Posts Tagged ‘2011’

Nordic Affect sendir frá sér nýjan geisladisk

Wednesday, December 21st, 2011

Nordic Affect hafði gengið lengi með þann draum að taka upp geisladisk með verkum eftir Carl Friedrich Abel. Draumurinn varð að veruleika með styrk frá Kraumi. Geisladiskurinn er nú tilbúinn og á leið í verslanir út um allan heim þökk sé útgáfusamningi við hollenska útgáfufyrirtækið Brilliant Classics.

En af hverju Abel? Spyrja eflaust einhverjir. Það má segja að Abel hafi einfaldlega heillað Nordic Affect upp úr skónum með verkum sínum en þeirra fyrstu kynni af verkum hans var innan tónleikaraðar sveitarinnar í Þjóðmenningarhúsinu. Má segja ad Abel hafi verið maður sem kunni heldur betur að skrifa undurfagra hæga kafla, var hann sjálfur rómaður fyrir spuna sinn i hægum köflum a gömbuna. Blómatími hans var um miðbik 18. aldar og skipar hann sér því í flokk með tónskáldum a borð við J.C.Bach, Stamitz o.fl. sem voru uppi á þessum mikla gerjunartíma tónlistar. Hann var í raun einn af síðustu gömbusnillingum barokksins og segja má að hann sé tónskáld sem standi á mörkum hins margslungna barokkstíls og hinnar lagrænu klassíkur.

Verkin sem flutt eru á þessum diski óma sjaldan í dag en draga upp góða mynd af fjölbreyttum tónsmíðum Abels sem er kannski þekktastur fyrir gömbutónsmíðar sínar. Það var heilmikil vinna að ákveða hvað ætti að rata inn á diskinn og því var farið í gegnum heilu bunkana af verkum. Fyrir valinu urðu tveir flautukonsertar, ein strengjasinfónía, ein tríósónata ásamt tveimur flautusónötum. Edward Beckett var Nordic Affedt innan handar hvað varðar nótur að konsertunum sem hann hefur útbúið til útgáfu fyrir Hunt Editions en frumhandrit þeirra er ad finna i Stadtbibliothek Leipzig. Kammerverkin og strengjasinfóníuna fundust hins vegar í handritum í British Library.

Diskurinn var hljóðritaður af Georgi Magnússyni í tengslum við tónleika á Sumartónleikum í Skálholti. Hljóðritun og eftirvinnsla var einnig i höndum Georgs sem er einn af okkar færustu mönnum þegar kemur að hljóðritun klassískrar tónlistar og hafa hljóðritanir hans hlotið tilnefningar til verðlauna bæði hér heima og erlendis. Nordic Affect náði í framhaldi útgáfusamningi við hollenska útgáfufyrirtækið Brilliant Classics sem er eitt hið virtasta í heiminum þegar kemur að útgáfu tónlistar fluttri á upprunahljóðfæri. Fyrirtækið er jafnframt með dreifingu á heimsvísu.

Nordic Affect hefur starfað frá árinu 2005 og hefur áður leikið inn á Apocrypha, geisladisk með samnefndu verki eftir Huga Guðmundsson en diskurinn komst á Kraumslistann og hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Einnig lék sveitin inn á Hymnodia Sacra, geisladisk kammerkórsins Carmina en sá diskur hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrr á árinu. Nú var því kominn tími á geisladisk með verkum fyrri alda frá meginlandinu og hefur sá draumur nú ræst og Abel diskurinn með þessum íslenska kammerhóp á leið í verslanir út um allan heim þann 1. janúar og ekki hægt að segja annað en að við fáum óskabyrjun á árinu 2012. Þökk sé 12 Tónum þá fá Íslendingar hins vegar að þjófstarta, því 12 Tónar gerði samning við Brilliant Classics um að fá diskinn til landsins á undan öllum öðrum og kemur því í verslunina fyrir jól. Fyrir það erum við þakklát og vonandi að sem flestir leggi leið sína í hina notalegu verslun 12 Tóna og tékki á okkar kæra Abel!

Nordic Affect: Heimasíða / Facebook

Kraumslistinn 2011 - Verðlaunaplötur

Friday, December 16th, 2011

Kraumslistinn 2011, árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs, var kynntur í dag. Á listanum er að finna sex plötur sem bera þess merki að mikið hefur verið í þær lagt, að hér eru verk eftir vaxandi og leitandi listamenn. Plöturnar sem skáru framúr og skipa listann eiga það sameiginlegt að vera frumlegar, spennandi og skemmtilegar en 20 plötur voru tilnefndar til verðlaunanna. Það var ekki auðvelt að gera upp á milli allra þeirra góðu platna sem skipuðu listann og komu út á árinu en á því liggur enginn vafi að tónlistarárið 2011 var gjöfult og gott.

Árni Matthíasson, formaður dómnefndar, tilkynnti niðurstöðu um val verðlaunaplatna sem líkt og síðustu tvö ár eru sex talsins. Afhending verðlaunanna fór fram í húsnæði Kraums tónlistarsjóðs að Vonarstræti 4b.

Kraumslistinn 2011 - Verðlaunaplötur

ADHD - ADHD2

Lay Low - Brostinn Strengur

Reykjavík! - Locust Sounds

Samaris - Hljóma Þú (ep)

Sin Fang - Summer Echoes

Sóley - We Sink

Kraumslistanum (stundum kölluð Kraumsverðlaun) er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi - og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.

Verðlaun

Kraumur mun leggja metnað við að styðja alla þá titla sem valdir eru á Kraumslistann, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu. Sjóðurinn mun styðja við Kraumslistaplöturnar og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri erlendis með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa þeim til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.).

Í dómnefnd Kraumslistans 2011 sátu:

Alexandra Kjeld, Andrea Jónsdóttir, Anna Andersen, Arnar Eggert Thoroddsen, Arndís Björk Ásgeirsdóttir, Árni Matthíasson, Benedikt Reynisson, Berglind María Tómasdóttir, Egill Harðarson, Eldar Ástþórsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Helena Þrastardóttir, Helga Vala Helgadóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Höskuldur Daði Magnússon, Kamilla Ingibergsdóttir, Ólafur Páll Gunnarsson, Ómar Eyþórsson, Trausti Júlíusson og Þorkell Máni Pétursson

Kraumslistinn 2010 - Verðlaunaplötur

  • Apparat Organ Quartet - Pólyfónía
  • Daníel Bjarnason - Processions
  • Ég - Lúxus upplifun
  • Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
  • Nolo - No-Lo-Fi
  • Ólöf Arnalds - Innundir skinni

Kraumslistinn 2009 - Verðlaunaplötur

  • Anna Guðný Guðmundsdóttir - Vingt regards sur l’enfant-Jésus
  • Bloodgroup - Dry Land
  • Helgi Hrafn Jónsson - For the Rest of my Childhood
  • Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
  • Hjaltalin - Terminal
  • Morðingjarnir - Flóttinn mikli

Kraumslistinn 2008 - Verðlaunaplötur

  • Agent Fresco - Lightbulb Universe·
  • FM Belfast - How to Make Friends
  • Hugi Guðmundsson – Apocrypha
  • Ísafold - All Sounds to Silence Come
  • Mammút – Karkari
  • Retro Stefson – Montaña

Markmið Kraumslistans

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
  • Kraumslistinn hefur ekkert aldurstakmark, en markmið hans er engu að síður að einbeita sér að verkum yngri kynslóðar íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita sem eru að ryðja sér til rúms.
  • Stefna Kraumslistans er að leggja áherslu á þá titla sem dómnefnd velur, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu.
  • Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar.

Kraumslistinn – Úrvalslisti 2011

Tuesday, December 6th, 2011

Markmið Kraumslistans er að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna með sérstöku tilliti til þeirra sem yngri eru. Viðurkenna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Verðlaunaplötur - Tilnefning og val

Framkvæmd Kraumslistans 2011 er með þeim hætti að sex manna dómnefnd valdi 20 plötur á Úrvalslista Kraumslistans en við honum tekur 20 manna dómnefnd og velur bestu plöturnar þannig að eftir standa 5 til 6 verðlaunaplötur

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna er skipuð 20 aðilum sem allir hafa mikla reynslu af því að hlusta á og fjalla um íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðla. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.

Í úrvalslistanefnd áttu sæti ásamt  Árna Matthíassyni: Andrea Jónsdóttir, Trausti Júlíusson, Egill Harðarson, Helena Þrastardóttir og Hildur Maral Hamíðsdóttir.

Úrvalslisti Kraumslistans 2011:

  • ADHD - ADHD2
  • Anna Þorvalds - Rhízoma
  • Ben Frost og Daníel Bjarnason - SÓLARIS
  • Dead Skeletons - Dead Magick
  • FM Belfast - Don’t want to sleep
  • For a Minor Reflection - EP
  • Helgi Hrafn Jónsson - Big Spring
  • Hljómsveitin Ég - Ímynd Fíflsins
  • Lay Low - Brostinn Strengur
  • Nolo - Nology
  • Of Monsters and men - My Head is an Animal
  • Ofvitarnir - Stephen Hawking/Steven Tyler
  • Ragga Gröndal - Astrocat Lullaby
  • Reykjavík! - Locust Sounds
  • Samaris - Hljóma Þú (ep)
  • Sin Fang - Summer Echoes
  • Skurken - Gilsbakki
  • Snorri Helga - Winter Sun
  • Sóley - We Sink
  • Sólstafir - Svartir Sandar

Tilkynnt verður hverjir skipa listann föstudaginn 16. desember – Nánar auglýst síðar

Kraumslistinn - Viðurkenning og verðlaun

Kraumslistinn, sem bar nafnið Kraumsverðlaunin í fyrsta sinn sem hann var valinn í lok árs 2008, snýst fyrst og fremst um að styðja við og vekja athygli á öllum þeim plötum sem dómnefnd velur til Kraumslistans, frekar en eina einstaka verðlaunaplötu. Nú hefur sex manna dómnefnd lokið störfum og valið 20 plötur á Úrvalslista Kraumslistans en stærri dómnefnd velur svo af þeim lista bestu plötur ársins.

Aðstandandi Kraumslistans er Kraumur tónlistarsjóður sem er sjálfstætt starfandi sjóður á vegum Auroru velgerðarsjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.

Það er von aðstandenda Kraumlistans að verðlaunin verði liðsauki fyrir íslenska listamenn og íslenska plötuútgáfu, og veki enn frekari athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem einkennir íslenskt tónlistarlíf. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðuð við jólagjafaflóðið, þegar listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka.

Kraumur mun leggja metnað við að styðja alla þá titla sem valdir eru á Kraumslistann, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu. Umgjörðin í kringum verðlaunaafhendinguna er í lágmarki og frekar reynt að einbeita sér að auknum stuðningi við plöturnar.

Kraumur mun styðja við Kraumslistaplöturnar og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri erlendis með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa þeim til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.).

Markmið Kraumslistans

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.
  • Kraumslistinn hefur ekkert aldurstakmark, en markmið hans er engu að síður að einbeita sér að verkum yngri kynslóðar íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita sem eru að ryðja sér til rúms.
  • Stefna Kraumslistans er að leggja áherslu á þá titla sem dómnefnd velur, frekar en að einblína á eina einstaka verðlaunaplötu.

Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar.

Kraumslistinn 2011

Monday, November 28th, 2011

Nú er verið að fara yfir útgáfuárið 2011 og velja plötur á Kraumslistann. Það er greinilegt að margar frábærar plötur komu út á árinu og að dómnefndinni bíður erfitt verkefni.

Markmið verðlaunanna er að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita. Vekja athygli á því sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Frekari upplýsingar um markmið verðlaunanna má finna hér.

Umsóknarferli:

  • Ekkert umsóknarferli er fyrir listamenn / plötuútgáfur.
  • Ekkert þátttökugjald er fyrir listamenn / plötuútgáfur.
  • Plötur eru valdar á Kraumslistann óháð tónlistarstefnu, sölu, útgáfuformi eða útgáfufyrirtæki.

Dómnefnd tekur á móti ábendingum frá listamönnum og plötuútgáfum um titla sem gefnir hafa verið út 2011. Vinsamlegast sendið ábendingar á kraumur@kraumur.is.

Anna Þorvaldsdóttir sendir frá sér Rhizoma

Monday, October 31st, 2011

Í síðustu viku kom út Rhizoma, fyrsta plata Önnu Þorvaldsdóttur tónskálds hjá bandaríska útgefandanum Innova Recordings, en það er Naxos sen sér um dreifingu plötunnar.

Á Rhizoma er að finna þrjú stærri verk fyrir hljómsveit og kammerhljómsveit auk fimm stuttra kafla fyrir slagverksleikara sem leikur á innviði flygils.

Anna Þorvaldsdóttir hlaut styrk frá Kraumi tónlistarsjóði til að vinna að undirbúningi og kynningu Rhizoma.

Platan er m.a. fáanleg á iTunes og Amazon.

www.annathorvalds.com

Umsóknarferli fyrir árið 2011

Wednesday, January 5th, 2011

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2011

Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað árið 2011.

Um er að ræða fyrra umsóknarferlið af tveimur á komandi starfsári Kraums. Næst verður auglýst eftir umsóknum í vor.

Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir viðburði, námskeið og fræðsluverkefni.

Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins og ráð til umsækjenda hér að neðan.

Opnað verður fyrir umsóknarferlið þann 6. janúar.

Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð, en allar umsóknir skulu innihalda;

  • Yfirlit yfir verkefnið
  • Upplýsingar um markmið þess
  • Fjárhagsáætlun og upphæð sem sótt er um
  • Æskileg fylgigögn; tónlist á CD og ferilskrá (CV)

*Fjárhagsáætlun skal innihalda yfirlit yfir alla þekkta innkomuliði og útgjöld, og útlistun hvernig stuðningur Kraums getur nýst. Vinsamlegast takið fram ef sótt er um styrki í aðra sjóði eða verkefnið nýtur stuðnings annarstaðar frá.

  • Mælst er til þess að umsóknir séu ekki lengri en 2 síður, auk fjárhagsáætlunar og fylgigögnum
  • Umsóknum skal skila bréfleiðis.
  • Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau þau ráð sem gefin eru umsækjendum hér að neðan.

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2011.
(Póststimpill gildir, og því hægt að setja í póst þriðjudaginn 1. febrúar)

Framkvæmdastjóri Kraums veitir fúslega upplýsingar um umsóknarferlið - og er umsækjendum til reiðu er varðar ráðgjöf við að skila inn umsókn. Skoðið einnig ráð til umsækjenda hér að neðan.

Skil á umsóknum
Umsóknir skulu sendar:
Kraumur tónlistarsjóður
PO Box 124
121 Reykjavík

Frekari upplýsingar veitir
Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums
S: 869 8179 / eldar[a]kraumur.is

————————————————————————————

Ráð til umsækjenda

  • Miklu máli skiptir að umsækjendur geti skilgreint markmið verkefnisins vel, t.d. hvernig það þjónar viðkomandi listamanni/hljómsveit við að koma verkum sínum á framfæri eða með öðrum hætti.
  • Mikilvæg er að fjárhagsáætlun sé raunhæf og skýr. Tilgreina skal þá upphæð sem sótt er um.
  • Kjósi listamaður/hljómsveit að sækja um fleiri en eitt verkefni, skal aðgreina umsóknirnar vel og skila inn sérstakri umsókn fyrir hvert verkefni.
  • Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau verkefni sem Kraumur hefur stutt og unnið með árin 2008, 2009 og 2010.
  • Undanfarin ár hefur Kraumur stutt listamenn/hljómsveitir við plötugerð, en það skal sérstaklega tekið fram að í ár mun sjóðurinn líta frekar til þess að styðja listamenn/hljómsveitir við að koma verkum sínum á framfæri (t.d. áður útgefnum plötur), frekar en við upptökur á nýjum verkum.
  • Kraumur vill styðja og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.
  • Í vali á verkefnum sem hljóta stuðnings er sérstaklega litið til þess að þau komi viðkomandi listamanni/hljómsveit lengra í ferli sínum og/eða við að koma tónlist sinni á framfæri.

————————————————————————————