Archive for the ‘Kraumsverðlaun’ Category

Kraumslistinn – Úrvalslisti 2011

Tuesday, December 6th, 2011

Markmið Kraumslistans er að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna með sérstöku tilliti til þeirra sem yngri eru. Viðurkenna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Verðlaunaplötur - Tilnefning og val

Framkvæmd Kraumslistans 2011 er með þeim hætti að sex manna dómnefnd valdi 20 plötur á Úrvalslista Kraumslistans en við honum tekur 20 manna dómnefnd og velur bestu plöturnar þannig að eftir standa 5 til 6 verðlaunaplötur

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna er skipuð 20 aðilum sem allir hafa mikla reynslu af því að hlusta á og fjalla um íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðla. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.

Í úrvalslistanefnd áttu sæti ásamt  Árna Matthíassyni: Andrea Jónsdóttir, Trausti Júlíusson, Egill Harðarson, Helena Þrastardóttir og Hildur Maral Hamíðsdóttir.

Úrvalslisti Kraumslistans 2011:

  • ADHD - ADHD2
  • Anna Þorvalds - Rhízoma
  • Ben Frost og Daníel Bjarnason - SÓLARIS
  • Dead Skeletons - Dead Magick
  • FM Belfast - Don’t want to sleep
  • For a Minor Reflection - EP
  • Helgi Hrafn Jónsson - Big Spring
  • Hljómsveitin Ég - Ímynd Fíflsins
  • Lay Low - Brostinn Strengur
  • Nolo - Nology
  • Of Monsters and men - My Head is an Animal
  • Ofvitarnir - Stephen Hawking/Steven Tyler
  • Ragga Gröndal - Astrocat Lullaby
  • Reykjavík! - Locust Sounds
  • Samaris - Hljóma Þú (ep)
  • Sin Fang - Summer Echoes
  • Skurken - Gilsbakki
  • Snorri Helga - Winter Sun
  • Sóley - We Sink
  • Sólstafir - Svartir Sandar

Tilkynnt verður hverjir skipa listann föstudaginn 16. desember – Nánar auglýst síðar

Kraumslistinn - Viðurkenning og verðlaun

Kraumslistinn, sem bar nafnið Kraumsverðlaunin í fyrsta sinn sem hann var valinn í lok árs 2008, snýst fyrst og fremst um að styðja við og vekja athygli á öllum þeim plötum sem dómnefnd velur til Kraumslistans, frekar en eina einstaka verðlaunaplötu. Nú hefur sex manna dómnefnd lokið störfum og valið 20 plötur á Úrvalslista Kraumslistans en stærri dómnefnd velur svo af þeim lista bestu plötur ársins.

Aðstandandi Kraumslistans er Kraumur tónlistarsjóður sem er sjálfstætt starfandi sjóður á vegum Auroru velgerðarsjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.

Það er von aðstandenda Kraumlistans að verðlaunin verði liðsauki fyrir íslenska listamenn og íslenska plötuútgáfu, og veki enn frekari athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem einkennir íslenskt tónlistarlíf. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðuð við jólagjafaflóðið, þegar listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka.

Kraumur mun leggja metnað við að styðja alla þá titla sem valdir eru á Kraumslistann, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu. Umgjörðin í kringum verðlaunaafhendinguna er í lágmarki og frekar reynt að einbeita sér að auknum stuðningi við plöturnar.

Kraumur mun styðja við Kraumslistaplöturnar og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri erlendis með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa þeim til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.).

Markmið Kraumslistans

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
  • Kraumslistinn hefur ekkert aldurstakmark, en markmið hans er engu að síður að einbeita sér að verkum yngri kynslóðar íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita sem eru að ryðja sér til rúms.
  • Stefna Kraumslistans er að leggja áherslu á þá titla sem dómnefnd velur, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu.

Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar.

Kraumslistinn 2011

Monday, November 28th, 2011

Nú er verið að fara yfir útgáfuárið 2011 og velja plötur á Kraumslistann. Það er greinilegt að margar frábærar plötur komu út á árinu og að dómnefndinni bíður erfitt verkefni.

Markmið verðlaunanna er að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita. Vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Frekari upplýsingar um markmið verðlaunanna má finna hér.

Umsóknarferli:

  • Ekkert umsóknarferli er fyrir listamenn / plötuútgáfur.
  • Ekkert þátttökugjald er fyrir listamenn / plötuútgáfur.
  • Plötur eru valdar á Kraumslistann óháð tónlistarstefnu, sölu, útgáfuformi eða útgáfufyrirtæki.

Dómnefnd tekur á móti ábendingum frá listamönnum og plötuútgáfum um titla sem gefnir hafa verið út 2011. Vinsamlegast sendið ábendingar á kraumur@kraumur.is.

Kraumsverðlaunin 2008 tilkynnt

Friday, November 28th, 2008

Kraumsverðlaunin 2008 hljóta; Agent Fresco fyrir Lightbulb Universe, FM Belfast fyrir How to Make Friends, Hugi Guðmundsson fyrir Apocrypha, Ísafold fyrir All Sounds to Silence Come, Mammút fyrir Karkara og Retro Stefson fyrir Montaña.

Í dag, föstudaginn 28. nóvember, var tilkynnt um tilnefningar og verðlaunaplötur fyrstu Kraumsverðlaunanna.

Óhætt að segja að árið í ár sé öflugt hvað íslenska plötuútgáfu varðar, enda dómnefnd Kraumsverðlaunanna búin að hafa nóg að gera síðustu vikur og fjöldi spennandi titla sem komist hafa á blað í starfi hennar. Tilkynnt var um úrvalslista Kraumsverðlaunanna í síðustu viku og í dag á Smiðjustíg 4A var tilkynnt um 20 breiðskífur sem valdar hafa verið og tilnefndar til verðlaunanna - og af þeim, þær sex breiðskífur sem hljóta Kraumverðlaunin 2008.

Samkvæmt reglum Kraumsverðlaunanna er gert ráð fyrir að dómnefndin velji og verðlauni fimm breiðskífur sem koma út á árinu, þó með þeim fyrirvara að hægt sé að fjölga í þeim hópi ef sérstakt tilefni sé til. Í ár er tilefni, Kraumsverðlaunaplöturnar eru sex talsins.

Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina einstaka verðlaunaplötu, heldur að viðurkenna og verðlauna fleiri titla. Umgjörð verðlaunanna er haldið í lágmarki, og frekar reynt að einbeita sér að því að styðja og setja pening í að kaupa verðlaunaplöturnar. Vinninghafarnir hljóta ekki verðlaunagrip, heldur eru verðlaunin fyrst og fremst fólgin í viðurkenningu, kynningu - og plötukaupum Kraums á verðlaunatitlunum.

Kraumur mun styðja við verðlaunaplöturnar, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

Kraumsverðlaunin 2008 hljóta;
Agent Fresco - Lightbulb Universe
FM Belfast - How to Make Friends
Hugi Guðmundsson - Apocrypha
Ísafold - All Sounds to Silence Come
Mammút - Karkari
Retro Stefson - Montaña

Tilnefningar til verðlaunanna hljóta;
Agent Fresco - Lightbulb Universe
Celestine - At the Borders of Arcadia
Dísa - Dísa
Dr. Spock - Falcon Christ
Emiliana Torrini - Me and Armini
FM Belfast - How to Make Friends
Hugi Guðmundsson - Apocrypha
Introbeats - Tívólí chillout
Ísafold - All Sounds to Silence Come
Klive - Sweaty Psalms
Lay Low - Farewell Good Night’s Sleep
Mammút - Karkari
Morðingjarnir - Áfram Ísland
Múgsefjun - Skiptar skoðanir
Ólafur Arnalds - Variations of Static
Retro Stefson - Montaña
Reykjavík! - The Blood
Sigur Rós - Með suð í eyrum við spilum endalaust
Sin Fang Bous - Clangour
Skakkamanage - All Over the Face

Kraumsverðlaunin kynnt til leiks

Tuesday, November 4th, 2008

Metnaður og frumleiki í íslenskri plötugerð verðlaunaður með nýjum verðlaunum.

Kraumsverðlaunin eru ný plötuverðlaun, sett á fót í þeim tilgangi að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - og verðlauna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna hefur nú hafið störf. Hún skipuð 15 aðilum sem hafa reynslu af að fjalla um og spila íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar, í dagblöðum, útvarpi og á netinu. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.

Kraumsverðlaunin snúast fyrst og fremst um þær plötur sem valdar eru og tilnefndar til verðlaunanna, frekar en eina einstaka verðlaunaplötu. Stefnt að því að tilkynna útnefningar síðar í nóvember.

Það er von aðstandenda verðlaunanna að þau verði liðsauki fyrir íslenska listamenn og íslenska plötuútgáfu, og veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem ár hvert er fest disk, vínyl og stafrænni útgáfu hér á landi. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðað við jólagjafaflóðið, þegar listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka.

Kraumsverðlaunin eru ekki bundin neinni ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar. Verðlaunin hafa ekkert aldurstakmark, en markmið þeirra er engu að síður að einbeita sér að verkum yngri kynslóðar íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita.

Markmið verðlaunana er;

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Hlekkir;
Nánar um tilurð og markmið Kraumsverðlaunanna

Plötulisti 2008 (ábendingar um viðbætur vel þegnar)

Kraumur kveður sér hljóðs

Tuesday, April 1st, 2008

Fyrstu verkefni Kraums sem og stuðningur hins nýja sjóðs við tónlistarmenn og hljómsveitir voru kynnt síðdegis í dag, 1. apríl, í æfingahúsnæði nokkurra hljómsveita að Smiðjustíg 4B.

Kraumur, nýr sjálfstætt starfandi sjóður og starfsemi sem hefur það að markmiði að efla íslenskt tónlistarlíf, hefur kynnt sín fyrstu verkefni og stuðning við unga íslenska tónlistarmenn og hljómsveitir. Á yfirstandandi starfsári mun Kraumur meðal annars greiða leið tónlistarmanna til tónleikahalds á landsbyggðinni, sem og styðja við metnaðarfull verkefni tónlistarmanna með beinum hætti.

Stærstu framlög Kraums til listamanna að þessu sinni fara í stuðning við Mugison, Víking Heiðar Ólafssona og Amiinu og metnaðarfull verkefni þeirra á árinu. Tónlistarmennirnir Elfa Rún Kristinsdóttir og Ólöf Arnalds og hljómsveitirnar Dikta, FM Belfast, Celestine og Skakkamanage (sem er ein þeirra sveita sem hafa æfingaðstöðu á Smiðjustíg 4B) hljóta jafnramt fjárhagsstuðning og ráðgjöf í tengslum við gerð nýrra hljómplatna á árinu.

Eldar Ástþórsson, framkvæmdarstjóri Kraums, kynnti einnig til leiks þrjú eigin verkefni Kraums sem sjóðurinn mun vinna að á yfirstandandi starfsári; Innrásina – sem hefur það að markmiði að auðvelda ungu tónlistarfólki tónleikahald á landsbyggðinni, Hljóðverssmiðjur til að efla grasrótina og gefa hljómsveitum og listamönnum færi á að taka upp sín fyrstu lög undir ráðgjöf reyndari listamanna og Kraumsverðlaunin til stuðnings plötuútgáfu og auka tækifæri listamanna kringum útgáfu á tónlist sinni.

Meðal viðstaddra við athöfnina voru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennamálaráðherra, sem talaði um mikilvægi stuðnings við íslenskt tónlistarlíf, Þórunn Sigurðardóttir, formaður stjórnar Kraums og stjórnarmaður í Auroru velgerðarsjóði, sem gerði grein fyrir markmiðum sjóðsins og Eldar Ástþórsson, framkvæmdarstjóri Kraums, sem kynnti fyrstu verkefni hans og stuðning. Einnig voru viðstödd hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttur landslagsarkitekt og Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Samskipa, en stofnun Kraums byggir á samþykkt stjórnar velgerðasjóð þeirra Auroru, sem fjármagnar starfsemi Kraums.

Kraumur er nýr sjálfstætt starfandi sjóður sem settur var á laggirnar í upphafi árs af Aurora velgerðasjóði. Sjóðurinn og starfsemi hans hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.

Kraumur - tónlistarsjóður er þriggja ára tilraunaverkefni sem stofnaður var í ársbyrjun og samkvæmt núverandi áætlun lýkur í lok árs 2010. Aurora lagði nýja sjóðnum til 20 milljónir króna árið 2008, 15 milljónir króna 2009 og aftur 15 milljónir króna 2010 eða alls 50 milljónir króna.

Beinn stuðningur við listamenn

Kraumur styður eftirfarandi listamenn til góðra verka á árinu. Stuðningur er í formi fjárhagslegs styrks ásamt tilheyrandi ráðgjöf og aðstoð þar sem því er komið við. Framkvæmdastjóri Kraums er listamönnum til halds og trausts og annast tengsl sjóðsins við samstarfsaðila og fylgir því eftir að markmiðum samstarfs og stuðnings sé náð.

Mugison
Tónleikahald og útrás á erlendum vettvangi

Örn Elías Guðmundsson, Mugison, uppskar laun erfiðisins með útgáfu á meistaraverkinu Mugiboogie í fyrra. Hljómplatan toppaði bæði sölulista og árslista tónlistarspekúlanta hérlendis, og nú hyggur meistari Mugison á frekari landvinninga með púkann. Útgáfa er fyrirhuguðu í Evrópu og Norður-Ameríku í vor, þar sem tónleikhald gegnir lykilhlutverki í kynningu. Kraumur mun styðja við Mugison og útrás hans með myndarlegum hætti.

Í tengslum við útgáfu á Moogiboogie á alþjóðlegum vettvangi hyggur Mugison á tónleika víðsvegar á Norðurlöndunum (m.a. Hróaskelduhátíðinni), Þýskalandi, Frakkland, Ítalíu og víðar í Evrópu, Bandaríkin og Kanada (tónleikaferð með Queens of the Stone Age). Stuðningur miðast við að gera tónleikana mögulega með beinum stuðningi við Mugison og hljómsveit hans. Meðlimir í hljómsveit Mugison eru; Arnar Gíslasson trommur, Guðni Finnson bassi, Pétur Þór Ben gítar og Davíð Þór Jónsson hammond/píanó.
Upphæð: 4.000.000,- kr

Víkingur Heiðar Ólafsson
Tónleikahald, kennsla og kynning í framhaldsskólum
Víkingur Heiðar er að ljúka framhaldsnámi við Julliard tónlistarháskólann og hefur hlotið einstaka dóma fyrir leik sinn. Stuðningurinn við tónlistarferil Víking Heiðars miðar jafnframt að því að gefa framhaldsskólanemum tækifæri á að kynnast og komast í tæri við tónlistarfluttning hans. Gert er ráð fyrir nokkrum tónleikum og samstarfi við framhaldsskóla um framkvæmd þeirra - en að öðru leyti er stuðningur Kraums við Víking og meðleikara meginstoð verkefnisins. Auk þess sem Víkingur leikur á píanóið mun Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, útskýra verkin og opna nemendum leiðir að því að njóta klassískrar tónlistar.
Upphæð: 1.500.000,- kr

Amiina
Tónleikahald á landsbyggðinni

Það eru spennandi tímar framundan hjá Amiinu. Eftir að hafa gefið út sína fyrstu hljómplötu, hina einstöku Kurrr, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi í fyrra, tekur nú við áframhaldandi vinna og kynning á plötunni, gerð kvikmyndatónlistar fyrir myndir John Crowley og Kit Hui og tónleikaferðir með Sigur Rós. Telja má tónleika Amiinu hérlendis á fingrum annarar handar. Breyting verður á því í ár, því með stuðningi Kraums er sveitinni m.a. gert kleift að gera að veruleika áætlanir sínar um tónleikaferð um Ísland. Amiina eru; Hildur Ársælsdóttir, Edda Rún Ólafsdóttir, Maria Huld Markan Sigfúsdóttir og Sólrún Sumarliðadóttir.
Upphæð: 1.200.000,- kr


Celestine / Dikta / Elfa Rún Kristinsdóttir
/ FM Belfast / Skakkamanage / Ólöf Arnalds

Framkvæmda- og vinnustuðningur tengd hljómplötugerð
Þrátt fyrir að tilheyra ólíkum tónlistarstefnum og straumum eiga þessir tónlistarmenn og hljómsveitir það sameiginlegt að vera vinna að nýjum hljómplötum í ár. Á meðan Celestine, Dikta, Skakkamanage og Ólöf Arnalds eru með sína aðra plötu smíðum eru Elfa Rún Kristinsdóttir og FM Belfast að vinna að sínum fyrstu hljómplötum. Það er von Kraums að þessi stuðningur nýtist viðkomandi listamönnum vel við þá vinnu sem fylgir lagasmíðum, æfingum og upptökum. Auk fjárframlags verður listamönnunum veitt stuðningur í formi ráðgjar og samvinnu þar sem því verður komið við. Ekki loku skotið fyrir áframhaldandi samstarf við þessa listamenn á næsta ári.
Upphæð: 500.000,- kr hver hljómsveit / listamaður (samtals 3.000.000)

Kraumsverkefni

Eigin verkefni Kraums:

Innrásin – Tónleikastuðningur Kraums
Verkefnið miðar að því að ýta undir og efla tónleikahald á landsbyggðinni og öfugt. Hugmyndin að baki þessu starfi er m.a. sú staðreynd að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, en hérlendis – t.a.m. í Kaupmannahöfn frekar en á Egilstöðum. Lítill stuðningur er í dag við þá sem vilja reyna fyrir sér með tónleikhald á landsbyggðinni. Markmiðið með Innrásinni er að brúa þetta bil – og auka við fjölbreytni og möguleika ungra listamanna til tónleikahalds. Stuðningurinn verður í formi æfingastyrkja, ferða- og græjustuðnings.  Jafnframt verður stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi. Markmiðið er stuðningur við tónlistarlíf í landinu og við listamennina beint með því að auka við tækifæri þeirra við útbreiðslu listar sinnar, fjölbreytni í tónleikahaldi og tekjumöguleikum.

Hljóðverssmiðjur
Stuðningur við grasrótina. Upprennandi listamönnum gert kleift að komast í stúdíó með faglegri upptökustjórn og ráðgjöf reyndari listamanna. Framkvæmd er þannig háttað að listamanni/hljómsveit er gefið tækifæri á þátttöku og veru í stúdíó í tiltekin tíma. Hugmyndir eru uppi að upptökuferlið fari fram á landsbyggðinni. Afraksturinn yrði fullklárað efni sem listamaðurinn á sjálfur og getur nýtt eftir hentugleika, t.d. til útgáfu (t.d. á netinu), nýtt kynningarskyni eða dreift á útvarpsstöðvar.

Kraumsverðlaunin
Það er gamall og góður siður að velja bestu plötur ársins. Með Kraumsverðlaununum er þessi leið farin, en með það að markmiði að styðja við útgáfur ungra íslenskra hljómsveita og listamanna og auka við möguleika þeirra í kjölfar útgáfunnar. Hvernig? Kraumur mun skuldbinda sig til að versla 100 stk af öllum plötum sem útnefndar verða til verðlaunana (sem því miður er í sumum tilvikum hátt hlutfall heildarsölu). Þessi eintök mun sjóðurinn sjá um að senda út og dreifa á starfsmenn tónlistarbransans erlendis eins og tónlistarhátíðir, umboðsskrifstofur, plötuútgáfur o.s.frv. Með þessu er verið að auka við möguleika viðkomandi listamanns á alþjóðavettvangi. Verðlaunin munu ná til allrar tegundir tónlist, en hafa það að markmiði að verðlauna það sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist.