Dómnefnd og reglur

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna 2009 er skipuð 16 aðilum sem hafa reynslu af að fjalla um og spila íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar, í dagblöðum, útvarpi og á netinu.

Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.

Framkvæmdastjóri og stjórn Kraums sjá um val á yfirmanni dómnefndar, sem skipaður er til tveggja ára. Yfirmaður dómnefndar og framkvæmdastjóri Kraums sjá síðan í sameiningu um val á dómnefnd.

Dómnefnd skal starfa í samræmi við hugmyndafræði verðlaunanna og markmið. Enginn fjárhagslegur ávinningur skal vera af Kraumsverðlaununum sem eru ekki rekin í ágóðaskyni. Enginn í dómnefndinni þyggur laun fyrir vinnu sína.

Hægt er að hafa samband við dómnefnd gegnum póstfangið; verdlaun@kraumur.is

    Dómnefnd 2009

    • Árni Matthíasson - formaður dómnefndar (Morgunblaðið)
    • Alexandra Kjeld (Rjominn.is/Morgunblaðið)
    • Andrea Jónsdóttir (Rás 2)
    • Arnar Eggert Thoroddsen (Morgunblaðið)
    • Halldór Halldórsson (Dóri DNA) (DV)
    • Hildur Maral Hamíðsdóttir (Rjominn.is)
    • Ólafur Páll Gunnarsson (Rás 2)
    • Trausti Júlíusson (Fréttablaðið)
    • Þorkell Máni Pétursson (X-ið)
    • Ragnheiður Eiríksdóttir (Morgunblaðið)
    • Arndís Björk Ásgeirsdóttir (Rás 1)
    • Halla Steinunn Stefánsdóttir (Rás 1)
    • Matthías Már Magnússon (Rás 2
    • Haukur S. Magnússon (Grapevine) - NÝR
    • Skarphéðinn Guðmundsson (365) - NÝR
    • Benedikt Reynisson (Benson is Fantastic music blog) - NÝR

    Dómnefnd 2008

    • Árni Matthíasson - formaður dómnefndar (Morgunblaðið)
    • Alexandra Kjeld (Rjominn.is/Morgunblaðið)
    • Andrea Jónsdóttir (Rás 2)
    • Arnar Eggert Thoroddsen (Morgunblaðið)
    • Halldór Halldórsson (Dóri DNA) (DV)
    • Hildur Maral Hamíðsdóttir (Rjominn.is)
    • Ólafur Páll Gunnarsson (Rás 2)
    • Trausti Júlíusson (Fréttablaðið)
    • Þorkell Máni Pétursson (X-ið)
    • Ragnheiður Eiríksdóttir (Morgunblaðið)
    • Arndís Björk Ásgeirsdóttir (Rás 1)
    • Halla Steinunn Stefánsdóttir (Rás 1)
    • Sigvaldi Kaldalóns (FM 957)
    • Matthías Már Magnússon (Rás 2)
    • Sveinn Birkir Björnsson (Grapevine)

    ————————————————————

    Regluverk fyrir Kraumslistann

    • Kraumslistinn miðast við að velja plötur sem koma út á árinu sem viðurkenningin er veitt.
    • Platan skal hafa verið fáanleg í sölu til almennings; í verslun, á tónleikum eða vefverslun.
    • Efnið á plötunni skal, að stærstum hluta, vera frumsamið - sem útilokar endurútgáfur, safnplötur og, að einhverjum hluta, tónleikaplötur.
    • Ef um tónleikaupptökur er að ræða skal meta það, og taka tillit til, hvort um sé að ræða verulega breyttar útgáfur af lögum sem komið hafa út áður.
    • Safnplötur sem innihalda verk fleiri fjölda flytjanda geta ekki verið tilnefndar.
    • Markmiðið er að verðlauna íslenska plötuútgáfu, sú viðmiðunarregla skal vera viðhöfð að listamaður plötu sé íslenskur ríkisborgari, að meirihluta hljómsveitar séu íslenskir ríkisborgarar.
    • Til að plata geti verið tilnefnd til Kraumslistans verður hún að innihalda yfir 12 mínútur af tónlist, sem þýðir að stuttskífur (EP) plötur sem ná þeirri lengd eru góðar og gildar.
    • Dómnefnd verðlaunanna sker úr um öll vafaatriði.

    ————————————————————

    Regluverk fyrir dómnefnd

    • Enginn meðlimur í dómnefnd má hafa fjárhagslega hagsmuni í tengslum við þær plötur sem hann tilnefnir eða fjallar um.
    • Ætlast er til þess af dómnefndarmeðlimum að þeir láti ekki vina- né fjölskyldutengsl hafa áhrif á val sitt og störf innan dómnefndarinnar.
    • Komi sú staða upp að innan dómnefndar að fjallað er um plötu sem einhver meðlima hennar hefur fjárhagslega hagsmuni af, og/eða annarskonar tengsl, skal sá hinn sami ekki fjalla um plötuna og víkja sæti tímabundið af fundi dómnefndar.

    Reglur Kraumsverðlaunana voru teknar til endurskoðunar eftir afhendingu þeirra 2009.