Markmið & verðlaun
Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar.
Kraumslistinn hefur ekkert aldurstakmark, en markmið þeirra er engu að síður að einbeita sér að verkum yngri kynslóðar íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita.
Stefna Kraumslistans er að leggja áherslu á þá titla sem dómnefnd velur, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu.
Markmið Kraumslistans er;
- Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
- Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
- Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
————————————————————
Viðurkenning og verðlaun
Umgjörð í kringum Kraumlistann er haldið í lágmarki, og frekar reynt að einbeita sér að stuðningi við plöturnar sem valdar eru til Kraumslistans.
Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

