Posts Tagged ‘2012’

TÓNLIST … ER TÓNLIST

Saturday, December 1st, 2012

TÓNLIST … ER TÓNLIST: GREINAR 1999 - 2012, EFTIR ARNAR EGGERT THORODDSEN KEMUR ÚT Í DAG, 1. DESEMBER, Á DEGI ÍSLENSKRAR TÓNLISTAR

Arnar Eggert Thoroddsen hefur um langt árabil verið einn mikilvirkasti tónlistarblaðamaður landsins. Í Morgunblaðinu hefur hann fjallað kerfisbundið um íslenska jafnt sem erlenda tónlistarmenningu, í pistlum, viðtölum, gagnrýni og úttektum ýmiskonar. Hér er samankomið úrval greina frá árabilinu 1999 – 2012 en þessi fyrsti áratugur nýrrar aldar hefur reynst mikill umbrotatími í íslenskri dægurtónlist.

Ástríða Arnars fyrir umfjöllunarefninu er tilfinnanleg, stíll hans snarpur og kímileitur, fullur eldmóðs en um leið fræðandi og áleitinn. Hér er á ferðinni einstök heimild um tónlistarmenningu á Íslandi, frá manni sem hefur mundað pennann í fremstu víglínu í meira en áratug.

Um höfund:

Arnar Eggert Thoroddsen fæddist í Reykjavík árið 1974. Hann hóf að skrifa um tónlist vorið 1999 og hefur iðkað það síðan, að meginstofni til í gegnum Morgunblaðið (en allar greinarnar í safni þessu eru þaðan). Skrif hans hafa þó birst víðar, m.a. í erlendum bókum og bloggum. Hann hefur þá setið í fjölda dómnefnda hérlendis sem erlendis, stýrt útvarps- og vefvarpsþáttum, skipulagt tónleika og tónleikaraðir, haldið erindi í skólum og verið ráðgefandi aðili um tónlist í sjónvarpi sem útvarpi. Arnar rekur þá eigið vefsetur, arnareggert.is, þar sem hugleiðingar hans um hina æðstu list birtast.

Arnar býr í Edinborg ásamt konu sinni og tveimur börnum en þar leggur hann stund á meistaranám í tónlistarfræðum við Edinborgarháskóla.

Aðrar bækur eftir sama höfund

-Umboðsmaður Íslands: Öll trixin í bókinni (2007) ásamt Einari Bárðarsyni
-100 bestu plötur Íslandssögunnar (2009) ásamt Jónatani Garðarssyni

Bók Arnars Eggerts Thoroddsen, “Tónlist … er tónlist: Greinar 1999 - 2012″, kemur út 1. desember, á degi íslenskrar tónlistar en Kraumur tónlistarsjóður styrkti höfund verksins við útgáfuna.

Dreifing er í höndum Kongó ehf.

Moses Hightower og Snorri Helgason fara saman á tónleikaferð

Wednesday, September 5th, 2012

Kraumur tónlistarsjóður styður hljómsveiina Moses Hightower við að kynna nýja plötu sína fyrir landsmönnum og með í för verður Snorri Helgason. Innrásin hefst í dag og stendur til 9. september.

Tónleikahald er sem hér segir:

Mið. 5.9. kl. 21:00 - Sögusetrið, Hvolsvelli
Miðaverð kr. 2000. Húsið opnar kl. 20:30.

Fim. 6.9. kl. 21:00 - gogoyoko wireless, KEX Hostel, Reykjavík
Miðaverð kr. 1500. Húsið opnar kl. 20:00.
Forsala miða á midi.is

Fös. 7.9. kl. 22:00 - Græni hatturinn, Akureyri
Miðaverð kr. 2000. Húsið opnar kl. 21:00.
Forsala miða í Eymundsson, Akureyri.

Lau. 8.9. kl. 21:00 - Sjóræningjahúsið, Patreksfirði
Miðaverð kr. 2000. Húsið opnar kl. 20:30.

Sun. 9.9. kl. 21:00 - Fossatún, Borgarfirði
Miðaverð kr. 2000. Húsið opnar kl. 20:00.

Hefjast hverjir tónleikar á því að Snorri flytur einyrkjadagskrá við eigin kassagítarundirleik, en Moses Hightower flytur sína ópusa í síðari hálfleik. Á tónleikunum verða sérstakir gestir Mosesar þeir Haukur Gröndal saxófónleikari og Samúel Jón Samúelsson básúnuleikari, en ekki er loku fyrir það skotið að Snorri skjóti einnig upp kollinum í seinna setti sem sjöundi maður á sviði.

Snorri og Moses eru með tvær ólgandi breiðskífur í farteskinu hvor, en þessi tónleikaröð er haldin þétt í kjölfar útgáfu þeirrar nýjustu, Annarrar Mósebókar. Eins og hinar plöturnar þrjár sem leikið verður efni af hefur Önnur Mósebók fengið framúrskarandi góða dóma: 4/5 í Fréttablaðinu, 9,8 á Rás 2, 5/5 í Fréttatímanum og 4,5/5 í Morgunblaðinu. Tvö lög af plötunni, Stutt skref og Sjáum hvað setur, hafa verið að gera það ákaflega gott í útvarpi undanfarnar vikur og mánuði, og bæði setið á toppi vinsældalista Rásar 2.

Fyrri plata sveitarinnar, Búum til börn, kom út 2010 og var m.a. tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem plata ársins og fyrir textasmíðar ársins.

Plötur Snorra Helgasonar, I’m gonna put my name on your door (2009) og Winter sun (2011) hafa fengið frábærar viðtökur, innanlands og utan. Snorri komst fyrst í sviðsljósið sem meðlimur Sprengjuhallarinnar, en frá því hún fór í pásu hefur hann gert stormandi lukku með þýðan þjóðlagapoppbræðing sinn, þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni.

Tónleikaferðin er farin í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð og Cheap Jeep.

Kraumur á Menningarnótt - Te og tónlist

Friday, August 17th, 2012


Kraumur tónlistarsjóður býður gestum og gangandi upp á frábæra tónlist og heitt te á morgun laugardag frá kl. 16:00 til 18:00 í porti Vonarstrætis 4b (falleg mynd eftir Sigga Eggerts prýðir húsgaflinn).

Fram koma sóley og Nóra.

16:30 sóley - http://www.facebook.com/soleysoleysoley

17:30 Nóra - http://www.facebook.com/noramusic

sóley er búin að vera að gera það mjög gott upp á síðkastið. Hún er búin að túra víða í ár með hljómsveit sinni og kynna hina frábæru plötu sína We Sink sem var meðal annars ein af bestu plötum ársins 2011. Þess má geta að sóley hlaut hæsta styrkinn í úthlutun Kraums tónlistarsjóðs í mars síðastliðnum.

Nóra hefur nýlokið við að hljóðblanda nýju plötuna sína en hljómsveitin er búin að vera að vinna að henni síðan í byrjun árs. Platan, sem er væntanleg með haustinu, er í einu orði sagt epísk og gríðarstórt stökk fram á við, uppfull af skemmtilegri tónlist.

Hvar: Portið - Vonarstræti 4b (Bakvið Íslandsbanka, Lækjargötu)

Póstkort frá Extreme Chill Festival 2012 - Undir Jökli

Wednesday, July 11th, 2012

Extreme Chill Festival 2012 - Undir Jökli var haldið helgina 29. Júni - 01. Júlí en þetta er í þriðja skiptið sem þessi stærsta raftónlistarhátíð landsins er haldin en í ár var hún eitt af 15 verkefnum á sviði íslenskrar tónlistar sem hlaut styrk frá Kraumi tónlistarsjóði.

Föstudagur:
Hátíðin byrjaði á föstudags kvöldinu í því gamla og sjarmerandi félagsheimil Röst með lifandi flutningi kl 20:00 og endaði kl 03:00 um nóttina. Kvöldið gekk mjög vel og stigmagnaðist með hverjum listamanninum og endaði í allsherjar dansi og stemmningu. Gaman að segja frá hve flott vizual/video þátturinn átti í að mynda þessa einstöku stemmningu.

Virkilega vel heppnað byrjunarkvöld fyrir hátíðina.

Laugardagur:
Dagskráin byrjaði á úti sviðinu á slaginu kl 12:00 á hádegi með lifandi flutningi í glampandi sól og blíðu og stóð dagskráin til kl 19:00. Algerlega sérstök stemmning myndaðist úti þegar veðrið var svo gott. Þarna var um 17° hiti og glampandi sól og erum við afar þakklátir veðurguðunum. Eins og einhver sagði “Guð hlýtur bara að fýla raftónlist”.

Þarna var fólk komið með börnin sín að dansa og virkilega góður andi sveif um allt svæðið á meðan tónlistarmennirnir léku tónlist sína.

Þessi stemmning setti virkilega góðan anda fyrir inni dagskrána sem hófst inni í félagsheimilinu kl. 20:00 stundvíslega.

Stemmningin varð strax mjög góð inni og stigmagnaðist þegar leið á kvöldið og nutu listamennirnir sín jafn mikið og fólkið sem dansaði. Gaman var að sjá hversu mikið íslensku listamennirnir lögðu i flutning sinn og skein það algerlega í gegn og smitaði út frá sér i gríðarlega góða stemmningu.

Breiður aldur var á tónlistarmönnunum og þeim sem sóttu hátíðina, alveg frá 18 ára aldri upp í 60 ára sem okkur fannst verulega gaman af að sjá.

Dagskránni lauk svo rétt yfir kl 03:00 um nóttina og labbaði fólk út úr félagsheimilinu með bros á vör og virkilega góðar minningar af þessari mögnuðu hátíð sem Undir Jökli er orðin.

Á svæðinu voru yfir alla hátíðina á milli 350 - 400 manns og er það talsverð aukning frá fyrri hátíðum, svo ljóst er að hátíðin er að stækka um sig og verða flottari með hverju árinu.

Gaman verður að sjá hvar hátíðin mun standa eftir nokkur ár með þessari jákvæðu þróun sem á sér stað. Að auki er gaman að segja frá því að hátíðin var valin af því virta tímariti The Guardian ein af 15 athyglisverðustu hátíðum í Evrópu sem var mjög mikill heiður og góð auglýsing.

Styrkurinn frá Kraumi gerði okkur kleift að gera þessa hátíð eins og við sáum hana alltaf fyrir okkur.

Við gátum gert vel við tónlistarmenn á margan hátt, þeir fengu mat og drykki og við stækkuðum talsvert við hljóðkerfið frá fyrra ári. Einnig gátum við fengið grafískan hönnuð til að sjá um hönnun og umbrot á öllu og myndbandalistamenn til þess að gera efni fyrir hátíðina sem var gríðarlega mikilvægt samspil með tónlistinni, mjög gott samspil milli hins sjónræna og hljóðræna.

Það er ljóst að þessi styrkur hjálpaði okkur afar mikið með að hátíðin gekk jafn vel og raun bar vitni og var jafn flott og hún varð. Við erum Kraumi verulega þakklátir fyrir að sýna þessu verkefni okkar þennan stuðning og að hafa trú á þessu.

Þetta er ástríða okkar og sinnum við því sem slíku.

Takk kærlega fyrir okkur allir hjá Kraumi tónlistarsjóði,

Bestu kveðjur frá Extreme Chill.

Veislufjör 2012 - 7 tónleikar á 7 dögum

Thursday, June 21st, 2012


Veislufjör 2012 er kvöldskemmtun með lifandi tónlist, uppistandi og gleði þar sem 7 staðir verða heimsóttir á 7 dögum um allt land dagana 21-27 júní en það eru Snorri Helgason, Mr. Silla og Hugleikur Dagsson sem eru með í för.

Þann 21. júní mun skemmtilestin Veislufjör leggja af stað í vikulanga hringferð um landið. Með í för verða Snorri Helgason og hljómsveit hans, hljómsveitin Mr. Silla og spéfuglinn þjóðkunni, Hugleikur Dagsson.

Mr Silla kemur til með að leika lög af væntanlegri plötu, Snorri leikur safn laga af sínum tveim sólóplötum auk nýrra efnis og Hugleikur Dagsson fer með gamanmál og stýrir Veislufjörinu. Markmið Veislufjörsins er einfalt; að skemmta landanum, frændfólki hans og vinum á 7 tónleikum á 7 skemmtilegum stöðum um allt land.

Fyrsti viðkomustaður Veislufjörsins verður Pakkhúsið á Höfn í Hornafirði að kvöldi 21. júní en svo fylgja Seyðisfjörður, Húsavík, Flateyri, Patreksfjörður, Flatey á Breiðafirði og Hafnarfjörður í kjölfarið. Á Seyðisfirði mun hópurinn sameinast Prinspóló, Ojba Rasta og Jónasi Sigurðssyni og Ritvélunum á tónlistarhátíðinni Partíþokunni sem mun standa yfir alla helgina í Herðubreið.

Það eru Kraumur, Cheap Jeep og Rás 2 sem eru sérstakir verndarar Veislufjörs 2012.

Miðasala fer fram við dyr á tónleikakvöldum. Miðaverð 2000 kr.

Veislufjör 2012:

21. júní - Pakkhúsið - Höfn í Hornafirði / Hefst kl 22:00
22. júní - Partíþokan, Herðubreið - Seyðisfirði / Hefst 21:00
23. júní - Gamli Baukur - Húsavík / Hefst kl 22:00
24. júní - Vagninn - Flateyri / Hefst kl 20:00
25. júní - Sjóræningjahúsið - Patreksfirði / Hefst kl 20:00
26. júní - Hótel Flatey - Flatey á Breiðafirði / Hefst kl 20:00
27. júní - Bæjarbíó - Hafnarfirði / Hefst kl 20:00

Miðasala fyrir Bæjarbíó.

Miðasala á Partíþokuna á Seyðisfirði fer fram á midi.is og á Hótel Aldan.

Um Snorra Helgason

Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur á undanförnum árum skapað sér gott orð í tónlistarheiminum bæði innanlands sem utan. Tónlist Snorra er nokkurs konar þjóðlagapoppbræðingur þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. Tónlist Snorra hefur verið líkt við söngvaskáld eins og Neil Young, Paul Simon og Harry Nilsson sem voru upp á sitt besta á árunum í kringum 1970.

Snorri hefur verið starfandi sem tónlistarmaður í u.þ.b. 5 ár og hefur gefið út 4 plötur, 2 með hljómsveitinni Sprengjuhöllin og tvær sólóplötur, I’m Gonna Put My Name On Your Door (2009) og Winter Sun(2011) sem allar hafa fengið mikið lof gagnrýnenda. Lag Snorra, Verum í Sambandi, vann meðal annars til íslensku Tónlistarverðlaunanna fyrir lag ársins vorið 2008.

Hljómsveit Snorra Helgasonar er síbreytilegt fyrirbæri og núna skipa hana einungis tveir einstaklingar ásamt Snorra, þau Sigurlaug Gísladóttir(múm & Mr. Silla) sem syngur og spilar á ukulele og Guðmundur Óskar Guðmundsson(Hjaltalín, Borko, Heiðurspiltar o.fl.) sem spilar á rafbassa og barítóngítar.

River á KEXP

Mockingbird á KEXP

Um Mr. Silla

Mr Silla er hljómsveit sem er stofnuð af söngkonunni og gítarleikaranum Sigurlaugu Gísladóttur (múm, mr silla & mongoose) og Gunnari Erni Tynes (múm, Andhéri) sem farartæki fyrir lagasmíðar Sigurlaugar en hún er einnig aðalsöngkona sveitarinnar. Þau kölluðu til liðs við sig gítarleikarann Gylfa Blöndal (kimono, Borko), bassaleikarann Halldór Örn Ragnarsson (Seabear), gítar- og hljómborðsleikarann Kristinn Gunnar Blöndal (Bob Justman, Botnleðja, Ensími) og trymbillinn Magnús Trygvason Eliassen (amiina, Sin Fang, ADHD). Gunnar Örn leikur á bassa, hljómborð og gítar auk þess sem að hann sér um upptökustjórn og eftirvinnslu. Hljómsveitin hyggur á útgáfu hljómplötu í sumar.

One Step á KEXP

Up/Down á KEXP

Um Hugleik Dagsson

Hugleikur Dagsson fæddist á Akureyri árið 1977.
Fyrstu tuttugu árin læddist hann meðfram veggjum og las Spider-man.
Árið 2002 útskrifaðist hann úr LHÍ og svo byrjaði hann að gefa út kúkabrandara í bókum. Kerskni hans smitaðist svo útí leikrit, sjónvarp og uppistand.

Við Djúpið í 10 ár

Thursday, June 14th, 2012

Tónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram í 10. sinn dagana 19.–24. júní 2012. Sérstaða hátíðarinnar felst í áherslu á metnaðarfullt námskeiðahald fyrir tónlistarnema jafnhliða glæsilegri tónleikadagskrá fyrir íbúa og gesti Ísafjarðar.

Við Djúpið veitir ungu tónlistarfólki sérstakt brautargengi og vinnur í samstarfi við fjölmarga innlenda og erlenda aðila. Við Djúpið gegnir veigamiklu menningar- og fræðsluhlutverki og hefur átt ríkan þátt í nýsköpun í tónlist. Þetta er í annað sinn sem Kraumur tónlistarsjóður styrkir dagskráliði hátíðarinnar.

Á hátíðinni í ár er boðið upp á þrjú masterklass námskeið; á píanó, fiðlu og þverflautu í umsjá Jorja Fleezanis fiðluleikara, Vovka Stefáns Ashkenazy, píanóleikara og Stefáns Ragnar Höskuldssonar, flautuleikara. Þau munu einnig koma fram á tónleikum í dagskrá hátíðarinnar ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, píanóleikara, Sif Tulinius, fiðluleikara og Sæunni Þorsteinsdóttur, sellóleikara. Þá leikur klarinettukvintett the Declassified á tvennum tónleikum. Aðrir þeirra eru uppskerutónleikar Nýrra tónskálda; verkefnis sem hátíðin réðst í fjórða sinni í ár.

Auk hefðbundinna tónleika hátíðarinnar er að venju boðið upp á röð fræðandi hádegistónleika. Þá verður í ár efnt til nýrrar tónleikaraðar sem er tileinkuð söngvaskáldum þar sem Helgi Hrafn Jónsson, Jussanam Dejah, Skúli mennski og KK troða upp ásamt húshljómsveit. Nemendur hátíðarinnar koma fram á tvennum tónleikum.

Upplýsingar dagskrá hátíðarinnar má finna á heimasíðu hennar www.viddjupid.is.

Ljóð um landið - Undurfagrir ljóðaflokkar

Thursday, May 3rd, 2012

Næstu 3 helgar munu þau Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona og Gerrit Schuil píanóleikari ferðast um landið og flytja tvo af helstu ljóðaflokkum sem hafa verið samdir fyrir konur, annars vegar ljóðaflokkinn Stúlkan á heiðinni (Haugtussa) eftir Edvard Grieg og hins vegar Sumarnætur (Les Nuit´s d´Ete) eftir Hector Berlioz.

Tónleikarnir fara fram í Laugarborg, Eyjafjarðarsveit 6. maí kl. 16.00, í Egilsstaðakirkju 13. maí kl. 16.00 og í Hömrum, Ísafirði þann 20. maí kl 15.00.

Hallveig og Gerrit eru bæði vel þekkt fyrir flutning sinn á ljóðasöng, Hallveig hefur haldið marga ljóðatónleika hér á landi og erlendis og hvarvetna vakið mikla athygli fyrir frábæran flutning og Gerrit sem er einn af okkar helstu ljóðameðleikurum vann Íslensku tónlistarverðlaunin á síðasta ári fyrir flutning sinn ásamt Ágústi Ólafssyni á ljóðaflokkum Franz Schubert.

Tónleikaröð þeirra um landið er styrkt af Kraumi tónlistarsjóði og Tónlistarsjóði Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

RetRoBot sigra Músíktilraunir 2012

Sunday, April 1st, 2012



Kraumur óskar sigurvegurum Músíktilrauna 2012 til hamingju. Sigurvegararnir hafa tryggt sér sæti í Hljóðverssmiðju Kraums fyrir árið í ár.

1. sæti : RetRoBot
2. sæti : Þoka
3. sæti: Funk that Shit!

White Signal úr Reykjavík var svo valin hljómsveit fólksins.

Einnig voru veitt verðlaun fyrir hljóðfæraleik og söng. Reynir Snær Magnússon úr Funk that Shit! var valinn efnilegasti gítarleikari, Guðmundur Ingi Halldórsson úr Funk that Shit! efnilegasti bassaleikari, Heimir Klemenzson úr Þoku var kosinn efnilegasti hljómborðsleikari, Daði Freyr Pétursson úr RetRoBot var valinn rafheili Músíktilrauna 2012, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir úr White Signal sem efnilegasti trommuleikari og Agnes Björgvinsdóttir úr Þoku sem efnilegasti söngvari Músíktilrauna. Það var svo Lena Mist Skaptadóttir úr Ásjón fékk viðurkenningu fyrir texta á íslensku.

Samstarf Kraums og Músíktilrauna er mjög farsælt og er þetta í fjórða sinn sem Kraumur verðlaunar sigur sveitir tilraunanna með handleiðslu í Hljóðverssmiðjum. Markmiðið með Hljóðverssmiðjunum er að styðja við grasrótina í íslensku tónlistarlífi, miðla reynslu og gefa ungum og upprennandi tónlistarmönnum tækifæri á að taka upp nýtt efni og læra að nýta þá mörgu möguleika sem gott hljóðver hefur upp á að bjóða.

Úrslitakvöld Músíktilrauna 2012 var haldið í Austurbæ. Rás 2 útvarpaði beint frá kvöldinu og allir landsmenn fengu tækifæri til að fylgjast með og kjósa í beinni símakosningu um hljómsveit fólksins. Verðlaun voru veitt fyrir 1.2. og 3. sæti, hljómsveit fólksins og einstaklingsverðlaun fyrir söngvara og hljóðfæraleikara Músíktilrauna 2012, einnig eru veitt ný verðlaun sem bera heitið rafheili Músíktilrauna. Fjölbreytni í tónlistarstefnum var mikil þetta kvöld og alls kepptu 10 bönd til úrslita í ár: White Signal, Icarus, The Lovely Lion, The Young and Carefree, Funk that Shit!, RetRobot, Aeterna, Glundroði, Þoka og Hindurvættir.

Árið 2009 fóru Hljóðverssmiðjur fyrst fram í Tankinum á Flateyri en síðan hafa þær verið haldnar í hljóðverinu Sundlaugin í Mosfellsbæ, en fjölmargir þekktir listamenn hafa unnið í hljóðverinu og má þar nefna Sigur Rós, Pétur Ben, Ólöf Arnalds, amiinu og Mugison.

Lost með RetRoBot

Músíktilraunir - heimasíða

Hljóðverssmiðjur Kraums

Ljósmynd: Brynjar Gunnarsson

Kraumur úthlutar yfir 11 milljónum til listamanna og tónlistartengdra verkefna

Wednesday, March 14th, 2012



Kraumur tónlistarsjóður kynnir úthlutun til listamanna og verkefna sem eiga sér stað innanlands og erlendis árið 2012. Tæplega tíu milljónum króna er varið til 15 verkefna á sviði innrásar og útrásar íslenskrar tónlistar en einnig er stuðlað að námskeiðum og fræðslu.

Á fimm ára starfsafmæli sjóðsins heldur Kraumur áfram að styðja íslenskt tónlistarlíf af krafti. Í dag tilkynnti sjóðurinn stuðning við 15 verkefni; 10 verkefni listamanna sem eru af margvíslegum toga á erlendum og innlendum vettvangi, þrjár tónlistarhátíðir hljóta stuðning og tvö fræðsluverkefni. Ákveðin áhersla er á að vinna með kynningu á íslenskri tónlist erlendis í úthlutun sjóðsins að þessu sinni sem og öflugu tónlistarstarfi hérlendis í formi fræðslu og tónleikahalds metnaðarfullra tónlistarhátíða.. Alls bárust sjóðnum 189 umsóknir. Stærstu styrkina hlaut Sóley Stefánsdóttir og hljómsveitin Sólstafir til kynningar á tónlist sinni erlendis. Þá fengu Of Monsters and Men og Lay Low veglegan stuðning vegna tónleikaferðar þeirra um Bandaríkin og Kanada en hún er nýhafin. Meðal annarra styrkþega eru Kammerkór Suðurlands, Dead Skeletons, Moses Hightower, Mr Silla og Snorri Helgason, Eistnaflug, Stafnbúi og Extreme Chill Festival undir Jökli.

Kraumur tónlistarsjóður styður viðkomandi verkefni með fjárhagslegu framlagi sem og faglegri aðstoð og vinnu.

ÚTRÁS - stuðningur & samstarf við listamenn og hljómsveitir : Samtals 5.400.000 kr.

Sóley Stefánsdóttir           Evróputúr og ýmsar tónleikahátíðir 1.200.000 kr.
Sólstafir                    Tvær tónleikaferðir og rokkhátíðir 1.000.000 kr.
Lay Low Tónleikaferð um BNA og Kanada 800.000 kr.
Of Monsters and Men Tónleikaferð um BNA og Kanada 800.000 kr.
Kammerkór Suðurlands Kynning á kórnum og tengdum verkum 600.000 kr.
Dead Skeletons Tónleikar í Evrópu m.a. Hróarskelda 500.000 kr.
Stafnbúi: Rímur Tónleikar í Þýskalandi 500.000 kr.

INNRÁS - stuðningur og samstarf við listamenn og tónlistarhátíðir við tónleikahald innanlands 2012 : samtals 4.000.000 kr.

Eistnaflug                              Rokk í þyngri kantinum á Neskaupstað 700.000 kr.
Mr. Silla og Snorri Helga Innrás - 7 tónleikar á 7 stöðum á 7 dögum 700.000 kr.
Orgel Bróðir Tónleikar í ýmsum kirkjum 600.000 kr.
Extreme Chill Festiva Rafmögnuð tónlistarhátíð undir Jökli 500.000 kr.
Podium Festival 2012 Klassísk kammermúsíkhátíð og námskeið 500.000 kr.
Moses Hightower Innrás út á land næstkomandi haust 500.000 kr.
Við Djúpið Tónleikaröð og námskeið fyrir ungt fólk 500.000 kr.

PLÖTUGERÐ OG KYNNING - stuðningur og samstarf við listamenn og hljómsveitir á sviði lagasmíða, plötugerðar og kynningar samtals 400.000 kr.

Duo Harpverk                       Kynning / Plötugerð           400.000 kr.

Ein undantekning var gerð þegar eitt verkefni komst í gegn í þessum flokki enda mikið og gott frumkvöðlastarf í gangi hjá þeim Katie Buckley og Frank Aarnink sem skipa Duo Harpverk sem hafa verið óþreytandi að flytja tónlist eftir ung íslensk tónskáld.

EIGIN VERKEFNI KRAUMS - samtals 3.100.000 kr.

Fræðsla og aðrir styrkir     Ýmis verkefni  - 1.000.000 kr.
Kraumslistinn 2012           Stuðningur & viðurkenning við ísl. plötuútgáfu -  900.000 kr.
Hljóðverssmiðjur         Fræðsla, handleiðsla / samstarfi við Músíktilraunir -  800.000 kr.
Aldrei fór ég suður            Námskeið og fræðsla öllum opin  -  400.000 kr.

Þetta er í fjórða sinn sem Kraumur stendur að námskeiði og fræðsluverkefni í samvinnu við tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður en þar er reynt að greina ýmis mál sem tengjast tónlistargeiranum og síbreytilegu umhverfi.

______

Megintilgangur Kraums er að stuðla að og styrkja íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga tónlistarmenn. Yfirlýst stefna sjóðsins er að styrkja tiltölulega fá verkefni/listamenn, en gera það þannig að stuðningurinn sé afgerandi. Verkefnaval Kraums tekur mið að því að styrkir til listamanna og verkefna eru í flesta staði hærri og veglegri og þar af leiðandi færri yfir heildina. Þetta er í samræmi við álit fagráðs Kraums sem og niðurstöðu árangursmats Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands sem gert var fyrir Kraum og kynnt var fyrir ári.

Kraumur tónlistarsjóður, sem var stofnaður í byrjun árs 2008 af Aurora velgerðarsjóði, hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf - fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmið Kraums er að styrkja stöðu tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Kraumur vill styðja við og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.
Frá því Kraumur hóf starfsemi sína hafa yfir áttatíu listamenn og hljómsveitir hlotið stuðning frá sjóðnum og má þar nefna Amiina, Bang Gang, Bloodgroup, Celestine, Daníel Bjarnason, Dikta, Elfa Rún Kristinsdóttir, Hjaltalín, Lay Low, Melkorka Ólafsdóttir, Mugison, Nordic Affect, Prinspóló, Ólöf Arnalds, Sin Fang, Skálmöld og Víkingur Heiðar Ólafsson. Kraumur hefur einnig haldið úti samstarfsverkefnum með Músíktilraunum Tónabæjar, Listahátíð í Reykjavík, Jazzhátíð í Reykjavík, Iceland Airwaves, Aldrei fór ég suður, ÚTÓN og fleiri aðilum.

Umsóknaferli 2012 að hefjast

Monday, January 2nd, 2012

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012

Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað árið 2012. Auglýst er sérstaklega eftir verkefnum sem ekki eru hafin áður en úthlutað er úr sjóðnum. Úthlutað verður um miðjan mars.

Ráðgert er að veita í kringum 8.000.000 króna til verkefna á sviði íslenskrar tónlistar að þessu sinni.

Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir viðburði, námskeið og fræðsluverkefni.

Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins og ráð til umsækjenda hér að neðan.

Opnað verður fyrir umsóknarferlið þann 6. janúar.

Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð en allar umsóknir skulu innihalda:

  • Yfirlit yfir verkefnið
  • Upplýsingar um markmið þess
  • Fjárhagsáætlun og upphæð sem sótt er um
  • Æskileg fylgigögn; tónlist á CD og ferilskrá (CV)
  • Mikilvægt er að láta netfang og símanúmer fylgja umsókninni

Fjárhagsáætlun skal innihalda yfirlit yfir alla þekkta innkomuliði og útgjöld. Auk þess útlistun á því hvernig stuðningur Kraums getur nýst. Vinsamlegast takið fram ef sótt er um styrki í aðra sjóði eða verkefnið nýtur stuðnings annarstaðar frá.

  • Mælst er til þess að umsóknir séu ekki lengri en 2 síður, auk fjárhagsáætlunar og fylgigögnum
  • Umsóknum skal skila bréfleiðis.
  • Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau þau ráð sem gefin eru umsækjendum hér að neðan.

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012.

(Póststimpill gildir, og því hægt að setja umsóknina í póst miðvikudaginn 1. febrúar)

Framkvæmdastjóri Kraums veitir fúslega upplýsingar um umsóknarferlið og er umsækjendum innan handar er varðar ráðgjöf við að skila inn umsókn. Skoðið einnig ráð til umsækjenda hér að neðan.

Skil á umsóknum - Umsóknir skulu sendar:

Kraumur tónlistarsjóður

PO Box 124

121 Reykjavík

-

Frekari upplýsingar veitir:

Jóhann Ágúst Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kraums

S: 894 4321 / johann[a]kraumur.is

————————————————————————————

Ráð til umsækjenda

- Miklu máli skiptir að umsækjendur geti skilgreint markmið verkefnisins vel. Útskýrt hvernig það þjónar viðkomandi listamanni/hljómsveit við að koma verkum sínum á framfæri eða nýtist með öðrum hætti.

- Mikilvæg er að fjárhagsáætlun sé raunhæf og skýr. Tilgreina skal þá upphæð sem sótt er um.

- Kjósi listamaður/hljómsveit að sækja um fleiri en eitt verkefni, skal aðgreina umsóknirnar vel og skila inn sérstakri umsókn fyrir hvort verkefni um sig.

- Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau verkefni sem Kraumur hefur stutt og unnið með árin 2008, 2009, 2010, 2011 og 2011 sumar.

- Undanfarin ár hefur Kraumur stutt listamenn/hljómsveitir við plötugerð en það skal sérstaklega tekið fram að líkt og í fyrra mun sjóðurinn líta frekar til þess að styðja listamenn/hljómsveitir við að koma áður útgefnum verkum/plötum á framfæri, styrkja viðburða- og námskeiðahald, hjálpa við kynningu á nýju efni á innlendum og erlendum vettvangi með t.d. stuðningi við tónleikahald og gerð kynningarefnis.

- Kraumur vill styðja og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.

- Í vali á verkefnum sem hljóta stuðning er sérstaklega litið til þess að þau komi viðkomandi listamanni/hljómsveit lengra á ferli sínum og/eða hjálpi við að koma tónlistinni á framfæri á verðugum vettvangi.

————————————————————————————