Posts Tagged ‘Trúbatrix’

Tónlistarkonur leggja land undir fót

Wednesday, August 18th, 2010
Vikulöng tónleikaferð Trúbatrix og Kraums kynnir til leiks ungar og upprennandi tónlistarkonur auk - auk stærri nafna á borð við Láru (mynd).

Trúbatrix og Kraumur skipuleggja tónleikaferð tónlistarkvenna um Ísland. Tónleikaferðin hefst fimmtudaginn 19. ágúst, í Keflavík og lýkur á Hornafirði viku síðar. Tónleikaferðin er liður í Innrásinni sem er verkefni Kraums til stuðnings tónleikahaldi innanlands og miðar að því að gefa tónlistarmönnum og hljómsveitum færi á að kynna sig og tónlist sína sem víðast með tónleikahaldi - og efla tónlistarlífið á landsbyggðinni.

Trúbatrix, félagskapur tónlistarkvenna sem m.a. hefur staðið að útgáfu og tónleikahaldi, er kominn aftur á kreik á ný eftir velheppnaðan tónleikaferð í vor til Bretlands og er nú að setja í gírinn fyrir tónleikaferð um Ísland í ágúst í samstarfi við Kraum tónlistarsjóð. Þetta er í annað sinn sem Trúbatrix og Kraumur leggja krafta sína saman og skipuleggja tónleikaferð um landið. Líkt og í síðustu tónleikaferð verður áherslan lögð á að kynna nýjar og efnilegar íslenskar tónlistarkonur til leiks, en nokkur ný bæjarfélög verða heimsótt.

Trúbatrix og Kraumur auglýstu fyrr í sumar eftir nýjum tónlistarkonum til að koma fram á tónleikaferðinni í ár og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Fjöldi stúlkna hafði samband og komust færri að en vildu. Munu að minnsta kosti tíu tónlistarkonur sem lítið sem ekkert hafa komið fram opinberlega stíga á stokk í ferðinni, ásamt reyndari og þekktari tónlistarkonum.

Tónleikaferðin hefst á morgun, fimmtudaginn 19. ágúst í Keflavík.

Trúbatrix og Kraumur - Tónleikaferð - Ágúst 2010

  • 19.ágúst, fimmtudagur - Keflavík, Paddy´s
  • 21. ágúst, laugardagur (menningarnótt) - Reykajvík, Kaffi Rósenberg
  • 24. ágúst, þriðjudagur - Eyrabakka,  Merkigils
  • 25. ágúst, miðvikudagur - Akranes, Gamla Kaupfélagið.
  • 26. ágúst, fimmtudagur - Höfn, Pakkhúsið


Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00

Aðgangur á alla tónleika er ókeypis, en gestir eru kvattir til að veita fráls framlög til að styrkja frekara starf Trúbatrix.

Fram koma:
Lára
Myrra Rós [mynd hér að ofan]
Halla Norðfjörð
Elín Ey

og…

Tíu nýjar ungar og upprennandi tónlistarkonur:
Þorgerður
Elínborg Harpa
Agnes Björt
Mamiko Dís
Guðrún Birna
Lilja Sigurðardóttir
Emma Ævars
Guðný Gígja
Bjartey
Soffía Björg


Frekari upplýsingar um nýja flytjendur :

Mamiko Dís
http://www.myspace.com/mamikodis
Mamiko Dís Ragnarsdóttir lauk B.A.-gráðu í tónsmíðum árið 2008 við Listaháskóla Íslands og hefur útskriftarverk hennar “Japönsk sálumessa” sem flutt var í Langholtskirkju hlotið frábærar viðtökur og hægt að heyra upptökuna á myspace-síðu hennar. Að auki hefur hún lokið framhaldsprófi í klassískum píanóleik.

Þorgerður
http://tobba.bandcamp.com/
Er 8 ára píanónám að baki og er frá Dalvík, með brennandi áhuga á öllu því sem tengist tónlist og byrjaði að semja vorið 2009. Helstu fyrirmyndirnar eru Joni Mitchell, Vilhjálmur Vilhjálmsson og Ellý Vilhjálms.

Ingunn Huld
Er grunnskólakennari og kennir tónlist og leiklist. Lærði á þverflautu í mörg ár og lærði síðar að glamra á píanó og gítar. Nemandi við Tónlistarskóla FÍH þar sem ég lærir jazzsöng.

Lilja Sigurðardóttir
www.myspace.com/liljaiceland,
www.youtube.com/liljasig
Er 24 ára, fædd og uppalin á Patreksfirði.  Á helling til af lögum, bæði á íslensku og ensku og er byrjuð að taka upp plötu. Auk þess að spila og syngja stundar hún í flugumferðarstjórn.

Elínborg Harpa
Spilar á gítar, er 17 ára og byrjaði að semja fyrir stuttu. Hlakkar til að koma tónlistinni minni á framfæri.

Emma Ævars
www.myspace.com/unknownemma
Emma Ævarsdóttir er 21 árs gömul, ættuð frá Suðureyri við Súgandafjörð en búsett í Kópavogi. Byrjaði að fikta á gítar 12 ára gömul.

Guðrún Birna
Guðrún Birna Jakobsdóttir, kölluð Gugga er 22 ára stelpa úr Reykjavík.

Agnes Björt
http://www.myspace.com/agnesbmusic

Soffía Björg
http://www.myspace.com/soffiabjorg

Leita að tónlistarkonum fyrir tónleikaferð

Tuesday, July 20th, 2010

Trúbatrix í samvinnu við Kraum leita af nýjum tónlistarkonum fyrir tónleikaferð um landið og nýja safnplötu sumarið 2010.

Trúbatrixur eru komnar á kreik á ný eftir velheppnaðan tónleikaferð í vor til Bretlands  og eru nú að setja í gírinn fyrir sumarið 2010.  Er stefnan tekin á að fara í tónleikaferð um landið í ágúst  í samvinnu við Kraum tónlistarsjóð og gefa út nýja safnplötu; Trúbatrix Taka 2 stuttu eftir það. Platan fylgir eins og nafnið gefur til kynna í kjölfar Taka 1 sem innihélt m.a. lög frá; Pascal Pinon, Fabúla, Jara, Uni, Mysterious Marta, Elízu Newman og Myrra {mynd].

Trúbatrixur eru nú að leita af og auglýsa eftir nýjum og spennandi íslenskum tónlistarkonum til að taka þátt í tónleikaferðinni og plötunni í sumar;

“Ef þið flytjið frumsamda tónlist og getið komið fram og flutt 3-4 lög á tónleikum  endilega vera í sambandi. Allmenningur er líka kvattur til að benda á efnilegar tónlistarkonur og því fjölbreyttari tónlist  því betra!

Tónlistarkonur geta sent tengil á vefsíðu eða mp3 með tóndæmi  á  :

trubatrix@gmail.com

og við verðum svo í sambandi !”

Hlekkir
Trúbatrix á MySpace
Trúbatrix á Facebook
Kraumur - Innrás

Kraumur kynnir stuðning við íslenskt tónlistarlíf

Friday, April 16th, 2010

Rúmum tíu milljónum var veitt til 22 verkefna á sviði íslenskrar tónlistar. Kraumur tónlistarsjóður kynnti á fimmtudag (15. apríl) fyrstu úthlutanir sínar og stuðning við íslenskt tónlistarlíf, tónlistarmenn og hljómsveitir fyrir árið 2010.

Tuttugu listamenn og hljómsveitir hljóta beinan stuðning frá Kraumi og samstarf við verkefni sín á árinu; Bang Gang, Bloodgroup, Bryndís Jakobsdóttir, Daníel Bjarnason, Einar Scheving, Feldberg, FM Belfast, Hafdís Bjarnadóttir, Kammerkórinn Carmina, K-tríó, Leaves, Mammút, Ourlives, Ólöf Arnalds, Retro Stefson, Samúel Jón Samúelsson Big Band, Seabear, Sólstafir, Trúbatrix hópurinn og Víkingur Heiðar Ólafsson. Kraumur mun jafnfram halda áfram með eigin verkefni; m.a. að styðja við íslenska plötuútgáfu verðlauna framúrskarandi árangur á því sviði með Kraumslistanum - sem og halda Hljóðverssmiðjur í sumar með ungum og upprennandi hljómsveitum og listamönum.

Samtals er nú verið að veita 10,8 milljónum til margvíslegra verkefna á sviði íslenskrar tónlistar. Alls bárust 208 umsóknir í nýliðnu umsóknarferli. Yfir 180 umsóknir hlutu ekki styrk eða stuðning Kraums, og ljóst að mikill fjöldi flottra og verðugra verkefna hlutu ekki stuðning að þessu sinni. Yfirlýst stefna sjóðsins er að styrkja tiltölulega fá verkefni/listamenn, en gera það þannig að stuðningurinn sé afgerandi.

Áhersla er lögð á kynningu á íslenskri tónlist og verkum íslenskra listamanna á erlendri grundu í stuðningi Kraums að þessu sinni - auk stuðning við starfsemi listamanna og hljómsveita hérlendis; allt frá vinnu við lagasmíðar og upptökur á eigin verkum, til námskeiða og tónleikahalds á landsbyggðinni.

Kynningin og úthlutunin fór fram fimmtudaginn 15. apríl á Kaffi Rósenberg, einum helsta tónleikastað Reykjavíkurborgar. Þórunn Sigurðardóttir stjórnarformaður Kraums bauð fólk velkomið og greindi jafnframt frá því að vegna anna væri hún að hætta í stjórninni, eftir að rúmlega tveggja ára farsælt starf fyrir sjóðinn og hafa átt stóran þátt í að koma honum á laggirnar og leggja línurnar í starfsemi hans.  Pétur Grétarsson varaformaður tók við stjónarformennskunni. Eldar Ástþórsson framkvæmdastjóri Kraums greindi frá verkefnum sjóðsins og úhlutunum. Loks tóku Retro Stefson og Feldberg lagið við góðar undirtektir viðstaddra.

KYNNING Á ÍSLENSKRI TÓNLIST Á ERLENDUM VETTVANGI
Stærstu samstarfsstyrkina að þessu sinni fá hljómsveitin FM Belfast, við tónleikahald og kynningu á verkum sínum erlendri gundu, og tónskáldið Daníel Bjarnason við eftirfylgni og kynningarstarf á breiðskífu sinni Processions á alþjóðvettvangi. Kraumur styður bæði verkefnin um 1.000.000 króna hvort. Kraumur efnir sömuleiðis til samstarfs og stuðnings við Feldberg, Mammút, Ourlives, Ólöf Arnalds, Seabear, Samúel Jón Samúelsson Big Band og Sólstafir við að koma sér og verkum sínum á framfæri erlendis.

Daníel Bjarnason er klassískt tónskáld sem verið hefur iðinn við að brjóta niður þá múra sem tengjast slíkri nafnbót. Það má segja að Daníel sé að sumu leyti að feta nýja slóð fyrir klassísk tónskáld á okkar tímum og koma klassískri tónlist til breiðari hóps áheyranda. Procession er þegar farin að fá góða dóma og viðtökur á alþjóðavettvangi og með frekari kynningu og tónleikahaldi nær hún vonandi eyrum enn fleiri.

Hljómsveitin FM Belfast er á öðrum enda tónlistarlitrófsins, leikur dans- og popptónlist, og hefur vaxið gríðarlega sem tónleikasveit síðan hún kom fyrst fram á Iceland Airwaves hátíðinni árið 2006. Sveitin gerði og gaf út sína fyrstu breiðskífu, How to Make Friends, með stuðningi Kraums árið 2008 og síðan hefur orðspor sveitarinnar farið langt út fyrir landsteinana. Árið 2010 ætlar sveitin að leggja áherslu á útlönd og mun sveitin m.a. koma fram á tónlistarhátíðum og bransasamkomum víð um Evrópu, m.a. Hróaskeldu og SPOT.

Íslenskir listamenn hafa í áraraðir unnið gríðarlega mikilvægt starf við að kynna Ísland og íslenska menningu á erlendri grundu. Markaðir í Skandinavíu, annarstaðar í Evrópu og Bandaríkjunum eru mikilvægir íslenskum listamönnum við að skapa sér tekjur af verkum sínum og þar eru margvísleg sóknarfæri fyrir íslenska listamenn. Kraumur vill hlúa að og styðja við útrás íslenskra listamanna og hljómsveita - og vonar að stuðningurinn nýtist þessum listamönnum til að koma sér og sínum afurðum enn frekar á framfæri, skapi þeim aukin tækifæri - sem og íslenska tónlist almennt - á erlendum vettvangi.

PLÖTUGERÐ OG INNLEND VERKEFNI
Kraumur heldur áfram að styðja við verkefni listamanna og hljómsveita hérlendis við að lagasmíðar, upptökur og við að útgáfu á verkum sínum. Kraumur efnir til samstarfs og stuðnings við Bang Gang, Bryndísi Jakobsdóttir, Einar Scheving, Hafdísi Bjarnadóttir, Leaves, Retro Stefson og Víking Heiðar Ólafsson við verkefni sín á sviði lagasmíða, vinnu, útgáfu og/eða kynningu á eigin verkum. Allir þessir listamenn stefna á að gefa út nýjar breiðskífur á árinu.

Kraumur heldur Innrásinni - stuðningi sínum við tónleikahald innanlands - áfram á árinu. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni. Fjölmargir listamenn og hljómsveitir hafa lagt land undir fót og haldið tónleika víðsvegar um landið síðustu tvö ár undir merkjum Innrásarinnar og má þar nefna tónleika; Amiina, Árstíðir, Benni Hemm Hemm, Dr. Spock, Elfa Rún Kristinsdóttir, Melkorka Ólafsdóttir, Momentum, Muck, Nögl, Reykjavík!, Sign, Skátar, Sudden Weathar Change, Svavar Knúts Kristinssonar og fjölda annarra.

Innrás Kraums mun styðja við tónleika og tónleikaferð Kammerkórsins Carmina, K-tríó, Trúbatrix hópsins (Myrra Rós Þrastardóttir, Miss Mount, Elín Ey, Elíza, Pascal Pinon, Mysterious Marta og fjöldi annara tónlistarkvenna) og Bloodgroup í Reykjavík og á landsbyggðinni. Blodgroup mun sömuleiðis standa fyrir tónleikum í Færeyjum með stuðningi Kraums. Tími til komin að þakka Færeyjingum fyrir hjálpina með því að færa þeim frábæra tónlist frá Íslandi.

KRAUMSLISTINN OG STARFSEMIN 2010
Kraumur hefur það sem af er þessu ári staðið fyrir námskeiði og opinni ráðstefnu fyrir tónlistarmenn og tónlistaráhugamenn á og í samvinnu við Aldrei fór ég suður, staðið fyrir Leit að ungum tónskáldum í samstarfi við Við djúpið og Rás 1 og sem einn samstarfsaðila Músíktilrauna í mars valið þrjár hljómsveitir til þátttöku í Hljóðverssmiðjum Kraums - þar sem ungum og upprennandi hljómsveitir fá fræðslu, handleiðslu og aðstöðu til að taka upp eigð efni með aðstoð fagmanna.

Kraumur hefur sömuleiðis keypt (100 stk af hverjum titli) og kynnt þær sex hljómplötur sem hlutu viðurkenningu Kraumslistans 2009 (áður Kraumsverðlaun) - meðal annars með útsendingum á tónleikahaldara, plötuútgáfur og tengiliði erlendis. Plöturnar eru; Anna Guðný Guðmundsdóttir - Vingt regards sur l’enfant-Jésus, Bloodgroup - Dry Land, Helgi Hrafn Jónsson - For the Rest of my Childhood, Hildur Guðnadóttir - Without Sinking, Hjaltalin - Terminal og Morðingjarnir - Flóttinn mikli. Kraumslistinn 2010 verður kynntur í desember í ár og mun Kraumur veita þeim plötum sem hljóta viðurkenningu samskonar stuðning.

KRAUMUR OG NÚVERANDI ÚTHLUTUN
Kraumur er sjálfstætt starfandi sjóður og starfsemi á vegum Auroru velgerðarsjóðs sem hefur það að meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmiðið er að styrkja stöðu ungra tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, faglegri aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi. Starfsemin, og stuðningurinn við listamenn og hljómsveitir, samanstendur því af bæði fjárhagslegum stuðning sem og faglegri aðstoð, aðgang að tengslaneti og hjálp við að koma verkum sínum og verkefnum í framkvæmd.

Kraumur tónlistarsjóður er á sínu þriðja starfsári, en starfsemin var sett á laggirnar í upphafi árs 2008. Á síðastliðnum 2 árum hefur Kraumur unnið með og stutt fjölda listamanna og hljómsveita með ýmsum hætti. Má þar nefna; Amiina, Benny Crespo’s Gang, Bloodgroup, Dikta, Dr. Spock, Celestine, Elfa Rún Kristinsdóttir, FM Belfast, For a Minor Refleciton, Helgi Valur, Hjaltalín, Lay Low, Melkorka Ólafsdóttir, Mugison, Morðingjarnir, Momentum, Mógil, Nordic Affect, Njútón, Nögl, Ólöf Arnalds, Ólafur Arnalds, Reykjavík!, Seabear, Sin Fang Bous, Sign, Skakkamanage, Skátar, Sudden Weather Change, Svavar Knútur, Sykur, Trúbatrix, Víkingur Heiðar Ólafsson og fjölmargir fleiri.

Kraumur kynnir að þessu stuðning alfarið ný samstarfsverkefni við listamenn, ef frá er talin stuðningur við FM Belfast og Ólöfu Arnalds - en Kraumur hefur áður stutt við plötugerð viðkomandi listamanna og tekur nú þátt í kynningu á verkum þeirra á erlendum vettvangi. Trúbatrix hópurinn fékk stuðning í fyrra við tónleikahald og Bloodgroup hlaut árið 2008 stuðning við tónleikahald ásamt fleiri hljómsveitum. Kraumur telur mikilvægt að fá inn ný verkefni - en jafnframt að vinna áfram með hluta þeirra listamanna sem hlotið hafa stuðning að verkum þeirra og stefnir á að gera það áfram.

Alls bárust 208 umsóknir í umsóknarferli sjóðsins sem nú er nýliðið. Yfir 180 umsóknir hlutu ekki styrk eða stuðning Kraums, og er ljóst að mikill fjöldi flottra og verðugra verkefna hlutu ekki stuðning að þessu sinni. Stjórn Kraums er hins vegar ánægð með þann stuðning og þau flottu verkefni sem tilkynnt er um nú sem sjóðurinn mun standa með og á bakvið. Yfirlýst stefna sjóðsins er að styrkja tiltölulega fá verkefni/listamenn, en gera það þannig að stuðningurinn sé afgerandi.

—————————————————————————————————————————————————
—————————————————————————————————————————————————

YFIRLIT

ÚTRÁS
Stuðningur og samstarf við listamenn og hljómsveitir við að koma sér og verkum sínum á framfæri á erlendum vettvangi.

ÚTRÁS stuðningur & samstarf við listamenn og hljómsveitir
Daníel Bjarnason Kynningarstarfsemi og tónleikar í Evrópu og USA 1.000.000 kr.
FM Belfast Kynning og tónleikar í Skandinavíu og Evrópu 1.000.000 kr.
Feldberg Útgáfa og kynning, tónleikar Great Escape & víðar 400.000 kr.
Mammút Tónleikaferð og kynning í Þýskalandi 400.000 kr.
Ourlives Kynningartónleikar og vinna í Bretlandi 400.000 kr.
Ólöf Arnalds Tónleikar & kynning í tengslum við nýja breiðskifu 400.000 kr.
Sammi & Big Band Tónleikar á hátíðum og í Evrópu sumarið 2010 400.000 kr.
Seabear Tónleikaferðir og kynning í Evrópu og USA 400.000 kr.
Sólstafir Átta tónlistarhátíðir í Evrópu (Wacken,Tuska o.fl.) 400.000 kr.
SAMTALS 4.800.000 kr.

INNRÁS
Stuðningur og samstarf við listamenn og hljómsveitir við tónleikahald innanlands.

INNRÁS stuðningur & samstarf við listamenn og hljómsveitir
Kammerkórinn Carmina Tónleikaferð um Ísland í September 2010 600.000 kr.
Bloodgroup Tónleikar innanlands + í Færeyum 300.000 kr.
Trúbatrix hópur Tónleikar & kynning á nýrri safnplötu; Taka 2 300.000 kr.
K-Tríó Tónleikaferð um Ísland, kynning á nýrri plötu 200.000 kr.
SAMTALS 1.400.000 kr.

PLÖTUGERÐ OG INNLEND VERKEFNI
Stuðningur og samstarf við listamenn og hljómsveitir á sviði lagasmíða, plötugerðar og kynningar.

VERKEFNI stuðningur við sérstök verkefni listamanna og hljómsveita
Bang Gang Hljóðfæraleikur og vinnsla nýrrar breiðskífu 400.000 kr.
Bryndís Jakobsdóttir Hljóðfæraleikur og vinnsla nýrrar breiðskífu 400.000 kr.
Einar Scheving Hljóðfæraleikur og vinnsla nýrrar breiðskífu 400.000 kr.
Hafdís Bjarnadóttir Íslandshljóð: Hljóðritun náttúru og eigin verka 400.000 kr.
Leaves Hljóðfæraleikur og vinnsla nýrrar breiðskífu 400.000 kr.
Retro Stefson Vinnsla nýrrar breiðskífu og kynningarstarf 400.000 kr.
Víkingur Heiðar Ólafsson Hljóðfæraleikur og vinnsla nýrrar breiðskífu 400.000 kr.
SAMTALS 2.800.000 kr.

EIGIN VERKEFNI KRAUMS
Eigin verkefni og samstarfsverkefni Kraums tónlistarsjóðs.

EIGIN VERKEFNI eigin verkefni Kraums og samstarfsverkefni
Kraumsverðlaunin 2010 Stuðningur & viðurkenning við ísl. plötuútgáfu 900.000 kr.
Hljóðverssmiðjur 2010 Fræðsla, handleiðsla & uppt. upprennandi listam. 900.000 kr.
Námskeið og ráðstefna Fræðsla opin öllum, á Aldrei fór ég suður 500.000 kr.
Leitin að ungum tónskáldum Samstarf við Við Djúpið og Rás 1 400.000 kr.
SAMTALS 2.700.000 kr.

—————————————————————————————————————————————————
—————————————————————————————————————————————————

Trúbatrixur á hringferð um landið

Tuesday, June 2nd, 2009

Trúbatrixur fagna grósku íslenskra tónlistarkvenna með safndisk og tónleikaferð um landið - í samstarfi við Innrásarverkefni Kraums og Rás 2.

Tónleikaferð Trúbatrix hópsins um Ísland hefst í kvöld, miðvikudaginn 2. júní, á Kaffi Rósenberg í Reykjavík. Tónleikarnir eru jafnframt útgáfutónleikar safndisksins Taka 1 sem inniheldur 15 frumsamin lög eftir íslenskar tónlistarkonur.

Diskurinn er afar fjölbreyttur og inniheldur ný lög frá þekktari söngkonum á borð við Fabúlu, Elízu Geirsdóttir Newman og Þórunni Antóníu ásamt upprennandi stjörnum á borð við Elínu Ey, Mysterious Marta og stúlknasveitinni Pascal Pinon. Taka 1 er alfarið heima unninn á Íslandi og sjá trixurnar sjálfar um að skreyta og brenna diska . Smekkleysa sér um dreifingu disksins, sem fæst í öllum helstu plötuverslunum - og verður til sölu á hringferð Trúbatrix um landið.

Trúbatrix er nýtt tengslanet og tónlistarhópur sem samanstendur af ungum tónlistarkonum sem flytja frumsamda tónlist.

Innrásin er átak Kraums til stuðnings tónleikahalds á landsbyggðinni. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

Trúbatrix á hringferð um landið:
Þriðjudagur 2. júní, kl. 20.00 - Trúbatrix Album Launch @ Café Rósenberg, Reykjavík
Miðvikudagur 3. júní, kl. 20.00 - Kaffi 59, Grundarfjörður
Fimmtudagur 4. júní, kl. 20.00 - Græni Hatturinn,Akureyri
Föstudagur 5. júní, kl. 20.00 - Kaffi Sæli, Tálknafjörður
Laugardagur 6. júní, kl. 20.00 - Edinborg, Ísafjörður
Fimmtudagur 11. júní, kl. 20.00 -  Draugasetrið, Stokkseyri
Föstudagur 12. júní, kl. 20.00 - Pakkhúsið, Höfn í Hornafirði
Laugardagur 13. júní, kl. 20.00 - Hótel Aldan, Seyðisfjörður

Þær sem eiga lög á Taka 2:
Miss Mount
Elín Ey
Mysterious Marta
Elíza Newman
Þórunn Antónía
Áslaug Helga
Fabúla
Jara
Pascal Pinon
Heiða Dóra
Joanne Kearney
Uni
Beta
Gunna Lára
Songbird
Lydía
Sigga Eyþórs

Hlekkir:

Úthlutanir og stuðningur við íslenskt tónlistarlíf

Thursday, April 2nd, 2009

Kraumur tónlistarsjóður kynnti í dag á Boston, Laugavegi, fyrstu úthlutanir sínar og stuðning við íslenskt tónlistarlíf, tónlistarmenn og hljómsveitir árið 2009.

Áhersla er lögð á innlend verkefni og starfsemi listamanna og hljómsveita hérlendis í stuðningi Kraums í ár, allt frá plötugerð til námskeiða- og tónleikahalds á landsbyggðinni.

Meðal þeirra listamanna sem Kraumur mun styðja og vinna með á árinu eru Hjaltalín, Lay Low, Sindri Már Sigfússon (Sin Fang Bous / Seabear), Ólafur Arnalds, Ólöf Arnalds, Mógil, For a Minor Reflection og Nordic Affect.

Kraumur mun jafnframt styðja við tónleika fjölda ungra listamanna á Stofutónleikum Listahátíðar í Reykjavík, námskeið og vinnusmiðjur á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði, Tónlistarhátíð unga fólksins í Kópavogi og Reykjavik Jazz Performance vinnusmiðjur fyrir unga og upprennandi listamenn.

Kraumur mun  standa fyrir Hljóðverssmiðjum í Tankinum á Flateyri með verðlaunasveitum Músíktilrauna 2009 og þátttöku reyndari tónlistarmanna. Innrásin, átak Kraums til stuðnings tónleikahaldi á landsbyggðinni, heldur áfram af fullum krafti á árinu og að þessu sinni er kynntur stuðningur við hljómsveitirnar; Sudden Weather Change, Árstíðir, Nögl, Molestin o.fl. í tengslum við Innrásina, sem m.a. munu koma fram á tónlistarhátíðunum Eistnaflugi á Neskaupsstað og Lunga á Egilsstöðum.

Kraumur mun jafnframt styðja við Trúbatrix, nýtt tengslanet og tónlistarhóp sem samanstendur af íslenskum tónlistarkonum sem flytja frumsamda Íslenska tónlist, til tónleikahalds innanlands.

Alls hefur tæpum 11 milljónum nú verið úthlutað í beinan stuðing til listamanna og hljómsveita, eigin verkefna Kraums og samstarfsverkefna sjóðsins.

YFIRLIT ÚTHUTANA OG VERKEFNA

Samstarf og beinn stuðningur  við listamenn (4.700.000 kr)

  • Hjaltalín (Plötugerð, tónleikahald & önnur starfsemi) 1.200.000 kr
  • Nordic Affect (Plötugerð) 500.000 kr
  • Sindri Már Sigfússon / Sin Fang Bous (Plötugerð) 500.000 kr
  • Ólöf Arnalds (Plötugerð) 500.000 kr
  • Ólafur Arnald (Plötugerð) 500.000 kr
  • For a Minor Reflection (Plötugerð) 500.000 kr
  • Lay Low (Tónleikahald og kynning erlendis) 500.000 kr
  • Mógil (Tónleikahald innanlands (Innrás) og á WOMEX) 500.000 kr

Samstarfsverkefni (1.800.000 kr)

  • Stuðningur við tónleika ungra listamanna á Listahátíð í Reykjavík (Stofutónleikar) 1.000.000 kr
  • Tónlistarhátíð unga fólksins 400.000 kr
  • Reykjavik Jazz Performance Workshop 400.000  kr

Innrásin (1.600.000 kr)

Átak Kraums til stuðnings tónleikahalds á landsbyggðinni. Markmið Innrásarinnar er að auka við möguleika listamanna og hljómsveita til tónleikahalds, gefa þeim færi á að koma sér og tónlist sinni á framfæri víðar en á höfuðborgarsvæðinu og efla tónlistarlíf á landsbyggðinni.

  • Árstíðir, Svavar Knútur & Helgi Valur (Rás 2 plokkar hringinn) 400.000 kr
  • Trúbatrix (ýmsir listamenn) 400.000 kr
  • Sudden Weather Change, Retro Stefson o.fl. (Sumargleði, Lunga) - 400.000 kr
  • Nögl og hljómsveitir á þeim stöðum heimsóttir eru - 200.000 kir
  • Momentum og fleiri hljómsveitir Molestin Records á Eistnaflugi - 200.000 kr

Eigin verkefni Kraums (2.700.000 kr)

  • Kraumsverðlaunin (stuðningur við plötuútgáfu)  1.200.000 kr
  • Hljóðverssmiðjur Kraums og Tanksins (þremur verðlaunahöfum Músíktilrauna 2009 tryggt pláss) 1.000.000 kr
  • Námskeiðahald og vinnusmiðjur á Aldrei fór ég suður 500.000 kr

>> Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að lesa meira um fyrstu úthlutanir og stuðning Kraums við íslenskt tónlistarlíf 2009.

(more…)