Kraumslistinn 2009 tilkynntur

December 16, 2009

Viðurkenning og stuðningur Kraums fyrir metnað og frumleika í íslenskri plötugerð.

Kraumslistinn, sérstök viðurkenning Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka sem þótt hafa framúrskarandi, frumleg og spennandi í íslenskri plötuútgáfu á árinu, var kynntur annað árið í röð í dag, miðvikudaginn 16. desember.

Athöfnin fór fram í húsnæðinu að Vonarstræti 4B – sem rýmir Kraum tónlistarsjóð, Auroru hönnunarsjóð og Hönnunarmiðstöð Íslands. Þórunn Sigurðardóttir stjórnaformaður Kraums bauð fólk velkomið, Eldar Ástþórsson framkvæmdastjóri Kraums kynnti hugmyndafræði Kraumslistans og stuðninginn sem sjóðurinn mun veita þeim plötum sem dómnefnd valdi, og formaður dómnefndar Árni Matthíasson tilkynnti um Kraumslistann 2009. Fram komu Hjaltalín, Helgi Hrafn Guðmundsson og Morðingjarnir sem öll léku órafmagnað.

Í fyrra voru það plötur Agent Fresco (Lightbulp Universe), FM Belfast (How to Make Friends), Hugi Guðmundsson (Apocrypha), Ísafold (All Sounds to Silence Come), Mammút (Karkari) og Retro Stefson (Montana) sem hlutu sérstaka viðurkenningu.

Framkvæmd Kraumslistans er með þeim hætti að sérstök dómnefnd velur úrvalslista (20 plötur) og síðan Kraumslistann 2009 (5 plötur) . Líkt og í fyrra sá dómnefnd sérstaka ástæðu til að verðlauna fleiri en fimm plötur að þessu sinni, en samkvæmt reglum Kraumslistans hefur dómnefnd leyfi til að auka við fjölda verðlaunaplatna, ef sérstakt tilefni þykir til.

Dómnefnd Kraumslistans er skipuð 16 aðilum sem síðustu ár hafa starfað við umfjöllun og spilun á íslenskri tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðlunar. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson blaðamaður. Listi yfir alla meðlimi dómnefndar má finna

Kraumslistinn 2009

Í ár hljóta eftirtaldir listamenn viðurkenningu og stuðning fyrir plötur sínar;

* Anna Guðný Guðmundsdóttir – Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
* Bloodgroup – Dry Land
* Helgi Hrafn Jónssonon – For the Rest of My Childhood
* Hildur Guðnadóttir – Without Sinking
* Hjaltalín – Terminal
* Morðingjarnir – Flóttinn mikli

Stuðningur Kraums

Kraumur mun styðja við þær plötur sem dómnefnd velur á Kraumslistann, og jafnframt auka við möguleika listamannanna bakvið þær til að koma verkum sínum á framfæri utan landsteinana, með því að kaupa ákveðinn fjölda af plötunum og dreifa til ýmissa starfsmanna tónlistarbransans erlendis (tónlistarhátíðir, plötuútgáfur, umboðsskrifstofur o.s.frv.), í samvinnu við Útflutningskrifstofu íslenskrar tónlistar (ÚTÓN).

Markmið Kraumslistans

Kraumslistanum er ætlað að styðja við plötuútgáfu íslenskra hljómsveita og listamanna – með því að styðja og vekja sérstaka athygli á því sem er nýtt og spennandi – og þeim verkum sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika. Kraumslistinn er ekki bundinn neinni ákveðinni tónlistarstefnu og honum fylgja engir undirflokkar. Það er von aðstandenda Kraumslistans að valið veki athygli á flottri og fjölbreyttri íslenskri plötuútgáfu, nú þegar jólagjafaflóðið er við það að skella á, og listamenn reiða sig hvað mest á plötusölu.

  • Að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljómsveita.
  • Verðlauna og verkja athygli á því sem er nýtt og spenanndi í íslenskri tónlist ár hvert á sviði plötuútgáfu.
  • Verðlauna og vekja athygli á þeim verkum sem sem skara fram úr í gæðum, metnaði og frumleika.

Kraumslistinn 2009 – Úrvalslisti

Óhætt að segja að árið í ár hafi verið öflugt hvað plötuútgáfu varðar, enda fjölmargir spennandi titlar sem ekki komast á úrvalslista Kraumslistans 2009. Eftirtalda plötur voru valdar á úrvalslista dómnendar og voru þannig tilnefndar til Kraumslistans 2009:

* Anna Guðný Guðmundsdóttir – Tuttugu tillit til Jesúbarnsins
* Árni Heiðar Karlsson – Mæri
* Bloodgroup – Dry Land
* Bróðir Svartúlfs – Bróðir Svartúlfs EP
* Dikta – Get it together
* Egill Sæbjörnsson – Egill S
* Feldberg – Don’t Be A Stranger
* Helga Rós Indriðadóttir og Guðrún Dalía – Jórunn Viðar, Sönglög
* Helgi Hrafn Jónsson – For the Rest of my Childhood
* Hildur Guðnadóttir – Without Sinking
* Hjaltalin – Terminal
* Kimono – Easy Music for Difficult People
* Lights on the highway – Amanita Muscaria
* Morðingjarnir – Flóttinn mikli
múm – Singa Along to Songs that You Don’t Know
* Pascal Pinon – Pascal Pinon
* Ruxpin – Where Do We Float From Here
* Sudden Weather Change – Stop! Handgrenade In The Name Of Crib Death’understand?
* The Deathmetal Supersquad – Dead Zeppelin
* Víkingur Heiðar – Debut

Frekari upplýsingar

Um Kraumslistann
Markmið og verðlaun
Dómnefnd og reglur