Starfsemi

Kraumur hefur komið víða við frá því að sjóðurinn var stofnaður og starfsemin hófst í upphafi árs 2008.

Á árunum 2008-2010 hefur Kraumur unnið með og stutt við yfir áttatíu íslenskar hljómsveitir og listamenn á sviði plötugerðar, tónleikahalds, kynningu og annarra verkefna. Kraumur hefur jafnframt staðið fyrir margskonar verkefnum í tengslum við fræðslu og eigin námskeið, stutt við viðburði og staðið fyrir eigin verkefnum.

Kraumur hefur staðið fyrir eigin verkefnum, m.a. í tengslum við Kraumslistann, viðurkenningu og verðlaun á Kraums sviði íslenskrar plötuútgáfu, Innrásina átaks Kraums til tónleikahalds innanlands og Hljóðverssmiðjunum sem ætlað að styðja við grasrótina í íslensku tónlistarlífi, miðla reynslu og gefa hljómsveitunum tækifæri á að taka upp eigið efni.

Kraumur á sér góða samstarfsaðila og meðal þerira sem Kraumur hefur unnið með árin 2008-10 má nefna Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN), Listahátíð í Reykjavík, Músíktilraunir/Hitt húsið, Ríkisútvarpið Rás 2 og Hönnunarsjóð Auroru.

________________________________________________________


Meðal þeirra listamanna sem Kraumur hefur unnið með og stutt við árin 2008-2010 eru;
Agent Fresco, Agnar Már Magnússon, Amiina, Anna Guðný Guðmundsdóttir,  Anonymous, Árstíðir, Bang Gang, Benni Hemm Hemm, Benny Crespo’s Gang, Biogen, Björk, Bloodgroup, Borko, Bróðir Svartúlfs, Bryndís Jakobsdóttir, Celestine, Daníel Bjarnason, Dikta, Dr. Spock, Einar Scheving, Elfa Rún Kristinsdóttir, Elíza Geirsdóttir Newman, Feldberg, FM Belfast, For a Minor Reflection, Hafdís Bjarnadóttir, Helgi Valur, Helgi Hrafn Jónsson, Hildur Guðnadóttir, Hjaltalín, Hugi Guðmundsson, Ísafold, Kristjana Stefáns, Lay Low, Leaves, Ljósvaki, MC Plútó, Mammút, Melkorka Ólafsdóttir, Miri, Morðingjarnir, Momentum, Mógil, Mugison, Myrra, Mysterious Marta, Njútón, Nordic Affect, Nögl, Ourlives, Ólafur Arnalds, Ólöf Arnalds, Pascal Pinon, Retro Stefson, Reykjavík!, Reginfirra, Samúel J. Samúelsson Big Band, Seabear, Sign, Sigur Rós, Sin Fang Bous (Sindri Már Sigfússon), Skakkamanage, Skátar, Sólstafir, Sykur, Sudden Weather Change, Svavar Knútur, Swords of Chaos, Ulta Mega Technobandið Stefán, The Vintage, Vicky, Víkingur Heiðar Ólafsson, XXX Rottweiler og Yagya.

________________________________________________________

Viðburðir og hátíðir sem Kraumur hefur stutt og átt í samstarf við;

  • Náttúra: tónleikar með Sigur Rós, Björk & Ólöf Arnalds
    Laugardalur, 28.06.2008 (vefsíða)
  • Tónleikadagskrá á Iceland Airwaves, opin öllum
    Smiðjustígur, okt 2008 (vefsíða)
  • Tónleikar Ólafs Arnalds (ásamt Ólöfu Arnalds)
    Fríkirkjan, 18.12.2008 (vísun)
  • Jólatónleikar ýmissa ungra og efnilegra hljómsveita
    Íslenska óperan, 28.12.2008 (vísun)
  • Stuðningur við tónleika ungra listamanna á Listahátíð í Reykjavík (Stofutónleikar)
  • Tónlistarhátíð unga fólksins
  • Reykjavik Jazz Performance Workshop
  • Vinnusmiðja á You Are in Control ráðstefnunni
  • Myndir & Mayhem - ljósmyndasýning og tónleikadagskrá á Iceland Airwaves hátíðinni
  • Námskeiðahald og vinnusmiðjur á Aldrei fór ég suður (Námskeið og ráðstefna)
  • Eistnaflug
  • LungA

________________________________________________________

Viðburðir og verkefni sem Kraumur hefur staðið fyrir;

  • Innrásin
    Átak Kraums til stuðnings tónleikahaldi á landsbyggðinni (vísun)
  • Kraumslistin (Kraumverðlaunin)
    Verðlaun og viðurkenning á sviði plötuútgáfu (vísun)
  • Hljóðverssmiðjur: Í samstarfi við Músíktilraunir
    Til stuðning grasrótarinnar í íslensku tónlistarlífi (vísun)
  • Video / internet / podcast þáttagerð (vísun)