Starfsemi 2009
Kraumur tónlistarsjóður kynnti í byrjun apríl úthlutanir sínar og stuðning við íslenskt tónlistarlíf, tónlistarmenn og hljómsveitir árið 2009.
Áhersla hefur verið lögð á innlend verkefni á þessu öðru starfsári Kraums - og stuðning við starfsemi listamanna og hljómsveita hérlendis.
Á árinu 2009 hefur Kraumur haldið áfram styðja við tónleikahald innanlands með Innrásinni, sérstöku átaki til stuðnings tónleikahaldi á landsbyggðinni, sem og að velja og verðlauna spennandi hluti í íslenskri plötuútáfu með Kraumslistanum (sem áður hét Kraumsverðlaunin).
Kraumur ýtti úr vör nýju verkefni, Hljóðverssmiðjum, í Tankinum á Flateyri sumarið 2009. Með Hljóðverssmiðjunum er ætlunin að styðja við grasrótina í íslensku tónlistarlífi og gefa þeim tækifæri á að vinna með reyndari tónlistarmönnum, sem veita aðstoð og leiðsögn við upptökur og lagasmíðar. Smiðjurnar eru unnar í samstarfi Músíktilraunir, þar sem sigursveitum hljómsveitakeppninar þetta árið var boðin þátttaka.
Meðal þeirra listamanna og hljómsveita sem Kraumur vann með og studdi við árið 2009 voru; Hjaltalín, Lay Low, Sindri Már Sigfússon (Sin Fang Bous / Seabear), Ólafur Arnalds, Ólöf Arnalds, Mógil, For a Minor Reflection og kammerhópurinn Nordic Affect. Verkefni þessara listamanna var m.a. stuðningur og samstarf við plötugerð, kynningarvinnu og tónleikahald erlendis sem innanlands.
Kraumur studdi jafnframt við Trúbatrix, nýtt tengslanet og tónlistarhóp sem samanstendur af íslenskum tónlistarkonum sem flytja frumsamda íslenska tónlist, til tónleikahalds innanlands. Auk þess hefur Kraumur í samstarfi við Apparat Organ Quartet og Festingu komið lagerhúsnæði á Gelgjutanga í stand fyrir tónlistariðkun.
Kraumur studdi við tónleika fjölda ungra listamanna á Stofutónleikum Listahátíðar í Reykjavík, hélt námskeið og vinnusmiðjur á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði, átti í samstarfi við Tónlistarhátíð unga fólksins í Kópavogi og studdi við Reykjavik Jazz Performance vinnusmiðjur fyrir unga og upprennandi listamenn á Jazzhátíð í Reykjavík.
YFIRLIT ÚTHUTANA OG VERKEFNA 2009
Samstarf og beinn stuðningur við listamenn (4.700.000 kr)
- Hjaltalín
Hljómplötugerð, tónleikahald & kynning hérlendis sem erlendis, 1.200.000 kr - Nordic Affect
Framkvæmda og vinnustuðningur við upptökur og hljómplötugerð, 500.000 kr - Sindri Már Sigfússon / Sin Fang Bous
Framkvæmda og vinnustuðningur við upptökur og hljómplötugerð, 500.000 kr - Ólöf Arnalds
Stuðningur við upptökur, tónleika & kynningu erlendis, 500.000 kr - Ólafur Arnald
Framkvæmda og vinnustuðningur við upptökur og hljómplötugerð, 500.000 kr - For a Minor Reflection
Framkvæmda og vinnustuðningur við upptökur og hljómplötugerð, 500.000 kr - Lay Low
Tónleikahald og kynningu erlendis, 500.000 kr - Mógil
Tónleikahald innanlands (Innrás) og á WOMEX hátíðinni), 500.000 kr
Samstarfsverkefni (2.400.000 kr)
- Stuðningur við tónleika ungra listamanna á Listahátíð í Reykjavík (Stofutónleikar) 1.000.000 kr
- Tónlistarhátíð unga fólksins 400.000 kr
- Reykjavik Jazz Performance Workshop 400.000 kr
- Vinnusmiðja á You Are in Control ráðstefnunni 400.000 kr
- Myndir & Mayhem - ljósmyndasýning og tónleikadagskrá á Iceland Airwaves hátíðinni 200.000 kr
Innrásin (1.600.000 kr)
Átak Kraums til stuðnings tónleikahalds á landsbyggðinni. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.
- Árstíðir, Svavar Knútur & Helgi Valur (Rás 2 plokkar hringinn) 400.000 kr
- Trúbatrix (ýmsir listamenn) 400.000 kr
- Sudden Weather Change, Retro Stefson o.fl. (Sumargleði, Lunga) - 400.000 kr
- Nögl og hljómsveitir á þeim stöðum heimsóttir eru - 200.000 kir
- Momentum og fleiri hljómsveitir Molestin Records á Eistnaflugi - 200.000 kr
Eigin verkefni Kraums (2.700.000 kr)
- Kraumsverðlaunin (stuðningur við plötuútgáfu) 1.200.000 kr
- Hljóðverssmiðjur Kraums og Tanksins (þremur verðlaunahöfum Músíktilrauna 2009 tryggt pláss) 1.000.000 kr
- Námskeiðahald og vinnusmiðjur á Aldrei fór ég suður 500.000 kr
>> Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að lesa meira um fyrstu úthlutanir og stuðning Kraums við íslenskt tónlistarlíf 2009.
———————————–
NÁNARI UPPLÝSINGAR
BEINN STUÐNINGUR VIÐ LISTAMENN OG HLJÓMSVEITIR (4.700.000 kr)
Hljómsveitin Hjaltalín fær hæstu upphæð stuðnings úthlutunar Kraums að þessu sinni, 1,2 milljónir, til starfsemi sinnar á árinu, sem að stærstum hluta felur í sér stuðning gerð nýrrar breiðskífu og tónle ikhaldi innanlands - auk kynningarstarfsemi og tónleika á erlendum vettvangi.
Kraumur styður við upptökur og önnur verkefni Nordic Affect, Sindra Más Sigfússonar sem Sin Fang Bous, Ólafs Arnalds og For a Minor Reflection um 500.000 kr hver listmaður/hljómsveit. Eina eiginlega útrásarverkefni sjóðsins er stuðningur við tónleikahald Lay Low og hljómsveitar hennar á erlendum vettvangi, m.a. tónlistarhátíðunum Glastonbury og End of the Road (500.000 kr) - sem og tónleikar Mógil á stærstu heims- og þjóðlagahátíð heims; WOMEX. Stuðningurinn til Mógil fer jafnframt í tónleikaferð sveitarinnar innanlands sem hluti af Innrás Kraums (samtals 500.000 kr.)
Liðsmenn Mógil fylgja þar með í kjölfar Ólöfu Arnalds sem fyrst allra íslenskra listamanna spilaði á WOMEX í fyrra með stuðningi Kraums, fyrir tilstuðlan Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) sem einnig hefur milligöngu um að tryggja Mógil pláss á þessari einstöku tónlistarhátíð að þessu sinni. Tónleikar Ólafar á WOMEX í fyrra vöktu verðskuldaða athygli hjá tónleikahöldurum, plötuútgáfum og fjölmiðlum. Eftir vel heppnaða kynningartónleika í New York og Náttúru tónleikunum í Laugardal heldur Kraumur áfram að vinna með Ólöfu í ár að væntanlegri breiðskífu hennar (500.000 kr).
HLJÓÐVERSSMIÐJUR Í TANKINKNUM (MÚSÍKTILRAUNIR 2009) (1.000.000 kr)
Kraumur styður við sigurvegara Músíktilrauna 2009 og sveitirnar sem lenda í 2. og 3. sæti með plássi í Hljóðverssmiðjum Kraums og Tanksins á Flateyri. Um er að ræða eina viku í hljóðveri, gistingu, samtals 70 upptökutíma með hljóðmanni, auk leiðbeininga og kennslu frá reyndari listamamönnum.
Markmiðið með hljóðverssmiðjunum er að styðja við grasrótina í íslensku tónlistarlífi, miðla reynslu og gefa hljómsveitunum tækifæri á að taka upp efni sem nýst gæti við kynningu á sér og sinni tónlist, t.a.m. dreifingar á netinu og til útvarpsstöðva, og/eða sem byrjun á breiðskífu.
VINNUSMIÐJUR Á ALDREI FÓR ÉG SUÐUR (500.000 kr)
Samstarf um vinnusmiðjur og námskeið sem fara fram á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafiriði um páskana. Farið yfir styrkjaumhverfi tónlistarbransans, vinnusmiðja um textagerð, tækifæri íslenskra listamanna á erlendum vettvangi o.fl. Aðgangur ókeypis, fyrir unga listamenn á Vestfjörðum sem og alla aðra.
STUÐNINGUR VIÐ FRÆÐSLU OG VINNUSMIÐJUR (800.000 kr)
Kraumur styður við við dagskrá fyrir ungt tónlistarfólk, kennslu og fræðslu á Tónlistarhátíð unga fólksins sem haldin verður í annað sinn í Kópavogi í águst (400.000 kr). Kraumur styðjur jafnframt við Reykjavik Jazz Performance Workshop námskeið og vinnusmiðjur sem til stendur að halda í fyrsta sinn í ár í tengslum við Jazzhátíð í Reykjavík (400.000 kr).
STUÐNINGUR VIÐ TÓNLEIKA UNGRA LISTAMANNA Á LISTAHÁTÍÐ (1.000.000 kr)
Kraumur styður við tónleika ungra tónlistamarmanna á Listahátíð í Reykjavík og er samstarfsaðila Stofutónleika hátíðarinnar sem verða haldnir á heimilum og í æfingahúsnæðum Listahátíðarhelgina 22. til 24. maí. Sérstakt umsóknarferli var um að koma fram á Stofutónleikunum og valnefnd skipuð fulltrúum Listahátíðar í Reykjavík, Félags íslenskra tónlistarmanna (FÍT) og Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) sá um val listamanna.
Þeir listamenn sem Kraumur styður við tónleikahald eru; Vicky sem halda tónleika í heimahúsi á Holtsgötu, Bloodgroup sem bjóða til tónleika æfingahúsnæði sínu á Eyjaslóð, Nordic Affect sem leika barrokk í Þingholtunum, Kristjana Stefáns og Agnar Már Magnússon sem verða með djass í Breiðholti, Ólöf Arnalds sem heldur tónleika á heimili sínu í Ingólfsstræti, Reykjavík! sem halda tónleika í æfingarými sínu og fleiri hljómsveita á Smiðjustíg, Amiina sem halda tónleika í húsi Hannerar Hafsteins á Grundastíg, raftónlistarmennirnir Yagya, Anonymous, og Biogen halda Wierdcore samkomu í Hellinum á Hólmaslóð og loks mun kúabjöllusveit alþýðunnar FM Belfast, yngsti rappari landsins MC Plútó og popp-rokk-bossanova bandið Retro Stefson sameinast í að bjóða tónleikagestum í heimsókn í heimahús á Ingólfsstræti.
Kraumur leggur tónleikunum lið með 1.000.000 kr framlagi, m.a. til að standa straum af launum yngri listamanna.
INNRÁSIN HELDUR ÁFRAM (1.600.000 kr)
Kraumur ýtti í fyrra úr vör nýju átaki til stuðnings tónleikahaldi á landsbyggðinni. Innrásin heldur áfram af fullum krafti í ár þar sem markmiðið er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.
Þau verkefni sem nú hljóta Innrásar-stuðning eru; tónleikaferð félagskaparins Trúbatrix (400.000 kr) sem er nýtt tengslanet ungra íslenskra tónlistarkvenna sem hafa m.a. fagnað gróskunni í Íslenskri kvenna tónlist með reglubundnu tónleikahaldi á Kaffi Rósenberg, tónleikaferð Árstíða, Svavars Knúts og Helga Vals (400.000 kr) um byggðir landsins í samstarfi við Rás 2, tónleikaferð Sudden Weather Change og fleiri sveita (400.000 kr) undir merkjum Sumargleði Kimi Records á Lunga hátíðina á Egilstöðum og fleiri áfangastaði, tónleika Momentum og ýmissa rokksveita tengdum Molestin Records félagskapnum á Eistnaflugi sem teknir verða upp til útgáfu og tónleikaferð rokksveitarinnar Nögl (200.000 kr) sem ætlar sér að fá hljómsveitir í plássunum sem þeir heimsækja til að spila með sér á hverjum tónleikum fyrir sig.

