Posts Tagged ‘Eistnaflug’

Kraumur úthlutar

Wednesday, May 11th, 2011
Kraumur tónlistarsjóður kynnir úthlutun til listamanna og verkefna. Hærri styrkir og færri. Pascal Pinon og Retro Stefson með hæstu framlögin. Samtals níu milljónum varið til 15 verkefna á sviði íslenskrar tónlistar.

Kraumur tónlistarsjóður kynnti í dag úthlutun sína til verkefna listamanna, hljómsveita og annarra aðila á sviði íslenskrar tónlistar. Meðal þeirra sem hljóta stuðning eru hljómsveitirnar Pascal Pinon, Árstíðir og Endless Dark við kynningu á sér og tónlist sinni á erlendum vettvangi - auk þess sem Kraumur heldur áfram að vinna með og styðja við Retro Stefson og Dikta í sömu erindargjörðum. Í báðum tilvikum studdi Kraumur sveitirnar við undirbúning og gerð hljómplatna árin 2009 og 2010 (Get it Together og Kimbabwe) sem nú er stefnt á að kynna frekar á erlendum vettvangi.

Tónlistarhátíðin Eistnaflug, tónleikaferðin Póst rokk & ról, tónskáldið Guðmundur Steinn Guðmundsson og Sjóræningahúsið á Patreksfirði fá stuðning við tónleikhald innanlands, sem hluti af Innrásarverkefni sjóðsins. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds innanlands, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

Alls bárust 233 umsóknir í nýliðið umsóknarferli Kraums og strax ljóst að Kraumur myndi aðeins styðja við lítinn hluta þeirra verkefna sem sótt var um stuðning fyrir að þessu sinni, enda yfirlýst stefna sjóðsins að styrkja frekar tiltölulega fá verkefni/listamenn - en gera það þannig að stuðningurinn sé afgerandi fyrir viðkomandi listamenn og verkefni þeirra. Í dag var tilkynnt um alls 15 verkefni sem Kraumur mun styðja við og styrkja að þessu sinni.

Sú breyting er á verkefnavali Kraums að þessu sinni að styrkir til listamanna og verkefna eru færri, en í flesta staði hærri og veglegri, en við síðustu úthlun. Er þetta í samræmi við álit fagráðs Kraums sem og niðurstöðu árangursmats Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands sem gert var fyrir Kraum og systursjóðinn Hönnunarsjóð Auroru og kynnt var í mars. Þar kom m.a. fram að styrkir sjóðsins til verkefna og listamanna hefði fjölgað, en að sama skapi upphæðir lækkað, frá því starfsemin var sett á laggirnar - sem getur veikt sérstöðu sjóðsin og möguleika þeirra sem stuðning hljóta til árangurs.

Megintilgangur Kraums er að styrkja íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga tónlistarmenn. Frá því sjóðurinn var settur á laggirnar í upphafi árs 2008 hafa yfir 70 hljómsveitir og listamenn fengið stuðning úr sjóðnum, auk þess sem Kraumur hefur sjálfur staðið fyrir fjölda verkefna (Hljóðverssmiðjur, Innrásin - stuðningur við tónleikahald innanlands, Kraumsverðlaunin & Kraumslistinn) auk stuðnings við verkefni Músíktilrauna Tónabæjar, Iceland Airwaves, Listahátíð í Reykjavík, Jazzhátíð í Reykjavík, Við Djúpið o.fl. sem nýst hafa fleirum og breiðum hópi listamanna.

Af þeim 15 verkefnum sem stuðning hlutu úr nýlegu umsóknarferli er eitt þeirra, samstarfsverkefni um námskeið fyrir tónlistarmenn á Aldrei fór ég suður, þegar átt sér stað.

—————————————————-
Pascal Pinon, Tónleikahald og kynning á frumburði sínum erlendis - 1.200.000
Retro Stefson*, Tónleikhald og kynningarstarf, Norðurlönd og Evrópa - 1.000.000
Árstíðir, Tónleikahald og dreifing í Rússlandi og Austur Evrópu - 800.000
Dikta*, Tónleikahald og kynning á verkum sínum í USA - 800.000
Endless Dark, Undirbúningsvinna og kynning á verkum sínum erlendis- 700.000
adhd, Kynningarvinna og tónleikar innanlands  - 600.000
Kalli, Kynningarvinna á erlendum vettvangi - 600.000
Anna Þorvaldsdóttir
, Undirbúningur og upptökur á portrait hljómdisk - 600.000
Who Knew, Tónleikahald á erlendum tónlistarhátiðum  - 600.000
Eistnaflug, Innrás: Tónlistarhátíð í Neskaupsstað - 500.000
Aldrei fór ég suður, Innrás: Námskeið fyrir tónlistarmenn og gesti - 400.000
Guðmundur Steinn Guðmundsson, Innrás: Tónleikar innanlands - 300.000
Póst rokk & ról, Innrás: Tónleikar Lockerbie og fleiri um landið - 300.000
Sjóræningahúsið, Innrás: Tónleikasería á Patreksfirði - 300.000
Sleepless in Reykjavik, Myndbandagerð um íslenskt tónlistarlíf  - 300.000
Samtals: 9.000.000

*Kraumur hefur áður stutt við undirbúning og upptökur á breiðskífum Dikta (Get it Together) og Retro Stefson (Kimambwe), sem sveitirnar vinna nú að því að gefa út og kynna á erlendum vettvangi - með stuðningi Kraums.

—————————————————-

Kraumur tónlistarsjóður , sem var stofnaður í byrjun árs 2008 af Aurora velgerðarsjóði, hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf - fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmið Kraums er að styrkja stöðu tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Kraumur vill styðja við og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarviðinu.

Frá því Kraumur hóf starfsemi sína hafa yfir sjötíu listamenn og hljómsveitir hlotið stuðning frá sjóðnum og má þar nefna Amiina, Bang Gang, Bloodgroup, Celestine, Daníel Bjarnason, Dikta, Elfa Rún Kristinsdóttir, Hjaltalín, Lay Low, Melkorka Ólafsdóttir, Mugison, Nordic Affect, Njútón tónlistarhópur, Ólöf Arnalds, Seabear og Víkingur Heiðar Ólafsson. Kraumur hefur einnig haldið úti samstarfsverkefnum með Músíktilraunum Tónabæjar, Listahátíð í Reykjavík, Jazzhátíð í Reykjavík, Iceland Airwaves, Aldrei fór ég suður og fleiri aðilum.

Auk beins stuðnings við einstaka listamenn og hljómsveitir - og verkefni þeirra á sviði plötuútgáfu, tónleikahalds og kynningar á sér og verkum sínum innanlands sem utan - hefur Kraumur hrundið af stað og starfrækt eigin verkefni til breiðari stuðnings í tónlistarlífinu; m.a. Innrásinni til stuðnings tónleikhaldi innanlands, Kraumslistanum til að vekja athygli og styðja við íslenskri plötuútgáfu og þeim titlum sem þykja skara fram úr í frumleika og metnaði - og svokölluðum Hljóðverssmiðjum í samvinnu við Músíktilraunir, þar sem ungum og upprennandi listamönnum og hljómsveitum gefst kostur á að taka upp nýtt efni undir leiðsögn og fá ráð um næstu skref í ferlinum hjá reyndari tónlistamönnum.

————-

Vel heppnað Eistnaflug

Sunday, August 8th, 2010

Yfir þúsund manns sóttu tónlistarhátíðina Eistnaflug á Neskaupsstað í júlí. Kraumur studdi við vinnusmiðjur og tónleikahald íslenskra sveita á hátíðinni.

Rokkhátíðin Eistnaflug var haldin í Neskaupstað sjötta árið í röð dagana 8.-10. júlí. Undirbúningur hátíðarinnar hófst í ágúst 2009 og að honum stóðu Stefán Magnússon, Guðný Lára Thorarensen og Haukur Dór Bragason. Fleiri hendur og sjálfboðaliðar bættust síðan við vinnuna þegar nær dró hátíðinni sjálfri.

Miðasala á Eistnaflug 2010 gekk vel, en samtals sóttu yfir þúsund manns hátíðina. Hljómsveitarmeðlimir og sjálfboðaliðar voru síðan rétt tæplega 200. Þegar allt er talið saman má reikna með að um 1.200 manns hafi komið í Neskaupstað á Eistnaflug 2010.

Samkvæmt skýrslu frá hátíðarhöldurum gekk hátíðin “í nær alla staði vel og er fátt hægt út á að setja.”

“Lögreglan var afar ánægð með skipulag hátíðarinnar sem og gesti. Gestirnir skemmtu sér í bróðerni og vinskap, en það er það sem Eistnaflug snýst um. Þeir fengu þó að kenna á veðrinu aðfararnótt fimmtudagsins 8. júlí og voru sumir kaldir og hraktir með allt sitt hafurtask rennblautt. Viðbúnaðurinn var ekki kominn almennilega í gang þegar þarna var komið við sögu og er það eitthvað sem verður að bæta fyrir Eistnaflug 2011. (…)

Án styrktaraðila okkar og annarrar hjálpar hefði Eistnaflug aldrei orðið að veruleika. Við færum þeim innilegar þakkir: Egilsbúð, Flytjandi, Ölgerðin, Hildigunnur hjá Fjarðabyggð, Signý hjá Menningarsjóði Austurlands, Helgi hjá Sýslumanninum á Eskifirði, Úton, Kraumur, Tónlistarsjóður ríkisins, Lögreglan, Björgunarsveitin Gerpir, Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar og allt það góða fólk í Neskaupstað sem tekur Eistnaflugsförum opnum örmum.

Eistnaflug verður betra og stærra með hverju árinu sem og viðbúnaður þess, gæsla og gott orðspor. Á þeirri braut ætlum við að halda áfram.

Fyrir hönd Eistnaflugs og Millifótakonfekts ehf.,
- Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri
- Guðný Lára Thorarensen, dagskrárstjóri
- Haukur Dór Bragason, kynningarstjóri”

Kraumur tónlistarsjóður er ánægður með samstarfið við Eistnaflug 2010 og stoltur af stuðningi sínum við tónlistarhátíðina sem lið í Innrás sjóðsins, sem miðar að því að styðja við tónleikahald á landsbyggðinni og gefa hljómsveitum og listamönnum færi á að spila og kynna tónlist sína sem víðast innanlands.

Kraumur studdi við vinnusmiðjur og tónleikahald íslenskra sveita á Eistnaflugi 2010.

Rokkveisla í hjarta Austurlands (Kraumur.is) - http://kraumur.is/2010/07/08/rokkveisla-i-hjarta-austurlands/

Hlekkir
Vefsíða Eistnaflugs - www.eistnaflug.is
Facebook síða Eistnaflugs - www.facebook.com/pages/Eistnaflug

Rokkveisla í hjarta Austurlands

Thursday, July 8th, 2010

Tónlistarhátíðin Eistnaflug fer fram í Neskaupsstað dagana 8.-10. júlí þar sem yfir 30 hljómsveitir koma fram, auk þess sem boðið verður upp á vinnusmiðjur og tónleika utan hefðbundnar dagskrár í fyrsta sinn í sögu hátíðarinnar.

“Ef að þú manst eftir Eistnaflugi - þá varstu ekki þar”
- Guðmundur Óli Pálmason

“Eistnaflug? Betra en Arnarflug!”
- Magnús “Zombie”

Búast má við að íbúafjöldi Neskaupsstaðar tvöfaldist dagana 8.-10. júlí þegar tónlistarhátíðin Eistnaflug fer fram í bænum. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2005 og vaxið með hverju árinu. Nú er svo komið að Eistnaflug er orðin ein helsta tónlistarhátíð landsins. Yfir 30 hljómsveitir koma fram á Eistnaflugi um helgina, auk þess sem boðið verður upp á vinnusmiðjur og tónleika utan hefðbundnar dagskrá í fyrsta sinn í sögu hátíðarinnar.

Kraumur tónlistarsjóður styður við vinnusmiðjur og tónleikahald íslenskra sveita á Eistnaflugi 2010. Stuðningurinn og samstarfið er hluti af Innrásar-átaki sjóðsins til stuðnings tónleikahaldi innanlands. Fjölmargar hljómsveitir og listamenn hafa notið stuðnings og samstarfs í tengslum við Innrásina frá árinu 2008, má þar nefna; Amiina, Árstíðir, Benni Hemm Hemm, Benny Crespo’s Gang, Bloodgroup, Borko, Dr. Spock, Elfa Rún Kristinsdóttir, Elín Ey, Elíza Geirsdóttir Newman, Fabúla, FM Belfast, Melkorka Ólafsdóttir, Momentum, Morðingjarnir, Mógil, Mysterious Marta, Myrra, Njútón, Nögl, Pascal Pinon, Reykjavík!, Sign, Skátar, Svavar Knútur og Sykur.

Eistnaflug var fyrst haldin árið 2005 þegar Stefán Magnússon, sem leiddist rokkleysið eftir að hafa flutt til Neskaupstaðar, skipulagði tónleika með 14 hljómsveitum og bauð vinum sínum til Neskaupstaðar í lok sumarsins. Árið eftir var hátíðin haldin aðra helgina í júlí og sú hefð hefur haldist síðan. Eistnaflug hefur vaxað og dafnað með árunum, og getið sér góðs orðspor hérlendis sem erlendis. Eistnaflug byrjaði sem lítil metal-rokkhátíð er í dag 3-daga tónlistarhátíð sem samanstendur af ýmsum tónlistarstraumum og stefnum - þó rokktónlist af harðari gerðinni sé enn aðalsmerki hennar.

Fyrsta hátíðin stóð yfir eina kvöldstund og mættu um  50 manns, 300 manns mættu árið eftir þegar hátíðin stækkaði í 2-daga festival og árið 2008 tók hátíðin nokkrum stakkaskiptum þegar hún stóð í fyrsta sinn yfir í 3 daga og erlend hljómsveit (Contradiktion frá Þýskalandi) spilaði þar í fyrsta sinn. Gestir það árið voru 800 manns og í fyrra náði gestafjöldi nýjum hæðum þegar um 1.000 manns sóttu hátíðina. Í ár er búist við svipuðum fjölda og í fyrra, og þar sem einhverjir miðalausir gestir fylgja alltaf með í bæinn má búast við að íbúafjöldi Neskaupsstaðar (sem er um 1.400) nærri tvöfaldist því þessa helgi.

Yfir 30 hljómsveitir koma fram á Eistnaflugi 2010. Má þar nefna Dr. Spock, Mínus, Reykjavík!, Cliff Clavin, Saktmóðigur, In Memorium, Fortíð, Beneath, Momentum, Celestine, Sólstafir sem léku á nýafstaðinni Hróaskelduhátíð, Sororicide sem koma saman á ný og Kolrassa Krókríðandi sem snýr aftur eftir langt hlé með með Elízu Newman í fararbroddi. Erlendir gestir í dagskrá hátíðarinnar er eitt af flaggskipum þungarokksins; engir aðrir en Napalm Death frá Englandi.

Eistnaflug hefur getið sér gott orð fyrir vinalegt andrúmsloft og góða stemmningu. Hátíðin er haldin í Neskaupstað, hjarta Austurlands, nánar tiltekið í Egilsbúð. Gistiaðstaða er á tveimur tjaldsvæðum; hinu svokallaða ‘djammstæði’ við enda bæjarins og á fjölskyldutjaldstæðinu í hlíðinni ofan við miðbæinn. 18 ára aldurstakmark er á hátíðina sjálfa.

Forsala miða á midi.is og í verslunum Skífunnar og er verð í forsölu er aðeins 6.666 krónur. Miðar eru einnig seldir á Nesk 7.500 á Neskaupsstað.

Hlekkir
Vefsíða Eistnaflugs - www.eistnaflug.is
Facebook síða Eistnaflugs - www.facebook.com/pages/Eistnaflug

Úthlutanir og stuðningur við íslenskt tónlistarlíf

Thursday, April 2nd, 2009

Kraumur tónlistarsjóður kynnti í dag á Boston, Laugavegi, fyrstu úthlutanir sínar og stuðning við íslenskt tónlistarlíf, tónlistarmenn og hljómsveitir árið 2009.

Áhersla er lögð á innlend verkefni og starfsemi listamanna og hljómsveita hérlendis í stuðningi Kraums í ár, allt frá plötugerð til námskeiða- og tónleikahalds á landsbyggðinni.

Meðal þeirra listamanna sem Kraumur mun styðja og vinna með á árinu eru Hjaltalín, Lay Low, Sindri Már Sigfússon (Sin Fang Bous / Seabear), Ólafur Arnalds, Ólöf Arnalds, Mógil, For a Minor Reflection og Nordic Affect.

Kraumur mun jafnframt styðja við tónleika fjölda ungra listamanna á Stofutónleikum Listahátíðar í Reykjavík, námskeið og vinnusmiðjur á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði, Tónlistarhátíð unga fólksins í Kópavogi og Reykjavik Jazz Performance vinnusmiðjur fyrir unga og upprennandi listamenn.

Kraumur mun  standa fyrir Hljóðverssmiðjum í Tankinum á Flateyri með verðlaunasveitum Músíktilrauna 2009 og þátttöku reyndari tónlistarmanna. Innrásin, átak Kraums til stuðnings tónleikahaldi á landsbyggðinni, heldur áfram af fullum krafti á árinu og að þessu sinni er kynntur stuðningur við hljómsveitirnar; Sudden Weather Change, Árstíðir, Nögl, Molestin o.fl. í tengslum við Innrásina, sem m.a. munu koma fram á tónlistarhátíðunum Eistnaflugi á Neskaupsstað og Lunga á Egilsstöðum.

Kraumur mun jafnframt styðja við Trúbatrix, nýtt tengslanet og tónlistarhóp sem samanstendur af íslenskum tónlistarkonum sem flytja frumsamda Íslenska tónlist, til tónleikahalds innanlands.

Alls hefur tæpum 11 milljónum nú verið úthlutað í beinan stuðing til listamanna og hljómsveita, eigin verkefna Kraums og samstarfsverkefna sjóðsins.

YFIRLIT ÚTHUTANA OG VERKEFNA

Samstarf og beinn stuðningur  við listamenn (4.700.000 kr)

  • Hjaltalín (Plötugerð, tónleikahald & önnur starfsemi) 1.200.000 kr
  • Nordic Affect (Plötugerð) 500.000 kr
  • Sindri Már Sigfússon / Sin Fang Bous (Plötugerð) 500.000 kr
  • Ólöf Arnalds (Plötugerð) 500.000 kr
  • Ólafur Arnald (Plötugerð) 500.000 kr
  • For a Minor Reflection (Plötugerð) 500.000 kr
  • Lay Low (Tónleikahald og kynning erlendis) 500.000 kr
  • Mógil (Tónleikahald innanlands (Innrás) og á WOMEX) 500.000 kr

Samstarfsverkefni (1.800.000 kr)

  • Stuðningur við tónleika ungra listamanna á Listahátíð í Reykjavík (Stofutónleikar) 1.000.000 kr
  • Tónlistarhátíð unga fólksins 400.000 kr
  • Reykjavik Jazz Performance Workshop 400.000  kr

Innrásin (1.600.000 kr)

Átak Kraums til stuðnings tónleikahalds á landsbyggðinni. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

  • Árstíðir, Svavar Knútur & Helgi Valur (Rás 2 plokkar hringinn) 400.000 kr
  • Trúbatrix (ýmsir listamenn) 400.000 kr
  • Sudden Weather Change, Retro Stefson o.fl. (Sumargleði, Lunga) - 400.000 kr
  • Nögl og hljómsveitir á þeim stöðum heimsóttir eru - 200.000 kir
  • Momentum og fleiri hljómsveitir Molestin Records á Eistnaflugi - 200.000 kr

Eigin verkefni Kraums (2.700.000 kr)

  • Kraumsverðlaunin (stuðningur við plötuútgáfu)  1.200.000 kr
  • Hljóðverssmiðjur Kraums og Tanksins (þremur verðlaunahöfum Músíktilrauna 2009 tryggt pláss) 1.000.000 kr
  • Námskeiðahald og vinnusmiðjur á Aldrei fór ég suður 500.000 kr

>> Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að lesa meira um fyrstu úthlutanir og stuðning Kraums við íslenskt tónlistarlíf 2009.

(more…)