Posts Tagged ‘Útrás’

Video Podcast um íslenska tónlist

Sunday, October 12th, 2008

Fyrir tilstuðlan Kraums er ástralski New York búinn Stuart Rogers kominn hingað til lands til að gera íslensku tónlistarlífi og tónlistarmönnum skil í máli og myndum. Hann fylgdi tónleikaferð hljómsveitanna Skáta, Bloodgroup, Sykurs og Dlx Atx - ‘Elskumst í efnhagsrústunum’ - eftir um allt um allt land í síðustu viku. Auk þess hefur hann tekið fjölda viðtala, heimsótt hljómsveitir í æfingahúsnæði og stúdíó listamanna og er að taka upp efni á Iceland Airwaves hátíðinni.

Auk Kraums styður skrifstofa Ferðamálaráðs í Bandaríkjunum við komu Stuart hingað til lands. Stuart Rogers er víðfrægur fyrir Podcast video þætti sína um íslenska tónlistarmenn og tónlistarlíf, sem hlotið hefur mikla athygli á Youtube og hans eigin ’sjónvarpsstöð’ Lo Fi TV - en þar má þegar sjá hluta af því efni sem gert hefur verið síðustu daga; http://www.lofi.tv/

Glæsilegir útitónleikar Bjarkar og Sigur Rós

Tuesday, July 1st, 2008

Glæsilegir útitónleikar með yfirskriftinni Náttúra voru haldnir við gömlu þvottalaugarnar í Laugardalnum síðastliðinn laugardag, 28.  júní, þar sem að Björk, SigurRós, Ólöf Arnalds og Ghosdigital komu fram. Tónleikarnir tókust framar vonum og almenn gleði og góður andi ríkti hjá áhorfendum að þeim loknum.

Aurora velgerðasjóður og Kraumur voru meðal þeirra sem styrktu þessa tónleika, þar sem öllum var heimill aðgangur án endurgjalds og þegar hæst stóð voru um 30 þúsund manns í brekkunni við þvottalaugarnar.

Þessi staðsetning var einkar vel til fundinn og Þvottabrekkan hefur sannað sig sem tónleikastaður, falleg staðsetning, miðsvæðis og tréin sem umkringja svæðið gera það að verkum að það er meira log en á mörgum öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.

Tónleikarnir hófust kl. 17:00 og margir tónleikagestanna gerðu sér glaðan dag,  mættu vel búnir með börn og buru, teppi og nesti, nutu veðurblíðunnar og fallegra tóna fram eftir kvöldi.

Tónleikarnir voru einnig sýndir beint á netinu, þar sem að 2,5 milljónir manna fylgdust með.

Heimasíða: www.nattura.info

Mugison kynningartónleikar í London

Tuesday, May 27th, 2008

Eftir vel heppnað tónleikaferð með bandarísku rokksveitinni Queens of the Stone Age um Kanada stóð Mugison fyrir kynningartónleikum á Corsica Studios í London þann 22. maí. Tilefnið var kynning á áframhaldandi tónleikahaldi Mugison og hljómsveitar hans í sumar víðsvegar um Bretland og Evrópu - sem og útgáfa nýjustu breiðskífu Mugsion, Mugiboogie, á alþjóðavettvangi.

Tónleikadagskrá kvöldsins samanstóð að mestu af lögum af Mugiboogie. Sérstakir tónleikar voru fyrir blaðamenn og starfsmenn tónlistarbransans klukkan 19:30, þar sem sem Mugsion var sjálfur mættur á gólfið strax eftir tónleikana við mikinn fögnuð viðstaddra og hóf að dreifa plötunni til gesta. Síðar um kvöldið fóru fram aðrir tónleikar sem opnir voru almenningi.

Góð mæting var á báða tónleika Mugison þetta kvöldið og greinilegt að áhugi er á tónlist hans í London, einu helsta vígi tónlistarbransans. Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) og íslenska sendiráðið í London komu að skipulagningu tónleikana og greinilegt að þeirra vinna við að fá þangað blaðamenn og bransafólk skilaði árangri.

Mugison mun á næstu vikum koma fram á tónleikum víða í Evrópu, m.a. í Frakklandi, Þýskalandi, Sviss, Hollandi, Belgíu, Tékklandi, Englandi, Írlandi og Danmörku - þar sem hann kemur fram á Hróaskelduhátíðinni víðfrægu. Mugison leikur síðan aftur í London á Corsica Studios 9. júlí.

Hljómsveit Mugison skipa auk hans sjálfs þeir; Arnar Gíslason (trommur), Guðni Finnson (bassi), Davíð Þór (hljómborð) og Pétur Ben (gítar).

Kraumur vinnur með Mugison að kynningu hans á Mugiboogie á erlendum vettvangi - og styður tónleikaferðir hans og hljómsveitar hans um Norður-Ameríku og Evrópu.

Hlekkur: www.mugison.com
- Á síðunni má finna fréttir, myndir, Youtube myndbönd og fleira frá tónleikaferð Mugison. Þar má jafnframt kaupa allar geislaplötur Mugison til þessa sem niðurhal og geisladisk.