Um Kraum
Kraumur, -s K ; kjarni, mergur (íslensk orðabók)
Kraumur er sjálfstæður sjóður og starfsemi á vegum Auroru velgerðasjóðs.
Kraumur hefur það meginhlutverk að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan. Markmiðið er að styrkja stöðu ungra tónlistarmanna á Íslandi með beinum styrkjum, faglegri aðstoð og samstarfi af ýmsu tagi.
Ætlunin er að Kraumur styrki tiltölulega fá verkefni/listamenn en geri það þannig að stuðningurinn sé afgerandi. Hvert verkefni skal í upphafi skilgreint í tilheyrandi samningi með fjárhags- og tímaáætlun. Framkvæmdastjóri Kraums er listamönnum til halds og trausts og annast tengsl sjóðsins við samstarfsaðila og fylgir því eftir að markmiðum samstarfs og stuðnings sé náð.
Stofnendur líta á Kraum - tónlistarsjóð sem þriggja ára tilraunaverkefni sem ljúki í lok árs 2010 nema stjórn Auroru velgerðasjóðs ákveði annað.
Í rökstuðningi sjóðsstjórnar Auroru segir:
„Íslenskt tónlistarlíf er sérstakt um margt, einkum vegna áberandi krafts og áræðis sem einkennir tónlistarfólk af yngri kynslóðinni. Sykurmolarnir og Björk ruddu braut í tónlistarútrás sem á sér enga hliðstæðu. Fjöldamargir tónlistarmenn fetuðu í fótspor þeirra með undraverðum árangri og nú er tónlistarlíf á Íslandi orðinn einn sterkasti þátturinn í ímynd lands og þjóðar út á við. Óvenjulegt samspil dægurtónlistar og sígildrar tónlistar getur orðið drifkraftur frekari landvinninga. Stuðningur við unga tónlistarmenn, til verkefna og samstarfs af ýmsu tagi, skýtur styrkari stoðum undir þennan mikilvæga vaxtarbrodd í íslensku menningarlífi.
Stjórn Aurora er sannfærð um að stofnun og starfsemi Kraums tónlistarsjóðs muni skapa forsendur til að auðvelda ungu, íslensku tónlistarfólki að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri með markvissri vinnu og samstarfi einstaklinga, fagaðila og fyrirtækja.“
Ráðstöfunarfé
Til ráðstöfunar hjá Kraumi hverju sinni er árlegt framlag Auroru til tónlistarsjóðsins auk vaxtatekna, annars arðs af stofnfé og annarra fjármuna sem sjóðnum kann að áskotnast. Sjóðurinn veitir framlögum og gjöfum viðtöku frá einstaklingum, fyrirtækjum og félögum og ráðstafar tekjum í samræmi við ákvæði samþykkta þar að lútandi.
Stofnfé Kraums er 20 milljónir króna og Aurora leggur sjóðnum að auki til alls 30 milljónir króna á næstu árum, þ.e. 15 milljónir króna árið 2009 og 15 milljónir króna árið 2010, samtals 50 milljónir á þessum þremur árum.
Sjóðurinn er deild innan Aurora velgerðasjóðs með sjálfstæðan fjárhag og eigin stjórn. Stjórn Aurora skipar stjórnarformann Kraums. Aðrir stjórnarmenn eru tilnefndir af formanni Kraums og samþykktir af stjórn Aurora.
Framkvæmdastjórn og fagráð
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Ágúst Jóhannsson, johann[@]kraumur.is
Stjórn:
María Huld Markan Sigfúsdóttir, stjórnarformaður Kraums
Ásmundur Jónsson
Eldar Ástþórsson
Fagráð:
Anna Hildur Hildibrandsdóttir, framkvæmdarstjóri Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, ÚTÓN
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Árni Matthíasson, blaðamaður á Morgunblaðinu
Björk Guðmundsdóttir, tónlistarmaður
Mist Þorkelsdóttir, deildarforseti Tónlistardeildar Listaháskóla Íslands
Kjartan Sveinsson, hljómborðsleikari Sigur Rósar
SJÓN (Sigurjón Birgir Sigurðsson), rithöfundur.
Framkvæmdastjóri velur listamenn/verkefni, gerir tillögur til stjórnar Kraums um styrkhafa og leggur samninga þar að lútandi fyrir hana. Unnt er að sækja um með tilgreind verkefni en einnig getur framkvæmdastjóri haft frumkvæði að samningum við listamenn. Framkvæmdastjóri gefur nánari upplýsingar.Fagráð Kraums hittist að minnsta kosti einu sinni á ári.

