Posts Tagged ‘Bróðir svartúlfs’

Kraumslistinn 2009 tilkynntur

Wednesday, December 16th, 2009

Viðurkenning og stuðningur Kraums fyrir metnað og frumleika í íslenskri plötugerð.

Kraumslistinn, sérstök viðurkenning Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka sem þótt hafa framúrskarandi, frumleg og spennandi í íslenskri plötuútgáfu á árinu, var kynntur annað árið í röð í dag, miðvikudaginn 16. desember.

Athöfnin fór fram í húsnæðinu að Vonarstræti 4B - sem rýmir Kraum tónlistarsjóð, Auroru hönnunarsjóð og Hönnunarmiðstöð Íslands. Þórunn Sigurðardóttir stjórnaformaður Kraums bauð fólk velkomið, Eldar Ástþórsson framkvæmdastjóri Kraums kynnti hugmyndafræði Kraumslistans og stuðninginn sem sjóðurinn mun veita þeim plötum sem dómnefnd valdi, og formaður dómnefndar Árni Matthíasson tilkynnti um Kraumslistann 2009. Fram komu Hjaltalín, Helgi Hrafn Guðmundsson og Morðingjarnir sem öll léku órafmagnað.

Í fyrra voru það plötur Agent Fresco (Lightbulp Universe), FM Belfast (How to Make Friends), Hugi Guðmundsson (Apocrypha), Ísafold (All Sounds to Silence Come), Mammút (Karkari) og Retro Stefson (Montana) sem hlutu sérstaka viðurkenningu.

Framkvæmd Kraumslistans er með þeim hætti að sérstök dómnefnd velur úrvalslista (20 plötur) og síðan Kraumslistann 2009 (5 plötur) . Líkt og í fyrra sá dómnefnd sérstaka ástæðu til að verðlauna fleiri en fimm plötur að þessu sinni, en samkvæmt reglum Kraumslistans hefur dómnefnd leyfi til að auka við fjölda verðlaunaplatna, ef sérstakt tilefni þykir til.

Dómnefnd Kraumslistans er skipuð 16 aðilum sem síðustu ár hafa starfað við umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson blaðamaður. Listi yfir alla meðlimi dómnefndar má finna

Kraumslistinn 2009

Í ár hljóta eftirtaldir listamenn viðurkenningu og stuðning fyrir plötur sínar;

* Anna Guðný Guðmundsdóttir - Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
* Bloodgroup - Dry Land
* Helgi Hrafn Jónssonon - For the Rest of My Childhood
* Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
* Hjaltalín - Terminal
* Morðingjarnir - Flóttinn mikli

Stuðningur Kraums

Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

Markmið Kraumslistans

Kraumslistanum er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi - og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, nú þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Kraumslistinn 2009 - Úrvalslisti

Óhætt að segja að árið í ár hafi verið öflugt hvað plötuútgáfu varðar, enda fjölmargir spennandi titlar sem ekki komast á úrvalslista Kraumslistans 2009. Eftirtalda plötur voru valdar á úrvalslista dómnendar og voru þannig tilnefndar til Kraumslistans 2009:

* Anna Guðný Guðmundsdóttir - Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
* Árni Heiðar Karlsson - Mæri
* Bloodgroup - Dry Land
* Bróðir Svartúlfs - Bróðir Svartúlfs EP
* Dikta - Get it together
* Egill Sæbjörnsson - Egill S
* Feldberg - Don’t Be A Stranger
* Helga Rós Indriðadóttir og Guðrún Dalía - Jórunn Viðar, Sönglög
* Helgi Hrafn Jónsson - For the Rest of my Childhood
* Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
* Hjaltalin - Terminal
* Kimono - Easy Music for Difficult People
* Lights on the highway - Amanita Muscaria
* Morðingjarnir - Flóttinn mikli
múm - Singa Along to Songs that You Don’t Know
* Pascal Pinon - Pascal Pinon
* Ruxpin - Where Do We Float From Here
* Sudden Weather Change - Stop! Handgrenade In The Name Of Crib Death’understand?
* The Deathmetal Supersquad - Dead Zeppelin
* Víkingur Heiðar - Debut

Frekari upplýsingar

Um Kraumslistann
Markmið og verðlaun
Dómnefnd og reglur

Kraumslistinn 09 - Úrvalslisti dómnefndar birtur

Monday, December 14th, 2009

Kraumslistinn 2009,  viðurkenning Kraums til þeirra verka sem þótt hafa framúrskarandi og spennandi í íslenskri plötuútgafu á árinu, verður kynntur þann 16. desember. Dómnefnd Kraumslistans hefur nú valið og birt úrvalslista yfir 20 plötur.

Kraumslistinn, sem kallaður var Kraumsverðlaunin í fyrra, verður kynntur annað árið í röð miðvikudaginn 16. desember. Dómnefnd Kraumslistans hefur nú komist að niðurstöðu um 20 hljómplötur sem skipa úrvalista ársins Hann er kynntur hér og nú. Þann 16. desember verður svo tilkynnt um Kraumslistann 2009, þær fimm breiðskífur hljóta viðurkenningu og stuðning Kraums.

Kraumslistanum er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar.

Hugmyndin á bakvið Kraumslistann er að halda umgjörð í lágmarki, en beina kröftunum þess í stað í að styðja við og vekja athygli á þeim þeim plötum sem dómnefnd velur á Kraumslistann. Það er jafnframt von aðstandenda að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, nú þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á.

Framkvæmd Kraumslistans er með þeim hætti að sérstök dómnefnd velur 5 plötur sem gefnar hafa verið út á árinu. Kraumur mun styðja við titlana, og jafnframt reyna auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

Árið 2008 sá dómnefnd sérstaka ástæðu til að verðlauna fleiri en fimm plötur, en samkvæmt reglum Kraumslistans hefur dómnefnd leyfi til að auka við fjölda verðlaunaplatna, ef sérstakt tilefni þykir til.

Dómnefnd Kraumslistans er skipuð 16 aðilum sem hafa reynslu af að fjalla um og spila íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar, í dagblöðum, útvarpi og á netinu. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson. (sjá lista yfir alla meðlimi dómnefndar hér að neðan).

Óhætt að segja að árið í ár sé öflugt hvað plötuútgáfu varðar, enda fjölmargir spennandi titlar sem ekki komast á úrvalslista Kraumslistans 2009. Dómnefnd vinnur nú það erfiða starf að velja af listanum þær 5 plötur sem Kraumur verðlaunar. Kraumslistinn 2009 verður kynntur til leiks miðvikudaginn 16. desember.

Frekari upplýsingar:
Um Kraumslistann
Markmið og verðlaun
Dómnefnd og reglur

Kraumslistinn 2008:

  • Agent Fresco - Lightbulb Universe
  • FM Belfast - How to Make Friends
  • Hugi Guðmundsson - Apocrypha
  • Ísafold - All Sounds to Silence Come
  • Mammút - Karkari
  • Retro Stefson - Montaña

Kraumslistinn 2009 - Úrvalslisti (í stafrófsröð)

  • Anna Guðný Guðmundsdóttir - Vingt regards sur l’enfant-Jésus
  • Árni Heiðar Karlsson - Mæri
  • Bloodgroup - Dry Land
  • Bróðir Svartúlfs - Bróðir Svartúlfs EP
  • Dikta - Get it together
  • Egill Sæbjörnsson - Egill S
  • Feldberg - Don’t Be A Stranger
  • Helga Rós Indriðadóttir og Guðrún Dalía - Jórunn Viðar, Sönglög
  • Helgi Hrafn Jónsson - For the Rest of my Childhood
  • Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
  • Hjaltalin - Terminal
  • Kimono - Easy Music for Difficult People
  • Lights on the highway - Amanita Muscaria
  • Morðingjarnir - Flóttinn mikli
  • múm - Singa Along to Songs that You Don’t Know
  • Pascal Pinon - Pascal Pinon
  • Ruxpin - Where Do We Float From Here
  • Sudden Weather Change - Stop! Handgrenade In The Name Of Crib Death’understand?
  • The Deathmetal Supersquad - Dead Zeppelin
  • Víkingur Heiðar - Debut

Kraumur styður við tónleikahald innanlands

Tuesday, September 8th, 2009

Kraumur hefur í samvinnu við listamenn og hljómsveitir unnið að, og stutt við, mikinn fjölda tónleika innanlands um allt land í sumar.

Starfsemi Kraums undanfarna mánuði hefur að stórum hluta snúist um stuðning, samstarf og ráðgjöf á sviði tónleikahald innanlands. Innrásin, sérstakt átak Kraums til stuðning tónleikahalds á landsbyggðinni, var sett á laggirnar í fyrra og átakið hélt áfram í ár með fjölda tónleika.

Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir Innrásar-tónleika ársins.

Rás 2 hefur verið sérstakur samstarfsaðili átaksins og stutt við tónleikana með kynningum og auglýsingum.

Mikil fjölbreytni hefur einkennt tónleikana þar sem listamenn og hljómsveitir hafa komið úr öllum áttum tónlistar. Árið 2008 studdi Kraumur meðal annars við tónleika Elfu Rún Kristinsdóttur, Melkorku Ólafsdóttur, Benna Hemm Hemm, tónlistarhópsins Njútón, Sign, Dr. Spock, Skáta og Bloodgroup. Meðal þeirra sem komið hafa fram á tónleikum í samstarfi og með stuðningi Kraums í vor og sumar eru;

  • Mógil
  • Árstíðir
  • Svavar Knútur
  • Árstíðir [á mynd]
  • Helgi Valur [á mynd]
  • FM Belfast
  • Reykjavík!
  • Miri
  • Swords of Chaos
  • Skakkamanage
  • Nögl
  • Gordon Riots
  • Celestine
  • Momentum
  • Bróðir Svartúlfs
  • Ljósvaki
  • Fabúla
  • Elíza Newman Geirsdóttir
  • Þórunn Antónía
  • Mysterious Marta
  • Pascal Pinon
  • Auk fjöldi annarra tónlistarmanna og hljómsveita…

Amiina við sjávarsíðuna

Tónleikasería þar sem aðgangur var ókeypis og leikið var í tveimur vitum, hvalasafni og Bláu kirkjunni á Seyðisfirði. (vísun)

24. júlí - Bláa kirkjan á Seyðisfirði
25. júlí - Dalatangaviti
26. júlí - Hvalasafnið á Húsavík í samstarfi við Mærudaga
27. júlí - Sauðanesviti

———————————

Molestin á Eistnaflugi tónlistarhátíð

Hljómsveitirnar Momentum, Muck, Ask the Slave, Skítur, Myra, Plastic Gods og Celestine leika á tónlistarhátíðinni Eistnaflug á Neskaupsstað 9.-12. júlí með stuðningi Kraums. (vísun)

9.-12. júlí - Eistnaflug, Neskaupsstaður

———————————

Sumargleði Kimi Records

Fram komu hljómsveitirnar Sudden Weather Change, Reykjavík!, Swords of Chaos, Skakkamanage, FM Belfast, Miri, Létt á bárunni, Prins Póló, Hellvar og Björtu. (vísun)

15. júlí - Paddy’s, Keflavík
16. júlí - Pakkhúsið, Höfn á Hornafirði
17. júlí - Herðubreið, Seyðisfirði (LungA listahátíð)
18. júlí - Mikligarður, Vopnafirði
19. júlí - Gamli Baukur, Húsavík
22. júlí - Kaffi 59, Grundarfirði
23. júlí - Edinborgarhúsið, Ísafirði
24. júlí - Café Síróp, Hvammstanga
25. júlí - Sódóma, Reykjavík (ásamt Swords of Chaos)

———————————

Rokk Innrásin

Hljómsveitirnar Nögl, Endless Dark, At Dodge City og Gordon Riots fóru Rokk Innrás um landið dagana 25. júní-4. júlí í samstarfi við og með stuðningi Kraums. Tónleikaferðin heppnaðist það vel að haldið var af stað að nýju og fleiri tónleikum bætt við 9.-18. júlí. Leikið í félagsheimilum, íþróttahúsum, veitingastöðum og börum. (vísun)

25. júní - Dillon, Reykjavík
26. júní - Kaffi 59, Grundarfjörður
27. júní - Gamla íþróttahúsið, Ísafjörður
2. júlí - Paddy’s, Keflavík
3. júlí - Mælifell, Sauðárkrókur
4. júlí - Sláturhúsið, Egilsstaðir

9. júlí - Sódóma, Reykjavík
11. júlí - Prófasturinn, Vestmannaeyjar
15. júlí - Molinn, Kólpavogur
16. júlí - Gamli vínbarinn (Hansen), Hafnarfjörður
17. júlí - Lukkuláki, Grindavík
18. júlí - 800 bar, Selfoss

———————————

Mógil á hringferð um landið

Hljómsveitin Mógil, sem vakið hefur verðskuldaða athygli hérlendis sem erlendis fyrir sinn einstaka þjóðlaga-skotna hljóm, lék á fernum tónleikum víðasvegar um landið í samvinnu við og með stuðningi Innrásar-átaks Kraums. (vísun)

27. júní - Sólheimum í Grímsnesi
30. júní - Fríkirkjunni í Reykjavík
1. Júlí - Þjóðlagahátið á Siglufirði
2. júlí - Deiglan á Akureyri

———————————

Hver á sér fegra föðurland

Hljómsveitin Árstíðir og trúbadorarnir Svavar Knútur og Helgi Valur gerðu víðreist um fósturjörðina og komu við í helstu bæjum og sveitum hringinn í kringum landið undir nafninu “Hver á sér fegra föðurland?” (vísun)

25. júní - Hveragerðiskirkja, Hveragerði
26. júní - 800 Bar, Selfossi
27. júní - Stykkishólmskirkja, Stykkishólmi
27. júní - Ólafsvíkurkirkja, Ólafsvík
28. júní - Flateyjarkirkja, Flatey
29. júní - Sjóræningjasafnið á Patreksfirði
30. júní - Tálknafjarðarkirkja, Tálknafirði
1. júlí - Hlaðan í Arnardal við Ísafjarðardjúp
2. júlí - Hólmavíkurkirkja, Hólmavík
3. júlí föstudagur - Félagsheimilið Höfðaborg, Hofsósi
Tónleikar hefjast kl. 20
4. júlí - Siglufjörður (Þjóðlagahátíð)
Hljómsveitirnar heimsækja Siglufjörð og njóta þjóðlagahátíðarinnar þar í bæ.
5. júlí - Félagsheimilið, Grímsey
7. júlí - Gamli baukur, Húsavík
8. júlí - Egilsstaðakirkja, Egilsstöðum
9. júlí - Neskaupstaður (Eistnaflug)
Hljómsveitirnar njóta rokkhátíðarinnar Eistnaflugs á Neskaupstað
10. júlí - Úlfaldi úr Mýflugu, Hlaða í Mývatnssveit
11. júlí - Græni Hatturinn, Akureyri
12. júlí - Café Rósenberg, Reykjavík

———————————

Hljóðverssmiðjur á Flateyri

Hljóðverssmiðjur Kraums í Tankinum á Flateyri í samvinnu við Músíktilraunir, með Mugison og fleiri leiðbeinendum. Þátttakendur eru Bróðir Svartúlfs, Ljósvaki og The Vintage sem skipuðu þrjú efstu sætin á Músíktilraunum 2009, þeir leika óvænt á tónleikum á Flateyri meðan á Smiðjunum stendur. (vísun)

14. júní - Vagninn, Flateyri

———————————

Trúbatrixur á hringerð um landið

Trúbatrixur fagna grósku íslenskra tónlistarkvenna með safndisk og tónleikaferð um landið - í samstarfi við Innrásarverkefni Kraums og Rás 2. Fram koma Fabúla, Elíza Geirsdóttir Newman, Þórunn Antónía, Elín Ey, Mysterious Marta, Pascal Pinon og fleiri. (vísun)

2. júní - Trúbatrix Album Launch @ Café Rósenberg, Reykjavík
3. júní - Kaffi 59, Grundarfjörður
4. júní - Græni Hatturinn,Akureyri
5. júní - Kaffi Sæli, Tálknafjörður
6. júní - Edinborg, Ísafjörður
11. júní -  Draugasetrið, Stokkseyri
12. júní - Pakkhúsið, Höfn í Hornafirði
13. júní - Hótel Aldan, Seyðisfjörður

———————————

Hvar er draumurinn?

Samstarf við tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður. Fjölmargir reynsluboltar úr íslensku tónlistarlífi deildu reynslu sinni á námskeiði Kraums og Aldrei fór ég suður. (vísun)

10-11. apríl - Aldrei fór ég suður, Ísafjörður

———————————

Hlekkir:
Innrásin á Wikipedia
Innrásin á Kraumur.is

Vel heppnaðar Hljóðverssmiðjur

Friday, June 19th, 2009

Hljóðverssmiðjur Kraums haldnar í fyrsta sinn á Flateyri.

Hljóðverssmiðjur Kraums voru haldnar í hljóðverinu Tankinum á Flateyri dagana 11.-18. júní. Mikil ánægja var með hvernig til tókst, bæði meðal þátttakenda sem og þeirra sem tóku að sér kennslu að vinna með hljómsveitunum.

Nokkur lög voru kláruð í hljóðverinu og vel heppnað námskeið um upptökur, lagasmíðar og fyrstu skrefin í tónlistarbransanum haldið. Óvæntir tónleikar voru svo haldnir á Flateyri meðal listamannanna laugardagskvöldið 13. júní.

Hljómveitirnar sem tóku þátt í smiðjunum voru Bróðir Svartúlfs [mynd], Ljósvaki og The Vintage - sem skipuðu þrjú efstu sætin á Músíktilraunum 2009, en meðal verðlauna á Músíktilraunum í ár var þáttaka í smiðjunum.

Leiðbeinendur voru Mugison (Örn Elías Guðmundsson) tónlistarmaður, Páll Ragnar Pálsson tónlistarmaður með BA í Tónsmíði frá Listaháskóla Íslands og er að ljúka mastersnámi í vor frá Estonian Academi of Music og Tanks-foringinn Önundur Hafsteinn Pálsson, tónlistarmaður, upptökumaður og tónlistarkennari á Ísafirði og Flateyri.

Markmiðið með Hljóðverssmiðjum Kraums er að styðja við grasrótina í íslensku tónlistarlífi, miðla reynslu og gefa hljómsveitunum tækifæri á að taka upp efni sem nýst gæti við kynningu á sér og sinni tónlist. Í smiðjunum gefst jafnframt tækifæri til að semja ný lög og vinna saman.

Hljóðverssmiðjur á Flateyri

Thursday, June 11th, 2009

Kraumur tónlistarsjóður stendur fyrir Hljóðverssmiðjum í upptökuverinu Tankinum við Önundafjörð á Flateyri, dagana 11.-18. júní.

Í dag, fimmtudaginn 11. júní, hefjast Hljóðverssmiðjur Kraums í Tankinum á Flateyri. Hljómsveitirnar sem taka þátt í smiðjunum eru Bróðir Svartúlfs [mynd], Ljósvaki og The Vintage - sem skipuðu þrjú efstu sætin á Músíktilraunum 2009. Meðal verðlauna á Músíktilraunum í ár var þáttaka í smiðjunum.

Markmiðið með Hljóðverssmiðjum Kraums er að styðja við grasrótina í íslensku tónlistarlífi, miðla reynslu og gefa hljómsveitunum tækifæri á að taka upp efni sem nýst gæti við kynningu á sér og sinni tónlist. Upptökurnar nýta hljómsveitirnar eftir hentugleika, t.a.m. til dreifingar á netinu eða til útvarpsstöðva, eða sem byrjun fyrir sína fyrstu breiðskífu. Í smiðjunum gefst jafnframt tækifæri til að semja ný lög og vinna saman

Leiðbeinendur á smiðjunum eru; Mugison (Örn Elías Guðmundsson) tónlistarmaður sem hefur víðtæka reynslu af vinnu í hljóðverum, Páll Ragar Pálsson sem er þekktur úr rokkinu sem gítarleikari Maus, er með BA í Tónsmíði frá Listaháskóla Íslands og er að ljúka mastersnámi í vor frá Estonian Academi of Music og Önundur Hafsteinn Pálsson, slagverskleikari, upptökumaður, tónlistarkennari á Ísafirði og Flateyri og frumkvöðull við að koma hljópðverinu Tankinum á laggirnar á Flateyri.

Tankurinn var reistur árið 1925 til geymslu á lýsi en var breytt í atvinnuhúsnæði árið 1980. Ýmis starfsemi hefur verið í Tankinum síðan þá, m.a. bátasmiðja, trésmíðaverkstæði og nú síðast beitningaraðstaða. Eftir miklar endurbætur var aðstaðan orðin boðleg til að taka upp tónlist. Múgsefjun var fyrsta hljómsveitin til að taka upp í Tankinum vorið 2007, en breiðskífa þeirra ‘Skiptar skoðanir’ er að fullu tekin upp í hljóðverinu. Síðan hafa ýmsir listamenn tekið upp í Tankinum og franska hljómsveitin Klezmer Chaos tók þar upp um páskana.

Bróðir Svartúlfs sigurvegarar Músíktilrauna

Tuesday, April 14th, 2009

Glæsilegar Músíktilraunir að baki; Skagfirska rokkrappsveitin Bróðir Svartúlfs sigur úr býtum.

Úrslitakvöld Músíktilrauna Hins hússins fóru fram í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi þann 4. apríl. Þar mættu til leiks þær 11 ljómsveitir sem höfðu komist áfram á undanúrslitakvöldunum í Íslensku óperunni og má með sanni segja að þarna hafi verið slegin botninn í virkilega vel heppnaðar Músíktilraunir ársins í ár.

Skagfirska rokkrappsveitin Bróðir Svartúlfs sigur úr býtum, tónlistarmaðurinn Leifur Eiríksson eða Ljósvaki hreppti annað sætið og hljómsveitin The Vintage í því þriðja.  Hljómsveitin Blanco var valin Hljómsveit fólksins, en þau verðlaun veita áheyrendur í sal og hlustendur Rásar 2 um land allt.

Einstaklingsverðlaun hlutu eftirfarandi:
Gítarleikari Músíktilrauna 2009 - Óskar Logi Ágústsson í The Vintage
Bassaleikari Músíktilrauna 2009 - Jón Atli Magnússon í Bróðir Svartúlfs
Trommuleikari Músíktilrauna 2009 - Bergur Einar Dagbjartsson í Flawless Error
Söngvari Músíktilrauna 2009 - Almar Freyr Fannarsson í Earendel
Forritari Músíktilrauna 2009 - Leifur Eiríksson Ljósvaki
Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku - Arnar Freyr Frostason í Bróðir Svartúlfs

Kraumur styður við sigurvegara Músíktilrauna 2009 og sveitirnar sem lenda í 2. og 3. sæti með plássi í Hljóðverssmiðjum Kraums og Tanksins á Flateyri [mynd]. Um er að ræða eina vika í hljóðverinu, samtals 70 upptökutíma með hljóðmanni, auk leiðbeininga og kennslu frá reyndari listamamönnum. Gisting innifalin.

Markmiðið með hljóðverssmiðjunum er að styðja við grasrótina í íslensku tónlistarlífi, miðla reynslu og gefa þeim tækifæri á að taka upp efni sem nýst gæti hljómsveitinni við kynningu, t.a.m. dreifingar á netinu og til útvarpsstöðva, og/eða sem byrjun á upptökum á breiðskífu.