Posts Tagged ‘Hönnunarsjóður Auroru’

Rannsóknarmiðstöð skapandi greina kynnir árangursmat

Sunday, March 20th, 2011



Rannsóknarmiðstöð skapandi greina hjá Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands kynnti þann 13. mars árangursmat á starfsemi Hönnunarsjóðs Auroru og Kraums tónlistarsjóðs.

Góð mæting var í stofu 101 á Háskólatorgi þegar Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands kynnti árangursmat sitt á starfsemi og styrkveitingum Kraums tónlistarsjóðs og systursjóðnum Hönnunarsjóðs Auroru. Báðir sjóðirnir voru stofnaðir af Auroru velgerðarsjóði, með árs millibili árin 2008 og 2009.

Markmið með gerð árangursmatsins var fyrst og fremst að aðstoða stjórnendur sjóðanna til að meta það starf sem á sér stað innan sjóðanna, hvaða áhrif það hefur á frama styrkþega og einnig hönnunar- og tónlistarsamfélagið í víðari skilningi. Einnig var árangursmatið hugsað sem lærdómur um það hvernig best er að standa að styrkveitingum, hvaða form gefur bestan árangur, hvaða aðferðarfræði hentar best þeim sem sækja um styrki og hvaða ásýnd svona sjóðir hafi gagnvart umsækjendum og samstarfsaðilum.
Höfundar skýrslunnar eru þau Margrét Sigrún Sigurðardóttir og Tómas Viktor Young
en þau kynntu helstu niðurstöður árangursmatsins.

Auður Einarsdóttir framkvæmdastjóri Auroru velgerðasjóðs, Hlín Helga Guðlaugsdóttir framkvæmdastjóri Hönnunarsjóðs Auroru og Eldar Ástþórsson framkvæmdastjóri Kraums tónlistarsjóðs fóru einnig yfir starfsemi sjóðanna en Kraumur og Hönnunarsjóður Auroru eru dóttursjóðir Auroru velgerðasjóðs.

Rannsóknin var byggð á á hálfopnum viðtölum við framkvæmdastjóra sjóðanna og styrkþega. Niðurstaða árangursmatsins leiddi í ljós almenna ánægju meðal styrkþega með sjóðina en umsóknarferlið þykir persónulegt og óformlegt. Vegna aukins fjölda umsókna benda höfundar skýrslunnar á að nauðsynlegt sé að gera umsóknarferlið formfastara. Í síðasta umsóknarferli fékk Kraumur 233 umsóknir en Hönnunarsjóður
Auroru 80 umsóknir sem er umsóknarmet síðan sjóðirnir hófu starfsemi sína.

Flestir styrkir úr Kraumi tónlistarsjóði hafa verið veittir í annað hvort plötuupptökur, útgáfu eða tónleikaferðalög innanlands og erlendis. Einnig hefur Kraumur styrkt verkefni til að standa straum af kynningarstarfi erlendis á plötuútgáfu, kynningu á klassískri tónlist í framhaldsskólum á Íslandi og fleira.

Styrkþegar voru allir sammála um að styrkurinn hafi hjálpað þeim mikið í framkvæmd verkefnisins sem sótt var um en hefðu samt sem áður framkvæmt verkefnin sín án styrksins. Þetta sýnir í raun að sjóðirnir eru á réttri leið með að styrkja verkefni sem eru með skýra framtíðarsýn og markmið og líklegri til að verða að veruleika.

Markmið sjóðanna er að veita styrki sem eru veglegri til fárra verkefna svo stuðningurinn skipti sköpum fyrir verkefnin. Rannsakendur benda á að þróun í átt að lægri styrkjum til stærri hóps sé ekki að þjóna markmiðum sjóðanna og minnki líkur á árangri fyrir styrkþegana sjálfa. Þessi hætta sé fyrir hendi þegar fjöldi góðra umsókna eykst og var þróun hjá sjóðunum á ákveðnum tímapunkti.

Niðurstaða árangurmatsins er því sú að styrkþegar eru ánægðari með að sjóðirnir veiti veglegri styrki á færri verkefni. Sjóðirnir hafa tekið það til sín og munu leitast við að framfylgja þeim markmiðum.

Framkvæmdastjórum sjóðanna ber saman um að gerð árangursmats sé mikilvægt framlag fyrir starfsemi sjóðanna. Hér sé á ferð rannsókn sem hjálpi til við mótun stefnu þeirra í styrkveitingum og almennri starfsemi. Góðar leiðbeiningar við hvernig má styrkja og efla starfsemina, viðhalda þeim verkþáttum sem virka hvað best – en gera breytingar þar sem umbóta er þörf. Starfsemi sjóðanna hafi verið í stöðugri þróun síðustu ár, enda sett upp sem tilraunaverkefni, og rannsókn sem þessi sé ekki aðeins gott veganesti fyrir komandi starfsár, heldur veki vonandi upp umræður um það sem betur má fara í styrkveitingum almennt.

Á mynd: Auður Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Aurora velgerðarsjóðs, Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóri Kraums tónlistarsjóðs, Margrét Sigrún Sigurðardóttir, lektor við Viðskiptafræðistofun Háskóla Íslands og höfundur árangursmatsins, Tóms Viktor Young höfundur árangursmatsins, Hlín Helga Guðlaugsdóttir framkvæmdastjóri Hönnunarsjóðs Auroru.

Hver er árangurinn af styrkjum til tónlistar?

Monday, March 14th, 2011

Rannsóknarmiðstöð skapandi greina hjá Viðskiptastofnun Háskóla Íslands kynnir árangursmat á starfsemi Hönnunarsjóðs Auroru og Kraums tónlistarsjóðs.

Þriðjudaginn 15. mars mun Rannsóknarmiðstöð skapandi greina hjá Viðskiptastofnun Háskóla Íslands kynnaárangursmat sitt á starfsemi sjóðanna tveggja sem báðir voru stofnaðir af Aurora velgerðarsjóði; Hönnunarsjóðs Auroru og Kraumi tónlistarsjóði.

Kynningin fer fram í Háskóla Íslands, Háskólatorgi, stofu HT 101. Allir velkomnir.

Léttar veitingar að kynningu lokinni.

Samkoma í Vonarstræti

Friday, November 26th, 2010

Kraumur tónlistarsjóður, Hönnunarsjóður Auroru og Hönnunarmiðstöð Íslands með jólapartý í Vonarstrætinu

Aldrei þessu vant verður glatt á hjalla í Vonarstrætinu í dag frá klukkan 17-19.  Nágrannarnir sem deila húsnæðinu að Vonarstræti 4b ætla endurtaka leikinn frá því í fyrra og bjóða vinum og vandamönnum að njóta með sér góðs félagskapar og léttra veitinga í húsakynnum okkar.

Gamanið hefst eins og áður sagði klukkan 17.00. Gestgjafar eru Hönnunarmiðstöð Íslands, Hönnunarsjóður Auroru og Kraumur tónlistarsjóður.

Kraumur á Menningarnótt

Thursday, August 19th, 2010

Kraumur og nágrannar í Vonarstræti sameinast um dagskrá og verða með opið hús á Menningarnótt. Kraumur og Trúbatrix bjóða upp á tónleika á Rósenberg.

Kraumur tónlistarsjóður, Hönnunarsjóður Auroru og Hönnunarmiðstöð Íslands - sem deila aðstöðu í húsinu að Vonarstræti 4B (portið á móti Iðnó) - verða með opið hús og sameinast um dagskrá á Menningarnótt. Hljómsveitin Orphic Oxtra (mynd) mun taka lagið, lifandi upptökur frá HönnunarMarsi 2010 sýndar, svipmyndir frá hönnunarsýningunum Iceland Contemporary Design sem opnaði á Listahátíð 2009 og sitthvað fleira.

Opið hús og dagskrá frá klukkan 18.00-22.00. Orphic Oxtra spilar klukkan 20.00. Allir velkomnir!!

Auk þess mun Kraumur og Trúbatrix bjóða upp á tónleika á Kaffi Rósenberg. Tónleikarnir þar eru liður í tónleikaferð um landið þar sem Lára, Myrra Rós og fleiri tónlistarkonur leika víða um land. Húsið opnar klukkan 20.00 og tónleikarnir hefjast skömmu síðar. Aðgangur er ókeypis.

Hlekkir
Trúbatrix og Kraumur tónleikaferð - Tónlistarkonur leggja land undir fót
Trúbatrix Hönnunarsjóður Auroru - www.honnunarsjodur.is
Hönnunarmiðstöð Íslands - www.honnunarmidstod.is
Menningarnótt - www.menningarnott.is

Útidúr spila á Vorhátíð í Vonarstræti

Tuesday, June 8th, 2010

Hljómsveitin Útidúr lék á Vorhátíð í Vonarstræti

Hönnunarmiðstöð Íslands, Hönnunarsjóði Auroru og Kraumur tónlistarsjóður - sem deila húsnæði við Vonarstræti 4B - stóð ásamt fjölda fagfélaga fyrir Vorhátíð föstudaginn 28. maí. Mikil og góð stemmning myndaðist í portinu. Boðið var upp á veitingar og gleði. Hljómsveitin Útidúr lék nokkur lög við góðan orðstír.

Takk fyrir komuna og takk fyrir okkur Útidúr fyrir frábæra tónleika!

Hlekkir:

Fleiri myndir á Facebook síðu Kraums.