Archive for the ‘Umsóknarferli’ Category

Mikill fjöldi umsókna barst í umsóknarferli Kraums

Monday, February 20th, 2012

Alls bárust 189 umsóknir í nýliðið umsóknarferli Kraums tónlistarsjóðs. Flokkun umsókna er hafin og greinlegt er að það eru mörg frábær verkefni sem bíða yfirferðar.

Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð en allar umsóknir skulu innihalda yfirlit yfir verkefnið, upplýsingar um markmið þess og fjárhagsáætlun. Auk þess var mælst til þess að hljómsveitir og listamenn skiluðu inn ferilskrá og tónlist.

Umsóknirnar í ár eru jafn margvíslegar og þær eru margar. Verkefnin sem bíða hljómsveita, listamanna og viðburðastjórnenda sem sækja um stuðning og samstarf eru verulega spennandi og það er greinilega hugur í fólki. Flestar eru umsóknirnar sem snúa að tónleikahaldi, til kynningar á verkum listafólks, til viðburða- og námskeiðshalds, til lagasmíða og/eða plötugerðar auk ýmissa annarra verka sem hafa með kynningu og eflingu á íslenskri tónlist að gera.

Kraumur tónlistarsjóður var stofnaður í byrjun árs 2008 af Aurora velgerðarsjóði. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn til að auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmið Kraums er að styrkja stöðu tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, aðstoð, ráðgjöf og samstarfi af ýmsu tagi. Kraumur vill jafnframt styðja við og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.

Árið 2011 úthlutaði Kraumur tónlistarsjóður í tvígang og voru 21 verkefni styrkt af sjóðnum. Frá því Kraumur hóf starfsemi sína hafa yfir eitthundrað listamenn og hljómsveitir hlotið stuðning frá sjóðnum, þar á meðal eru Anna Þorvaldsdóttir, adhd, Bang Gang, Bloodgroup, Celestine, Daníel Bjarnason, Dikta, Elfa Rún Kristinsdóttir, Hjaltalín, Lay Low, Melkorka Ólafsdóttir, Mugison, Nordic Affect, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, Sólstafir, Seabear, Trúbatrix hópurinn og Víkingur Heiðar Ólafsson. Kraumur hefur einnig haldið úti samstarfsverkefnum með Músíktilraunum Tónabæjar, Listahátíð í Reykjavík, Aldrei fór ég suður, ÚTÓN og fleiri aðilum.

Auk beins stuðnings við einstaka listamenn/hljómsveitir og verkefni þeirra á sviði plötuútgáfu, tónleikahalds og kynningar á sér og verkum sínum innanlands sem utan hefur Kraumur hrundið af stað og starfrækt eigin verkefni til breiðari stuðnings í tónlistarlífinu. Má þar m.a.nefna Innrásina til stuðnings tónleikhaldi innanlands, Kraumslistann sem verðlaunar og styður við bakið á íslenskri plötuútgáfu og verðlaunar þá titla sem þykja skara fram úr í frumleika og metnaði á ári hverju. Auk þessi hefur Kraumur í samstarfi við Músíktilraunir starfrækt Hljóðverkssmiðjur þar sem ungum og upprennandi listamönnum og hljómsveitum gefst kostur á að fá ráðgjöf og vinna nýtt efni undir leiðsögn hjá reyndari tónlistamönnum.

Ljóst er að Kraumur mun aðeins styðja við hluta þeirra verkefna sem sótt var um stuðning fyrir í nýliðnu umsóknarferli enda yfirlýst stefna sjóðsins að styrkja fá verkefni/listamenn en gera það afgerandi. Tilkynnt verður hverjir hljóta styrki úr Kraumi tónlistarsjóði 14. mars.

Umsóknaferli 2012 að hefjast

Monday, January 2nd, 2012

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012

Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað árið 2012. Auglýst er sérstaklega eftir verkefnum sem ekki eru hafin áður en úthlutað er úr sjóðnum. Úthlutað verður um miðjan mars.

Ráðgert er að veita í kringum 8.000.000 króna til verkefna á sviði íslenskrar tónlistar að þessu sinni.

Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir viðburði, námskeið og fræðsluverkefni.

Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins og ráð til umsækjenda hér að neðan.

Opnað verður fyrir umsóknarferlið þann 6. janúar.

Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð en allar umsóknir skulu innihalda:

  • Yfirlit yfir verkefnið
  • Upplýsingar um markmið þess
  • Fjárhagsáætlun og upphæð sem sótt er um
  • Æskileg fylgigögn; tónlist á CD og ferilskrá (CV)
  • Mikilvægt er að láta netfang og símanúmer fylgja umsókninni

Fjárhagsáætlun skal innihalda yfirlit yfir alla þekkta innkomuliði og útgjöld. Auk þess útlistun á því hvernig stuðningur Kraums getur nýst. Vinsamlegast takið fram ef sótt er um styrki í aðra sjóði eða verkefnið nýtur stuðnings annarstaðar frá.

  • Mælst er til þess að umsóknir séu ekki lengri en 2 síður, auk fjárhagsáætlunar og fylgigögnum
  • Umsóknum skal skila bréfleiðis.
  • Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau þau ráð sem gefin eru umsækjendum hér að neðan.

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012.

(Póststimpill gildir, og því hægt að setja umsóknina í póst miðvikudaginn 1. febrúar)

Framkvæmdastjóri Kraums veitir fúslega upplýsingar um umsóknarferlið og er umsækjendum innan handar er varðar ráðgjöf við að skila inn umsókn. Skoðið einnig ráð til umsækjenda hér að neðan.

Skil á umsóknum - Umsóknir skulu sendar:

Kraumur tónlistarsjóður

PO Box 124

121 Reykjavík

-

Frekari upplýsingar veitir:

Jóhann Ágúst Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kraums

S: 894 4321 / johann[a]kraumur.is

————————————————————————————

Ráð til umsækjenda

- Miklu máli skiptir að umsækjendur geti skilgreint markmið verkefnisins vel. Útskýrt hvernig það þjónar viðkomandi listamanni/hljómsveit við að koma verkum sínum á framfæri eða nýtist með öðrum hætti.

- Mikilvæg er að fjárhagsáætlun sé raunhæf og skýr. Tilgreina skal þá upphæð sem sótt er um.

- Kjósi listamaður/hljómsveit að sækja um fleiri en eitt verkefni, skal aðgreina umsóknirnar vel og skila inn sérstakri umsókn fyrir hvort verkefni um sig.

- Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau verkefni sem Kraumur hefur stutt og unnið með árin 2008, 2009, 2010, 2011 og 2011 sumar.

- Undanfarin ár hefur Kraumur stutt listamenn/hljómsveitir við plötugerð en það skal sérstaklega tekið fram að líkt og í fyrra mun sjóðurinn líta frekar til þess að styðja listamenn/hljómsveitir við að koma áður útgefnum verkum/plötum á framfæri, styrkja viðburða- og námskeiðahald, hjálpa við kynningu á nýju efni á innlendum og erlendum vettvangi með t.d. stuðningi við tónleikahald og gerð kynningarefnis.

- Kraumur vill styðja og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.

- Í vali á verkefnum sem hljóta stuðning er sérstaklega litið til þess að þau komi viðkomandi listamanni/hljómsveit lengra á ferli sínum og/eða hjálpi við að koma tónlistinni á framfæri á verðugum vettvangi.

————————————————————————————