Posts Tagged ‘Hjaltalín’

Ég stend á skýi

Wednesday, August 11th, 2010

Tónlistarráðstefna og fræðsla Kraums á Aldrei fór ég suður 2010 – rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði

Kraumur tónlistarsjóður og aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður héldu í sameiningu ráðstefnu og fræðslunámskeið um íslenska tónlist, þróun hennar og væntingar föstudaginn 2. apríl á Ísafirði. Þetta er í annað sinn sem Kraumur og skipuleggjendur hátíðarinnar leggja krafta sína saman með þessum hætti og líkt og í fyrra skiptið fór viðburðurinn fram í Edinborgarhúsinu samhliða hátíðinni.

Þátttakendur að þessu sinni voru um 60 manns, aðallega tónlistarmenn sem komu fram á Aldrei fór ég suður hátíðinni en auk þeirra voru margir áhugamenn um íslenska tónlist, heimamenn og gestir sem tóku virkan þátt í umræðunum.

Í ár voru málefni um hagsmuni tónlistarmanna mjög hugleikin, tónlistarútgáfa og það umhverfi sem menn búa við í dag! Utan um dagskrána hélt einn skipuleggjenda Aldrei fór ég suður, Kristján Freyr Halldórsson. Dagskráin var byggð af þremur meginpallborðum og voru 3 manns boðaðir í hvert pallborð. Umræðurnar voru opnar í báðar áttir og tóku allir mikinn þátt í skemmtilegum umræðum. Ráðstefnan og námskeiðið var í ár undir yfirskriftinni “Ég stend á skýi” sem flestum fannst viðeigandi…!

Dagskráin:

  1. ALLIR ERU Í FÍNU FORMI

    Fyrsta umræðuefni dagsins var hin stafræna útgáfa sem tröllríður öllu. Er stafræn útgáfa fullgild útgáfa? Til að ræða þetta efni og reyna að svara þessum stóru spurningum voru fengin þau Haukur Viðar Alfrðsson  (í hljómsveitinni Morðingjum), María Rut Reynisdóttir (frá Gogoyoko) og Örn Elías (Mugison).

    Yfirskriftin var “Allir eru í fínu formi” og þar vitnað í Stuðmenn og Björgvin Halldórsson.

    Er stafræn útgáfa að verða viðurkennd útgáfa?
    Mugison reið á vaðið og sagði frá sinni reynslu en hann hóf að selja síðustu stóru plötu sína á netinu og bauð þar uppá niðurhal og fisíska útgáfan kæmi í framhaldi í pósti. Hann vildi meina að það hafi farið fram úr björtustu vonum, hann hafði talið að fáir þyrðu að nota netið á þennan hátt. Staðreyndin væri einfaldlega sú að miðlarnir hafa breyst svo hratt og iPod orðinn t.a.m. mjög eðlileg eign fólks.

    Haukur Morðingi taldi sinn áhangendahóp alls ekki að versla þeirra stöff á netinu, ekki vegna vankunnáttu frekar vegna þess að annar vettvangur hentar betur. Hann sjálfur notar vefinn ekki mikið til að kaupa tónlist.

    María Rut frá Gogoyoko upplýsti ráðstefnugesti um starfsemi Gogoyoko sem vakið hefur gríðarlega athygli. Vefurinn hefur vaxið gríðarlega og voru um 12.000 skráðir notendur á þessum tíma. Salan er að aukast og má segja að um 85% virkra tónlistarmanna séu með efni á vefnum. Að sama skapi er að aukast notkun vefjarins í Skandinavíu.

    Úr sal bárust spurningar um iTunes og hvers vegna sú þjónusta sé ekki í boði hér á landi. Hér eru IP tölur blokkaðar og forsjármenn tala um lítið markaðssvæði. Ráðstefnugestir töldu frekar að hagsmunamálin séu að flækja frekar og orsaka ekkert aðgengi hér.

    - Mugison hefur auðvitað selt gríðarmagn af plötum á netinu en peningarnir liggi alls ekki þar. Það er frekar að selja plötur og annan varning á tónleikum sem telur mun frekar.

    - Kristján Freyr skýtur því inn hvort það sé ekki áhyggjuatriði að ungt fólk í dag þekki ekki annað en að fá tónlist fría á netinu, margir nota frítt niðurhal á lagi í markaðssetningu sinni. Í framhaldi er spurt hvort mögulegt sé að “stór plata” sé að verða úrelt fyrirbæri og fólk hlusti bara á lag og lag hér og þar.

    - María segir ljóst að ungt fólk sé reiðubúið að greiða fyrir tónlist ef það veit að greiðslan skili sér til tónlistarmannsins. Einnig segir hún að unglingar séu ekki eini hópurinn sem er á vefnum, það kom glöggt í ljós þegar Hjálmar gáfu út plötu fyrir jólin. Þar sást líka að vefsalan kom ekki í veg fyrir að salan á plötunni sjálfri gengi vel. Á síðasta ári dróst sala á plötum á Íslandi um 4% á meðan netsala jókst umfram fisíska sölu á Bretlandi.

    - Haukur kom með þá hugmynd að menn gæfu út plötur sínar sem aðeins eitt lag (1 track) og kemst þá enginn upp með að stela bara einu lagi.

    - Mugisonsagðist hafa prófað að gefa allt stöffið sitt frítt í gegnum netið og þáði í staðinn netföng til að byggja upp tengslanet. Þar liggja mikil verðmæti. Mikilvægt að byggja upp gott samband við áhangendur sína.

    - María nefndi að tími svokallaðra stórstjarna í tónlist sé liðin og fleiri eigi uppá pallborðið, það se einmitt netinu að þakka. En þó að vefurinn sé þetta sterkur þá er jafnmerkilegt að vínillinn sé orðinn mjög vinsæll aftur.

    Þarna mynduðust gríðarlega áhugaverðar umræður og vakti inngrip Gríms Atlasonar mikla athygli. Hann benti á að símafyrirtækin fengju alltof miklar tekjur af allri þeirri tónlist sem fólk nálgast á netinu, það eru þessi fyrirtæki sem raunverulega eru að græða á tónlist í dag. Réttast væri að þau gæfu til baka á einhvern hátt og einnig ættu þau kannski að sjá til þess að opna megi fyrir aðgengi á Itunes og þau rukki þá fyrir notkunina.

    Útgangspunktur þessarar umræðu var kannski sá að við lifum á millibilstímum þar sem ekki er búið að fullslípa hvernig sölu á tónlist á internetinu skuli vera háttað. Hún er þó að þróast í rétta átt og öll form tónlistar færast nær miðjunni.

  2. HVAR ERU PENINGARNIR MÍNIR?

    Hvernig er hagsmunum tónlistarmanna varið? Mikið hefur verið skeggrætt í minni hópum hvort þrfi að hrista upp í verkalýðsbaráttunni. Til að tæpa örlítið á þessum málum fengum við Högna Egilsson (Hjaltalín), Hall Jónsson (Bloodgroup) og Steinþór Helga (útgefanda og umboðsmann Hjaltalín).

    Hvar eru peningarnir mínir, kvað skáldið Einar Örn Benediktsson Sykurmola úr Ghostigital.

    - Kristján Freyr spurði hvort sú þráláta mýta sem væri uppi um að takmarkaður hópur valinkunnra poppara væru áskrifendur af stórum summum svokallaðra STEF-gjalda og fjárúthlutana annarra félaga ætti við rök að styðjast. Eða eru tónlistarmenn almennt illa upplýstir og þess vegna ekki að nýta rétt sinn?!

    - Steinþór taldi hvort tveggja vera rétt. Annars vegar er kerfið afar flókið og  alls ekki aðgengilegt, sérstaklega fyrir þá sem hafa ekki mikla reynslu.

    Útvarpsstöðvar skila inn til STEFS svokölluðum spilunarlistum en þar er á reiki hvort allt sé að koma þangað inn. Er það einungis partur af dagskrárgerð RÚV og Bylgjunnar og lítið annað?! Það virtist koma fram í máli Ólafs Páls Gunnarssonar á Rás 2 , á ráðstefnukvöldi ÚTÓN  á dögunum, að  alls ekki allt sem spilað er hjá þeim skli sér inn til STEFS.

    - Högni vill meina að yngri tónlistarmenn geri ekki of mikið í því að sækja rétt sín og kjör. Þeir eru jafnvel miklu virkari í spilamennsku en fá ekkert greitt. Þar kemur inn í dæmið að tónlistarmenn fylli ekki út tónleikaskýrslur eftir tónleika sína. Á móti kemur að staðirnir þurfi að greiða gjöld inn til STEFS en enginn sækir þá. Hvað verður um þessa peninga er ekki nógu skýrt. Svo virðist sem til sé samningur en svo er til “betri” samningur.

    - Hallur benti á að STEF væri auðvitað hagsmunafélag tónlistarmanna en félagið væri því miður ekki nægilega aðgengilegt, heimasíðan afar flókin og kerfið á allan hátt óskiljanlegt. Þar eru rangar áherzlur.

    - Steinþór ræddi um öll þessi félög hér á landi og önnur aðildarfélög: STEF, FTT, FÍH, NCG, ASCAP, SESAC, PRS, PPL… Svo er Samtónn hattur yfir öll félögin. Þetta væri of mikið og brýnt að skerpa línurnar. Svo vantar inn í dæmið félag sem heldur utan um flutningsrétt.

    - Grímur Atlason benti á úr sal að áherslurnar væru vissulega rangar. T.a.m. fengju lítil sveitarfélög úti á landi það oft óþvegið frá félaginu og þyrfti að borga himinháar fjárhæðir fyrir litlar uppákomur.

    - Kristján benti líka á að staðir af öllu tagi fengju orðsendingu frá STEFI ef  þeir auglýstu uppákomu einhvers staðar. Hinsvegar fengju tónlistarmenn aldrei áminningu um að skila inn tónleikaskýrslum, þá er þær uppákomur mjög oft auglýstar í blöðum.

    - Högni benti á að eitthvað væri gruggugt við þessar úthlutanir. Sér til stuðnings nefndi hann lag með Sprengjuhöllinni sem var vinslæasta lagið á Íslandi um langa hríð en hafi ekki skilað nema smárri upphæð í vasa höfundana.

    Lóst var að hægt var að ræða þessi mál endalaust og mönnum var heitt í hamsi þó svo að umræðan hafi aldrei farið á háa C-ið.

  3. VIÐ GERUM OKKAR, GERUM OKKAR, GERUM OKKAR, GERUM OKKAR BESTA!

    Í þriðja og síðasta umræðugrundvelli okkar þennan dag ræddum við saman um hvernig landslag tónlistariðnaðurinn hefur skapað sér á Íslandi. Það er ljóst að tónlist skipar stórt hlutverk hér á landi og út a við. Talið er t.a.m. að það sem erlendir ferðamenn sækja hingað til lands sé einna helst landslagið eða auðnin og í öðru sæti er það tónlist og menning hverskonar. En hvernig er að „vinna“ við tónlist á Íslandi?

    Til þess að svara þessu fengum við Grím Atlason (sveitastjóra í Dalabyggð og umboðsmann FM Belfast og Retro Stefson), Birgi Örn Sigurjónsson (Bigga Bix tónlistarmann) og Láru Rúnars (tónlistarmann og innkaupastjóra Skífunnar)

    - Biggi sem býr á Ísafirði var að gefa út sína fyrstu plötu á dögunum. Hann getur ekki ímyndað sér né hefur hann væntingar um að vinna við tónlist. Fæstir gera það hér á landi og hafa það frekar sem sitt tómstundagaman.

    - Lára bætir við að ungir listamenn hendi sér oftar en ekki út í djúpu laugina og reyna að svamla að bakkanum án þess að vita réttu leiðina endilega.

    - Kristján bætir því við að það sé hugsanlega kostir og gallar við þá staðreynd. Það borgar sig alltaf að hafa leiðsögn en hinsvegar er það örugglega ástæðan fyrir því hversu framarlega við erum í menningu og listum sú staðreynd að við erum ekki að velta hlutunum mikið fyrir okkur, gerum bara!

    - Biggi er spurður hvernig það er að sinna tónlistinni á landsbyggðinni en ekki á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir það engum vandkvæðum bundið, hann er nýbúinn að gefa út plötu og fékk henni dreift hjá útgáfu í Reykjavík og svo noti hann ferðir sínar suður til að spilaog kynna sig með einhverju móti. Svo er það auðvitað internetið sem er til staðar í dag en var ekki áður, það hefur minnkað heiminn.

    - Kristján Freyr spyr Grím Atlason hvort við getum borið okkur saman við nágrannaþjóðir og hvernig tónlistarumhverfið er í þeim samanburði.

    - Grímur hefur ferðast mikið uppá síðkastið og kynnst því umhverfi sem er í boði í Evrópu og Skandinavíu. Grímur skrifaði mjög fína grein á bloggsíðu sína á Eyjunni um þessi mál, greinin nefnist „Lifi tónlistin og Evrópa“ 04. Mars 2010, http://blog.eyjan.is/grimuratlason/2010/03/04/lifi-tonlistin-og-evropa/.

    Þar segir m.a. „..Út um alla Evrópu eru tónleikastaðir sem taka á móti listamönnum með gistingu, mat, góðum aðbúnaði og launum fyrir spilamennskuna. Hljómsveitir, sem eru að byrja í bransanum, njóta styrkja þannig að þær geti flutt sköpun sína og gert eitthvað uppbyggilegt. Hið vonda Evrópusamband styrkir spilastaðina þannig að þeir getir starfað árið um kring. Þeir eru ekki aðeins í stóru borgunum heldur líka í minni bæjum og jafnvel úr leið. Það er nefnilega skilningur á því að menning er hluti lífsgæða sem eru manneskjunni jafn mikilvæg og saltfiskur og skyr.”

    Okkur Íslendingum hefur ekki gengið vel í útrás með margt annað en menninguna. Bókmenntir voru okkar helstu afurðir hér áður en síðustu tvo áratugi hefur tónlistin skilað okkur meiri verðmætum en flestir gera sér grein fyrir. Hér er líka verið að tala um peningaleg verðmæti. Þrátt fyrir þetta leggjum við nær ekkert til þessarar greinar. Hljómsveitir sem eru að reyna að hasla sér völl hérlendis og erlendis njóta engra eða smánarlega lágra styrkja. Tónleikastaðir í Reykjavík skipta flestir um kennitölur á nokkurra missera fresti. Tónleikar á landsbyggðinni eru sjaldgæfur munaður og meistarar eins og Haukur á Græna hattinum eru upp á náð og miskunn leigusalanna komnir“.

    Grímur segir það skjóta skökku við að margar aðrar greinar skuli fá meira fjármagn en menning og listir, t.a.m. landbúnaður sem skilar ekki eins miklum tekjum og tónlist og menning. Hann segir jafnframt grátlegt á meðan hljómsveitir, jafnvel óþekktar, skuli ávallt fá greiðslur fyrir spilamennsku á stöðum í Evrópu þurfi íslenskar hljómsveitir að punga út greiðslum til að fá að spila á sumum stöðum. Oft þurfi jafnan að útvega hljóðkerfi og slíkt einnig. Í Danmörku sé virkur sjóður þar sem skemmtistaðir fá jafnan úthlutað úr til að greiða hljómsveitum fyrir spilamennsku.

    - Lára hefur unnið í Skífunni í nokkur ár og séð um innkaup fyrir þær verslanir. Nú sé hinsvegar að draga til tíðinda því Skífan mun loka verslun sinni við Laugaveg í sumar. Sú verslun er sú stærsta á Íslandi og það sé eflaust mikið reiðarslag fyrir tónlistarmenn og framleiðendur. Lára segir að tónlistarmenn þurfi enn frekar að vera á tánum til að lifa af eða að geta sinnt listinni. Menn þurfi að spila mikið til að kynna sig, selja inn á tónleika, selja ýmiskonar markaðsefni, boli og slíkt og reiða sig síður á mikla plötusölu. Enda ekki mikil plötusala í dag. Annars finnst Láru ekki vera mætt nógu vel á tónleika hér á landi.

    - Kristján vill meina að við megum vera heppin hér. Bæði er fólk duglegt að kaupa íslenska tónlist og það hafi virkilega aukist að fólk mæti á tónleika sérstaklega eftir efnahagshrunið.

    - Birgir tekur undir með tónleikamenningu. Fólk kunni vel að meta að það sé margt í boði. Biggi vill einnig undirstrika það að tónlistarmenn megi ekki gleyma því að ferðast út á land. Það sé mikilvægt að kynna tónlist sína allan hringinn en ekki bara í miðborg Reykjavíkur.

    - Grímur vill að menntamálaráðuneytið stuðli að því að Félagsheimilin verði nýtt betur í því samhengi. Rekstraraðilar þeirra húsa eiga að fá stærri fjárframlög til að reka þau hús með myndarskap, láta þau ekki grotna niður og geta aukinheldur gert vel við þá skemmtikrafta sem vilja heimsækja þessa staði.

    - Kristján tekur undir orð Gríms og segir mikilvægt fyrir alla byggð á landinu að geta tekið þátt í menningartengdri ferðamennsku. Félagsheimilin eru kannski undirstaðan að því öllu. Að lokum minnir hann einnig á að samkoman sem hann ávarpar sé stödd á hátíð sem spratt fram af einstaklingsfrumkvæði sem hefur gert mikið fyrir tónlist og menningu á Vestfjörðum.

  4. SAMANTEKT

    Það var vel mætt á þessa ráðstefnu og námskeið okkar í ár. Bæði barst hróður síðasta málþings fyrir ári síðan og einnig hafði þetta verið vel kynnt í bænum. Það var því góð blanda af bæjarbúum, tónlistarmönnum sem spiluðu á hátíðinni og öðrum gestum. Allir þeir sem sátu í sal tóku virkan þátt í umræðunum frá byrjun, enda ítrekaði fundarstjóri það strax að þetta ætti ekki að vera formleg fundarsköp með þungum fyrirlestrum.

    Málefnin sjálf voru stór og því ekki mörg. Þau þurftu líka mikla umræðu og margar skoðanir komu fram. Stafræna útgáfan er auðvitað mjög hugleikin öllum í þessum iðnaði og morgunljóst að við lifum á miklum umbrotatímum í tónlistarútgáfu. Einnig fengum við fróðlega yfirferð á hagsmunabaráttunni. Menn hafa greinilega fengið mikla og aukna fræðslu í kjölfar fyrirlestrarkvölda hjá Útflutningsráði íslenskrar tónlistar. Fundarmenn höfðu það að orði.

    Það sem sat einna helst í mönnum eftir fundinn voru þeir punktar sem komu fram um stafrænt niðurhal og símafyrirtækin. Flestir voru mjög heitir í kjölfar þeirrar umræðu. Einnig hafði grein Gríms og hans úttekt á tónlistarlífinu í Evrópu mikil áhrif á mannskapinn.

    Á meðan fundi stóð fengu fundarstjóri og Örn Elías þau tíðindi að flugvél sem innihélt stóran hluta þeirra tónlistarmanna sem áttu að skemmta seinna um kvöldið hafi ekki farið af stað. Það fór um fundargesti því hátíðin var í húfi. Það var því ljóst að menn myndu yfirgefa fundarsalinn til þess að mæta á krísufund vegna slæms veðurs.

    Þegar fundi var slitið var öllum fundargestum boðið í plokkfiskveislu í Tjöruhúsið í Neðstakaupstað og fóru því flestir fagnandi úr salnum beint upp í rútu. Þess má einnig geta að krísufundurinn fór vel og Hjálmar, Ingó og veðurguðir mættu á sínum fjallabílum seinna um kvöldið og náðu að spila. Hinsvegar komust Pollapönk aldrei vestur.

    Lokaorðin hljóta að innihalda þakkarorð til þeirra sem lögðu hönd á plóg fyrir þetta málþing, sem bar yfirskriftina “Ég stend á skýi” og er þar auðvitað vitnað í ísfirðinginn Helga Björnsson sem svo sannarlega lét sig ekki vanta á hátíðina í ár sem endranær. Skipuleggjendum Aldrei fór ég suður, öllum sem tóku þátt í pallborðunum, öllum þátttakendum í sal og síðast en ekki síst samstarfs- og stuðningsaðilanum Kraumi-tónlistarsjóði sem hafði veg og vanda að því að gera okkur þetta kleift.

    Benjamín Mark Stacey og Kristján Freyr Halldórsson rituðu samantekt.

LungA - Tíu ára afmælistónleikar

Thursday, July 15th, 2010

Listahátíðin LungA á Seyðisfirði fagnar tíu ára afmæli sínu með einstaklega glæsilegri tónlistardagskrá á hátíðinni í ár þar sem fram koma Hjaltalín, Retro Stefson, Bloodgroup ásamt strengjasveit, Seabear, Miri og fleiri.

Listahátíðin LungA á Seyðisfirði fagnar tíu ára afmæli sínu með einstaklega glæsilegri tónlistardagskrá á hátíðinni í ár. Tónlistardagskráin nær hápunkti sínum á afmælistónleikum laugardaginn 17. júlí þegar miðbæjarsvæði Seyðisfjarðar verður breytt í eitt samfellt hátíðarsvæði þar sem tvö útisvið verða með stanslausa tónlist allan daginn fram til klukkan 01.00.

LungA - Listahátíð ungs fólks, Austurlandi hófst mánudaginn 12. júlí og stendur fram til sunnudagsins 18. júlí. Á boðstólum hátíðarinnar eru fjöldi listasmiðja og listasýninga, fatahönnunarsýning, fyrirlestrar, tónleikar og fleiri viðburðir.

LungA var fyst haldin árið 2000 og að því tilefni er aðgangseyrir á tónleikana aðeins 2.000 krónur. Aðstandendum LungA er mikil ánægja að tilkynna að 15 ára og yngri fá aðgang í fylgd með fullorðnum - og fólk 50 ára og eldra fær frítt inn á tónleikana - og hvetur alla fjölskylduna til að mæta og njóta frábærrar tónlistar saman!

Kraumur tónlistarsjóður er samstarfsaðili tónleikadagskrárinnar og styður sérstaklega upptökur á afmælistónleiknum. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.

_____________________________________________________________

Tónleikar Kimi Records - Föstudaginn 16. júlí
Tónleikarnir fara fram í Herðubreið. Miðaverð 1.000 krónur. Aldurstakmark 18 ár.

Herðubreið – dagskrá hefst klukkan 21:00
Tape Tud (BE)
Kimono
Sudden weather change
Stafrænn Hákon
Quadruplos

Eftirpartý Öldunnar
Retro Stefson (dj set)
Miri (dj set)

Afmælistónleikar LungA 2010 laugardaginn 17. júlí
Tónleikarnir verða utandyra í miðbæ Seyðisfjarðar. Miðaverð kr. 2000. Frítt fyrir fimmtíu ára og eldri, 15 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Stóra svið – dagskrá hefst klukkan 19:30
Hjaltalín
Bloodgroup ásamt strengjasveit
Seabear
Retro Stefson
Helmus und Dalli
Miri

Litla svið – dagskrá hefst klukkan 16:00
Óli Ofur
Oculus
(Cassette)
DJ flugvel og geimskip
Muted / Hypno

Ball Öldunnar með Hjálmum - dagskrá hefst klukkan 01.00
Tónleikarnir fara fram í Herðubreið. Miðaverð 2.500 krónur. Aldurstakmark 18 ár.
Hjálmar

_____________________________________________________________

Miðasala
Forsala á Afmælistónleika Lunga fer fram á midi.is og í verslun Skífunnar Kringlunni til og með föstudagsins 16. Júlí. Afhending armbanda fer fram í Herðubreið miðvikudag og fimmtudag klukkan 16-19, föstudag klukkan 13-19 og laugardag frá klukkan 13:00. Þeir sem kaupa sér armband á Afmælistónleikana fá miðann á Hjálmaballið á 1500kr og frítt inn á föstudags partýið gegn framvísun armbandsins. Miðasala á einstaka viðburði fer fram við hurð - en frítt er á fjölmarga viðburði.
_____________________________________________________________

Hlekkir
Heimasíða - www.lunga.is
LungA á Facebook - Facebook LungA
Innrás Kraums tónlistarsjóðs - Kraumur/Innrás

Daníel Bjarnason sækir út

Friday, June 11th, 2010

Daníel Bjarnason vinnur með dönsku hljómsveitinni Efterklang og leikur á tónleikum í New York, Moskvu, Tallin og Krakow

Hljómsveitastjórinn og tónskáldið Daníel Bjarnason hefur fengið mikið lof fyrir fyrstu breiðskífu sína Processions. Platan kemur út hérlendis og á alþjóðavettvangi á vegum plötuútgáfunnar Bedroom Community og undanfarið hefur Daníel leikið á tónleikum erlendis til kynningar á plötunni.

Daníel hélt tónleika New York ásamt 17 manna hljómsveit þann 1. mars síðastliðinn - auk Sam Amidon og dönsku sveitinni Efterklang.  Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari og Vicky Chow píanóleikari voru meðal þeirra sem skipuðu hljómsveit Daníels, en myndir frá tónleikunum má sjá hér.

Í kjölfar tónleikana fór Daníel í viðtal hjá John Schaeffer á WNYC í þættinum New Sounds, sem er víðfrægur fyrir að kynna og fjalla um nýja og spennandi hluti í tónlist.  Þátturinn er aðgengilegur á netinu hér.

Daníel hefur síðan leikið á fleiri tónleikum hérlendis sem erlendis. Hann kom fram á Listahátíð í Reykjavík í Þjóðleikhúsinu þann 16. maí sem hluti af Whale Watching tónleikadagskrá Bedroom Community. Hann spilaði í Mosvku og Tallin í byrjun júní ásamt Valgeiri Sigurðssyni og Sam Amidon.

Framundan er síðan stórt samvinnuverkefni með Ben Frost í tengslum við Unsound tónlistarhátíðina í Kraká í Póllandi sem er haldin 17.-24. október og tónleikar með Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands 16. 18. og 19. júní  í Háskólabíó, þar sem Daníel stjórnar tónleikunum og útsetur eitt lag.

Daníel mun vinna með dönsku hljómsveitinni Efterklang að útsetningum fyrir tónleikaferð hjá þeim í byrjun næsta árs. Auk þess munu í haust fara fram upptökur fyrir næstu breiðskífu hans sem er áætlað að komi út í byrjun næsta árs.

Processions hefur fengið góða dóma í fjölmörgum tónlistarmiðlum og má þar nefna Drowned in Sound, Popmatters og Alarm Magazine sem gefur plötunni 9/10 í einkunn og segir hana muni toppa mrga árslistana. Daníel hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2010 fyrir tónverkin á plötunni, fyrir tónverkin á plötunni Processions auk þess sem platan var tilnefnd sem plata ársins í flokki Sígildrar tónlistar og samtímatónlistar.

Hlekkir

Kraumslistinn 2009 tilkynntur

Wednesday, December 16th, 2009

Viðurkenning og stuðningur Kraums fyrir metnað og frumleika í íslenskri plötugerð.

Kraumslistinn, sérstök viðurkenning Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka sem þótt hafa framúrskarandi, frumleg og spennandi í íslenskri plötuútgáfu á árinu, var kynntur annað árið í röð í dag, miðvikudaginn 16. desember.

Athöfnin fór fram í húsnæðinu að Vonarstræti 4B - sem rýmir Kraum tónlistarsjóð, Auroru hönnunarsjóð og Hönnunarmiðstöð Íslands. Þórunn Sigurðardóttir stjórnaformaður Kraums bauð fólk velkomið, Eldar Ástþórsson framkvæmdastjóri Kraums kynnti hugmyndafræði Kraumslistans og stuðninginn sem sjóðurinn mun veita þeim plötum sem dómnefnd valdi, og formaður dómnefndar Árni Matthíasson tilkynnti um Kraumslistann 2009. Fram komu Hjaltalín, Helgi Hrafn Guðmundsson og Morðingjarnir sem öll léku órafmagnað.

Í fyrra voru það plötur Agent Fresco (Lightbulp Universe), FM Belfast (How to Make Friends), Hugi Guðmundsson (Apocrypha), Ísafold (All Sounds to Silence Come), Mammút (Karkari) og Retro Stefson (Montana) sem hlutu sérstaka viðurkenningu.

Framkvæmd Kraumslistans er með þeim hætti að sérstök dómnefnd velur úrvalslista (20 plötur) og síðan Kraumslistann 2009 (5 plötur) . Líkt og í fyrra sá dómnefnd sérstaka ástæðu til að verðlauna fleiri en fimm plötur að þessu sinni, en samkvæmt reglum Kraumslistans hefur dómnefnd leyfi til að auka við fjölda verðlaunaplatna, ef sérstakt tilefni þykir til.

Dómnefnd Kraumslistans er skipuð 16 aðilum sem síðustu ár hafa starfað við umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson blaðamaður. Listi yfir alla meðlimi dómnefndar má finna

Kraumslistinn 2009

Í ár hljóta eftirtaldir listamenn viðurkenningu og stuðning fyrir plötur sínar;

* Anna Guðný Guðmundsdóttir - Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
* Bloodgroup - Dry Land
* Helgi Hrafn Jónssonon - For the Rest of My Childhood
* Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
* Hjaltalín - Terminal
* Morðingjarnir - Flóttinn mikli

Stuðningur Kraums

Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

Markmið Kraumslistans

Kraumslistanum er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi - og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, nú þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Kraumslistinn 2009 - Úrvalslisti

Óhætt að segja að árið í ár hafi verið öflugt hvað plötuútgáfu varðar, enda fjölmargir spennandi titlar sem ekki komast á úrvalslista Kraumslistans 2009. Eftirtalda plötur voru valdar á úrvalslista dómnendar og voru þannig tilnefndar til Kraumslistans 2009:

* Anna Guðný Guðmundsdóttir - Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
* Árni Heiðar Karlsson - Mæri
* Bloodgroup - Dry Land
* Bróðir Svartúlfs - Bróðir Svartúlfs EP
* Dikta - Get it together
* Egill Sæbjörnsson - Egill S
* Feldberg - Don’t Be A Stranger
* Helga Rós Indriðadóttir og Guðrún Dalía - Jórunn Viðar, Sönglög
* Helgi Hrafn Jónsson - For the Rest of my Childhood
* Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
* Hjaltalin - Terminal
* Kimono - Easy Music for Difficult People
* Lights on the highway - Amanita Muscaria
* Morðingjarnir - Flóttinn mikli
múm - Singa Along to Songs that You Don’t Know
* Pascal Pinon - Pascal Pinon
* Ruxpin - Where Do We Float From Here
* Sudden Weather Change - Stop! Handgrenade In The Name Of Crib Death’understand?
* The Deathmetal Supersquad - Dead Zeppelin
* Víkingur Heiðar - Debut

Frekari upplýsingar

Um Kraumslistann
Markmið og verðlaun
Dómnefnd og reglur

Kraumslistinn 09 - Úrvalslisti dómnefndar birtur

Monday, December 14th, 2009

Kraumslistinn 2009,  viðurkenning Kraums til þeirra verka sem þótt hafa framúrskarandi og spennandi í íslenskri plötuútgafu á árinu, verður kynntur þann 16. desember. Dómnefnd Kraumslistans hefur nú valið og birt úrvalslista yfir 20 plötur.

Kraumslistinn, sem kallaður var Kraumsverðlaunin í fyrra, verður kynntur annað árið í röð miðvikudaginn 16. desember. Dómnefnd Kraumslistans hefur nú komist að niðurstöðu um 20 hljómplötur sem skipa úrvalista ársins Hann er kynntur hér og nú. Þann 16. desember verður svo tilkynnt um Kraumslistann 2009, þær fimm breiðskífur hljóta viðurkenningu og stuðning Kraums.

Kraumslistanum er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna - með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar.

Hugmyndin á bakvið Kraumslistann er að halda umgjörð í lágmarki, en beina kröftunum þess í stað í að styðja við og vekja athygli á þeim þeim plötum sem dómnefnd velur á Kraumslistann. Það er jafnframt von aðstandenda að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, nú þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á.

Framkvæmd Kraumslistans er með þeim hætti að sérstök dómnefnd velur 5 plötur sem gefnar hafa verið út á árinu. Kraumur mun styðja við titlana, og jafnframt reyna auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

Árið 2008 sá dómnefnd sérstaka ástæðu til að verðlauna fleiri en fimm plötur, en samkvæmt reglum Kraumslistans hefur dómnefnd leyfi til að auka við fjölda verðlaunaplatna, ef sérstakt tilefni þykir til.

Dómnefnd Kraumslistans er skipuð 16 aðilum sem hafa reynslu af að fjalla um og spila íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar, í dagblöðum, útvarpi og á netinu. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson. (sjá lista yfir alla meðlimi dómnefndar hér að neðan).

Óhætt að segja að árið í ár sé öflugt hvað plötuútgáfu varðar, enda fjölmargir spennandi titlar sem ekki komast á úrvalslista Kraumslistans 2009. Dómnefnd vinnur nú það erfiða starf að velja af listanum þær 5 plötur sem Kraumur verðlaunar. Kraumslistinn 2009 verður kynntur til leiks miðvikudaginn 16. desember.

Frekari upplýsingar:
Um Kraumslistann
Markmið og verðlaun
Dómnefnd og reglur

Kraumslistinn 2008:

  • Agent Fresco - Lightbulb Universe
  • FM Belfast - How to Make Friends
  • Hugi Guðmundsson - Apocrypha
  • Ísafold - All Sounds to Silence Come
  • Mammút - Karkari
  • Retro Stefson - Montaña

Kraumslistinn 2009 - Úrvalslisti (í stafrófsröð)

  • Anna Guðný Guðmundsdóttir - Vingt regards sur l’enfant-Jésus
  • Árni Heiðar Karlsson - Mæri
  • Bloodgroup - Dry Land
  • Bróðir Svartúlfs - Bróðir Svartúlfs EP
  • Dikta - Get it together
  • Egill Sæbjörnsson - Egill S
  • Feldberg - Don’t Be A Stranger
  • Helga Rós Indriðadóttir og Guðrún Dalía - Jórunn Viðar, Sönglög
  • Helgi Hrafn Jónsson - For the Rest of my Childhood
  • Hildur Guðnadóttir - Without Sinking
  • Hjaltalin - Terminal
  • Kimono - Easy Music for Difficult People
  • Lights on the highway - Amanita Muscaria
  • Morðingjarnir - Flóttinn mikli
  • múm - Singa Along to Songs that You Don’t Know
  • Pascal Pinon - Pascal Pinon
  • Ruxpin - Where Do We Float From Here
  • Sudden Weather Change - Stop! Handgrenade In The Name Of Crib Death’understand?
  • The Deathmetal Supersquad - Dead Zeppelin
  • Víkingur Heiðar - Debut

Hjaltalín í fagnaðarferðalag um allt land

Wednesday, November 18th, 2009

Hljómsveitin Hjaltalín mun á næstu dögum og vikum leika á tónleikum í Reykjavík og víða á landsbyggðinni í tilefni af útgáfu sinnar annarar breiðskífu; Terminal.

Hljómsveitin Hjaltalín hefur ærlegt fagnaðarferðlag sitt um landið með tónleikum á Blönduósi fimmtudaginn 19. nóvember. Með í för eru Snorri Helgason og Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar sem eru að gefa út sínar fyrstu plötur; I’m Gonna Put My Name on Your Door og Á Ljúflingshól.

Hjaltalín hefur leikið á um eitt hundrað tónleikum síðastliðið ár, uaðallega á erlendri grundu. Tónleikar hljómssveitarinnar hérlendis á árinu eru teljandi á fingrum annarrar handar og hefur hún aldrei farið í tónleikaferð um Ísland. Því verður þessi tónleikaferð ekki eingöngu kjörið tækifæri fyrir fólk á landsbyggðinni til að upplifa tónleika Hjaltalín heldur er hér einnig á ferð langþráður draumur meðlima sveitarinnar til að sanna sig utan höfuðborgarsvæðisins og er tilhlökkunin mikil meðal hópsins.

Tónleikarnir eru sem hér segir:

  • 19. nóv Blönduós – Félagsheimilið (Forsala: Potturinn og pannan)
  • 20. nóv Húsavík – Gamli Baukur (Forsala: Gamli baukur)
  • 21. nóv Egilsstaðir – Sláturhúsið (Forsala: Menningarsetrið Egilsstöðum)
  • 22. nóv Höfn – Pakkhúsið (Forsala: Menningarmiðstöð Hornafjarðar)
  • 24. nóv Keflavík – Frumleikhúsið (Forsala: Tónlistarskóli Reykjanesbæjar)
  • 26. nóv Sauðárkrókur – Mælifell (Forsala: Ólafshús)
  • 27. nóv Dalvík – Menningarmiðstöðin (Forsala: Kaffihús Menningarmiðst.)
  • 28. nóv Akureyri – Græni hatturinn (Forsala: Eymundsson)
  • 29. nóv Borgarnes – Landnámssetrið (Forsala: Landnámssetrið)

Kraumur tónlistarsjóður vinnur með og styður Hjaltalín til afreka innanlands sem utan á árinu, þar með talið tónleikahald sveitarinnar og gerð breiðskífunnar Terminal.

Kraumur er samstarfs- og styrktaraðili tónleikaferðarinnar um landið ásamt Rás 2. Tónleikarnir eru liðir í Innrásinni - átakst Kraums til stuðnings tónleikahalds innanlands.

Hjaltalín tónleikar í Reykjavík

Tuesday, June 23rd, 2009

Hjaltalín og Sin Fang Bous leika á NASA, laugardagskvöldið 27. júní.

Hljómsveitin Hjaltalín, sem er nýkomin úr tónleikaferð sinni um Bretlandseyjar og lék fékk glymrandi dóma fyrir tónleika sína á Listahátíð í Reykjavík í síðasta mánuði, leikur á ný í Reykjavík laugardagskvöldið 27. júní. Tónleikarnir fara fram á NASA við Austurvöll og hefjast klukkan 22.00.

Einnig koma fram á tónleikunum Fallegir Menn, Gísli Galdur og hljómsveit Sindra Más Sigfússonar, Sin Fang Bous, sem er nýkomin úr tónleikaferð um Evrópu. Kraumur vinnur með og styður Hjaltalín og Sin Fang Bous að plötugerð og fleiri verkefnum.

Hjaltalín á Great Escape

Tuesday, May 12th, 2009

Hljómsveitin Hjaltalín hefur tónleikaferð sína um Bretlandseyjar í kvöld, leikur á tónlistarhátíðunum Great Escape í Brighton og Eurocultured í Manchester síðar í mánuðinum.

Hjaltalín hefur tónleikaferð sína með Bretland með tónleikum á Shakespeare í Sheffield í kvöld. Framundan eru tónleikar í fleiri borgum Englands, auk Edinborg og Glasgow í Skotlandi og Cardiff í Wales. Hápunktur ferðarinnar er vafalaust tónleikar á tónlistarhátíðinni Great Escape í Brighton 14. og 15. maí.

Meðal annarra listamanna sem koma fram á Great Escape 2009 eru The Black Lips, The Pipettes og Kasabian. Bretlands-túrnum lýkur síðan í Manchester á Eurocultured hátíðinni.

Hjaltalín leikur á Listahátíð í Reykjavík í Íslensku óperunni miðvikudaginn 27. maí ásamt kammersveit, undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Mánuðinum lýkur sveitin síðan á Cooperative De Mai í Clermont-Ferrand, Frakklandi (29. maí) og Live Across Festival í Mílanó, Ítalíu.

Kraumur vinnur með og styður Hjaltalín til afreka innanlands sem utan á árinu, þar með talið tónleikahald sveitarinnar og gerð nýrrar breiðskífu.

Úthlutanir og stuðningur við íslenskt tónlistarlíf

Thursday, April 2nd, 2009

Kraumur tónlistarsjóður kynnti í dag á Boston, Laugavegi, fyrstu úthlutanir sínar og stuðning við íslenskt tónlistarlíf, tónlistarmenn og hljómsveitir árið 2009.

Áhersla er lögð á innlend verkefni og starfsemi listamanna og hljómsveita hérlendis í stuðningi Kraums í ár, allt frá plötugerð til námskeiða- og tónleikahalds á landsbyggðinni.

Meðal þeirra listamanna sem Kraumur mun styðja og vinna með á árinu eru Hjaltalín, Lay Low, Sindri Már Sigfússon (Sin Fang Bous / Seabear), Ólafur Arnalds, Ólöf Arnalds, Mógil, For a Minor Reflection og Nordic Affect.

Kraumur mun jafnframt styðja við tónleika fjölda ungra listamanna á Stofutónleikum Listahátíðar í Reykjavík, námskeið og vinnusmiðjur á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði, Tónlistarhátíð unga fólksins í Kópavogi og Reykjavik Jazz Performance vinnusmiðjur fyrir unga og upprennandi listamenn.

Kraumur mun  standa fyrir Hljóðverssmiðjum í Tankinum á Flateyri með verðlaunasveitum Músíktilrauna 2009 og þátttöku reyndari tónlistarmanna. Innrásin, átak Kraums til stuðnings tónleikahaldi á landsbyggðinni, heldur áfram af fullum krafti á árinu og að þessu sinni er kynntur stuðningur við hljómsveitirnar; Sudden Weather Change, Árstíðir, Nögl, Molestin o.fl. í tengslum við Innrásina, sem m.a. munu koma fram á tónlistarhátíðunum Eistnaflugi á Neskaupsstað og Lunga á Egilsstöðum.

Kraumur mun jafnframt styðja við Trúbatrix, nýtt tengslanet og tónlistarhóp sem samanstendur af íslenskum tónlistarkonum sem flytja frumsamda Íslenska tónlist, til tónleikahalds innanlands.

Alls hefur tæpum 11 milljónum nú verið úthlutað í beinan stuðing til listamanna og hljómsveita, eigin verkefna Kraums og samstarfsverkefna sjóðsins.

YFIRLIT ÚTHUTANA OG VERKEFNA

Samstarf og beinn stuðningur  við listamenn (4.700.000 kr)

  • Hjaltalín (Plötugerð, tónleikahald & önnur starfsemi) 1.200.000 kr
  • Nordic Affect (Plötugerð) 500.000 kr
  • Sindri Már Sigfússon / Sin Fang Bous (Plötugerð) 500.000 kr
  • Ólöf Arnalds (Plötugerð) 500.000 kr
  • Ólafur Arnald (Plötugerð) 500.000 kr
  • For a Minor Reflection (Plötugerð) 500.000 kr
  • Lay Low (Tónleikahald og kynning erlendis) 500.000 kr
  • Mógil (Tónleikahald innanlands (Innrás) og á WOMEX) 500.000 kr

Samstarfsverkefni (1.800.000 kr)

  • Stuðningur við tónleika ungra listamanna á Listahátíð í Reykjavík (Stofutónleikar) 1.000.000 kr
  • Tónlistarhátíð unga fólksins 400.000 kr
  • Reykjavik Jazz Performance Workshop 400.000  kr

Innrásin (1.600.000 kr)

Átak Kraums til stuðnings tónleikahalds á landsbyggðinni. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

  • Árstíðir, Svavar Knútur & Helgi Valur (Rás 2 plokkar hringinn) 400.000 kr
  • Trúbatrix (ýmsir listamenn) 400.000 kr
  • Sudden Weather Change, Retro Stefson o.fl. (Sumargleði, Lunga) - 400.000 kr
  • Nögl og hljómsveitir á þeim stöðum heimsóttir eru - 200.000 kir
  • Momentum og fleiri hljómsveitir Molestin Records á Eistnaflugi - 200.000 kr

Eigin verkefni Kraums (2.700.000 kr)

  • Kraumsverðlaunin (stuðningur við plötuútgáfu)  1.200.000 kr
  • Hljóðverssmiðjur Kraums og Tanksins (þremur verðlaunahöfum Músíktilrauna 2009 tryggt pláss) 1.000.000 kr
  • Námskeiðahald og vinnusmiðjur á Aldrei fór ég suður 500.000 kr

>> Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að lesa meira um fyrstu úthlutanir og stuðning Kraums við íslenskt tónlistarlíf 2009.

(more…)