Starfsemi 2008
Yfirlit verkefna Kraums árið 2008
Kraumur vann með og studdi fjölda listamanna og hljómsveita til góðra verka á fyrsta starfsári sínu, árið 2008. Stuðningur Kraums við listamenn er í formi fjárhagslegs styrks ásamt tilheyrandi ráðgjöf og aðstoð þar sem því er komið við.
Auk þess setti Kraumur af stað tvö eigin verkefni; Innrásina, átak til stuðnings tónleikhaldi innanlands, og Kraumsverðlaunin, þar sem stutt er við bakið á íslenskri plötuútgáfu og spennandi og framsæknar útgáfur eru verðlaunaðar.
Aurora velgerðarsjóður og Kraumur lögðu Náttúru tónleikum Björk, Sigur Rós og Ólöf Arnalds lið og var einn helsti bakharl þeirra. Kraumur tók jafnframt þátt í tónleikahaldi í æfingahúsnæði nokkurra listamanna að Smiðjustíg og studdi við þáttagerð á netinu um íslenska tónlist og tónlistarmenn.
Beinn stuðningur við listamenn
- Mugison, heimasíða
Tónleikahald og kynning á erlendum vettvangi. - Víkingur Heiðar Ólafsson, heimasíða
Tónleikahald, kennsla og kynning í framhaldsskólum. - Amiina, heimasíða
Tónleikahald á landsbyggðinni. - Celestine, heimasíða
Framkvæmda- og vinnustuðningur við hljómplötugerð. - Dikta, heimasíða
Framkvæmda- og vinnustuðningur við hljómplötugerð. - Elfa Rún Kristinsdóttir, heimasíða
Framkvæmda- og vinnustuðningur við hljómplötugerð. - FM Belfast, heimasíða
Framkvæmda- og vinnustuðningur við hljómplötugerð. - Skakkamanage, heimasíða
Framkvæmda- og vinnustuðningur við hljómplötugerð. - Ólöf Arnalds, heimasíða
Framkvæmda- og vinnustuðningur við upptökur og tónleikahald erlendis.
Sjálfstæð verkefni Kraums
- Innrásin, meira
Átak til að styðja hljómsveitir og listamenn við tónleikahalds á landsbyggðinni. Meðal þeirra listamanna sem styrktir hafa verið til tónleikahalds eru; Benni Hemm Hemm, Benny Crespo’s Gang, Bloodgroup, Borko, Dr. Spock, Elfa Rún Kristinsdóttir, Melkorka Ólafsdóttir, Morðingjarnir, Njútón, Reykjavík!, Sign, Skátar og Sykur. - Kraumsverðlaunin, meira
Ný plötuverðlaun, sett á fót í þeim tilgangi að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - og verðlauna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
Önnur verkefni
- Náttúra - tónleikar 28. júní með Sigur Rós, Björk og Ólöf Arnalds vefsíða
Aurora velgerðasjóður og Kraumur lögðu tónleikunum lið, þar sem öllum var heimill aðgangur án endurgjalds. Þegar hæst stóð voru um 30 þúsund manns í brekkunni við þvottalaugarnar, um 2,5 milljónir manna fylgdust með á netinu víða um heim. - Video / internet / podcast þáttagerð, vefsíða
Kraumur styður Stuart Rogers við að gera íslensku tónlistarlífi og tónlistarmönnum skil í máli og myndum á internetinu. Video Podcast þættir Stuart hafa hlotið verðskuldaða athygli á Youtube og hans eigin net-stjónvarpsstöð; Lo Fi TV. Hann hefur m.a. tekið upp tónleika Innrásarinnar á landsbyggðinni, heimsótt listamenn í æfingahúsnæði og stúdíó listamanna og tekið upp efni á Iceland Airwaves hátíðinni. Auk Kraums hefur skrifstofa Ferðamálaráðs í Bandaríkjunum stutt við komu Stuart Rogers hingað til lands. - Tónleikadagskrá á Iceland Airwaves, á Smiðjustíg, vefsíða
Kraumur og Kimi plötuútgáfan settu saman dagskrá í æfingahúsnæði nokkurra hljómsveita á Smiðjustíg 4a (við hlið Grand rokk) yfir Iceland Airwaves hátíðina þar sem nokkrar vonarstjörnur íslensks tónlistarlífs komu fram; m.a. Retro Stefson, Reykjavík!, Dísa, Borko og Arnljótur og vinir. Aðgangur var ókeypis. - Tónleikar Ólafs Arnalds (ásamt Ólöfu Arnalds) í Fríkirkjunni, 18. desember, vísun
Ólafur Arnalds lýkur 6 mánaða tónleikaferðalagi um Evrópu og Norður-Ameríku með tónleikum í Fríkirkjunni. Kraumur styður við og kemur að undirbúningi tónleikana. - Tónleikar í Ísalensku óperunni, 28 desember, vísun
Nokkrar af efnilegustu hljómsveitum landsins krafta sína og ákveðið að halda stórtónleika í Íslensku óperunni. Fram koma For a Minor Reflection, Retro Stefson, Ólafur Arnalds, XXX Rottweiler og Ulta Mega Technobandið Stefán.
