Fyrsta breiðskífa Nordic Affect væntanleg

October 20, 2009

Kammerhópurinn Nordic Affect hefur lokið upptökum á sinni fyrstu breiðkskífu.

Nordic Affect hefur lokið við upptökur á sinni fyrstu breiðskífu í Skálholtskirkju – en Kraumur tónlistarsjóður vinnur með hópnum að plötunni og styður við upptökur og útgáfu hennar. Ekki er enn kominn útgáfudagur á plötuna.

Nordic Affect var stofnaður árið 2005 með það að markmiði að miðla ríkidæmi tónlistar 17. og 18. aldar og flytja samtímatónlist. Nafn hópsins er tilvísun í þá yfirlýstu stefnu tónskálda fyrri alda að miðla ‘affect’ eða tilfinningu til áheyrandans með tónsmíðum sínum. Með stofnun hópsins myndaðist starfsvettvangur fyrir tónlistarmenn sem eiga það sameiginlegt að vilja með flutningi sínum varpa nýju ljósi á verk fyrri alda og halda á ókönnuð mið.

Hópuririnn heldur tvenna tónleika á næstu dögum undir yfirskriftinni “Frá Putlandi til Parísar”. Þeir fyrri fara fram í í Þjóðmenningarhúsinu, Reykjavík fimmtudaginn 22. október og hefjast kl. 20.00. Þeir seinni fara síðan fram í Dönsku kirkjunni í París, sunnudaginn 25. október klukkan 13.00.

Nordic Affect skipa;
Halla Steinunn Stefánsdóttir, fiðla
Georgia Browne, þverflauta
Guðrún Hrund Harðardóttir, víóla
Hanna Loftsdóttir, selló og gamba
Karl Nyhlin, lúta
Guðrún Óskarsdóttir, semball

Hlekkir
Nordic Affect