Saga & bakgrunnur
Kraumslistinn var fyrst valinn í desember 2008 og hét þá Kraumsverðlaunin.
Þessi viðurkenning Kraums var sett á laggirnar í þeim tilgangi að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - og verðlauna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
Ekkert aldurstakmarkhefur verið fyrir verðlaunin og listann. Markmiðið er og hefur verið að “kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, en þó sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita” eins og segir í reglunum.
Aðstandandi Kraumslistans er Kraumur, sjálfstætt starfandi sjóður og starfsemi á vegum Auroru velgerðarsjóðs sem hefur það að meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.
Það er von aðstandenda viðurkenningarinnar að Kraumslistinn verði liðsauki fyrir íslenska listamenn og íslenska plötuútgáfu, og veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem ár hvert er fest disk, vínyl og stafrænni útgáfu hér á landi. Ætlunin er að halda áfram velja Kraumslistan næstu ár.

