Posts Tagged ‘Amiina’

Kraumslistinn 2010 - Tilnefningar kynntar

Thursday, December 16th, 2010

Dómnefnd tilkynnir 20 hljómplatna úrvalslista fyrir Kraumslistann 2010 - árleg plötuverðlaun Kraums, þar sem verk sem skara fram úr í metnaði og frumleika eru verðlaunuð.

Kraumslistinn - árleg plötuverðlaun Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka í íslenskri plötuútgáfu sem þótt hafa frumleg, framúrskarandi og spennandi á árinu - verður kynntur þriðja árið í röð síðar í desember. Dómnefnd Kraumslistans, sem skipuð er 12 aðilum sem hafa verið liðtækir við umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar, hafa nú komist að niðurstöðu um 20 hljómplatna úrvalista, tilnefningar til verðlaunanna, sem er hér með er kynntur til leiks.

Tilnefningarnar, úrvalslisti dómnefndar, hafa síðustu ár verið kynntar nokkrum dögum áður en hinn eiginlegi Kraumslisti er kynntir til leiks - þ.e.a.s. hverjir komast á Kraumslistann og hljóta plötuverðlaun Kraums með þeim stuðningi og viðurkenningu sem það hefur í för með, m.a. með kynningu á verðlaunaplötunum á erlendum vettvangi. Dómnefnd  Kraumslistans er skipuð 12 aðilum sem sinnt hafa umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar síðustu ár, m.a. fyrir Fréttablaðið, Morgunblaðið, DV, Reykjavik Grapevine, Rjominn.is, Eyjan.is, X-ið og Rás 2. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson blaðamaður. Listi yfir alla meðlimi dómnefndar má finna hér.

Framkvæmd Kraumslistans er með þeim hætti að nú þegar dómnefnd hefur valið úrvalslistann (20 plötur) heldur hún áfram við að velja sjálfann Kraumslistann 2010, 5 plötur sem verðlaunaðar verða sérstaklega. Síðustu tvö ár, 2008 og 2009, urðu verðlaunaplöturnar reyndar 6 talsins - en samkvæmt reglum Kraumslistans hefur dómnefnd leyfi til að auka við fjölda verðlaunaplatna, ef sérstakt tilefni þykir til. Samtals 12 hljómplötur - frá flytjendum á borð við Hjaltalín, Huga Guðmundsson, Ísafold kammersveit, Agent Fresco og FM Belfast - hafa komist á lokalista Kraumslistans árin 2008 og 2009.

Val dómnefndar Kraumslistans, bæði hvað varðar tilnefningar og verðlaunaplötur, kemur oft á óvart og þar leynast oft hljómplötur sem með valinu fá verðskuldaða athygli. Í ár geta verðlaunahafar síðustu ára í fyrsta sinn náð verðlaunum á nýjan leik, þar sem bæði Agent Fresco og Retro Stefson - sem hlutu verðlaun fyrir plötur sínar árið 2008, eru tilnefndar fyrir plötur sínar í ár.

Óhætt að segja að árið í ár hafi verið öflugt hvað plötuútgáfu varðar, enda fjölmargir spennandi titlar sem ekki komast á úrvalslista Kraumslistans fyrir árið 2010.

Eftirtalda plötur eru tilnefndar til Kraumslistans 2010:

* Agent Fresco - A Long Time Listening
* Amiina - Puzzle
* Apparat Organ Quartet - Pólyfónía
* Daníel Bjarnason - Processions
* Ég - Lúxus upplifun
* Jónas Sigurðsson - Allt er eitthvað
* Kammerkór Suðurlands - Iepo Oneipo
* Miri - Okkar
* Momentum - Fixation, At Rest
* Moses Hightower - Búum til börn
* Nolo - No-Lo-Fi
* Ólöf Arnalds - Innundir skinni
* Prinspóló - Jukk
* Retro Stefson - Kimbabwe
* Samúel Jón Samúelsson Big Band - Helvítis Fokking Funk
* Seabear - We Built a Fire
* Sóley - Theater Island
* Stafrænn Hákon - Sanitas
* Valdimar - Undraland
* Quadruplos - Quadroplos

Markmið Kraumslistans er:

* Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
* Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
* Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Kraumslistinn
Kraumslistanum (stundum kölluð Kraumsverðlaun) er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi - og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.

Verðlaun
Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum (100 stk hver plata árin 2008 og 2009) og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

KRAUMSLISTINN 2008

  • Agent Fresco - Lightbulp Universe)
  • FM Belfast - How to Make Friends
  • Hugi Guðmundsson - Apocrypha
  • Ísafold kammersveit - All Sounds to Silence Come
  • Mammút - Karkari
  • Retro Stefson - Montana

>> 20 platna úrvalslisti ársins má finna hér: http://kraumur.is/kraumslistinn/kraumslistinn-2008/

KRAUMSLISTINN 2009

  • Anna Guðný Guðmundsdóttir - Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
  • Bloodgroup - Dry Land
  • Helgi Hrafn Jónssonon - For the Rest of My Childhood
  • Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
  • Hjaltalín - Terminal
  • Morðingjarnir - Flóttinn mikli

>> 20 platna úrvalslisti ársins má finna hér: http://kraumur.is/kraumslistinn/kraumslistinn-2009

Nánar um Kraumslistann og markmið verðlaunanna:

Daníel Bjarnason fær lofsamlega dóma

Monday, September 13th, 2010

Tónskáldið og hljómsveitastjórinn Daníel Bjarnason fær lofsamlega dóma fyrir breiðskífu sína Processions. Kraumur vinnur með og styður Daníel við markaðsetningu plötunnar á erlendri grundu.

Daníel Bjarnason hóf kynningu á breiðskífu sinni Processions í mars á þessu ári með tónleikum í New York ásamt 17 manna hljómsveit. Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari og Vicky Chow píanóleikari voru meðal þeirra sem skipuðu hljómsveit Daníels, en myndir frá tónleikunum má sjá hér.

Daníel hefur síðan leikið á fleiri tónleikum hérlendis sem erlendis, en meðal viðkomustaða hafa verið Moskva og Tallin. Hérlendis kom Daníel fram á tónleikum í Þjóðleikhúsinu þann 16. maí sem voru hluti af Listahátíð í Reykjavík og Whale Watching tónleikadagskrá Bedroom Community.

Daníel Bjarnason vinnur nú að nýju verki með tónlistarmanninum Ben Frost sem er undir áhrifum frá kvikmynd Andre Tarkovsky Solaris og verður flutt á Unsound tónlistarhátíðinni með 28 átta manna sinfóníusveit Krakow-borgar. Meira hér.

Procession hefur fengið frábæra dóma í fjölmörgum fjölmiðlum erlendis. Má þar nefna  Drowned in Sound, Popmatters og Alarm Magazine sem gefur plötunni 9/10 í einkunn og segir plötuna vera með bestu útgáfum ársins 2010. Daníel hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2010 fyrir tónverkin á plötunni, auk þess sem platan var tilnefnd sem plata ársins í flokki Sígildrar tónlistar og samtímatónlistar.

Daníel Bjarnason hefur unnið að útsetningum með fjölda innlendra tónlistarmanna og má þar nefna Sigur rós, Hjaltalín, Amiina og Ólöf Arnalds. Daníel er jafnframt einn af stofnendum og stjórnandi kammersveitarinnar Ísafold. Breiðskífa Ísafoldar ‘All Sounds to Silence Come’ hlaut Kraumsverðlaun - viðurkenningu Kraums á sviði plötuútgáfu árið 2008. Áætlað er að Daníel muni vinna með dönsku hljómsveitinni Efterklang í byrjun næsta árs að útsetningum fyrir tónleikaferð og nýrri breiðskífu.

“Processions deserves to be [Bjarnason's] global breakthrough. It’s the sound of fire and instinct, the musical equivalent of a controlled burn. Perhaps all sounds to silence come, but thanks to Bjarnason, that sonic Armageddon seems a long distance away.”
Richard Allen — The Silent Ballet

“Of course, although it might often sound like complete chaos, with Bjarnason unable to keep a lid on the rage that boils within, Processions obviously required a degree of technical virtuosity akin to the ‘death jazz’ of The Thing and Soil And Pimp Sessions it occasionally resembles; that Bjarnason is leading an entire orchestra through this maelstrom even more impressive than a jazz trio soloing around each other. That, and the fact that this so-called ‘classical’ music makes even the most aggressive members of the jazz, electronic or metal avant-garde sound about as scary as Cliff Richard.”
Paul Clarke — Drowned in Sound

“Processions is the first full-length release for Bjarnason, who only recently turned 30. Clearly, he already possesses a wealth of knowledge about the history of classical (or classical-esque) music. For someone so young to have that knowledge and deploy it to deconstruct the music itself is mind-boggling and leaves listeners wondering what Bjarnason will break next.”
Erin Lyndal Martin — Popmatters.com

Kraumur styður og vinnur með Daníel Bjarnassyni að kynningu Processions á erlendum vettvangi.

Hlekkir

Amiina artwork

Thursday, May 27th, 2010

Plakat frá tónleikaferð Amiina kemur í leitirnar.

Skemmtilegt plakat frá tónleikaferð Amiina um landið sumarið 2009, sem farin var í samvinnu við og með stuðningi Kraums, er komið í leitirnar á stafrænu formi. Ekki úr vegi að smella því á síðuna.

Frekari upplýsingar um tónleikaferðina má finna hér. Frekari upplýsingar um Innrás Kraums - stuðning við tónleikahald innanlands má finna hér. Fleiri plaköt frá viðburðum í tengslum við starfsemi Kraums má finna hér.

Kraumur styður við tónleikahald innanlands

Tuesday, September 8th, 2009

Kraumur hefur í samvinnu við listamenn og hljómsveitir unnið að, og stutt við, mikinn fjölda tónleika innanlands um allt land í sumar.

Starfsemi Kraums undanfarna mánuði hefur að stórum hluta snúist um stuðning, samstarf og ráðgjöf á sviði tónleikahald innanlands. Innrásin, sérstakt átak Kraums til stuðning tónleikahalds á landsbyggðinni, var sett á laggirnar í fyrra og átakið hélt áfram í ár með fjölda tónleika.

Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir Innrásar-tónleika ársins.

Rás 2 hefur verið sérstakur samstarfsaðili átaksins og stutt við tónleikana með kynningum og auglýsingum.

Mikil fjölbreytni hefur einkennt tónleikana þar sem listamenn og hljómsveitir hafa komið úr öllum áttum tónlistar. Árið 2008 studdi Kraumur meðal annars við tónleika Elfu Rún Kristinsdóttur, Melkorku Ólafsdóttur, Benna Hemm Hemm, tónlistarhópsins Njútón, Sign, Dr. Spock, Skáta og Bloodgroup. Meðal þeirra sem komið hafa fram á tónleikum í samstarfi og með stuðningi Kraums í vor og sumar eru;

  • Mógil
  • Árstíðir
  • Svavar Knútur
  • Árstíðir [á mynd]
  • Helgi Valur [á mynd]
  • FM Belfast
  • Reykjavík!
  • Miri
  • Swords of Chaos
  • Skakkamanage
  • Nögl
  • Gordon Riots
  • Celestine
  • Momentum
  • Bróðir Svartúlfs
  • Ljósvaki
  • Fabúla
  • Elíza Newman Geirsdóttir
  • Þórunn Antónía
  • Mysterious Marta
  • Pascal Pinon
  • Auk fjöldi annarra tónlistarmanna og hljómsveita…

Amiina við sjávarsíðuna

Tónleikasería þar sem aðgangur var ókeypis og leikið var í tveimur vitum, hvalasafni og Bláu kirkjunni á Seyðisfirði. (vísun)

24. júlí - Bláa kirkjan á Seyðisfirði
25. júlí - Dalatangaviti
26. júlí - Hvalasafnið á Húsavík í samstarfi við Mærudaga
27. júlí - Sauðanesviti

———————————

Molestin á Eistnaflugi tónlistarhátíð

Hljómsveitirnar Momentum, Muck, Ask the Slave, Skítur, Myra, Plastic Gods og Celestine leika á tónlistarhátíðinni Eistnaflug á Neskaupsstað 9.-12. júlí með stuðningi Kraums. (vísun)

9.-12. júlí - Eistnaflug, Neskaupsstaður

———————————

Sumargleði Kimi Records

Fram komu hljómsveitirnar Sudden Weather Change, Reykjavík!, Swords of Chaos, Skakkamanage, FM Belfast, Miri, Létt á bárunni, Prins Póló, Hellvar og Björtu. (vísun)

15. júlí - Paddy’s, Keflavík
16. júlí - Pakkhúsið, Höfn á Hornafirði
17. júlí - Herðubreið, Seyðisfirði (LungA listahátíð)
18. júlí - Mikligarður, Vopnafirði
19. júlí - Gamli Baukur, Húsavík
22. júlí - Kaffi 59, Grundarfirði
23. júlí - Edinborgarhúsið, Ísafirði
24. júlí - Café Síróp, Hvammstanga
25. júlí - Sódóma, Reykjavík (ásamt Swords of Chaos)

———————————

Rokk Innrásin

Hljómsveitirnar Nögl, Endless Dark, At Dodge City og Gordon Riots fóru Rokk Innrás um landið dagana 25. júní-4. júlí í samstarfi við og með stuðningi Kraums. Tónleikaferðin heppnaðist það vel að haldið var af stað að nýju og fleiri tónleikum bætt við 9.-18. júlí. Leikið í félagsheimilum, íþróttahúsum, veitingastöðum og börum. (vísun)

25. júní - Dillon, Reykjavík
26. júní - Kaffi 59, Grundarfjörður
27. júní - Gamla íþróttahúsið, Ísafjörður
2. júlí - Paddy’s, Keflavík
3. júlí - Mælifell, Sauðárkrókur
4. júlí - Sláturhúsið, Egilsstaðir

9. júlí - Sódóma, Reykjavík
11. júlí - Prófasturinn, Vestmannaeyjar
15. júlí - Molinn, Kólpavogur
16. júlí - Gamli vínbarinn (Hansen), Hafnarfjörður
17. júlí - Lukkuláki, Grindavík
18. júlí - 800 bar, Selfoss

———————————

Mógil á hringferð um landið

Hljómsveitin Mógil, sem vakið hefur verðskuldaða athygli hérlendis sem erlendis fyrir sinn einstaka þjóðlaga-skotna hljóm, lék á fernum tónleikum víðasvegar um landið í samvinnu við og með stuðningi Innrásar-átaks Kraums. (vísun)

27. júní - Sólheimum í Grímsnesi
30. júní - Fríkirkjunni í Reykjavík
1. Júlí - Þjóðlagahátið á Siglufirði
2. júlí - Deiglan á Akureyri

———————————

Hver á sér fegra föðurland

Hljómsveitin Árstíðir og trúbadorarnir Svavar Knútur og Helgi Valur gerðu víðreist um fósturjörðina og komu við í helstu bæjum og sveitum hringinn í kringum landið undir nafninu “Hver á sér fegra föðurland?” (vísun)

25. júní - Hveragerðiskirkja, Hveragerði
26. júní - 800 Bar, Selfossi
27. júní - Stykkishólmskirkja, Stykkishólmi
27. júní - Ólafsvíkurkirkja, Ólafsvík
28. júní - Flateyjarkirkja, Flatey
29. júní - Sjóræningjasafnið á Patreksfirði
30. júní - Tálknafjarðarkirkja, Tálknafirði
1. júlí - Hlaðan í Arnardal við Ísafjarðardjúp
2. júlí - Hólmavíkurkirkja, Hólmavík
3. júlí föstudagur - Félagsheimilið Höfðaborg, Hofsósi
Tónleikar hefjast kl. 20
4. júlí - Siglufjörður (Þjóðlagahátíð)
Hljómsveitirnar heimsækja Siglufjörð og njóta þjóðlagahátíðarinnar þar í bæ.
5. júlí - Félagsheimilið, Grímsey
7. júlí - Gamli baukur, Húsavík
8. júlí - Egilsstaðakirkja, Egilsstöðum
9. júlí - Neskaupstaður (Eistnaflug)
Hljómsveitirnar njóta rokkhátíðarinnar Eistnaflugs á Neskaupstað
10. júlí - Úlfaldi úr Mýflugu, Hlaða í Mývatnssveit
11. júlí - Græni Hatturinn, Akureyri
12. júlí - Café Rósenberg, Reykjavík

———————————

Hljóðverssmiðjur á Flateyri

Hljóðverssmiðjur Kraums í Tankinum á Flateyri í samvinnu við Músíktilraunir, með Mugison og fleiri leiðbeinendum. Þátttakendur eru Bróðir Svartúlfs, Ljósvaki og The Vintage sem skipuðu þrjú efstu sætin á Músíktilraunum 2009, þeir leika óvænt á tónleikum á Flateyri meðan á Smiðjunum stendur. (vísun)

14. júní - Vagninn, Flateyri

———————————

Trúbatrixur á hringerð um landið

Trúbatrixur fagna grósku íslenskra tónlistarkvenna með safndisk og tónleikaferð um landið - í samstarfi við Innrásarverkefni Kraums og Rás 2. Fram koma Fabúla, Elíza Geirsdóttir Newman, Þórunn Antónía, Elín Ey, Mysterious Marta, Pascal Pinon og fleiri. (vísun)

2. júní - Trúbatrix Album Launch @ Café Rósenberg, Reykjavík
3. júní - Kaffi 59, Grundarfjörður
4. júní - Græni Hatturinn,Akureyri
5. júní - Kaffi Sæli, Tálknafjörður
6. júní - Edinborg, Ísafjörður
11. júní -  Draugasetrið, Stokkseyri
12. júní - Pakkhúsið, Höfn í Hornafirði
13. júní - Hótel Aldan, Seyðisfjörður

———————————

Hvar er draumurinn?

Samstarf við tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður. Fjölmargir reynsluboltar úr íslensku tónlistarlífi deildu reynslu sinni á námskeiði Kraums og Aldrei fór ég suður. (vísun)

10-11. apríl - Aldrei fór ég suður, Ísafjörður

———————————

Hlekkir:
Innrásin á Wikipedia
Innrásin á Kraumur.is

Amiina við sjávarsíðuna

Tuesday, July 21st, 2009

Hljómsveitin Amiina heldur ferna tónleika við sjávarsíðuna viðsvegar um landið dagana 24.-27. júlí í samstarfi Kraum tónlistarsjóð. Aðgangur er ókeypis.

Hljómsveitin amiina, í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð, heldur ferna tónleika við sjávarsíðuna um næstu helgi (24.-27. júlí). Spilað verður í tveimur vitum, hvalasafni og Bláu kirkjunni á Seyðisfirði. Tónleikadagskráin verður aðlöguð að umhverfinu; stutt efnisskrá með sérsniðnum útsetningum sem  hæfa umgjörðinni, í mikilli nánd við sjóinn sem og áheyrendur.

Tónleikarnir eru liður í Innrás Kraums til stuðnings tónleikahaldi innanlands.

Aðgangur er ókeypis.

Dagsetningar:
24. júlí kl.17 - Bláa kirkjan á Seyðisfirði
25. júlí kl.16 - Dalatangaviti
26. júlí kl. 21 - Hvalasafnið á Húsavík í samstarfi við Mærudaga
27. júlí kl. 17 - Sauðanesviti

Amiina heimasíða: www.amiina.com

Stofutónleikar ungra listamanna á Listahátíð

Tuesday, May 5th, 2009

Kraumur styður Stofutónleika ungra listamanna á Listahátíð í Reykjavík, sem fram fara daganna 22.-24. maí víðsvegar um borgina.

Listahátíð í Reykjavík 2009 verður haldin dagana 15. til 31. maí. Meðal þess sem boðið verður upp á í dagskrá hátíðarinnar í ár eru Stofutónleikar, þar sem listamenn og hljómsveitir bjóða fólki í heimsókn á heimili. Hér býðst einstakt tækifæri til að sjá framúrskarandi tónlistarmenn koma fram og leika tónlist í einstakri nálægð við áheyrendur.

Kraumur styður við tónleika ungra listamanna sem koma fram á Stofutónleikunum. Tónleikarnir fram víðsvegar um Reykjavík, allt frá póstnúmerum 101 til 111. Við erum stolt af því að tengjast þessu metnaðarfulla verkefni sem samstarfsaðili.

ATHUGIÐ! Tryggið ykkur miða fyrirfram! Miðar verða EKKI seldir á staðnum!

Föstudagur 22. maí

Benda slagverkshópur - músíkframleiðsla í íbúðabyggð
Heiðargerði 1b, 108 Reykjavík kl. 16.00
Ólöf Arnalds og leynigestir*
Ingólfsstræti 10, 101 Reykjavík kl. 17.00
Hljómsveitin Vicky tónar sig niður*
Holtsgata 39, 101 Reykjavík kl. 18.00
Bloodgroup breiðir úr sér*
Hólmaslóð 2, 101 Reykjavík kl. 19.00
Retro Stefson, FM Belfast og MC Plútó*
Ingólfsstræti 21a, 101 Reykjavík kl. 20.00
Weirdcore – raftónlist á heimsmælikvarða*
Biogen, Yagya og Anonymous. Hellirinn, Eyjaslóð 1b, 101 Reykjavík kl. 21.00
Reykjavík! – frumkvöðlar í stofutónleikum*
Smiðjustígur 4a, 101 Reykjavík kl. 22.00

Laugardagur 23. maí

Fjórar aldir og þrjár heimsálfur
-Áshildur Haraldsdóttir og Katie Elizabeth Buckley
Túngata 44, 101 Reykjavík kl. 13.00
Of gamall til að rokka en of ungur til að deyja -Benóný Ægisson
Skólavörðustígur 4c, 101 Reykjavík kl. 14.00
‘Gershwin í Mýrinni’ – hjónin Hulda Björk Garðarsdóttir og Ólafur Egill Slozenwald
Kjartansgata 9, 105 Reykjavík kl. 15.00
Spilmenn Ríkínís – íslensk tónlist um og eftir siðaskipti
Dómkirkjuloftið, 101 Reykjavík kl. 16.00
Miðillinn, mónó-ópera í flutningi Ásgerðar Júníusdóttur
Melhagi 2, 107 Reykjavík kl. 17.00
Melchior flytur dæmigerða stofutónlist
Bugðulækur 17, 105 Reykjavík kl. 18.00
Skínandi hreint heima hjá Jóni Ólafssyni
Hagamelur 33, 107 Reykjavík kl. 19.00
Sigrún Hjálmtýsdóttir og Stofukvartettinn
Vesturbrún 4, 104 Reykjavík kl. 20.00
amiina í húsi Hannesar Hafstein*
Grundarstígur 10, 101 Reykjavík kl. 21.00

Sunnudagur 24. maí

Nýr Melakvartett
Þórsgata 18, 101 Reykjavík kl. 12.00
Óvanaleg samsetning Dvorák-hópsins
Hávallagata 18, 107 Reykjavík kl. 13.00
Það vorar samt - stofutónleikar í Stekknum
Urðarstekkur 3, 109 Reykjavík kl. 14.00
Fjölskyldutónleikar heima hjá Felix!
Starhagi 5, 107 Reykjavík kl. 15.00
Lög úr söngleikjum - Valgerður Andrésdóttir og Ingibjörg Guðjónsdóttir
Grettisgata 39, 101 Reykjavík kl. 16.00
Barrokk í Þingholtunum með Nordic Affect*
Halla Steinunn Stefánsdóttir og Guðrun Óskarsdóttir. Bragagata 27, 101 Reykjavík kl. 17.00
Djass í Breiðholti - Kristjana Stefáns og Agnar Már Magnússon*
Vesturberg 137, 111 Reykjavík kl. 18.00
Grafinn bassi - Tómas R. Einarsson
Reynimelur 24 (bílskúr), 107  Reykjavík kl. 19.00
Duo Landon - Hlíf Sigurjónsdóttir og Martin Frewer
Laugarnestangi 70 (Listasafn Sigurjóns Ólafssonar), 105 Reykjavík kl. 20.00

*Tónleikar ungra listamanna, á dagskrá með stuðningi Kraums - tónlistarsjóðs.

Vefsíða: Listahátíð í Reykjavík - Dagskrá 2009 - Stofutónleikar

Kraumur kveður sér hljóðs

Tuesday, April 1st, 2008

Fyrstu verkefni Kraums sem og stuðningur hins nýja sjóðs við tónlistarmenn og hljómsveitir voru kynnt síðdegis í dag, 1. apríl, í æfingahúsnæði nokkurra hljómsveita að Smiðjustíg 4B.

Kraumur, nýr sjálfstætt starfandi sjóður og starfsemi sem hefur það að markmiði að efla íslenskt tónlistarlíf, hefur kynnt sín fyrstu verkefni og stuðning við unga íslenska tónlistarmenn og hljómsveitir. Á yfirstandandi starfsári mun Kraumur meðal annars greiða leið tónlistarmanna til tónleikahalds á landsbyggðinni, sem og styðja við metnaðarfull verkefni tónlistarmanna með beinum hætti.

Stærstu framlög Kraums til listamanna að þessu sinni fara í stuðning við Mugison, Víking Heiðar Ólafssona og Amiinu og metnaðarfull verkefni þeirra á árinu. Tónlistarmennirnir Elfa Rún Kristinsdóttir og Ólöf Arnalds og hljómsveitirnar Dikta, FM Belfast, Celestine og Skakkamanage (sem er ein þeirra sveita sem hafa æfingaðstöðu á Smiðjustíg 4B) hljóta jafnramt fjárhagsstuðning og ráðgjöf í tengslum við gerð nýrra hljómplatna á árinu.

Eldar Ástþórsson, framkvæmdarstjóri Kraums, kynnti einnig til leiks þrjú eigin verkefni Kraums sem sjóðurinn mun vinna að á yfirstandandi starfsári; Innrásina – sem hefur það að markmiði að auðvelda ungu tónlistarfólki tónleikahald á landsbyggðinni, Hljóðverssmiðjur til að efla grasrótina og gefa hljómsveitum og listamönnum færi á að taka upp sín fyrstu lög undir ráðgjöf reyndari listamanna og Kraumsverðlaunin til stuðnings plötuútgáfu og auka tækifæri listamanna kringum útgáfu á tónlist sinni.

Meðal viðstaddra við athöfnina voru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennamálaráðherra, sem talaði um mikilvægi stuðnings við íslenskt tónlistarlíf, Þórunn Sigurðardóttir, formaður stjórnar Kraums og stjórnarmaður í Auroru velgerðarsjóði, sem gerði grein fyrir markmiðum sjóðsins og Eldar Ástþórsson, framkvæmdarstjóri Kraums, sem kynnti fyrstu verkefni hans og stuðning. Einnig voru viðstödd hjónin Ingibjörg Kristjánsdóttur landslagsarkitekt og Ólafur Ólafsson stjórnarformaður Samskipa, en stofnun Kraums byggir á samþykkt stjórnar velgerðasjóð þeirra Auroru, sem fjármagnar starfsemi Kraums.

Kraumur er nýr sjálfstætt starfandi sjóður sem settur var á laggirnar í upphafi árs af Aurora velgerðasjóði. Sjóðurinn og starfsemi hans hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.

Kraumur - tónlistarsjóður er þriggja ára tilraunaverkefni sem stofnaður var í ársbyrjun og samkvæmt núverandi áætlun lýkur í lok árs 2010. Aurora lagði nýja sjóðnum til 20 milljónir króna árið 2008, 15 milljónir króna 2009 og aftur 15 milljónir króna 2010 eða alls 50 milljónir króna.

Beinn stuðningur við listamenn

Kraumur styður eftirfarandi listamenn til góðra verka á árinu. Stuðningur er í formi fjárhagslegs styrks ásamt tilheyrandi ráðgjöf og aðstoð þar sem því er komið við. Framkvæmdastjóri Kraums er listamönnum til halds og trausts og annast tengsl sjóðsins við samstarfsaðila og fylgir því eftir að markmiðum samstarfs og stuðnings sé náð.

Mugison
Tónleikahald og útrás á erlendum vettvangi

Örn Elías Guðmundsson, Mugison, uppskar laun erfiðisins með útgáfu á meistaraverkinu Mugiboogie í fyrra. Hljómplatan toppaði bæði sölulista og árslista tónlistarspekúlanta hérlendis, og nú hyggur meistari Mugison á frekari landvinninga með púkann. Útgáfa er fyrirhuguðu í Evrópu og Norður-Ameríku í vor, þar sem tónleikhald gegnir lykilhlutverki í kynningu. Kraumur mun styðja við Mugison og útrás hans með myndarlegum hætti.

Í tengslum við útgáfu á Moogiboogie á alþjóðlegum vettvangi hyggur Mugison á tónleika víðsvegar á Norðurlöndunum (m.a. Hróaskelduhátíðinni), Þýskalandi, Frakkland, Ítalíu og víðar í Evrópu, Bandaríkin og Kanada (tónleikaferð með Queens of the Stone Age). Stuðningur miðast við að gera tónleikana mögulega með beinum stuðningi við Mugison og hljómsveit hans. Meðlimir í hljómsveit Mugison eru; Arnar Gíslasson trommur, Guðni Finnson bassi, Pétur Þór Ben gítar og Davíð Þór Jónsson hammond/píanó.
Upphæð: 4.000.000,- kr

Víkingur Heiðar Ólafsson
Tónleikahald, kennsla og kynning í framhaldsskólum
Víkingur Heiðar er að ljúka framhaldsnámi við Julliard tónlistarháskólann og hefur hlotið einstaka dóma fyrir leik sinn. Stuðningurinn við tónlistarferil Víking Heiðars miðar jafnframt að því að gefa framhaldsskólanemum tækifæri á að kynnast og komast í tæri við tónlistarfluttning hans. Gert er ráð fyrir nokkrum tónleikum og samstarfi við framhaldsskóla um framkvæmd þeirra - en að öðru leyti er stuðningur Kraums við Víking og meðleikara meginstoð verkefnisins. Auk þess sem Víkingur leikur á píanóið mun Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, útskýra verkin og opna nemendum leiðir að því að njóta klassískrar tónlistar.
Upphæð: 1.500.000,- kr

Amiina
Tónleikahald á landsbyggðinni

Það eru spennandi tímar framundan hjá Amiinu. Eftir að hafa gefið út sína fyrstu hljómplötu, hina einstöku Kurrr, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi í fyrra, tekur nú við áframhaldandi vinna og kynning á plötunni, gerð kvikmyndatónlistar fyrir myndir John Crowley og Kit Hui og tónleikaferðir með Sigur Rós. Telja má tónleika Amiinu hérlendis á fingrum annarar handar. Breyting verður á því í ár, því með stuðningi Kraums er sveitinni m.a. gert kleift að gera að veruleika áætlanir sínar um tónleikaferð um Ísland. Amiina eru; Hildur Ársælsdóttir, Edda Rún Ólafsdóttir, Maria Huld Markan Sigfúsdóttir og Sólrún Sumarliðadóttir.
Upphæð: 1.200.000,- kr


Celestine / Dikta / Elfa Rún Kristinsdóttir
/ FM Belfast / Skakkamanage / Ólöf Arnalds

Framkvæmda- og vinnustuðningur tengd hljómplötugerð
Þrátt fyrir að tilheyra ólíkum tónlistarstefnum og straumum eiga þessir tónlistarmenn og hljómsveitir það sameiginlegt að vera vinna að nýjum hljómplötum í ár. Á meðan Celestine, Dikta, Skakkamanage og Ólöf Arnalds eru með sína aðra plötu smíðum eru Elfa Rún Kristinsdóttir og FM Belfast að vinna að sínum fyrstu hljómplötum. Það er von Kraums að þessi stuðningur nýtist viðkomandi listamönnum vel við þá vinnu sem fylgir lagasmíðum, æfingum og upptökum. Auk fjárframlags verður listamönnunum veitt stuðningur í formi ráðgjar og samvinnu þar sem því verður komið við. Ekki loku skotið fyrir áframhaldandi samstarf við þessa listamenn á næsta ári.
Upphæð: 500.000,- kr hver hljómsveit / listamaður (samtals 3.000.000)

Kraumsverkefni

Eigin verkefni Kraums:

Innrásin – Tónleikastuðningur Kraums
Verkefnið miðar að því að ýta undir og efla tónleikahald á landsbyggðinni og öfugt. Hugmyndin að baki þessu starfi er m.a. sú staðreynd að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, en hérlendis – t.a.m. í Kaupmannahöfn frekar en á Egilstöðum. Lítill stuðningur er í dag við þá sem vilja reyna fyrir sér með tónleikhald á landsbyggðinni. Markmiðið með Innrásinni er að brúa þetta bil – og auka við fjölbreytni og möguleika ungra listamanna til tónleikahalds. Stuðningurinn verður í formi æfingastyrkja, ferða- og græjustuðnings.  Jafnframt verður stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi. Markmiðið er stuðningur við tónlistarlíf í landinu og við listamennina beint með því að auka við tækifæri þeirra við útbreiðslu listar sinnar, fjölbreytni í tónleikahaldi og tekjumöguleikum.

Hljóðverssmiðjur
Stuðningur við grasrótina. Upprennandi listamönnum gert kleift að komast í stúdíó með faglegri upptökustjórn og ráðgjöf reyndari listamanna. Framkvæmd er þannig háttað að listamanni/hljómsveit er gefið tækifæri á þátttöku og veru í stúdíó í tiltekin tíma. Hugmyndir eru uppi að upptökuferlið fari fram á landsbyggðinni. Afraksturinn yrði fullklárað efni sem listamaðurinn á sjálfur og getur nýtt eftir hentugleika, t.d. til útgáfu (t.d. á netinu), nýtt kynningarskyni eða dreift á útvarpsstöðvar.

Kraumsverðlaunin
Það er gamall og góður siður að velja bestu plötur ársins. Með Kraumsverðlaununum er þessi leið farin, en með það að markmiði að styðja við útgáfur ungra íslenskra hljómsveita og listamanna og auka við möguleika þeirra í kjölfar útgáfunnar. Hvernig? Kraumur mun skuldbinda sig til að versla 100 stk af öllum plötum sem útnefndar verða til verðlaunana (sem því miður er í sumum tilvikum hátt hlutfall heildarsölu). Þessi eintök mun sjóðurinn sjá um að senda út og dreifa á starfsmenn tónlistarbransans erlendis eins og tónlistarhátíðir, umboðsskrifstofur, plötuútgáfur o.s.frv. Með þessu er verið að auka við möguleika viðkomandi listamanns á alþjóðavettvangi. Verðlaunin munu ná til allrar tegundir tónlist, en hafa það að markmiði að verðlauna það sem er nýtt og spennandi í íslenskri tónlist.