Hljóðverssmiðjur

Hljóðverssmiðjum Kraums er ætlað að styðja við grasrótina í íslensku tónlistarlífi, miðla reynslu og gefa hljómsveitunum tækifæri á að taka upp efni sem nýst gæti við kynningu á sér og sinni tónlist, t.a.m. dreifingar á netinu og til útvarpsstöðva, og/eða sem byrjun á breiðskífu.

Í Hljóðverssmiðjunum gefst ungum og upprennandi listamönnum færi á að vinna með reyndari tónlistarmönnum, sem þar miðla reynslus sinni og gefa góð ráð. Þátttakendurm gefst þar tækifæri til að semja tónlist, vinna saman og taka upp tónlist.

Hljóðverssmiðjur Kraums eru unnar í samvinnu við Músíktilraunir, árlega hljómsveitakeppni og tónlistarhátíð sem haldin hefur verið nær árlega frá árinu 1982. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þáttöku í Músíktrilraunum með því að senda inn umsókn á netinu og greiða þátttökugjald. Haldin eru 4-5 undanúrslistakvöld þar sem 40-50 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið. Um 10-12 hljómsveitir fara venjulega í úrslit.

Þrjár efstu hljómsveitirnar á Músiktilraunum fá pláss í Hljóðverssmiðjum Kraums í verðlaun. Um er að ræða eina viku í hljóðveri, gistingu, samtals 70 upptökutíma með hljóðmanni, auk leiðbeininga og kennslu frá reyndari listamamönnum.

Ráðgert er að Hljóðverssmiðjur Kraums fari að nýju fram sumarið 2010.

Hljóðverssmiðjur 2009

Hljóðverssmiðjur Kraums fóru fram í fyrsta sinn í júlí 2009 í hljóðverinu Tankinum á Flateryri, Önundafirði. Mikil ánægja var með hvernig til tókst, bæði meðal þátttakenda sem og þeirra sem tóku að sér kennslu að vinna með hljómsveitunum.

Nokkur lög voru kláruð í hljóðverinu og vel heppnað námskeið um upptökur, lagasmíðar og fyrstu skrefin í tónlistarbransanum haldin. Óvæntir tónleikar voru svo haldnir á Flateyri meðal hljómsveitanna laugardagskvöldið 13. júní. Hljómveitirnar sem tóku þátt í smiðjunum voru Bróðir Svartúlfs, Ljósvaki og The Vintage - sem skipuðu þrjú efstu sætin á Músíktilraunum 2009, en meðal verðlauna á Músíktilraunum í ár var þáttaka í smiðjunum, sem fóru fram dagana 12.-18. júní.

Leiðbeinendur á smiðjunum voru; Mugison (Örn Elías Guðmundsson) tónlistarmaður sem hefur víðtæka reynslu af vinnu í hljóðverum, Páll Ragar Pálsson sem er þekktur úr rokkinu sem gítarleikari Maus, er með BA í Tónsmíði frá Listaháskóla Íslands og er að ljúka mastersnámi í vor frá Estonian Academi of Music og Önundur Hafsteinn Pálsson, slagverskleikari, upptökumaður, tónlistarkennari á Ísafirði og Flateyri og frumkvöðull við að koma hljópðverinu Tankinum á laggirnar á Flateyri.

>> Fréttir á Kraumur.is; Hljóðverssmiðjur