Nýr þáttur Sleepless in Reykjavik kominn á netið með viðtölum og umfjöllun um starfsemi Kraums.
Þriðji þáttur vefþáttarins Sleepless in Reykjavik, sem sérhæfir sig í umfjöllun um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarlíf, er komið á netið. Meðal efnis í þættinum er umfjöllun um starfsemi Kraums og viðtal við Eldar Ástþórsson, framkvæmdastjóra Kraums, og Elízu Geirsdóttir Newman, sem fer fyrir Trúbatrix hópnum, og var stödd á skrifstofu Kraums þegar liðsmenn SIR bar að garði.
Sleepless in Reykjavik hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir flotta þætti sína, en hver þáttur er um 15 mínutur að lengd. Viðtalið og umfjöllunin um Kraum hefst á mínútu 05.35 en þátturinn hefst á umfjöllun um myndbandagerð hljómsveitarinnar Ourlives og endar á tónleikaferð Árstíða um Vestfirði. Meðal efnis í fyrstu þrem SIR þáttunum hefur verið;
Ólafur Arnalds, viðtal (þáttur #1)
Kynning á Sleepless in Reykjavik (þáttur #1)
Heimsókn til gogoyoko.com (þáttur #1)
Viðtal við Reykjavík! (þáttur #2)
Heimsókn á æfingu Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveitar Íslands (þáttur #2)
Stuttmynd Stuart Rogers um Kraumslistann 2008. Myndin birtist á myndbandavef SPIN Magazine sem og á video hluta Kraums á LoFi.tv.
Meðal þeirra sem koma fram í myndbandinu sem eru; hljómsveitirnar Agent Fresco, FM Beflast, Mammút, Retro Stefson, Árni Rúnar Hlöðversson (FM Belfast), Katrína Mogensen og Arnar Pétursson (Mammút), Daníel Bjarnason (Ísafold), Unnsteinn Stefánsson (Retro Stefson), Eldar Ástþórsson (framkvæmdastjóri Kraums), Árni Mattíasson (blaðamaður á Morgunblaðinu og formaður dómnefndar Kraumsverðlaunanna), Halla Steinunn Stefánsdóttir (þáttagerðarmaður á Rás 1 og dómnefndarliði Kraumsverðlaunanna) og Ólafur Páll Gunnarsson (tónlistarstjóri Rásar 2 og dómnefndarliði Kraumsverðlaunanna).
Myndbandið er rúmlega 13 mínútur að lengd og má finna hér:
Hljómsveitin Mógil og söngkonan Heiða Árnadóttir á WOMEX hátíðinni í Kaupmannahöfn.
Hljómsveitin Mógil lék á stærstu heims- og þjóðlagahátíð heims, WOMEX, sem fram fór í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði. Mógil kom fram á hátíðinni með stuðningi Kraums tónlistarsjóðs og í samstarfi við Kraum og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN / IMX) sem kom sveitinni að í dagskrá hátíðarinnar.
Tónleikarnir Mógil, sem fóru fram laugardaginn 31. október, tókust mjög vel og voru vel sóttir og hafa opnað fyrir bókanir á fleiri tónlistarhátíðir í ár. Hér fyrir ofan má sjá myndband frá tónleikunum.
Heiða Árnadóttir söngkona Mógil söng jafnframt eitt af lögum Mógil á opnunartónleikum WOMEX, svökölluðu “Nordic Nights” kvöldi. Tónleikunum var útvarpað beint á öllum Norðurlöndum og var Rás 2 með beina útsendingu hérlendis.
“WOMEX tónleikarnir í Kaupmannahöfn voru frábærir og okkur tókst vel upp á laugardagskvöldinu. Við í Mógil vorum mjög ánægð og fengum frábærar viðtökur. Þarna hittum við allskonar tónlistarmenn frá ýmsum heimshornum og mynduðum skemmtileg tengsl. Nú þegar höfum við verið pöntuð á tónlistarhátíðir í Hollandi, Ítalíu og Englandi fyrir næsta sumar. Fyrir okkur var þetta því einstakt tækifæri til þess að kynna tónlistina okkar í Mógil.” - Heiða Árnadóttir, Mógil
Vikuna fyrir tónleika sína á WOMEX hélt Mógíl nokkra tónleika í Hollandi og Belgíu til að hita upp fyrir tónleika sína á hátíðinni. Þeir tónleikar voru ekki aðeins góð upphitun heldur einnig kynning fyrir hljómsveitina og plötu hennar ‘Ró’ í þessum löndum.
Hljómsveitirnar Momentum, Muck, Ask the Slave, Skítur, Myra, Plastic Gods og Celestine leika á tónlistarhátíðinni Eistnaflug á Neskaupsstað 9.-12. júlí með stuðningi Kraums.
Eistnaflug Rokkfestival í Egilsbúð, Neskaupsstað, er ein af þeim tónlistarhátíðum sem sprottið hafa upp á landsbyggðinni á síðustu árum og náð að festa sig í sessa sem einn af skemmtilegustu tónlistarviðburðum ársins. Hátíðin er tileinkuð þyngri tegund rokktónlistar og var fyrst haldin árið 2005.
Molestin félagskapurinn og plötuútgáfan er með sérstakt kvöld á hátíðinni fimmtudaginn 9. júlí þar sem koma hljómsveitirnar Momentum, Muck, Ask the Slave, Skítur, Myra, Plastic Gods og Celestine. Tónleikarnir verða teknir upp og stendur til að gefa þá út á DVD, til kynningar á hljómsveitunum.
Innrásar-átak Kraums styður við tónleika þessara hljómsveita og upptökur á kvöldinu.
Stuttmynd Stuart Rogers um Kraumsverðlaunin 2008 birt nýjum video-vef SPIN Magazine.
Myndband Stuart Rogers um Kraumsverðlaunin 2008 og afhendingu verðlaunanna í fyrra var nýverið birt á nýjum video-vef bandaríska tímaritsins SPIN Magazine sem kallast SPIN Earth.
Meðal þeirra sem koma fram í myndbandinu sem eru; hljómsveitirnar Agent Fresco, FM Beflast, Mammút, Retro Stefson, Árni Rúnar Hlöðversson (FM Belfast), Katrína Mogensen og Arnar Pétursson (Mammút), Daníel Bjarnason (Ísafold), Unnsteinn Stefánsson (Retro Stefson), Eldar Ástþórsson (framkvæmdastjóri Kraums), Árni Mattíasson (blaðamaður á Morgunblaðinu og formaður dómnefndar Kraumsverðlaunanna), Halla Steinunn Stefánsdóttir (þáttagerðarmaður á Rás 1 og dómnefndarliði Kraumsverðlaunanna) og Ólafur Páll Gunnarsson (tónlistarstjóri Rásar 2 og dómnefndarliði Kraumsverðlaunanna).
Myndbandið er rúmlega 13 mínútur að lengd og má finna hér:
Stuart Rogers kom hingað til lands í tvígang á síðasta ári á vegum Kraums til að gera íslensku tónlistarlífi og tónlistarmönnum skil í máli og myndum.
Í október fylgdist hann með Innrásar-tónleikaferð hljómsveitanna Skáta, Bloodgroup, Sykurs og Dlx Atx (’Elskumst í efnhagsrústunum’) og er hægt að horfa á afraksturinn á sérstöku svæði Kraums á LoFi.tv. Stuart er víðfrægur fyrir Podcast video þætti sína um íslenska tónlistarmenn og tónlistarlíf, sem hlotið hefur mikla athygli á Youtube, Vimeo og Facebook og og LoFi.TV. Auk Kraums hefur skrifstofa Ferðamálaráðs í Bandaríkjunum stutt við þáttagerð Stuart Rogers.
Kraumsverðlaunin 2008. Nýtt myndband Stuart Rogers um verðlaunin og Kraum komið á Kraumur TV @ LoFi.TV.Horfa má á myndbandið hér að neðan, einnig á Facebook og það er til niðurhals hér.
Meðal þeirra sem koma fram í myndbandinu eru; Agent Fresco, FM Beflast, Mammút, Retro Stefson, Árni Rúnar Hlöðversson (FM Belfast), Katrína Mogensen og Arnar Pétursson (Mammút), Daníel Bjarnason (Ísafold), Unnsteinn Stefánsson (Retro Stefson), Eldar Ástþórsson (framkvæmdastjóri Kraums), Árni Mattíasson (blaðamaður á Morgunblaðinu og formaður dómnefndar Kraumsverðlaunanna), Halla Steinunn Stefánsdóttir (þáttagerðarmaður á Rás 1 og meðlimur dómnefndar Kraumsverðlaunanna) og Ólafur Páll Gunnarsson (tónlistarstjóri Rásar 2 og meðlimur dómnefndar Kraumsverðlaunanna).
Smiðjustígur All-Star Jam með meðlimum múm, FM Belfast, Borko, Seabear, Skakkamanage, Arnljótur og vinir, Agent Fresco og Retro Stefson…
Myndband ástralska New York búans Stuart Rogers sem sýnir eftirköst verðlaunaafhendingar Kraumsverðlaunanna föstudaginn 28. nóvember. Eftirpartýið. Allsherjar ófyrirsjáanlegt ‘Jam Session’ þar sem meðlimir FM Belfast, múm, Borko, Agent Fresco og fleiri sameina krafta sína.