Umsóknaferli 2012 að hefjast

January 2, 2012

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012

Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað árið 2012. Auglýst er sérstaklega eftir verkefnum sem ekki eru hafin áður en úthlutað er úr sjóðnum. Úthlutað verður um miðjan mars.

Ráðgert er að veita í kringum 8.000.000 króna til verkefna á sviði íslenskrar tónlistar að þessu sinni.

Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni. Umsóknarferlið er einnig opið fyrir viðburði, námskeið og fræðsluverkefni.

Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins og ráð til umsækjenda hér að neðan.

Opnað verður fyrir umsóknarferlið þann 6. janúar.

Kraumur notast ekki við umsóknareyðublöð en allar umsóknir skulu innihalda:

  • Yfirlit yfir verkefnið
  • Upplýsingar um markmið þess
  • Fjárhagsáætlun og upphæð sem sótt er um
  • Æskileg fylgigögn; tónlist á CD og ferilskrá (CV)
  • Mikilvægt er að láta netfang og símanúmer fylgja umsókninni

Fjárhagsáætlun skal innihalda yfirlit yfir alla þekkta innkomuliði og útgjöld. Auk þess útlistun á því hvernig stuðningur Kraums getur nýst. Vinsamlegast takið fram ef sótt er um styrki í aðra sjóði eða verkefnið nýtur stuðnings annarstaðar frá.

  • Mælst er til þess að umsóknir séu ekki lengri en 2 síður, auk fjárhagsáætlunar og fylgigögnum
  • Umsóknum skal skila bréfleiðis.
  • Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau þau ráð sem gefin eru umsækjendum hér að neðan.

Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2012.

(Póststimpill gildir, og því hægt að setja umsóknina í póst miðvikudaginn 1. febrúar)

Framkvæmdastjóri Kraums veitir fúslega upplýsingar um umsóknarferlið og er umsækjendum innan handar er varðar ráðgjöf við að skila inn umsókn. Skoðið einnig ráð til umsækjenda hér að neðan.

Skil á umsóknum – Umsóknir skulu sendar:

Kraumur tónlistarsjóður

PO Box 124

121 Reykjavík

Frekari upplýsingar veitir:

Jóhann Ágúst Jóhannsson, framkvæmdastjóri Kraums

S: 894 4321 / johann[a]kraumur.is

————————————————————————————

Ráð til umsækjenda

– Miklu máli skiptir að umsækjendur geti skilgreint markmið verkefnisins vel. Útskýrt hvernig það þjónar viðkomandi listamanni/hljómsveit við að koma verkum sínum á framfæri eða nýtist með öðrum hætti.

– Mikilvæg er að fjárhagsáætlun sé raunhæf og skýr. Tilgreina skal þá upphæð sem sótt er um.

– Kjósi listamaður/hljómsveit að sækja um fleiri en eitt verkefni, skal aðgreina umsóknirnar vel og skila inn sérstakri umsókn fyrir hvort verkefni um sig.

– Umsækjendum er bent á að kynna sér markmið og samþykktir sjóðsins, sem og þau verkefni sem Kraumur hefur stutt og unnið með árin 2008, 2009, 2010, 2011 og 2011 sumar.

– Undanfarin ár hefur Kraumur stutt listamenn/hljómsveitir við plötugerð en það skal sérstaklega tekið fram að líkt og í fyrra mun sjóðurinn líta frekar til þess að styðja listamenn/hljómsveitir við að koma áður útgefnum verkum/plötum á framfæri, styrkja viðburða- og námskeiðahald, hjálpa við kynningu á nýju efni á innlendum og erlendum vettvangi með t.d. stuðningi við tónleikahald og gerð kynningarefnis.

– Kraumur vill styðja og ýta undir nýsköpun og metnað á tónlistarsviðinu.

– Í vali á verkefnum sem hljóta stuðning er sérstaklega litið til þess að þau komi viðkomandi listamanni/hljómsveit lengra á ferli sínum og/eða hjálpi við að koma tónlistinni á framfæri á verðugum vettvangi.

————————————————————————————