Eftirtaldir listamenn hljóta Kraumsverðlaunin 2016
Kraumsverðlaunin voru afhent í níunda sinn í dag sex listamönnum og hljómsveitum.
Kraumsverðlaunin, árleg plötuverðlaun tónlistarsjóðsins Kraums sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðarsjóðs, eru afhent í níunda sinn í ár. Kraumsverðlaununum er ætlað að kynna og styðja við útgáfustarfsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Verðlaunin eru ekki bundinn ákveðinni tónlistarstefnu og þeim fylgja engir undirflokkar.
Kraumsverðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 2008 og hafa alls 39 íslenskar hljómsveitir og listamenn hlotið þau fyrir verk sín. Má þar nefna; Ásgeir, Mammút, Anna Þorvaldsdóttir, Hjaltalín, Retro Stefson, Hildur Guðnadóttir, Daníel Bjarnason, Cell 7, Sóley, Lay Low, ADHD, Ojba Rasta, FM Belfast, Hugi Guðmundsson, Agent Fresco, Samaris, Moses Hightower, Grísalappalísa, Helgi Hrafn Jónsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Andreas Kristinsson, Sin Fang, Ísafold kammersveit og Ólöf Arnalds.
Kraumsverðlaunin 2016 hljóta eftirfarandi listamenn fyrir plötur sínar:
Alvia Islandia – Bubblegum Bitch
Amiina – Fantomas
GKR – GKR
Gyða Valtýsdóttir – Epicycle
Kælan mikla – Kælan mikla
Páll Ívan frá Eiðum – This is my shit
Allar íslenskar plötur sem komið hafa út á árinu eiga möguleika á að hreppa Kraumsverðlaunin. Bæði plötur sem eru gefnar út á geisladisk og vínyl, sem og útgáfur á netinu. Útgáfustarfsemi á netinu hefur færst mikið í vöxt síðustu ár og er stór hluti þeirra verka sem íslenskir listamenn og hljómsveitir hafa gefið út á árinu aðeins fáanleg með þeim hætti. Flestar verðlaunaplöturnar eru þó einnig fáanlegar á geisladisk og/eða vinyl , og plata GKR fæst í formi morgunkornspakka. Dómnefnd Kraumverðlaunanna vill minna á að íslensk tónlist er fyrirtaks jólagjöf.
Það er von aðstandenda Kraumsverðlaunanna að Kraumslistinn og verðlaunin sjálf veki athygli á þeirri grósku og fjölbreytni sem einkennir íslenskt tónlistarlíf og plötuútgáfu. Alls voru rúmlega 200 hljómplötur til hlustunar og umfjöllunar hjá dómnefnd og því ljóst að mikið er að gerast í útgáfustarsemi íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita.
DÓMNEFND
Kraumsverðlaunin eru valin af fjórtán manna dómnefnd sem skipað er fólki sem hefur margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina í ár skipa; Árni Matthíasson (formaður), Andrea Jónsdóttir, Anna Ásthildur Thorsteinsson, Alexandra Kjeld, Arnar Eggert Thoroddsen, Benedikt Reynisson, Berglind Sunna Stefánsdóttir, Heiða Eiríksdóttir, Helga Þórey Jónsdóttir, Hildur Maral Hamíðsdóttir, Jóhann Ágúst Jóhannsson, Tanya Pollock, Trausti Júlíusson og Óli Dóri.
Dómnefndin hefur hlustað á og tekið til umfjöllunar rúmega 200 hljómplötur og útgáfur íslenskra listamanna og hljómsveita sem komu út á árinu við val sitt á Kraumsverðlaununum 2016.
UM KRAUMSVERÐLAUNIN
Kraumsverðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 2008 og hafa alls 39 íslenskar hljómsveitir og listamenn hlotið þau fyrir verk sín. Má þar nefna; Ásgeir, Mammút, Anna Þorvaldsdóttir, Hjaltalín, Retro Stefson, Hildur Guðnadóttir, Daníel Bjarnason, Cell 7, Sóley, Lay Low, ADHD, Ojba Rasta, FM Belfast, Hugi Guðmundsson, Agent Fresco, Samaris, Moses Hightower, Grísalappalísa, Helgi Hrafn Jónsson, Anna Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Andreas Kristinsson, Sin Fang, Ísafold kammersveit og Ólöf Arnalds. Í fyrra hlutu Teitur Magnússon (27), Misþyrming (Söngvar elds og óreiðu), Mr. Silla (Mr. Silla), asdfhg (Steingervingur), Tonik Ensamble (Snapshots) og Dj Flugvél og geimskip (Nótt á hafsbotni) verðlaunin.
Kraumsverðlaununum og úrvalslista þeirra, Kraumslistanum, er ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita með því að verðlauna og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem þykja skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Allar íslenskar plötur sem koma út á hvert eiga möguleika á að komast á Kraumslistann og hreppa Kraumsverðlaunin. Bæði plötur sem eru gefnar út á geisladisk og/eða vínyl, sem og útgáfur á netinu.
Kraumsverðlaunin snúast ekki um eina ákveðna verðlaunaplötu heldur að beina kastljósinu að Kraumslistanum í heild og síðan að velja og verðlauna sérstaklega sex hljómplötur sem hljóta Kraumsverðlaunin. Tímasetning tilnefninga og úthlutunar Kraumsverðlaunanna er miðuð við jólagjafaflóðið, þegar tónistarlistamenn reiða sig hvað mest á plötusölu og ætla má að sóknarfæri séu fyrir íslenska tónlist að rata í fleiri jólapakka enda er tónlist góð og sígild jólagjöf.
TILNEFNINGAR KRAUMSLISTINN
Alls voru 25 plötur tilnefndar til Kraumsverðlaunnanna í ár og valdar á úrvalslista verðlaunanna, Kraumslistann. Kraumslistinn 2016 er svolhljóðandi:
Alvia Islandia – Bubblegum Bitch
Amiina – Fantomas
Andi – Andi
Aron Can – Þekkir stráginn
Arve Henriksen, Hilmar Jensson, Skúli Sverrisson – Saumur
asdfhg – Kliður
Bára Gísla – Brimslóð
CYBER is CRAP – EP
EVA808 – Psycho Sushi
GKR – GKR
Glerakur – Can’t You Wait
Gyða Valtýsdóttir – Epicycle
Indriði – Makril
Kef LAVÍK – Vesæl í kuldanum
Kuldaboli – Vafasamur lífstíll
Kælan mikla – Kælan mikla
Naðra – Allir vegir til glötunar
Pascal Pinon – Sundur
Páll Ívan frá Eiðum This is my shit
Reykjavíkurdætur – RVK DTR
Samaris – Black Lights
Sigrún Jónsdóttir – Hringsjá
Snorri Helgason – Vittu til
Suð – Meira Suð
Tófa – Teeth Richards
KRAUMUR & AURORA VELGERÐARSJÓÐUR
Aðstandandi Kraumslistans er tónlistarsjóðurinn Kraumur sem starfræktur er á vegum Auroru velgerðarsjóðs. Kraumur hefur það að meginhlutverki að efla íslenskt tónlistarlíf, fyrst og fremst með stuðningi við unga listamenn, auðvelda þeim að vinna að listsköpun sinni og koma verkum sínum á framfæri innanlands sem utan.