Kraumslistinn
Kraumslistinn var settur á fót í þeim tilgangi að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - viðurkenna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
Kraumslistinn, sem bar nafnið Kraumsverðlaunin í fyrsta sinn sem hann var valinn í lok árs 2008, snýst fyrst og fremst um að styðja við og vekja athygli á þeim plötum dómnefnd velur til Kraumslistans, frekar en eina einstaka verðlaunaplötu.
Aðstandandi Kraumslistans er Kraumur, sjálfstætt starfandi sjóður og starfsemi á vegum Auroru velgerðarsjóðs sem hefur það að meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.
Það er von aðstandenda Kraumlistans að þau verði liðsauki fyrir íslenska listamenn og íslenska plötuútgáfu, og veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem ár hvert er fest disk, vínyl og stafrænni útgáfu hér á landi. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðað við jólagjafaflóðið, þegar listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka.
Verðlaunaplötur, tilnefning og val
Framkvæmd Kraumslistans er með þeim hætti að dómnefnd velur 5 verðlaunaplötur sem gefnar eru út á árinu. Ef sérstakt tilefni þykir til hefur dómnefnd vald til að auka við fjölda verðlaunaplatna, en það skal aðeins gert ef alveg sérstök ástæða þykir til.
Dómnefnd Kraumsverðlaunanna er skipuð 16 aðilum sem hafa reynslu af að fjalla um og spila íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar, í dagblöðum, útvarpi og á netinu. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.
Nánar upplýsingar um dómnefndina má finna hér.
Viðurkenning og verðlaun
Kraumur mun leggja meginháherslu á að styðja við þá titla sem valdir eru á Kraumslistann, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu. Umgjörð í kringum verðlaunin er haldið í lágmarki, og frekar reynt að einbeita sér að stuðningi við Kraumslistaplöturnar.
Kraumur mun styðja við Kraumslistaplöturnar, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).
Markmið Kraumslistans
- Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
- Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
- Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
Frekari upplýsingar um markmið verðlaunanna má finna hér.
Umsóknarferli;
- Ekkert umsóknarferli er fyrir listamenn / plötuútagáfur.*
- Ekkert þátttökugjald er fyrir listamenn / plötuútgáfur.
- Plötur eru valdar til Kraumsverðlauna óháð tónlistarstefnu, sölu, útgáfuformi eða útgáfufyrirtæki.
*Ábendingar: Dómnefnd tekur á mótiábendingum frá listamönnum og plötuútgáfum um útgefna titla sem gefnir hafa verið út 2009. Vinsamlegast sendið ábendingar á verdlaun@kraumur.is

