Veislufjör 2012 er kvöldskemmtun með lifandi tónlist, uppistandi og gleði þar sem 7 staðir verða heimsóttir á 7 dögum um allt land dagana 21-27 júní en það eru Snorri Helgason, Mr. Silla og Hugleikur Dagsson sem eru með í för.
Þann 21. júní mun skemmtilestin Veislufjör leggja af stað í vikulanga hringferð um landið. Með í för verða Snorri Helgason og hljómsveit hans, hljómsveitin Mr. Silla og spéfuglinn þjóðkunni, Hugleikur Dagsson.
Mr Silla kemur til með að leika lög af væntanlegri plötu, Snorri leikur safn laga af sínum tveim sólóplötum auk nýrra efnis og Hugleikur Dagsson fer með gamanmál og stýrir Veislufjörinu. Markmið Veislufjörsins er einfalt; að skemmta landanum, frændfólki hans og vinum á 7 tónleikum á 7 skemmtilegum stöðum um allt land.
Fyrsti viðkomustaður Veislufjörsins verður Pakkhúsið á Höfn í Hornafirði að kvöldi 21. júní en svo fylgja Seyðisfjörður, Húsavík, Flateyri, Patreksfjörður, Flatey á Breiðafirði og Hafnarfjörður í kjölfarið. Á Seyðisfirði mun hópurinn sameinast Prinspóló, Ojba Rasta og Jónasi Sigurðssyni og Ritvélunum á tónlistarhátíðinni Partíþokunni sem mun standa yfir alla helgina í Herðubreið.
Það eru Kraumur, Cheap Jeep og Rás 2 sem eru sérstakir verndarar Veislufjörs 2012.
Miðasala fer fram við dyr á tónleikakvöldum. Miðaverð 2000 kr.
Veislufjör 2012:
21. júní - Pakkhúsið - Höfn í Hornafirði / Hefst kl 22:00
22. júní - Partíþokan, Herðubreið - Seyðisfirði / Hefst 21:00
23. júní - Gamli Baukur - Húsavík / Hefst kl 22:00
24. júní - Vagninn - Flateyri / Hefst kl 20:00
25. júní - Sjóræningjahúsið - Patreksfirði / Hefst kl 20:00
26. júní - Hótel Flatey - Flatey á Breiðafirði / Hefst kl 20:00
27. júní - Bæjarbíó - Hafnarfirði / Hefst kl 20:00
Miðasala á Partíþokuna á Seyðisfirði fer fram á midi.is og á Hótel Aldan.
Um Snorra Helgason
Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hefur á undanförnum árum skapað sér gott orð í tónlistarheiminum bæði innanlands sem utan. Tónlist Snorra er nokkurs konar þjóðlagapoppbræðingur þar sem sterkar melódíur og kassagítarinn eru í forgrunni. Tónlist Snorra hefur verið líkt við söngvaskáld eins og Neil Young, Paul Simon og Harry Nilsson sem voru upp á sitt besta á árunum í kringum 1970.
Snorri hefur verið starfandi sem tónlistarmaður í u.þ.b. 5 ár og hefur gefið út 4 plötur, 2 með hljómsveitinni Sprengjuhöllin og tvær sólóplötur, I’m Gonna Put My Name On Your Door (2009) og Winter Sun(2011) sem allar hafa fengið mikið lof gagnrýnenda. Lag Snorra, Verum í Sambandi, vann meðal annars til íslensku Tónlistarverðlaunanna fyrir lag ársins vorið 2008.
Hljómsveit Snorra Helgasonar er síbreytilegt fyrirbæri og núna skipa hana einungis tveir einstaklingar ásamt Snorra, þau Sigurlaug Gísladóttir(múm & Mr. Silla) sem syngur og spilar á ukulele og Guðmundur Óskar Guðmundsson(Hjaltalín, Borko, Heiðurspiltar o.fl.) sem spilar á rafbassa og barítóngítar.
Mr Silla er hljómsveit sem er stofnuð af söngkonunni og gítarleikaranum Sigurlaugu Gísladóttur (múm, mr silla & mongoose) og Gunnari Erni Tynes (múm, Andhéri) sem farartæki fyrir lagasmíðar Sigurlaugar en hún er einnig aðalsöngkona sveitarinnar. Þau kölluðu til liðs við sig gítarleikarann Gylfa Blöndal (kimono, Borko), bassaleikarann Halldór Örn Ragnarsson (Seabear), gítar- og hljómborðsleikarann Kristinn Gunnar Blöndal (Bob Justman, Botnleðja, Ensími) og trymbillinn Magnús Trygvason Eliassen (amiina, Sin Fang, ADHD). Gunnar Örn leikur á bassa, hljómborð og gítar auk þess sem að hann sér um upptökustjórn og eftirvinnslu. Hljómsveitin hyggur á útgáfu hljómplötu í sumar.
Hugleikur Dagsson fæddist á Akureyri árið 1977.
Fyrstu tuttugu árin læddist hann meðfram veggjum og las Spider-man.
Árið 2002 útskrifaðist hann úr LHÍ og svo byrjaði hann að gefa út kúkabrandara í bókum. Kerskni hans smitaðist svo útí leikrit, sjónvarp og uppistand.
Tónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram í 10. sinn dagana 19.–24. júní 2012. Sérstaða hátíðarinnar felst í áherslu á metnaðarfullt námskeiðahald fyrir tónlistarnema jafnhliða glæsilegri tónleikadagskrá fyrir íbúa og gesti Ísafjarðar.
Við Djúpið veitir ungu tónlistarfólki sérstakt brautargengi og vinnur í samstarfi við fjölmarga innlenda og erlenda aðila. Við Djúpið gegnir veigamiklu menningar- og fræðsluhlutverki og hefur átt ríkan þátt í nýsköpun í tónlist. Þetta er í annað sinn sem Kraumur tónlistarsjóður styrkir dagskráliði hátíðarinnar.
Á hátíðinni í ár er boðið upp á þrjú masterklass námskeið; á píanó, fiðlu og þverflautu í umsjá Jorja Fleezanis fiðluleikara, Vovka Stefáns Ashkenazy, píanóleikara og Stefáns Ragnar Höskuldssonar, flautuleikara. Þau munu einnig koma fram á tónleikum í dagskrá hátíðarinnar ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, píanóleikara, Sif Tulinius, fiðluleikara og Sæunni Þorsteinsdóttur, sellóleikara. Þá leikur klarinettukvintett the Declassified á tvennum tónleikum. Aðrir þeirra eru uppskerutónleikar Nýrra tónskálda; verkefnis sem hátíðin réðst í fjórða sinni í ár.
Auk hefðbundinna tónleika hátíðarinnar er að venju boðið upp á röð fræðandi hádegistónleika. Þá verður í ár efnt til nýrrar tónleikaraðar sem er tileinkuð söngvaskáldum þar sem Helgi Hrafn Jónsson, Jussanam Dejah, Skúli mennski og KK troða upp ásamt húshljómsveit. Nemendur hátíðarinnar koma fram á tvennum tónleikum.
Upplýsingar dagskrá hátíðarinnar má finna á heimasíðu hennar www.viddjupid.is.
Kraumur tónlistarsjóður kynnir úthlutun til listamanna og verkefna sem eiga sér stað innanlands í sumar, haust og vetur 2011. Rúmlega tveimur milljónum króna er varið til 6 verkefna á sviði Innrásar íslenskrar tónlistar á heimamarkað.
Kraumur tónlistarsjóður kynnti fimmtudaginn 13. júlí úthlutun sína til verkefna íslenskra listamanna og hljómsveita sem taka þátt í Innrás Kraums 2011. Verkefnavalið er fjölbreytt og tónlistarstefnur margar, allt frá klassískum ljóðasöng yfir í þungarokk og raftónlist.
Þeir sem njóta stuðning Kraums að þessu sinni eru Hallveig Rúnarsdóttir og Gerrit Schuil, hljómsveitirnar Valdimar, Ghostigital og Captain Fufanu, Frelsissveit Nýja Íslands sem leika mun á djasshátíð og Skálmöld sem heimsækir þar að auki Færeyjar. Tónleikaferðin Partíþokan hlýtur hæsta styrkinn að þessu sinni en verkefnið er hugarfóstur Svavars Péturs Eysteinssonar sem fer fyrir hljómsveitinni Prinspóló. Með í för verða FM Belfast, Borko og Sin Fang auk Prinspóló.
Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds innanlands, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.
Alls bárust 119 umsóknir í nýliðið umsóknarferli Kraums og því ljóst að Kraumur myndi aðeins styðja við lítinn hluta þeirra verkefna sem sóttu um til sjóðsins. Samræmist það yfirlýstri stefnu sjóðsins að styrkja frekar tiltölulega fá verkefni/listamenn - en gera það þannig að stuðningurinn sé afgerandi fyrir viðkomandi listamenn og verkefni þeirra. Í dag er tilkynnt um alls 6 verkefni sem Kraumur mun styrkja og styðja við.
Megintilgangur Kraums er að styrkja íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga tónlistarmenn. Frá því sjóðurinn var settur á laggirnar í upphafi árs 2008 hafa í kringum 80 hljómsveitir og listamenn fengið stuðning úr sjóðnum, auk þess sem Kraumur hefur sjálfur staðið fyrir fjölda verkefna (Hljóðverssmiðjur, Innrásin - stuðningur við tónleikahald innanlands, Kraumsverðlaunin & Kraumslistinn) auk stuðnings við verkefni Músíktilrauna Tónabæjar, Iceland Airwaves, Listahátíð í Reykjavík, Jazzhátíð í Reykjavík, Við Djúpið o.fl.
Verkefnin sem hlutu stuðning í seinni úthlutun Kraums 2011:
Partíþokan: Prinspóló, Sin Fang, Borko og FM Belfast 500.000,- Innrás – Tónleikaferð á Seyðisfjörð, Akureyri, Ísafjörð og svo endað í Reykjavík
Ghostigital og Captain Fufanu 400.000,- Innrás – Tónleikar víðsv.um landið í haust/vetur til að kynna raf- og tilraunatónlist
Skálmöld 400.000,- Innrás/Útrás – Ferðin til Heljar: Tónleikar á Íslandi og í Færeyjum
Valdimar 300.000,- Innrás – Tvær tónleikaferðir Valdimars um landið, í júlí og ágúst
Hallveig Rúnarsdóttir og Gerrit Schuil 300.000,- Innrás - Þrennir ljóðatónleikar á landsbyggðinni: Ísafirði, Akureyri og Eskifirði
Frelsissveit Nýja Íslands 300.000,- Innrás – Djasssveit Hauks Gröndals leikur tónlist eftir ísl. tónlistarfólk á Jazzhátíð í nýjum útsetningum
Samtals: 2.2 milljónir til sex verkefna
Kraumur tónlistarsjóður , sem var stofnaður í byrjun árs 2008 af Aurora velgerðarsjóði, hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf - fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmið Kraums er að styrkja stöðu tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Kraumur vill styðja við og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.
Kraumur og Backyard á Iceland Airwaves 2010, opnir ókeypis tónleikar á föstudaginn.
Kraumur og tónlistarmennirnir bakvið heimildarmyndina Backyard taka höndum saman á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves, dagana 13.-17. október. Opnir ókeypis tónleikar verða fyrir alla aldurshópa á föstudaginn, þar sem fram koma nokkrar hljómsveitir úr myndinni. Á föstudaginn verður ’spurt & svarað’ (Q&A) og umræður í kjölfar sýningar á myndinni á laugardaginn.
Viðburðirnir fara fram í Bíó Paradís (gamla Regnboganum), Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík. Airwaves gestir fá helmings afslátt á sýningunum, en ókeypis er á tónleikana.
Þetta er þriðja árið í röð stendur Kraumur fyrir dagskrá á Iceland Airwaves hátíðinni í samvinnu við tónlistarmenn og aðra góða aðila. Árið 2008 voru haldin tvö tónleikakvöld á Smiðjustíg sem opin voru öllum aldurshópum og innihélt m.a. tónleika með Dísu, Morðingjunum, Sam Amidon og Retro Stefson.
Í fyrra stóð Kraumur og ljósmyndarinn Hörður Sveinsson fyrir sýningunni Myndir & Mayhem þar sem íslensku tónlistarlífi var gerð skil í máli og myndum. Samhliða sýningunni í Kaffistofunni á Hverfisgötu voru haldin fjögur tónleikasíðdegi þar sem fram komu Sudden Weather Change, Sykur, Mammút, Who Knew, Bárujárn, Miri og fleiri upprennandi hljómsveitir. Auk þess sem Mugison var sérstakur leynigestur.
Hljómsveitin Mammút komin heim úr tónleikaferð um Evrópu sem farin var í samvinnu við og með stuðningi Kraums.
Undirbúningur fyrir tónleikaferð hljómsveitarinnar Mammút til Evrópu stóð í nokkra mánuði. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sveitina og aðra plötu hennar, Karkari, í Þýskalandi og þýskumælandi löndum þar sem hún kom út á vegum Rough Trade útgáfunnar fyrir tæplega ári.
Alls lék sveitin 16 tónleikum á 17 dögum:
Jul 22 - Superkronik - (Leipzig, DE)
Jul 23 - Kino - (Ebensee, AT)
Jul 24 - Kuahgartn Open Air - (Babensham St. Leonhard, DE)
Jul 25 - Eier mit Speck Festival - (Viersen, DE)
Jul 27 - Am Schluss Festival - (Thun, CH)
Jul 28 - Sonic Ballroom - (Cologne, DE)
Jul 29 - Hafen 2 - (Offenbach, DE)
Jul 30 - Krach Am Bach - (Beelen, DE)
Jul 31 - Lott Festival - (Raversbeuren, DE)
Aug 1 - Astra Stube - (Hamburg, DE)
Aug 2 - White Trash - (Berlin, DE)
Aug 3 - Old Kino - (Slavonice, CZ)
Aug 4 - Tabacka Kulturfabrik - (Kosice, SK)
Aug 5 - Tüzraktér - (Budapest, HU)
Aug 6 - STUCK! 2010 @ Rockhouse - (Salzburg, AT)
Aug 7 - Stadtgarten - (Erfurt, DE)
Að sögn sveitarinnar gengur flestir þessara tónleika vonum framar, en eftirminnilegastir eru eftirtaldir:
Am Schluss í Sviss: Thun er fallegasta borg Sviss og þó víðar væri leitað, spiluðum á torgi einu niðrí bæ sem staðsett var á árbakka við hliðina á risastóru parísarhjóli. Þar voru samankomnir um 2000 manns sem einungis komu til að sjá Mammút.
Old Kino í Tékklandi: Leit illa út í fyrstu, pínulítill bær og slæmur tónleikastaður, en svo troðfylltist húsið og myndaðist þvílík stemning, sú besta á túrnum. Börn, unglingar, fullorðnir og gamalmenni dönsuðu þar saman trylltan dans og sungu jafnvel með á tímabilum. Kona ein með tárin í augunum gaf Kötu söngkonu svo armband eftir tónleikana.
STUCK! 2010 í Þýskalandi: Stærsta hátíðin sem spilað var á, kringum 8000 manns sem á hlýddu. Magnað í alla staði.
Eftir alla tónleika settust meðlimir bandsins niður og seldu geislaplötur og stuttermaboli af miklum móð. Svo skemmtilega (eða illa) vildi til að allar plötur Mammút seldust upp þegar um 10 tónleikar voru að baki og brá þá sveitin á það ráð að skrifa diska í tölvu sem með var í för og föndra fallegar skreytingar og myndir og búa til úr þeim umslög, að eigin sögn með misjöfnum árangri.
Mammút segir;
Þó svo að svona ferð sé vissulega snarasta snilld og oft mikið um dýrðir og húllumhæ þá er þetta líka mikil vinna, lýjandi á köflum og engan veginn gefins.
Peningar eru afar mikilvægir til að svona verkefni geti gengið vel fyrir sig og er í raun algjör forsenda þess að þetta sé yfirleitt gerlegt. Þar kom styrkur Kraums sér afar vel svo vægt sé til orða tekið.
Það er okkar einlæga mat að hefði styrkur Kraums ekki verið fyrir hendi hefði ferð þessi verið illfær og jafnvel ófær með öllu nema meðlimir Mammút hefðu ákveðið að stofna sér og sínum nánustu í skuldafangelsi. Og það er nú ekki ákjósanlegur kostur.
Við þökkum því Kraumi innilega fyrir stuðninginn og vonumst til að geta unnið meira með sjóðnum í nánustu sem og fjarlægri framtíð.
Kraumur þakkar á móti Mammút fyrir samstarfið. Góður árangur náðist í að bóka og skipuleggja ferðalagið, sem ekki síst má þakka dugnaði og sístækkandi tengslaneti sveitarinnar. Kraftur hennar við að koma sér og tónlist sinni á framfæri er greinilega farin að skila árangri í Þýskalandi, sem sífellt er að verða mikilvægari fyrir íslenska tónlistarmenn. Vonandi ryður þetta brautina fyrir frekari sigra Mammút og fleiri íslenskra tónlistarmanna í Þýskalandi og nágrenni.
Ólöf Arnalds frumsýnir nýtt myndband við lagið “Crazy Car” og heldur í tónleikaferð þar sem hún leikur meðal annars með stórstjörnunum í Air í Frakklandi og Blonde Redhead í Bandaríkjunum.
Tónlistarkonan Ólöf Arnalds heldur í heilmikla tónleikaferð um Evrópu og Bandaríkin í vetur í kjölfar útgáfu annarrar breiðskífu sinnar; Innundir skinni, sem kemur út þann 13. september hérlendis sem erlendis. Í tónleikaferðinni mun Ólöf meðal annars leika á undan stórstjörnunum í Air á fernum tónleikum í Frakklandi í nóvember og vítt og breytt um Bandaríkin með Blonde Redhead í nóvember og desember.
Alls er búið að staðfesta 32 tónleika fyrir ferðina, sem hefst á End of the Road Festival í Bretlandi 12. september og lýkur Austin, Texas.
Nýtt myndband við lag á plötunni, “Crazy Car”, hefur nú verið frumsýnt á bandarísku tónlistarsíðunni Stereogum. Lagið er eitt af þremur lögum plötunnar sem Ólöf syngur á ensku. Listamaðurinn Ragnar Kjartansson leggur Ólöfu lið í laginu og myndbandinu, sem hann leikstýrir ásamt Asdís Sif Gunnarsdóttir. Mynbandið má finna hér að neðan.
Innundir skinni kemur út mánudaginn 13. september hjá One Little Indian plötuútgáfunni erlendis og hjá Smekkleysu hér á Íslandi. Meðal þeirra sem leggja Ólöfu lið á plötunni eru Skúli Sverrisson, Davið Þór Jónsson, María Huld Markan Sigfúsdóttir, Daníel Bjarnason, Matthías Hemstock, Róbert Reynisson, Ragnar Kjartansson og Björk. Kjartan Sveinsson úr Sigur Rós stjórnar upptökum á plötunni, klíkt og hann gerði á síðustu og fyrstu plötu Ólafar, Við og við, sem kom út hjá 12 tónum árið 2007.
Kraumur tónlistarsjóður hefur unnið með Ólöfu Arnalds og stutt við tónleikhald hennar, kynningu á erlendum vettvangi og plötugerð Innundir skinni frá árinu 2008.
Innundir skinni - Tónleikferð:
09/12 – Salisbury, UK @ End of the Road Festival
09/14 – London, UK @ Bush Hall
09/15 – Bristol, UK @ Louisiana
09/16 – Manchester, UK @ Dulcimer
09/18 – Glasgow, UK @ Captain’s Rest
09/20 – Brussels, Belgium @ Botanique
09/21 – Berlin, Germany @ Private Club
09/23 – Hamburg, Germany @ Reeperbahm
09/24 – Dublin, Ireland @ Dublin Fringe Festival
09/25 – Paris, France @ Eustache
10/08 - Philadelphia, PA @ First Unitarian Chapel
10/09 - NY, NY @ Joe’s Pub
10/11 - Washington DC @ IOTA
10/15 - Columbus, OH @ Wexner Center
10/18 - Chicago, IL @ Schubas
11/03 – Brest, France @ La Carene *
11/04 – Caen, France @ Le Cargo *
11/05 – Paris, France @ Le Manege *
11/06 – Firminy, France @ De La Maison De La Culture *
11/14 – San Diego, CA @ House Of Blues ^
11/15 – Pomona, CA @ The Glass House ^
11/16 – Los Angeles, CA @ The Music Box ^
11/19 – San Francisco, CA @ Warfield Theater ^
11/20 – Portland, OR @ Roseland Theater ^
11/21 – Vancouver, BC @ Commodore Ballroom ^
11/24 – Seattle, WA @ Showbox at the Market ^
11/26 – Salt Lake City, UT @ The Depot ^
11/27 – Denver, CO @ Ogden Theater ^
11/29 – Houston, TX @ Warehouse Live Studio ^
11/30 – Dallas, TX @ Granada Theater ^
12/01 – Austin, TX @ La Zona Rosa ^
Kraumur og nágrannar voru með opið hús og tónleika í Vonarstræti á Menningarnótt.
Kraumur tónlistarsjóður, Hönnunarsjóður Auroru og Hönnunarmiðstöð Íslands - sem deila húsnæði að Vonarstræti 4B - voru með opið hús og dagskrá á Menningarnótt (laugardagskvöldið 21. ágúst). Dagskrá var bæði innanhús og í portinu þar sem hljómsveitin Orphic Oxtra tók lagið, sýndar voru upptökur frá HönnunarMarsi 2010 og sitthvað fleira. Góð mæting og stemmning.
Kraumur og nágrannar í Vonarstræti sameinast um dagskrá og verða með opið hús á Menningarnótt. Kraumur og Trúbatrix bjóða upp á tónleika á Rósenberg.
Kraumur tónlistarsjóður, Hönnunarsjóður Auroru og Hönnunarmiðstöð Íslands - sem deila aðstöðu í húsinu að Vonarstræti 4B (portið á móti Iðnó) - verða með opið hús og sameinast um dagskrá á Menningarnótt. Hljómsveitin Orphic Oxtra (mynd) mun taka lagið, lifandi upptökur frá HönnunarMarsi 2010 sýndar, svipmyndir frá hönnunarsýningunum Iceland Contemporary Design sem opnaði á Listahátíð 2009 og sitthvað fleira.
Opið hús og dagskrá frá klukkan 18.00-22.00. Orphic Oxtra spilar klukkan 20.00. Allir velkomnir!!
Auk þess mun Kraumur og Trúbatrix bjóða upp á tónleika á Kaffi Rósenberg. Tónleikarnir þar eru liður í tónleikaferð um landið þar sem Lára, Myrra Rós og fleiri tónlistarkonur leika víða um land. Húsið opnar klukkan 20.00 og tónleikarnir hefjast skömmu síðar. Aðgangur er ókeypis.
Vikulöng tónleikaferð Trúbatrix og Kraums kynnir til leiks ungar og upprennandi tónlistarkonur auk - auk stærri nafna á borð við Láru (mynd).
Trúbatrix og Kraumur skipuleggja tónleikaferð tónlistarkvenna um Ísland. Tónleikaferðin hefst fimmtudaginn 19. ágúst, í Keflavík og lýkur á Hornafirði viku síðar. Tónleikaferðin er liður í Innrásinni sem er verkefni Kraums til stuðnings tónleikahaldi innanlands og miðar að því að gefa tónlistarmönnum og hljómsveitum færi á að kynna sig og tónlist sína sem víðast með tónleikahaldi - og efla tónlistarlífið á landsbyggðinni.
Trúbatrix, félagskapur tónlistarkvenna sem m.a. hefur staðið að útgáfu og tónleikahaldi, er kominn aftur á kreik á ný eftir velheppnaðan tónleikaferð í vor til Bretlands og er nú að setja í gírinn fyrir tónleikaferð um Ísland í ágúst í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð. Þetta er í annað sinn sem Trúbatrix og Kraumur leggja krafta sína saman og skipuleggja tónleikaferð um landið. Líkt og í síðustu tónleikaferð verður áherslan lögð á að kynna nýjar og efnilegar íslenskar tónlistarkonur til leiks, en nokkur ný bæjarfélög verða heimsótt.
Trúbatrix og Kraumur auglýstu fyrr í sumar eftir nýjum tónlistarkonum til að koma fram á tónleikaferðinni í ár og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Fjöldi stúlkna hafði samband og komust færri að en vildu. Munu að minnsta kosti tíu tónlistarkonur sem lítið sem ekkert hafa komið fram opinberlega stíga á stokk í ferðinni, ásamt reyndari og þekktari tónlistarkonum.
Tónleikaferðin hefst á morgun, fimmtudaginn 19. ágúst í Keflavík.
25. ágúst, miðvikudagur - Akranes, Gamla Kaupfélagið.
26. ágúst, fimmtudagur - Höfn, Pakkhúsið
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00
Aðgangur á alla tónleika er ókeypis, en gestir eru kvattir til að veita fráls framlög til að styrkja frekara starf Trúbatrix.
Fram koma:
Lára
Myrra Rós [mynd hér að ofan]
Halla Norðfjörð
Elín Ey
og…
Tíu nýjar ungar og upprennandi tónlistarkonur:
Þorgerður
Elínborg Harpa
Agnes Björt
Mamiko Dís
Guðrún Birna
Lilja Sigurðardóttir
Emma Ævars
Guðný Gígja
Bjartey
Soffía Björg
Frekari upplýsingar um nýja flytjendur :
Mamiko Dís http://www.myspace.com/mamikodis
Mamiko Dís Ragnarsdóttir lauk B.A.-gráðu í tónsmíðum árið 2008 við Listaháskóla Íslands og hefur útskriftarverk hennar “Japönsk sálumessa” sem flutt var í Langholtskirkju hlotið frábærar viðtökur og hægt að heyra upptökuna á myspace-síðu hennar. Að auki hefur hún lokið framhaldsprófi í klassískum píanóleik.
Þorgerður http://tobba.bandcamp.com/
Er 8 ára píanónám að baki og er frá Dalvík, með brennandi áhuga á öllu því sem tengist tónlist og byrjaði að semja vorið 2009. Helstu fyrirmyndirnar eru Joni Mitchell, Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ellý Vilhjálms.
Ingunn Huld
Er grunnskólakennari og kennir tónlist og leiklist. Lærði á þverflautu í mörg ár og lærði síðar að glamra á píanó og gítar. Nemandi við Tónlistarskóla FÍH þar sem ég lærir jazzsöng.
Lilja Sigurðardóttir www.myspace.com/liljaiceland, www.youtube.com/liljasig
Er 24 ára, fædd og uppalin á Patreksfirði. Á helling til af lögum, bæði á íslensku og ensku og er byrjuð að taka upp plötu. Auk þess að spila og syngja stundar hún í flugumferðarstjórn.
Elínborg Harpa
Spilar á gítar, er 17 ára og byrjaði að semja fyrir stuttu. Hlakkar til að koma tónlistinni minni á framfæri.
Emma Ævars www.myspace.com/unknownemma
Emma Ævarsdóttir er 21 árs gömul, ættuð frá Suðureyri við Súgandafjörð en búsett í Kópavogi. Byrjaði að fikta á gítar 12 ára gömul.
Guðrún Birna
Guðrún Birna Jakobsdóttir, kölluð Gugga er 22 ára stelpa úr Reykjavík.
Hljómsveitin Seabear leikur vítt og breytt um Evrópu og Ameríku í kjölfar útgáfu á annari breiðskífu sinnar ‘We Built a Fire’, með stuðningi og í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð.
Hljómsveitin Seabear hlaut styrk frá Kraumi til að halda erlendis á tónleikaferðalag fyrr á árinu. Í fyrstu tónleikaferðinni var haldið til Þýskalands og Austurríkis. Tónleikar gengu vonum framar. Vel var mætt á alla tónleika og ný plata sveitarinnar, ‘We Built a Fire’ sem þá var formlega ekki komin út, seldist að sögn meðlima sveitarinnar mjög vel. Góð aðsókn í Þýskalandi og nágrannalöndum má hugsanlega tengja við það að plötufyrirtækið Morr Music, sem Seabear gefur út hjá, er frá Þýskalandi.
28/02/10 : Feinkostlampe ˆ Hannover (D)
01/03/10 : Steinbruch ˆ Duisburg (D)
02/03/10 : Hafenklang ˆ Hamburg (D)
03/03/10 : Nato ˆ Leipzig (D)
04/03/10 : Festsaal ˆ Kreuzberg (D)
05/03/10 : Beatpol ˆ Dresden (D)
06/03/10 : 59to1 ˆ Munich (D)
07/03/10 : B72 ˆ Vienna (A)
Hljómsveitin ferðaðist um á 9 manna bíl og gisti á hótelum í hverri borg fyrir sig. Tilgangur ferðarinnar var fyrst og fremst að kynna nýju plötu sveitarinnar. Platan seldist eins og áður sagði vel ásamt öðrum fylgihlutum sem Seabear selur á borð við boli og töskur.
“Stuðningur Kraums nýttist vel því á þessu ferðalagi þurfti að borga hljóðmanni ásamt tveimur auka hljóðfæraleikurum, sem ekki eru í hljómsveitinni. Aðrir kostnaðarliðir eru: Bensín, hótel (sumsstaðar) ásamt ýmsu öðru sem þarf að leggja út í svona ferðalagi.”
segir Sóley Stefánsdóttir úr Seabear um stuðning Kraums við tónleikhaldið í Þýskalandi
Svipaða sögu er að segja frá tónleikaferð Seabear um Bandaríkin og Kanada, sem farin var frá 17.mars-2.apríl. Góð mæting og áhugi á tónlist sveitarinnar. Þar spilaði Seabear á eftirfarandi stöðum:
Seabear byrjaði ferðalagið í Austin þar sem spilaði á einni stærstu tónlistarhatíð heims, South By Southwest, auk fjölda aukatónleika í borginni. Tónleikarnir gengu mjög vel og var hljómsveitinni vel tekið. Eftir South by southwest lá leiðin upp austurströndina og tónleikaröðin var eins og sjá má hér fyrir neðan. Tónleikar gengu vel en á þessum tíma var platan komin út og því aðeins minna að gera í plötusölu á sjálfum tónleikunum, enda platan komin í verslanir.. Engu að síður seldust bolir og aðrir fylgihlutir vel - sem skiptir hljómsveitina miklu til að ná endum saman.
Wed. Mar 17: Austin, TX @ SXSW
Thu. Mar 18: Austin, TX @ SXSW
Fri. Mar 19: Austin, TX @ SXSW
Tue. Mar 23: Washington, DC @ Black Cat backstage
Wed. Mar 24: Philadelphia, PA @ Kung Fu Necktie
Thu. Mar 25: New York, NY @ Mercury Lounge
Fri. Mar 26: Brooklyn, NY @ Southpaw
Sun. Mar 28: Cambridge, MA @ TT the Bear’s
Tue. Mar 30: Montreal, QC @ L’escogriffe
Wed, Mar 31: Toronto, ON @ Horseshoe Tavern
Thu. Apr 01: Cleveland, OH @ Grog Shop
Fri. Apr 02: Chicago, IL @ Schuba’s
Tilgangur ferðarinnar var að svara eftirspurn og spila í Bandaríkjunum/Kanada þar sem Seabear hafði aldrei áður komið þangað. Einnig til að fylgja nýju plötu sveitarinnar ‘We built a fire’ eftir. Tónleikar eins og í Washington, Chicago, tvennir tónleikar í New York, Toronto gengu mjög vel og troðfullt var á þessum stöðum.
“Styrkur Kraums nýttist mjög vel á Bandaríkjatúrinn þar sem hljómsveitin þurfti að borga flugfarið fyrir alla í hljómsveitinni. Flugið er aðal kostnaðarliðurinn en eins og áður þá þurfti að borga hljóðmanni, tveimur aukahljóðfæraleikurum, “merch” manni, bensín, hótel (á mörgum stöðum), vegatoll ásamt ýmsu fleiru sem tengist því að ferðast.” segir Sóley Stefánsdóttir úr Seabear um stuðning Kraums við tónleikhaldið í Bandaríkjunum
- Seabear fór síðan á 3 vikna langan Evróputúr í maí.
- Í september fer sveitin síðan aftur á Þýskalandstúr sem endar á festivali í Berlín
- Í Október fer sveitin á vesturströnd Bandaríkjanna
- Í Nóvember fer sveitin síðan til Evrópu
“Seabear vill senda allar sínar bestu kveðjur og þakkir til Kraums fyrir að hafa stutt okkur á þessum tónleikaferðalögum.”
Kraumur tónlistarsjóður er stoltur af stuðningi við tónleika Seabear, mikil ánægja ríkir með árangur sveitarinnar við kynningu á tónlist sinni og nýjustu breiðskífu.
Yfir þúsund manns sóttu tónlistarhátíðina Eistnaflug á Neskaupsstað í júlí. Kraumur studdi við vinnusmiðjur og tónleikahald íslenskra sveita á hátíðinni.
Rokkhátíðin Eistnaflug var haldin í Neskaupstað sjötta árið í röð dagana 8.-10. júlí. Undirbúningur hátíðarinnar hófst í ágúst 2009 og að honum stóðu Stefán Magnússon, Guðný Lára Thorarensen og Haukur Dór Bragason. Fleiri hendur og sjálfboðaliðar bættust síðan við vinnuna þegar nær dró hátíðinni sjálfri.
Miðasala á Eistnaflug 2010 gekk vel, en samtals sóttu yfir þúsund manns hátíðina. Hljómsveitarmeðlimir og sjálfboðaliðar voru síðan rétt tæplega 200. Þegar allt er talið saman má reikna með að um 1.200 manns hafi komið í Neskaupstað á Eistnaflug 2010.
Samkvæmt skýrslu frá hátíðarhöldurum gekk hátíðin “í nær alla staði vel og er fátt hægt út á að setja.”
“Lögreglan var afar ánægð með skipulag hátíðarinnar sem og gesti. Gestirnir skemmtu sér í bróðerni og vinskap, en það er það sem Eistnaflug snýst um. Þeir fengu þó að kenna á veðrinu aðfararnótt fimmtudagsins 8. júlí og voru sumir kaldir og hraktir með allt sitt hafurtask rennblautt. Viðbúnaðurinn var ekki kominn almennilega í gang þegar þarna var komið við sögu og er það eitthvað sem verður að bæta fyrir Eistnaflug 2011. (…)
Án styrktaraðila okkar og annarrar hjálpar hefði Eistnaflug aldrei orðið að veruleika. Við færum þeim innilegar þakkir: Egilsbúð, Flytjandi, Ölgerðin, Hildigunnur hjá Fjarðabyggð, Signý hjá Menningarsjóði Austurlands, Helgi hjá Sýslumanninum á Eskifirði, Úton, Kraumur, Tónlistarsjóður ríkisins, Lögreglan, Björgunarsveitin Gerpir, Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar og allt það góða fólk í Neskaupstað sem tekur Eistnaflugsförum opnum örmum.
Eistnaflug verður betra og stærra með hverju árinu sem og viðbúnaður þess, gæsla og gott orðspor. Á þeirri braut ætlum við að halda áfram.
Fyrir hönd Eistnaflugs og Millifótakonfekts ehf.,
- Stefán Magnússon, framkvæmdastjóri
- Guðný Lára Thorarensen, dagskrárstjóri
- Haukur Dór Bragason, kynningarstjóri”
Kraumur tónlistarsjóður er ánægður með samstarfið við Eistnaflug 2010 og stoltur af stuðningi sínum við tónlistarhátíðina sem lið í Innrás sjóðsins, sem miðar að því að styðja við tónleikahald á landsbyggðinni og gefa hljómsveitum og listamönnum færi á að spila og kynna tónlist sína sem víðast innanlands.
Kraumur studdi við vinnusmiðjur og tónleikahald íslenskra sveita á Eistnaflugi 2010.
Dagana 12.-19. júlí lék K tríó víðsvegar um landið í samstarfi við Kraum til að kynna nýja breiðskífu sína; Rekavið. Ferðin var hluti af Innrás Kraums sem miðar að því að styðja við tónleikahald innanlands og gefa listamönnum og hljómsveitum færi á að spila og kynna tónlist sína sem víðast. Það er skemmst frá því að segja að tónleikaferðin gekk vel og var hin besta kynning fyrir plötuna.
Trúbatrix í samvinnu við Kraum leita af nýjum tónlistarkonum fyrir tónleikaferð um landið og nýja safnplötu sumarið 2010.
Trúbatrixur eru komnar á kreik á ný eftir velheppnaðan tónleikaferð í vor til Bretlands og eru nú að setja í gírinn fyrir sumarið 2010. Er stefnan tekin á að fara í tónleikaferð um landið í ágúst í samvinnu við Kraum tónlistarsjóð og gefa út nýja safnplötu; Trúbatrix Taka 2 stuttu eftir það. Platan fylgir eins og nafnið gefur til kynna í kjölfar Taka 1 sem innihélt m.a. lög frá; Pascal Pinon, Fabúla, Jara, Uni, Mysterious Marta, Elízu Newman og Myrra {mynd].
Trúbatrixur eru nú að leita af og auglýsa eftir nýjum og spennandi íslenskum tónlistarkonum til að taka þátt í tónleikaferðinni og plötunni í sumar;
“Ef þið flytjið frumsamda tónlist og getið komið fram og flutt 3-4 lög á tónleikum endilega vera í sambandi. Allmenningur er líka kvattur til að benda á efnilegar tónlistarkonur og því fjölbreyttari tónlist því betra!
Tónlistarkonur geta sent tengil á vefsíðu eða mp3 með tóndæmi á :
Listahátíðin LungA á Seyðisfirði fagnar tíu ára afmæli sínu með einstaklega glæsilegri tónlistardagskrá á hátíðinni í ár þar sem fram koma Hjaltalín, Retro Stefson, Bloodgroup ásamt strengjasveit, Seabear, Miri og fleiri.
Listahátíðin LungA á Seyðisfirði fagnar tíu ára afmæli sínu með einstaklega glæsilegri tónlistardagskrá á hátíðinni í ár. Tónlistardagskráin nær hápunkti sínum á afmælistónleikum laugardaginn 17. júlí þegar miðbæjarsvæði Seyðisfjarðar verður breytt í eitt samfellt hátíðarsvæði þar sem tvö útisvið verða með stanslausa tónlist allan daginn fram til klukkan 01.00.
LungA - Listahátíð ungs fólks, Austurlandi hófst mánudaginn 12. júlí og stendur fram til sunnudagsins 18. júlí. Á boðstólum hátíðarinnar eru fjöldi listasmiðja og listasýninga, fatahönnunarsýning, fyrirlestrar, tónleikar og fleiri viðburðir.
LungA var fyst haldin árið 2000 og að því tilefni er aðgangseyrir á tónleikana aðeins 2.000 krónur. Aðstandendum LungA er mikil ánægja að tilkynna að 15 ára og yngri fá aðgang í fylgd með fullorðnum - og fólk 50 ára og eldra fær frítt inn á tónleikana - og hvetur alla fjölskylduna til að mæta og njóta frábærrar tónlistar saman!
Kraumur tónlistarsjóður er samstarfsaðili tónleikadagskrárinnar og styður sérstaklega upptökur á afmælistónleiknum. Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.
Afmælistónleikar LungA 2010 laugardaginn 17. júlí
Tónleikarnir verða utandyra í miðbæ Seyðisfjarðar. Miðaverð kr. 2000. Frítt fyrir fimmtíu ára og eldri, 15 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.
Stóra svið – dagskrá hefst klukkan 19:30
Hjaltalín
Bloodgroup ásamt strengjasveit
Seabear
Retro Stefson
Helmus und Dalli
Miri
Litla svið – dagskrá hefst klukkan 16:00
Óli Ofur
Oculus
(Cassette)
DJ flugvel og geimskip
Muted / Hypno
Ball Öldunnar með Hjálmum - dagskrá hefst klukkan 01.00
Tónleikarnir fara fram í Herðubreið. Miðaverð 2.500 krónur. Aldurstakmark 18 ár.
Hjálmar
Miðasala
Forsala á Afmælistónleika Lunga fer fram á midi.is og í verslun Skífunnar Kringlunni til og með föstudagsins 16. Júlí. Afhending armbanda fer fram í Herðubreið miðvikudag og fimmtudag klukkan 16-19, föstudag klukkan 13-19 og laugardag frá klukkan 13:00. Þeir sem kaupa sér armband á Afmælistónleikana fá miðann á Hjálmaballið á 1500kr og frítt inn á föstudags partýið gegn framvísun armbandsins. Miðasala á einstaka viðburði fer fram við hurð - en frítt er á fjölmarga viðburði.
_____________________________________________________________
Hljómsveitin Mammút heldur í tónleikaferð til Evrópu með stuðningi og í samstarfi við Kraum - leikur 16 tónleika á 17 dögum.
Hljómsveitin Mammút hefur tónleikaferð sína um Evrópu á tónleikastaðnum Superkronik í Leipzig þann 22. júlí. Í framhaldinu taka við tónleikar víða um mið-Evrópu, m.a. á Am Schluss Festival í Sviss og Lott Festival í Þýskalandi. Tónleikaferðin er liður í kynningu Mammút á tónlist sinni og nýjustu breiðskífu, Karkari, í Evrópu með sérstaka áherslu á Þýskaland og þýskumælandi lönd á borð við Austurríki og Sviss.
Mammút var stofnuð sem stúlknatríó 2003 undir nafninu ROK, en fékk síðar nafnið Mammút þegar strákarnir bættust í hópinn. Mammút sigraði Músíktilraunir árið 2004 og gaf út fyrstu plötu sína árið 2006 samnefnd hljómsveitinni. Tveimur árum síðar kom önnur breiðskífa sveitarinnar, Karkari, út og fékk m.a. viðurkenningu Kraums fyrir að skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika sem ein af plötum Kraumslistans/Kraumsverðlaunanna.
Mammút hefur fylgt Karkari eftir með tónleikum víð landið og einnig leitað utan landsteinana með tónleikum í Noregi, Þýskalandi og fleiri stöðum. Þetta er stærsta tónleikaferð sveiterinnar erlendis til þessa.
Mammút í Evrópu - Dagskrá:
Jul 22 - Superkronik - (Leipzig, DE)
Jul 23 - Kino - (Ebensee, AT)
Jul 24 - Kuahgartn Open Air - (Babensham St. Leonhard, DE)
Jul 25 - Eier mit Speck Festival - (Viersen, DE)
Jul 27 - Am Schluss Festival - (Thun, CH)
Jul 28 - Sonic Ballroom - (Cologne, DE)
Jul 29 - Hafen 2 - (Offenbach, DE)
Jul 30 - Krach Am Bach - (Beelen, DE)
Jul 31 - Lott Festival - (Raversbeuren, DE)
Aug 1 - Astra Stube - (Hamburg, DE)
Aug 2 - White Trash - (Berlin, DE)
Aug 3 - Old Kino - (Slavonice, CZ)
Aug 4 - Tabacka Kulturfabrik - (Kosice, SK)
Aug 5 - Tüzraktér - (Budapest, HU)
Aug 6 - STUCK! 2010 @ Rockhouse - (Salzburg, AT)
Aug 7 - Stadtgarten - (Erfurt, DE)
Innrás Kraums heldur áfram með tónleikahaldi um allt land. K tríó leikur á níu tónleikum á tíu dögum 12.-21. júlí.
Jazztríóið K Tríó leikur um þessar mundir allt land til að kynna sína nýjustu breiðskífu sína. Tónleikaferðin hófst í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og endar í Norræna húsinu í Reykjavík miðvikudaginn 21. júlí. Ferðin samanstendur af alls níu tónleikum á tíu dögum.
K tríó er skipuð; Kristján Martinsson píanó, Pétur Sigurðsson kontrabassi og Magnús Trygvason Eliassen trommur. Kristján stofnaði K trió ásamt Magnúsi og Pétri í janúar 2008 til þess að spila tónlist Kristjáns á útskrifartónleikum hans í FÍH. Samspilið small saman og tríóið ákvað að halda samstarfinu áfram og semja fleiri lög. Tríóið hélt tónleika á Jazzhátíð Reykjavíkur í ágúst 2008 við góðar undirtektir.
Um miðjan september 2008 sigraði K tríó Young Nordic Jazz Comets keppnina. Í framhaldi af sigrinum gaf tríóið út sinn fyrsta disk og fór í stuttan túr til Norðurlanda (Winter Jazz) meðal annars á Nasjonal Jazzscene Norway, Rytmihäiriöklubi Helsinki, Christianshavns Beboerhus Kaupmannahöfn, Mariehamn Jazzfestival á Álandseyjum og Ylläs Jass og blús Lappland. Í apríl 2009 var Tríóið valið eitt af 4 evrópskum jazz sveitum til að spila í ,,EBU European Jazz Competition” á North sea jazz festeval í júlí.
Tónleikaferð K tríó um Ísland
12. júlí Egilstaðir, Sláturhúsið kl. 20:00
13. júlí Bakkafjörður, Skólinn á Bakkafirði kl. 20:00
14. júlí Akureyri, Græni Hatturinn kl. 21:00
15. júlí Húsavík, Gamli Baukur kl. 21:00
16. júlí Ísafjörður, Edinborgarhúsið kl. 20:30
17. júlí Patreksfjörður, Sjóræningjahúsið kl. 21:00
18. júlí Búðardalur, Leifsbúð kl. 21:00
19. júlí Akranes, Skrúðgarðurinn kl. 21:00
21. mið Reykjavík Norræna húsið kl 20:30
Kraumur og Innrásin
Tónleikaferðin er hluti af Innrás Kraums tónlistarsjóðs. Innrásin er átak sem Kraumur setti á laggirnar í apríl 2008 til þess er að styðja hljómsveitir og tónlistarmenn við tónleikhald innanlands. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.
Fjöldi listamanna og hljómsveita hefur á síðustu tveimur árum leikið á tónleikum á landsbyggðini og má þar nefna Amiina, Árstíðir, Benni Hemm Hemm, Bróðir Svartúlfs, Celestine, Dr. Spock, Elfa Rún Kristinsdóttir, FM Belfast, Helgi Valur, Ljósvaki, Melkorka Ólafsdóttir, Miri, Mógil, Myrra, Njútón, Nögl, Pascal Pinon, Reykjavík!, Sign, Skakkamanage, Svavar Knútur, Sykur og Swords of Chaos.
Innrás Kraums kemur víða við í ár. Hljómsveitin Bloodgroup hefur þegar leikið víða um land í ár og heimsótt Færeyjar með stuðningi Innrásarinnar, Trúbatrix félagskapur tónlistarkvenna er að skipuleggja tónleikaferð sem fer af stað í ágúst og Kammersveit Carminu mun ráðgerir tvenna tónleika utan Reykjavíkur síðar í ár. Auk þess er Innrásin samstarfsaðili Eistnaflugs, LungA og fleiri tónlistarhátíða.
Tónlistarhátíðin Eistnaflug fer fram í Neskaupsstað dagana 8.-10. júlí þar sem yfir 30 hljómsveitir koma fram, auk þess sem boðið verður upp á vinnusmiðjur og tónleika utan hefðbundnar dagskrár í fyrsta sinn í sögu hátíðarinnar.
“Ef að þú manst eftir Eistnaflugi - þá varstu ekki þar”
- Guðmundur Óli Pálmason
“Eistnaflug? Betra en Arnarflug!”
- Magnús “Zombie”
Búast má við að íbúafjöldi Neskaupsstaðar tvöfaldist dagana 8.-10. júlí þegar tónlistarhátíðin Eistnaflug fer fram í bænum. Hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2005 og vaxið með hverju árinu. Nú er svo komið að Eistnaflug er orðin ein helsta tónlistarhátíð landsins. Yfir 30 hljómsveitir koma fram á Eistnaflugi um helgina, auk þess sem boðið verður upp á vinnusmiðjur og tónleika utan hefðbundnar dagskrá í fyrsta sinn í sögu hátíðarinnar.
Kraumur tónlistarsjóður styður við vinnusmiðjur og tónleikahald íslenskra sveita á Eistnaflugi 2010. Stuðningurinn og samstarfið er hluti af Innrásar-átaki sjóðsins til stuðnings tónleikahaldi innanlands. Fjölmargar hljómsveitir og listamenn hafa notið stuðnings og samstarfs í tengslum við Innrásina frá árinu 2008, má þar nefna; Amiina, Árstíðir, Benni Hemm Hemm, Benny Crespo’s Gang, Bloodgroup, Borko, Dr. Spock, Elfa Rún Kristinsdóttir, Elín Ey, Elíza Geirsdóttir Newman, Fabúla, FM Belfast, Melkorka Ólafsdóttir, Momentum, Morðingjarnir, Mógil, Mysterious Marta, Myrra, Njútón, Nögl, Pascal Pinon, Reykjavík!, Sign, Skátar, Svavar Knútur og Sykur.
Eistnaflug var fyrst haldin árið 2005 þegar Stefán Magnússon, sem leiddist rokkleysið eftir að hafa flutt til Neskaupstaðar, skipulagði tónleika með 14 hljómsveitum og bauð vinum sínum til Neskaupstaðar í lok sumarsins. Árið eftir var hátíðin haldin aðra helgina í júlí og sú hefð hefur haldist síðan. Eistnaflug hefur vaxað og dafnað með árunum, og getið sér góðs orðspor hérlendis sem erlendis. Eistnaflug byrjaði sem lítil metal-rokkhátíð er í dag 3-daga tónlistarhátíð sem samanstendur af ýmsum tónlistarstraumum og stefnum - þó rokktónlist af harðari gerðinni sé enn aðalsmerki hennar.
Fyrsta hátíðin stóð yfir eina kvöldstund og mættu um 50 manns, 300 manns mættu árið eftir þegar hátíðin stækkaði í 2-daga festival og árið 2008 tók hátíðin nokkrum stakkaskiptum þegar hún stóð í fyrsta sinn yfir í 3 daga og erlend hljómsveit (Contradiktion frá Þýskalandi) spilaði þar í fyrsta sinn. Gestir það árið voru 800 manns og í fyrra náði gestafjöldi nýjum hæðum þegar um 1.000 manns sóttu hátíðina. Í ár er búist við svipuðum fjölda og í fyrra, og þar sem einhverjir miðalausir gestir fylgja alltaf með í bæinn má búast við að íbúafjöldi Neskaupsstaðar (sem er um 1.400) nærri tvöfaldist því þessa helgi.
Yfir 30 hljómsveitir koma fram á Eistnaflugi 2010. Má þar nefna Dr. Spock, Mínus, Reykjavík!, Cliff Clavin, Saktmóðigur, In Memorium, Fortíð, Beneath, Momentum, Celestine, Sólstafir sem léku á nýafstaðinni Hróaskelduhátíð, Sororicide sem koma saman á ný og Kolrassa Krókríðandi sem snýr aftur eftir langt hlé með með Elízu Newman í fararbroddi. Erlendir gestir í dagskrá hátíðarinnar er eitt af flaggskipum þungarokksins; engir aðrir en Napalm Death frá Englandi.
Eistnaflug hefur getið sér gott orð fyrir vinalegt andrúmsloft og góða stemmningu. Hátíðin er haldin í Neskaupstað, hjarta Austurlands, nánar tiltekið í Egilsbúð. Gistiaðstaða er á tveimur tjaldsvæðum; hinu svokallaða ‘djammstæði’ við enda bæjarins og á fjölskyldutjaldstæðinu í hlíðinni ofan við miðbæinn. 18 ára aldurstakmark er á hátíðina sjálfa.
Forsala miða á midi.is og í verslunum Skífunnar og er verð í forsölu er aðeins 6.666 krónur. Miðar eru einnig seldir á Nesk 7.500 á Neskaupsstað.
Tónlistarhátíðin Við Djúpið fer fram á Ísafirði dagana 22.-27. júní. Kraumur, Rás 1 og aðstandendur hátíðarinnar Leita að nýjum tónskáldum og verða verk þeirra flutt næstkomandi sunnudag.
Tónlistarhátíðina Við Djúpið stendur nú sem hæst á Ísafirði. Hátíðin er nú haldin í áttunda sinn og fer fram dagana 22. - 27. júní. Um helgina hefst síðasta námskeið hátíðarinnar er það er nýjung: námskeið fyrir píanókennara í notkun spuna í kennslu í klassísku píanónámi.
Mikil og góð aðsókn hefur verið á þá tónleika sem hátíðin hefur staðið fyrir sem afer; “fullt út úr dyrum” að sögn skipuleggjenda. Hátíðin nær hámarki nú undir helgi og má búast við miklum fjölda gesta.
Við Djúpið hefur frá upphafi haft þá sérstöðu að leggja áherslu á viðamikið og metnaðarfullt námskeiðahald samhliða því að bjóða upp á tónleika á heimsmælikvarða alla daga hátíðarinnar.
Við Djúpið, Rás 1 og Kraumur standa fyrir Leit að nýjum tónskáldum á og í tengslum við hátíðina. Dómnefnd valdi á dögunum þrjú nýjum tónskáldum hefur verið boðin þátttaka í verkefninu í sumar. Í kjölfarið skrifuðu þau verk fyrir blásarakvintett sem verða frumfluttur á hátíðinni sunnudaginn 27. júní og síðar útvarpað á Rás 1.
Þetta er í annað sinn sem verkefnið fer fram, en í fyrra sömdu þrjú tónskáld verk fyrir kammersveitina Ísafold. Nú er komið að blásarakvintett Nordic Chamber Soloists að flytja verkin, en hann er skipaður ungum en mjög reyndum tónlistarmönnum frá norður Evrópu.
Tilgangur verkefnisins er að gefa ungum tónskáldum tækifæri til að vinna mjög náið með reyndum tónlistarmönnum, mun nánar en undir venjulegum kringumstæðum. Verkin verða síðan frumflutt á sérstökum lokatónleikum tónlistarhátíðarinnar Við djúpið á Ísafirði, 27. júní 2010.
Daníel Bjarnason vinnur með dönsku hljómsveitinni Efterklang og leikur á tónleikum í New York, Moskvu, Tallin og Krakow
Hljómsveitastjórinn og tónskáldið Daníel Bjarnason hefur fengið mikið lof fyrir fyrstu breiðskífu sína Processions. Platan kemur út hérlendis og á alþjóðavettvangi á vegum plötuútgáfunnar Bedroom Community og undanfarið hefur Daníel leikið á tónleikum erlendis til kynningar á plötunni.
Daníel hélt tónleika New York ásamt 17 manna hljómsveit þann 1. mars síðastliðinn - auk Sam Amidon og dönsku sveitinni Efterklang. Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari og Vicky Chow píanóleikari voru meðal þeirra sem skipuðu hljómsveit Daníels, en myndir frá tónleikunum má sjá hér.
Í kjölfar tónleikana fór Daníel í viðtal hjá John Schaeffer á WNYC í þættinum New Sounds, sem er víðfrægur fyrir að kynna og fjalla um nýja og spennandi hluti í tónlist. Þátturinn er aðgengilegur á netinu hér.
Daníel hefur síðan leikið á fleiri tónleikum hérlendis sem erlendis. Hann kom fram á Listahátíð í Reykjavík í Þjóðleikhúsinu þann 16. maí sem hluti af Whale Watching tónleikadagskrá Bedroom Community. Hann spilaði í Mosvku og Tallin í byrjun júní ásamt Valgeiri Sigurðssyni og Sam Amidon.
Framundan er síðan stórt samvinnuverkefni með Ben Frost í tengslum við Unsound tónlistarhátíðina í Kraká í Póllandi sem er haldin 17.-24. október og tónleikar með Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands 16. 18. og 19. júní í Háskólabíó, þar sem Daníel stjórnar tónleikunum og útsetur eitt lag.
Daníel mun vinna með dönsku hljómsveitinni Efterklang að útsetningum fyrir tónleikaferð hjá þeim í byrjun næsta árs. Auk þess munu í haust fara fram upptökur fyrir næstu breiðskífu hans sem er áætlað að komi út í byrjun næsta árs.
Processions hefur fengið góða dóma í fjölmörgum tónlistarmiðlum og má þar nefna Drowned in Sound, Popmatters og Alarm Magazine sem gefur plötunni 9/10 í einkunn og segir hana muni toppa mrga árslistana. Daníel hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2010 fyrir tónverkin á plötunni, fyrir tónverkin á plötunni Processions auk þess sem platan var tilnefnd sem plata ársins í flokki Sígildrar tónlistar og samtímatónlistar.
Hönnunarmiðstöð Íslands, Hönnunarsjóði Auroru og Kraumur tónlistarsjóður - sem deila húsnæði við Vonarstræti 4B - stóð ásamt fjölda fagfélaga fyrir Vorhátíð föstudaginn 28. maí. Mikil og góð stemmning myndaðist í portinu. Boðið var upp á veitingar og gleði. Hljómsveitin Útidúr lék nokkur lög við góðan orðstír.
Takk fyrir komuna og takk fyrir okkur Útidúr fyrir frábæra tónleika!
Sólstafir leika á Hróaskeldu og fleiri tónlistarhátíðum í Evrópu.
Þungarokksveitin Sólstafir hefur leikið á nokkrum hátíðum og einstökum tónleikum í London, Berlín, Osló og fleiri stöðum það sem af er þessu ári. Hún hefur m.a. komið fram á Ragnarök hátíðinni í Rieden/Kreuth, nærri Nuremberg, í Þýskalandi.
Frammundan er þétt dagskrá hjá sveitinni þar sem hún leikur á einni stærstu og virtust tónlistarhátíð Evrópu, Hróaskeldu (Roskilde Festival) og í kjölfarið fylgja fleiri virtar og veglegar hátíðir.
Kraumur styður við útrás Sólstafa sem samstarfs- og stuðningsaðili.
Dagskrá
Jul 1 2010 Roskilde Festival, Roskilde (DK)
Jul 8 2010 Eistnaflug, Norðfjörður (IS)
Aug 6 2010 Gößnitz Open Air, Altenburg (DE)
Aug 7 2010 Wacken Open Air, Wacken (DE)
Aug 19 2010 Summer Breeze Open Air, Dinkelsbuehl (DE)
Aug 27 2010 Hole in the Sky, Bergen (NO)
Vorhátíð í Vonarstræti 4B klukkan 17.00 í dag, föstudaginn 28. maí.
Hljómsveitin Útidúr leikur lög. Veitingar og gleði. Í portinu við Vonarstræti 4B þar sem Kraumur tónlistarsjóður, Hönnunarsjóður Auroru og Hönnunarmiðstöð Íslands deila húsnæði.
Feldberg á Great Escape hátíðinni og í Dazed & Confused.
Feldberg gerði góða för á bresku tónlistarhátíðina The Great Escape í Brighton 13.-15. maí. Dúettinn spilaði á sviði sem kallast Audio venue – Levi’s Ones To Watch við góðar viðtökur og athygli, sem m.a. skilaði sér í umfjöllun tímaritsins Dazed & Confused.
The Great Escape hátíðin þykir leiðandi í Evrópu fyrir nýja tónlist og sótt af fjölmörgum starfsmönnum tónlistarbransans. Samtals sækja um 15.000 manns hátíðina. Þar af þeim eru 5000 manns úr tónlistar- og útgáfubransanum.
Feldberg lék jafnframt á þrennum tónleikum í London í lok apríl í tilefni þess að lagið ‘Dreamin’ af breiðskífu þeirra Don’t Be a Stranger er komið í alþjóðlega dreifingu gegnum plötuútgáfuna Kitsuné. Feldberg léku á jafnframt útgáfutónleikum fyrir safnplötuna Kitsuné Masion 9, sem inniheldur lagið, í byrjun maí mánaðar. Lagið, sem var valið lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2009, er væntanlegt á smáskífu síðar í ár.
Skemmtilegt plakat frá tónleikaferð Amiina um landið sumarið 2009, sem farin var í samvinnu við og með stuðningi Kraums, er komið í leitirnar á stafrænu formi. Ekki úr vegi að smella því á síðuna.
Frekari upplýsingar um tónleikaferðina má finna hér. Frekari upplýsingar um Innrás Kraums - stuðning við tónleikahald innanlands má finna hér. Fleiri plaköt frá viðburðum í tengslum við starfsemi Kraums má finna hér.
Hljómsveitin Seabear leikur vítt og breitt um Evrópu.
Hljómsveitin Seabear fylgir annarri breiðskífu sinni, We Built a Fire, með tónleikahaldi víða um Evrópu. Platan kemur út hjá Morr Music í Evrópu og Bandaríkjunum. Svetin spilaði nýlega á fjölmörgum tónleikum vestanhafs, m.a. á SxSW hátíðinni sem er ein stærsta tónlistarhátíð heims, við góðar viðtökur og dóma. Lag af We Built a Fire var nýlega notað í bandarísku sjónvarpsþáttunum Grey’s Anatomy.
Kraumur styður og vinnur með Seabear að kynningu We Built a Fire erlendis.
Seabear - Tónleikadagskrá
30/04/2010 - POSTEN - Odense (DK) - GET YOUR TICKETS
01/05/2010 - TEMPLET - Lyngby (DK) - GET YOUR TICKETS
03/05/2010 - MEJERIET CAFE - Lund (SE) - GET YOUR TICKETS
04/05/2010 - PUSTERVIKSBAREN - Gothenburg (SE) - GET YOUR TICKETS
05/05/2010 - DEBASSER SLUSSEN - Stockholm (SE) - GET YOUR TICKETS
06/05/2010 - VOXHALL - Aarhus (DK) - GET YOUR TICKETS
08/05/2010 - UNTERGRUND - Bochum (D) - GET YOUR TICKETS
09/05/2010 - GEBÄUDE 9 - Köln (D) - GET YOUR TICKETS
10/05/2010 - BITTERZOET - Amsterdam (NL) - GET YOUR TICKETS
11/05/2010 - CAFE VIDEO - Gent (B) - NO PRESALE
12/05/2010 - LE NUITS DE BOTANIQUE - Brussel (B) - GET YOUR TICKETS
13/05/2010 - ROEPAEN - Ottersum (NL) - GET YOUR TICKETS
14/05/2010 - EXIT07 - Luxembourg (LUX) - GET YOUR TICKETS
15/05/2010 - GREAT ESCAPE FESTIVAL - Brighton (UK) - GET YOUR TICKETS
16/05/2010 - BRUDENELL - Leeds (UK) - GET YOUR TICKETS
17/05/2010 - GARAGE - London (UK) - GET YOUR TICKETS
18/05/2010 - START THE BUS - Bristol (UK) - TBA.
19/05/2010 - SPANKY VAN DYKE’S - Nottingham (UK)
20/05/2010 - POINT EPHEMERE - Paris (F) - GET YOUR TICKETS
21/05/2010 - GRAND MIX - Tourcoing (F) - GET YOUR TICKETS
22/05/2010 - EKKO - Utrecht (NL) - GET YOUR TICKETS
12/08/2010 - HALDERN POP BAR - Haldern (D)
13/08/2010 - LES DOUX VENDREDIS D’AOUT - Namur (B)
14/08/2010 - DOCKVILLE FESTIVAL - Hamburg (D) - GET YOUR TICKETS
15/08/2010 - SOMMERSCEN - Malmö (SE)
11/09/2010 - BERLIN FESTIVAL - Berlin (D)