Posts Tagged ‘Borko’

Innrásin 2011 - Partíþokan svífur af stað

Wednesday, October 19th, 2011

PARTÍÞOKAN verður á Græna Hattinum Akureyri laugardaginn 22. október

FM BELFAST, PRINSPÓLÓ, SIN FANG og BORKO

Það er nokkuð ljóst að sumarið er búið, haustið er að renna sitt skeið og veturinn að taka yfir kaldur og blautur. Það þýðir samt ekkert að stara í myrkrið eins og blindur kettlingur því það er spáð Partíþoku víða um land.

Partíþokan byrjar á Akureyri laugardaginn 22. október, nánar tiltekið Græna Hattinum, þar sem hljómsveitirnar FM Belfast, Prinspóló, Sin Fang og Borko munu skemmta með tónleikahaldi og uppistandi.

Aðrir viðkomustaðir Partíþokunnar verða kynntir síðar svo það borgar sig að fylgjast með fréttum af veðri og færð. Það verður sumsé þokalega góð stemming á Græna hattinum á laugardaginn, þokuljós og þokulúðrar, en munið bara að ganga hægt um gleðinnar dyr. Forsala miða er í Eymundsson Hafnarstræti og það borgar sig að tryggja sér miða í tíma því það leynist ýmislegt í þokunni.

Hér má hlusta á lagið Partíþokan í flutningi Prinspóló og FM Belfast: Partíþokan

Textinn við lagið er hér: Partíþokan texti

Það er Kraumur tónlistarsjóður, Rás 2 og Bílaleiga Akureyrar sem styðja við Partíþokuna.

Sjáumst í þokunni!

Kraumur úthlutar til innrásarinnar 2011

Monday, July 18th, 2011

Kraumur tónlistarsjóður kynnir úthlutun til listamanna og verkefna sem eiga sér stað innanlands í sumar, haust og vetur 2011. Rúmlega tveimur milljónum króna er varið til 6 verkefna á sviði Innrásar íslenskrar tónlistar á heimamarkað.

Kraumur tónlistarsjóður kynnti fimmtudaginn 13. júlí úthlutun sína til verkefna íslenskra listamanna og hljómsveita sem taka þátt í Innrás Kraums 2011. Verkefnavalið er fjölbreytt og tónlistarstefnur margar, allt frá klassískum ljóðasöng yfir í þungarokk og raftónlist.

Þeir sem njóta stuðning Kraums að þessu sinni eru Hallveig Rúnarsdóttir og Gerrit Schuil, hljómsveitirnar Valdimar, Ghostigital og Captain Fufanu, Frelsissveit Nýja Íslands sem leika mun á djasshátíð og Skálmöld sem heimsækir þar að auki Færeyjar. Tónleikaferðin Partíþokan hlýtur hæsta styrkinn að þessu sinni en verkefnið er hugarfóstur Svavars Péturs Eysteinssonar sem fer fyrir hljómsveitinni Prinspóló. Með í för verða FM Belfast, Borko og Sin Fang auk Prinspóló.

Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds innanlands, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

Alls bárust 119 umsóknir í nýliðið umsóknarferli Kraums og því ljóst að Kraumur myndi aðeins styðja við lítinn hluta þeirra verkefna sem sóttu um til sjóðsins. Samræmist það yfirlýstri stefnu sjóðsins að styrkja frekar tiltölulega fá verkefni/listamenn - en gera það þannig að stuðningurinn sé afgerandi fyrir viðkomandi listamenn og verkefni þeirra. Í dag er tilkynnt um alls 6 verkefni sem Kraumur mun styrkja og styðja við.

Megintilgangur Kraums er að styrkja íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga tónlistarmenn. Frá því sjóðurinn var settur á laggirnar í upphafi árs 2008 hafa í kringum 80 hljómsveitir og listamenn fengið stuðning úr sjóðnum, auk þess sem Kraumur hefur sjálfur staðið fyrir fjölda verkefna (Hljóðverssmiðjur, Innrásin - stuðningur við tónleikahald innanlands, Kraumsverðlaunin & Kraumslistinn) auk stuðnings við verkefni Músíktilrauna Tónabæjar, Iceland Airwaves, Listahátíð í Reykjavík, Jazzhátíð í Reykjavík, Við Djúpið o.fl.

Verkefnin sem hlutu stuðning í seinni úthlutun Kraums 2011:

  • Partíþokan: Prinspóló, Sin Fang, Borko og FM Belfast           500.000,-
    Innrás – Tónleikaferð á Seyðisfjörð, Akureyri, Ísafjörð og svo endað í Reykjavík
  • Ghostigital og Captain Fufanu 400.000,-
    Innrás – Tónleikar víðsv.um landið í haust/vetur til að kynna raf- og tilraunatónlist
  • Skálmöld         400.000,-
    Innrás/Útrás – Ferðin til Heljar: Tónleikar á Íslandi og í Færeyjum
  • Valdimar          300.000,-
    Innrás – Tvær tónleikaferðir Valdimars um landið, í júlí og ágúst
  • Hallveig Rúnarsdóttir og Gerrit Schuil            300.000,-
    Innrás - Þrennir ljóðatónleikar á landsbyggðinni: Ísafirði, Akureyri og Eskifirði
  • Frelsissveit Nýja Íslands         300.000,-
    Innrás – Djasssveit Hauks Gröndals leikur tónlist eftir ísl. tónlistarfólk á Jazzhátíð í nýjum útsetningum

Samtals: 2.2 milljónir til sex verkefna

Kraumur tónlistarsjóður , sem var stofnaður í byrjun árs 2008 af Aurora velgerðarsjóði, hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf - fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmið Kraums er að styrkja stöðu tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Kraumur vill styðja við og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.

Kraumur á Iceland Airwaves

Sunday, October 10th, 2010

Kraumur og Backyard á Iceland Airwaves 2010, opnir ókeypis tónleikar á föstudaginn.

Kraumur og tónlistarmennirnir bakvið heimildarmyndina Backyard taka höndum saman á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves, dagana 13.-17. október. Opnir ókeypis tónleikar verða fyrir alla aldurshópa á föstudaginn, þar sem fram koma nokkrar hljómsveitir úr myndinni. Á föstudaginn verður ’spurt & svarað’ (Q&A) og umræður í kjölfar sýningar á myndinni á laugardaginn.

DAGSKRÁ:
Miðvikudagur 13. október, kl 17.00 - Backyard sýnd
Fimmtudagur 14. október, kl 17.00 - Backyard sýnd
Föstudagur 15. október, kl 17.00 - Backyard sýnd + Kraumur & Backyard tónleikar
Laugardagur 16 október, kl 17.00 - Backyard sýnd + Spurt & svarað / umræður
Sunnudagur 17. október, kl 17.00 - Backayrd sýnd

Viðburðirnir fara fram í Bíó Paradís (gamla Regnboganum), Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík. Airwaves gestir fá helmings afslátt á sýningunum, en ókeypis er á tónleikana.

Þetta er þriðja árið í röð stendur Kraumur fyrir dagskrá á Iceland Airwaves hátíðinni í samvinnu við tónlistarmenn og aðra góða aðila. Árið 2008 voru haldin tvö tónleikakvöld á Smiðjustíg sem opin voru öllum aldurshópum og innihélt m.a. tónleika með Dísu, Morðingjunum, Sam Amidon og Retro Stefson.

Í fyrra stóð Kraumur og ljósmyndarinn Hörður Sveinsson fyrir sýningunni Myndir & Mayhem þar sem íslensku tónlistarlífi var gerð skil í máli og myndum. Samhliða sýningunni í Kaffistofunni á Hverfisgötu voru haldin fjögur tónleikasíðdegi þar sem fram komu Sudden Weather Change, Sykur, Mammút, Who Knew, Bárujárn, Miri og fleiri upprennandi hljómsveitir. Auk þess sem Mugison var sérstakur leynigestur.

Smiðjustígur All-Star Jam

Monday, January 12th, 2009

Smiðjustígur All-Star Jam með meðlimum múm, FM Belfast, Borko, Seabear, Skakkamanage, Arnljótur og vinir, Agent Fresco og Retro Stefson…

Myndband ástralska New York búans Stuart Rogers sem sýnir eftirköst verðlaunaafhendingar Kraumsverðlaunanna föstudaginn 28. nóvember. Eftirpartýið. Allsherjar ófyrirsjáanlegt ‘Jam Session’ þar sem meðlimir FM Belfast, múm, Borko, Agent Fresco og fleiri sameina krafta sína.

Myndbandið má sjá hér:


Untitled from lofi.tv on Vimeo.

Kimi & Kraumur á Smiðjustíg

Wednesday, October 15th, 2008

Kraumur í samvinnu við Kimi útgáfuna hefur sett saman dagskrá í æfingahúsnæði nokkurra hljómsveita á Smiðjustíg 4a (við hlið Grand rokk) í dag og á morgun.

Þar munu vonarstjörnurnar í Retro Stefson, sem gaf í víkunni út sína fyrstu breiðskífu ‘Montaña’, koma fram ásamt; Reykjavík!, Dísu, Samamidon, Morðingjunum, Arnljótum og vinum, Borko og leynigestum.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Stuðningur kynntur við tónleikahald innanlands

Thursday, June 19th, 2008

Kraumur kynnti í hádeginu í dag á Iðnó stuðning sinn tónleikahald innanlands í tengslum við Innrásina, nýtt átak sem hefur það að markmiði að greiða leið tónlistarmanna til tónleikahalds á landsbyggðinni. Alls hljóta fimm tónleikaferðir og 14 flytjendur Innrásar-stuðning frá Kraumi. Meðal annars Sumargleði Kimi Records þar sem Benni Hemm Hemm, Morðingjarnir, Borko og Reykjavík! munu leika á sjö tónleikum á átta dögum víðsvegar um landið, 14.-21. júlí.

Sumargleðin er fyrsta tónleikaferð sumarsins sem farinn er með stuðningi Kraums. Hún hefst með tónleikum í Draugasetrinu á Stokkseyri mánudaginn 14. júlí og lýkur viku síðar - eftir viðkomu á Ísafirði, Akureyri, Húsavík, Seyðisfirði, Hörn í Hornafirði - á NASA við Austurvöll í Reykjavík. Tveir af fjórum flytjendum sem koma munu fram í tónleikaferðinni – Borko og Benni Hemm Hemm – tóku lagið saman á Iðnó í dag.

Samstarfsaðili Kraums við Innrásina er Rás 2, sem styðja mun við átakið með því að kynna og auglýsa þá tónleika sem fara fram á landsbyggðinni í sumar og haust.

Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Með Innrásinni vill Kraumur styðja hljómsveitir og tónlistarmenn við tónleikhald á landsbyggðinni. Markmiðið er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

Hugmyndin að baki Innrásinni er m.a. sú staðreynd að stundum virðist auðveldara fyrir listamenn og hljómsveitir að spila erlendis, frekar en hérlendis. Með Innrásinni er ætlunin að styðja listamennina beint og auðvelda þeim tónleikhald innanlands með fjárhagslegum styrk, ferða- og græjustuðning. Jafnframt er stefnt á að búa til gagnagrunn yfir tengiliði sem nýst geta listamönnum við skipulagningu tónleika úti á landi.

Kraumur

Starfsemi Kraums var sett á laggirnar í upphafi árs af Aurora velgerðasjóð. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Á yfirstandandi starfsári er Kraumur m.a. að styðja við útrás og tónleikaferð Mugison, tónleikahald Amiinu innanlands, verkefni Víkings Heiðars Ólafssonar og plötuútgáfu Skakkamanage, Celestine, Diktu, FM Belfast, Ólafar Arnalds og Elfu Rúnar Kristinsdóttur.

Kimi Records

Plötuútgáfan Kimi records, sem á varnarþing sitt á Akureyri, hefur vaxið ógnarhraða síðan hún var sett á laggirnar fyrir um 9 mánuðum. Meðal þeirra sem gefa út hjá Kimi eru Hjaltalín, Hellvar, Morðingjarnir, Borko, Benni Hemm og Reykjavík!

Innrásar-stuðningur Kraums

Rás 2 rokkar hringinn
Hljómsveitir; Sign, Dr. Spock og Benny Crespo’s Gang

Hvert:
1. apríl, Fjölbrautaskóli Suðurlands (Selfossi)
2. apríl, Prófasturinn (Vestmannaeyjum)
3. apríl, Sindrabær (Höfn í Hornafirði)
4. apríl, Valhöll (Eskifirði)
5. apríl, Græni hatturinn (Akureyri)
10. apríl, Paddy‘s (Reykjanesbæ)
11. apríl, Nasa (Reykjavík)

Stuðningur Kraums til listamanna: 300.000,- kr

—————————-

Sumargleði Kimi Records – Tökum hringinn á þetta!
Hljómsveitir; Benni Hemm Hemm, Borko, Morðingjarnir og Reykjavík!

Hvert:
14. júlí – Stokkseyri, Draugasetrið
15. júlí – Ísafjörður Edinborg
16. júlí – Akureyri Græni Hatturinn
17. júlí – Húsavík Gamli Baukur
18. júlí – Seyðisfjörður Leikhúsið
19. júlí – Höfn í Hornafirði Pakkhúsið
20. júlí – Pása
21. júlí – Reykjavík - Nasa

Stuðningur Kraums til listamanna auk ferða- og græjustuðnings: 600.000,- kr

—————————-

Tónleikaferð Njútón
Hljómsveit; Tónlistarhópurinn Njútón

Hvert:
25. júlí - Hádegistónleikar í Ketilhúsinu, á vegum Listasumars á Akureyri.
27. júlí -  Tónleikar/innsetning í heimahúsi í miðbæ Reykjavíkur. Samvinnuverkefni Njútons og Ingibjargar Magnadóttur myndlistarmanns.
2. ágúst - Tónleikar í Skálholtskirkju, á vegum Sumartónleika í Skálholtskirkju.

Stuðningur Kraums til listamanna, auk ferðastuðnings: 300.000,- kr

—————————-

Telmann og tónlist á Íslandi - Heiðurs- og fagnarðartónleikaferð
Listamenn: Elfa Rún Kristinsdóttir fiðurleikari og Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari

Tónleikaferðin er farin til heiðurs því mikilvæga hlutverki sem kirkjur á Íslandi hafa þjónað í tónlistarlífi landsmanna gegnum aldirnar – og er jafnfram fagnaðargjörningur þeirra tímamóta að nú er í byggingu tónlistarhús allra landsmanna í Reykjavík.

Hvert:
18. ágúst – Hóladómkirkja í Haltadal (hluti af árlegri Hólahátíð)
19. ágúst - Glerárkirkja, Akureyri
20. ágúst - Mývatn
21. ágúst - Bláa kirkjan, Seyðisfirði (hluti af sumartónleikaröð)
23. ágúst - Skálholtskirkja
24. ágúst - Flateyjarirkja
26. ágúst - Ísafjarðarkirkja
28. ágúst - Tvöfaldir tónleikar í Langholtskirkju

Stuðningur Kraums til listamanna, auk ferðastuðnings: 400.000 kr

—————————-

Skátar og Bloodgroup - Hausttúr um Ísland
Hljómsveitir; Bloodgroup og Skátar

Hvert:
1. október – Grundarfjörður
2. október - Ísafjörður
3. október - Akureyri
4. október - Egilsstaðir
8. október - Selfoss
9. október - Keflavík
10. október – Akranes
11. október - Hafnarfjörður

Stuðningur Kraums til listamanna auk ferða- og græjustuðnings: 400.000,- kr

Blaðamannafundur á Iðnó

Wednesday, June 18th, 2008

Blaðamannafundur á Iðnó í tilefni af kynningu á Innrásinni og stuðning við tónleikahald innanlands.

Tilefnið er:

A. KRAUMUR KYNNIR INNRÁSINA OG STUÐNING VIÐ TÓNLEIKAHALD INNANLANDS
B. TÓNLEIKAFERÐ KIMI RECORDS - SUMARGLEÐIN - SÝNIR KLÆRNAR

Iðnó, fimmtudaginn 19. júní, kl. 12:15

  • Benni Hemm Hemm og Borko taka lagið
  • Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums kynnir Innrásina og stuðning við tónleikaferðir
  • Baldvin Esra Einarsson, framkvæmdastjóri Kimi Records kynnir Sumargleðina
  • Þórunn Sigurðardóttir, formaður stjórnar Kraums og stjórnarformaður í Auroru velgerðarsjóði, kynnir starfsemi Kraums

Léttar hádegisveitingar.