Myndir

Ýmsar myndir úr starfsemi Kraums tónlistarsjóðs…

Fleiri myndir, plaköt og ýmisskonar myndefni frá starfsemi Kraums má finna á Facebook síðu sjóðsins.


——————————————————————————————

Opið hús á Menningarnótt

Kraumur tónlistarsjóður og nágrannar í Vonarstræti 4B, Hönnunarsjóður Auroru og Hönnunarmiðstöð Íslands, voru með opið hús og dagskrá á Menningarnótt (laugardagskvöldið 21. ágúst) bæði innanhús og í portinu. Hljómsveitin Orphic Oxtra tók lagið, sýndar voru upptökur frá HönnunarMarsi 2010 og sitthvað fleira. Fleiri myndir má finna á Facebook síðu Kraums með því að smella hér - www.facebook.com/kraumur

Ljósmyndari: Eldar Ástþórsson

——————————————————————————————

Útidúr leikur á Vorhátíð í Vonarstræti

Kraumur tónlistarsjóður, Hönnunarmiðstöð Íslands og Hönnunarsjóður Auroru - sem deila húsnæði við Vonarstræti 4B - stóðu í sameiningu fyrir Vorhátíð í portinu föstudaginn 28. maí. Mikil og góð stemmning myndaðist í vorblíðunni. Boðið var upp á veitingar og gleði. Hljómsveitin Útidúr lék nokkur lög við góðan orðstír.

Ljósmyndari: Eldar Ástþórsson

——————————————————————————————

Kraumur kynnir stuðning við íslenskt tónlistarlíf 2010

Kraumur kynnti úthlutanir sínar og stuðning við íslenskt tónlistarlíf árið 2010 á einum helsta tónleikastað Reykjavíkurborgar, Kaffi Rósenberg, þann 15. apríl. Retro Stefson og Feldberg tóku lagið. Kynntur var stuðningur við tuttugu listamenn og hljómsveitir; Bang Gang, Bloodgroup, Bryndís Jakobsdóttir, Daníel Bjarnason, Einar Scheving, Feldberg, FM Belfast, Hafdís Bjarnadóttir, Kammerkórinn Carmina, K-tríó, Leaves, Mammút, Ourlives, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, Samúel Jón Samúelsson Big Band, Seabear, Sólstafir, Trúbatrix hópurinn og Víkingur Heiðar Ólafsson.
Ljósmyndari: Arnar G. Kárason, arnar@a2.is


——————————————————————————————

Kraumslistinn 2009 tilkynntur - viðurkenning og verðlaun á sviði plötuútgáfu

Kraumslistinn, sérstök viðurkenning Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka sem þótt hafa framúrskarandi, frumleg og spennandi í íslenskri plötuútgáfu á árinu, var kynntur annað árið í röð í dag, miðvikudaginn 16. desember. Í ár hlutu eftirtaldir listamenn viðurkenningu og stuðning fyrir plötur sínar;

  • * Anna Guðný Guðmundsdóttir - Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
  • * Bloodgroup - Dry Land
  • * Helgi Hrafn Jónssonon - For the Rest of My Childhood
  • * Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
  • * Hjaltalín - Terminal
  • * Morðingjarnir - Flóttinn mikli

Ljósmyndari: Skari

——————————————————————————————

Myndir & Mayhem - Íslensk tónlist í máli og myndum

Ljósmyndasýning Harðar Sveinssonar helguð íslensku tónlistarlífi og fjölbreytt tónlistardagskrá henni samhliða var haldin í samvinnu við og með stuðningi Kraums í Kaffistofunni við Hverfisgötu 42 á meðan á Iceland Airwaves hátíðinni stóð, dagana 14-20 október. Dagskráin samanstóð af ungum og upprennandi hljómsveitum á borð við Sykur, Miri og Sudden Weather Change.
Ljósmyndari: Hörður Sveinsson, hordur[a]gmail.com


——————————————————————————————

Svipmyndir frá You Are in Control ráðstefnunni

Kraumur fræðir íslenska tónlistarmenn um möguleika markaðssetningar á alþjóðavettvangi og netinu með vinnusmiðjunni ‘A World Without Borders’ og þáttöku í You Are in Control ráðstefnunni.
Ljósmyndari: Hörður Sveinsson, hordur[a]gmail.com

——————————————————————————————

Boston, Laugavegi 2. apríl - Úthlutanir og stuðningur við íslenskt tónlistarlíf 2009

Kynning á verkefnum og fyrstu úthlutunum Kraums - tónlistarsjóðs fyrir árið 2009. Fram komu Sin Fang Bous, Lay Low og Hjaltalín. Eldar Ástþórsson frakvæmdastjóri kynnti úthlutunirnar og áherslur sjóðsins á komandi starfsári, Þórunn Sigurðardóttir stjórnarformaður ávarpaði samkomuna.
Ljósmyndari: Hörður Sveinsson, hordur[a]gmail.com

Kraumur tónlistarsjóður

Eldar Ástþórsson


——————————————————————————————

Smiðjustígur, 28. nóvember - Kraumsverðlaunin 2008

Kraumsverðlaunin 2008 tilkynnt og afhent í æfingahúsnæðinu að Smiðjustíg 4A. Verðlaun hlutu; Agent Fresco, FM Belfast, Hugi Guðmundsson, Ísafold, Mammút og Retro Stefson. Fram komu verðlaunasveitirnar FM Belfast, Agent Fresco og Retro Stefson. Eftir hefðbundna dagskrá tóku fjölmargir tónlistarmenn sig til við myndum sannkallaðrar ofur-sveitar. Myndband um verðlaunin má finna hér.
Ljósmyndari: Hörður Sveinsson


Kraumsverðlaunahafar 2008


Þórunn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Kraums


Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums


Árni Matthíasson, formaður dómnefndar Kraumsverðlaunanna 2008


Kraumsverðlaunin 2008: Agent Fresco


Kraumsverðlaunin 2008: Agent Fresco fagna!


Kraumsverðlaunin 2008: FM Belfast

kraumsverðlaun - Retro stefson
Kraumsverðlaunin 2008: Retro Stefson


Kraumsverðlaunin 2008: Retro Stefson


Kraumsverðlaunin 2008: Ísafold


Kraumsverðlaunin 2008: Mammút


Kraumsverðlaunin 2008: Mammút


Kraumsverðlaunin 2008: Verðlaunahafar


Kraumsverðlaunin 2008: Verðlaunahafar


Retro Stefson


Retro Stefson


Agent Fresco


Meðlimir Mammút og Agent Fresco

——————————————————————————————

Iðnó, 19. júní - Kynning á Innrásinni

Innrásin, stuðningur Kraums við tónleikahald innanlands kynnt á Iðnó. Benni Hemm Hemm tók lagið. Knattspyrnulið Sumargleðinnar stillti upp fyrir myndatöku.
Ljósmyndari: Hörður Sveinsson (birt með góðfúslegu leyfi tímaritsins Monitor)

s

——————————————————————————————

Smiðjustígur 4B, 1. apríl - Kynning á fyrstu verkefnum Kraums

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra, Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjándsóttir stjórnaformaður Auroru, Þórunn Sigurðardóttir stjórnarformaður Kraums, Eldar Ástþórsson framkvæmdastjóri Kraums, Mugison, Pétur Ben, o.fl.
Ljósmyndari; Arnþór Birkisson (birt með góðfúslegu leyfi Fréttablaðsins)

——————————————————————————————

s

Smiðjustígur 4B, 1. apríl - Kynning á fyrstu verkefnum Kraums

Sigurður Guðmundsson (birt með góðfúslegu leyfi DV)

s

——————————————————————————————

Nokkrir af þeim listamönnum sem Kraumur vann með árið 2008

Mugison

Mugison

Skakkamanage

FM Belfast

FM Belfast

Elfa Rún Kristinsdóttir

Elfa Rún Kristinsdóttir

Víkingur Heiðar Ólafsson

Dikta

Ólöf Arnalds

Amiina

Amiina

Celestine

Celestine