Aurora velgerðarsjóður
Aurora velgerðasjóður stofnaði Kraum þann 23. janúar í því skyni að styrkja ungt tónlistarfólk til listsköpunar og kynningar á verkum sínum.
Aurora lagði nýja sjóðnum til 20 milljónir króna árið 2008, 15 milljónir króna 2009 og aftur 15 milljónir króna 2010 eða alls 50 milljónir króna.
Aurora velgerðarsjóður var settur á laggirnar að frumkvæði hjónanna Ingibjargar Kristjánsdóttur landslagsarkitekts og Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa. Sjóðurinn var stofnaður 23. janúar 2007, á fimmtugsafmæli Ólafs.
Megintilgangur sjóðsins er að stuðla að og styrkja menningar- og góðgerðastarfsemi á Íslandi og erlendis. Áhersla er lögð á stuðning við verkefni sem geta haft víðtæk áhrif og virkað sem vítamínsprauta á samfélagið. Í skipulagsskrá kemur fram að í hlutverki sjóðsins felist „fjárhagslegur stuðningur við einstaklinga, félög, félagasamtök og samfélög af ýmsum toga, auk stuðnings við þá sem höllum fæti standa vegna aðstæðna sem þeir búa við, svo sem vegna veikinda, slysa eða af öðrum ástæðum.“
Stefnt er að því að með tímanum verði Aurora velgerðasjóður virkt og lifandi stuðningsafl í þróunarhjálp sem starfi náið með stjórnvöldum, hjálparstofnunum og íbúum á hverjum stað. Að sama skapi leitast Aurora við að veita menningarstarfsemi á Íslandi öflugan stuðning. Verkefni eru valin að vandlega athuguðu máli og þeim er fylgt eftir eins og kostur er. Sjóðurinn leggur áherslu á styrkja hvert verkefni myndarlega þannig að stuðningurinn geti jafnvel skipt sköpum fyrir tilurð og framgang þess. Aurora mun í sumum tilvikum hafa frumkvæði að verkefnum og hrinda þeim í framkvæmd í samvinnu við þá sem hlut eiga að máli.
Fimm manna stjórn var kjörin á stofnfundi Aurora velgerðasjóðs. Hún ber ábyrgð á stefnumörkunog rekstri sjóðsins og hefur sett sér starfsreglur.
Stofnfé Aurora velgerðasjóðs er einn milljarður króna sem stofnendur lögðu honum til. Ráðstöfunarfé sjóðsins hverju sinni er vaxtatekjur og annar arður af stofnfé, auk annars fjár sem sjóðnum kann að áskotnast.
>> Heimasíða Aruroru velgerðarsjóðs; www.aurorafund.is

