kr

—————————-

Skátar og Bloodgroup - Hausttúr um Ísland
Hljómsveitir; Bloodgroup og Skátar

Hvert:
1. október – Grundarfjörður
2. október - Ísafjörður
3. október - Akureyri
4. október - Egilsstaðir
8. október - Selfoss
9. október - Keflavík
10. október – Akranes
11. október - Hafnarfjörður

Stuðningur Kraums til listamanna auk ferða- og græjustuðnings: 400.000,- kr

Blaðamannafundur á Iðnó

Wednesday, June 18th, 2008

Blaðamannafundur á Iðnó í tilefni af kynningu á Innrásinni og stuðning við tónleikahald innanlands.

Tilefnið er:

A. KRAUMUR KYNNIR INNRÁSINA OG STUÐNING VIÐ TÓNLEIKAHALD INNANLANDS
B. TÓNLEIKAFERÐ KIMI RECORDS - SUMARGLEÐIN - SÝNIR KLÆRNAR

Iðnó, fimmtudaginn 19. júní, kl. 12:15

  • Benni Hemm Hemm og Borko taka lagið
  • Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums kynnir Innrásina og stuðning við tónleikaferðir
  • Baldvin Esra Einarsson, framkvæmdastjóri Kimi Records kynnir Sumargleðina
  • Þórunn Sigurðardóttir, formaður stjórnar Kraums og stjórnarformaður í Auroru velgerðarsjóði, kynnir starfsemi Kraums

Léttar hádegisveitingar.

Innrásin að hefjast

Friday, May 16th, 2008

Kraumur vekur athygli á Innrásinni; nýju átaki sem hefur það að markmiði að greiða leið tónlistarmanna til tónleikahalds á landsbyggðinni.

Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Með Innrásinni vill Kraumur styðja hljómsveitir og tónlistarmenn við tónleikhald á landsbyggðinni. Markmiðið er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

Hugmyndin að baki Innrásinni er m.a. sú staðreynd að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, frekar en hérlendis.  Lítill stuðningur er við þá sem vilja reyna fyrir sér með tónleikahaldi á landsbyggðinni.  Með Innrásinni er ætlunin að styðja listamennina beint og auðvelda þeim tónleikhald innanlands með fjárhagslegum styrk, ferða- og græjustuðning. Jafnframt er stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi.

Kraumur og Rás 2 hafa hafið samstarf í kringum Innrásina. Útvarp allra landsmanna mun styðja myndarlega við átakið með því að kynna og auglýsa þá tónleika sem fara fram á landsbyggðinni í sumar og haust. Rás 2 og starfsmenn stöðvarinnar luma jafnframt á reynslusögum sem eflaust geta nýst mörgum, en stöðin hefur síðastliðin þrjú ár geyst um landsbyggðina þar sem þeir hafa Rokkað og Plokkað hringinn með mörgum fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar af yngri kynslóðinni. Má þar nefna Ólöfu Arnalds, Pétur Ben, Lay Low, Ampop, Hermigervil og Diktu. Hljómsveitirnar Sign, Dr. Spock og Benny Crespo’s Gang Rokkuðu hringinn núna í apríl - með stuðningi Kraums við listamennina.

Umsóknir

Hér með er auglýst eftir hugmyndum og umsóknum frá hljómsveitum og listamönnum sem hyggja á tónleikahald á landsbyggðinni. Ekki verður farið fram á útfyllingu umsóknareyðublaða eða langar verkefnalýsingar. Tekið er við umsóknum frá jafnt einum flytjanda (hljómsveit/listamanni) sem og fleirum í samfloti. Umsóknir skal senda á e-mail með eftirfarandi upplýsingum:

  • a) Nafn hljómsveita/r eða listamanns/a ásamt stuttum upplýsingatexta
  • b) Nafn, sími, e-mail tengiliðs
  • c) Fyrirhugaðir tónleikastaðir

E-mail: kraumur@kraumur.is

Kraumur

Starfsemi Kraums var sett á laggirnar í upphafi árs af Aurora velgerðasjóð. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Á yfirstandandi starfsári er Kraumur m.a. að styðja við útrás og tónleikaferð Mugison, tónleikahald Amiinu innanlands, verkefni Víkings Heiðars Ólafssonar og plötuútgáfu Skakkamanage, Celestine, Diktu, FM Belfast, Ólafar Arnalds og Elfu Rúnar Kristinsdóttur.

Kraumur kveður sér hljóðs

Tuesday, April 1st, 2008

Fyrstu verkefni Kraums sem og stuðningur hins nýja sjóðs við tónlistarmenn og hljómsveitir voru kynnt síðdegis í dag, 1. apríl, í æfingahúsnæði nokkurra hljómsveita að Smiðjustíg 4B.

Kraumur, nýr sjálfstætt starfandi sjóður og starfsemi sem hefur það að markmiði að efla íslenskt tónlistarlíf, hefur kynnt sín fyrstu verkefni og stuðning við unga íslenska tónlistarmenn og hljómsveitir. Á yfirstandandi starfsári mun Kraumur meðal annars greiða leið tónlistarmanna til tónleikahalds á landsbyggðinni, sem og styðja við metnaðarfull verkefni tónlistarmanna með beinum hætti.

Stærstu framlög Kraums til listamanna að þessu sinni fara í stuðning við Mugison, Víking Heiðar Ólafssona og Amiinu og metnaðarfull verkefni þeirra á árinu. Tónlistarmennirnir Elfa Rún Kristinsdóttir og Ólöf Arnalds og hljómsveitirnar Dikta, FM Belfast, Celestine og Skakkamanage (sem er ein þeirra sveita sem hafa æfingaðstöðu á Smiðjustíg 4B) hljóta jafnramt fjárhagsstuðning og ráðgjöf í tengslum við gerð nýrra hljómplatna á árinu.

Eldar Ástþórsson, framkvæmdarstjóri Kraums, kynnti einnig til leiks þrjú eigin verkefni Kraums sem sjóðurinn mun vinna að á yfirstandandi starfsári; Innrásina – sem hefur það að markmiði að auðvelda ungu tónlistarfólki tónleikahald á landsbyggðinni, Hljóðverssmiðjur til að efla grasrótina og gefa hljómsveitum og listamönnum færi á að taka upp sín fyrstu lög undir ráðgjöf reyndari listamanna og Kraumsverðlaunin til stuðnings plötuútgáfu og auka tækifæri listamanna kringum útgáfu á tónlist sinni.

Meðal viðstaddra við athöfnina voru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennamálaráðherra, sem talaði um mikilvægi stuðnings við íslenskt tónlistarlíf, Þórunn Sigurðardóttir, formaður stjórnar Kraums og stjórnarmaður í Auroru velgerðarsjóði, sem gerði grein fyrir markmiðum sjóðsins og Eldar Ástþórsson, framkvæmdarstjóri Kraums, sem kynnti fyrstu verkefni hans og stuðning. Einnig voru viðstödd hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttur landslagsarkitekt og Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Samskipa, en stofnun Kraums byggir á samþykkt stjórnar velgerðasjóð þeirra Auroru, sem fjármagnar starfsemi Kraums.

Kraumur er nýr sjálfstætt starfandi sjóður sem settur var á laggirnar í upphafi árs af Aurora velgerðasjóði. Sjóðurinn og starfsemi hans hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.

Kraumur - tónlistarsjóður er þriggja ára tilraunaverkefni sem stofnaður var í ársbyrjun og samkvæmt núverandi áætlun lýkur í lok árs 2010. Aurora lagði nýja sjóðnum til 20 milljónir króna árið 2008, 15 milljónir króna 2009 og aftur 15 milljónir króna 2010 eða alls 50 milljónir króna.

Beinn stuðningur við listamenn

Kraumur styður eftirfarandi listamenn til góðra verka á árinu. Stuðningur er í formi fjárhagslegs styrks ásamt tilheyrandi ráðgjöf og aðstoð þar sem því er komið við. Framkvæmdastjóri Kraums er listamönnum til halds og trausts og annast tengsl sjóðsins við samstarfsaðila og fylgir því eftir að markmiðum samstarfs og stuðnings sé náð.

Mugison
Tónleikahald og útrás á erlendum vettvangi

Örn Elías Guðmundsson, Mugison, uppskar laun erfiðisins með útgáfu á meistaraverkinu Mugiboogie í fyrra. Hljómplatan toppaði bæði sölulista og árslista tónlistarspekúlanta hérlendis, og nú hyggur meistari Mugison á frekari landvinninga með púkann. Útgáfa er fyrirhuguðu í Evrópu og Norður-Ameríku í vor, þar sem tónleikhald gegnir lykilhlutverki í kynningu. Kraumur mun styðja við Mugison og útrás hans með myndarlegum hætti.

Í tengslum við útgáfu á Moogiboogie á alþjóðlegum vettvangi hyggur Mugison á tónleika víðsvegar á Norðurlöndunum (m.a. Hróaskelduhátíðinni), Þýskalandi, Frakkland, Ítalíu og víðar í Evrópu, Bandaríkin og Kanada (tónleikaferð með Queens of the Stone Age). Stuðningur miðast við að gera tónleikana mögulega með beinum stuðningi við Mugison og hljómsveit hans. Meðlimir í hljómsveit Mugison eru; Arnar Gíslasson trommur, Guðni Finnson bassi, Pétur Þór Ben gítar og Davíð Þór Jónsson hammond/píanó.
Upphæð: 4.000.000,- kr

Víkingur Heiðar Ólafsson
Tónleikahald, kennsla og kynning í framhaldsskólum
Víkingur Heiðar er að ljúka framhaldsnámi við Julliard tónlistarháskólann og hefur hlotið einstaka dóma fyrir leik sinn. Stuðningurinn við tónlistarferil Víking Heiðars miðar jafnframt að því að gefa framhaldsskólanemum tækifæri á að kynnast og komast í tæri við tónlistarfluttning hans. Gert er ráð fyrir nokkrum tónleikum og samstarfi við framhaldsskóla um framkvæmd þeirra - en að öðru leyti er stuðningur Kraums við Víking og meðleikara meginstoð verkefnisins. Auk þess sem Víkingur leikur á píanóið mun Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, útskýra verkin og opna nemendum leiðir að því að njóta klassískrar tónlistar.
Upphæð: 1.500.000,- kr

Amiina
Tónleikahald á landsbyggðinni

Það eru spennandi tímar framundan hjá Amiinu. Eftir að hafa gefið út sína fyrstu hljómplötu, hina einstöku Kurrr, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi í fyrra, tekur nú við áframhaldandi vinna og kynning á plötunni, gerð kvikmyndatónlistar fyrir myndir John Crowley og Kit Hui og tónleikaferðir með Sigur Rós. Telja má tónleika Amiinu hérlendis á fingrum annarar handar. Breyting verður á því í ár, því með stuðningi Kraums er sveitinni m.a. gert kleift að gera að veruleika áætlanir sínar um tónleikaferð um Ísland. Amiina eru; Hildur Ársælsdóttir, Edda Rún Ólafsdóttir, Maria Huld Markan Sigfúsdóttir og Sólrún Sumarliðadóttir.
Upphæð: 1.200.000,- kr


Celestine / Dikta / Elfa Rún Kristinsdóttir
/ FM Belfast / Skakkamanage / Ólöf Arnalds

Framkvæmda- og vinnustuðningur tengd hljómplötugerð
Þrátt fyrir að tilheyra ólíkum tónlistarstefnum og straumum eiga þessir tónlistarmenn og hljómsveitir það sameiginlegt að vera vinna að nýjum hljómplötum í ár. Á meðan Celestine, Dikta, Skakkamanage og Ólöf Arnalds eru með sína aðra plötu smíðum eru Elfa Rún Kristinsdóttir og FM Belfast að vinna að sínum fyrstu hljómplötum. Það er von Kraums að þessi stuðningur nýtist viðkomandi listamönnum vel við þá vinnu sem fylgir lagasmíðum, æfingum og upptökum. Auk fjárframlags verður listamönnunum veitt stuðningur í formi ráðgjar og samvinnu þar sem því verður komið við. Ekki loku skotið fyrir áframhaldandi samstarf við þessa listamenn á næsta ári.
Upphæð: 500.000,- kr hver hljómsveit / listamaður (samtals 3.000.000)

Kraumsverkefni

Eigin verkefni Kraums:

Innrásin – Tónleikastuðningur Kraums
Verkefnið miðar að því að ýta undir og efla tónleikahald á landsbyggðinni og öfugt. Hugmyndin að baki þessu starfi er m.a. sú staðreynd að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, en hérlendis – t.a.m. í Kaupmannahöfn frekar en á Egilstöðum. Lítill stuðningur er í dag við þá sem vilja reyna fyrir sér með tónleikhald á landsbyggðinni. Markmiðið með Innrásinni er að brúa þetta bil – og auka við fjölbreytni og möguleika ungra listamanna til tónleikahalds. Stuðningurinn verður í formi æfingastyrkja, ferða- og græjustuðnings.  Jafnframt verður stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi. Markmiðið er stuðningur við tónlistarlíf í landinu og við listamennina beint með því að auka við tækifæri þeirra við útbreiðslu listar sinnar, fjölbreytni í tónleikahaldi og tekjumöguleikum.

Hljóðverssmiðjur
Stuðningur við grasrótina. Upprennandi listamönnum gert kleift að komast í stúdíó með faglegri upptökustjórn og ráðgjöf reyndari listamanna. Framkvæmd er þannig háttað að listamanni/hljómsveit er gefið tækifæri á þátttöku og veru í stúdíó í tiltekin tíma. Hugmyndir eru uppi að upptökuferlið fari fram á landsbyggðinni. Afraksturinn yrði fullklárað efni sem listamaðurinn á sjálfur og getur nýtt eftir hentugleika, t.d. til útgáfu (t.d. á netinu), nýtt kynningarskyni eða dreift á útvarpsstöðvar.

Kraumsverðlaunin
Það er gamall og góður siður að velja bestu plötur ársins. Með Kraumsverðlaununum er þessi leið farin, en með það að markmiði að styðja við útgáfur ungra íslenskra hljómsveita og listamanna og auka við möguleika þeirra í kjölfar útgáfunnar. Hvernig? Kraumur mun skuldbinda sig til að versla 100 stk af öllum plötum sem útnefndar verða til verðlaunana (sem því miður er í sumum tilvikum hátt hlutfall heildarsölu). Þessi eintök mun sjóðurinn sjá um að senda út og dreifa á starfsmenn tónlistarbransans erlendis eins og tónlistarhátíðir, umboðsskrifstofur, plötuútgáfur o.s.frv. Með þessu er verið að auka við möguleika viðkomandi listamanns á alþjóðavettvangi. Verðlaunin munu ná til allrar tegundir tónlist, en hafa það að markmiði að verðlauna það sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist.